RÚV
Þú veist betur
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kjarnorka - 2.hluti 12.06.2022 55:00
Í síðasta þætti þá byrjuðum við að fara yfir kjarnorku með okkar eigin kjarnorkuverkfræðing, Ágústi Valfells. Við fórum yfir söguna, reyndar líka bara yfir það hvernig atóm eru upp byggð, að náttúran er sífellt að losa orku úr kjörnum atómanna allt í kringum okkur, en bara mismikið. Hvernig Curie fjölskyldan, þar sem frægust er líklegast Marie Curie uppgötvaði eða einangraði þessi efni sem spiluðu...
Kjarnorka - 1.hluti 05.06.2022 55:00
Í þætti sem ég gerði um rafmagn fyrir einhverju síðan nefndi Kári Hreinsson gestur minn í það skipti að Frakkar væru með flest kjarorkuver í heiminum sem kom mér á óvart á þeim tíma. Síðan þá hef ég verið að lesa mér til um alls kyns tengt heiminum sem við búum í, alls kyns efni sem leynast út um allar trissur og þá fattaði ég að kjarnorkuver eru til dæmis eitthvað sem ég veit að búa til rafmagn,...
Vín - 2.hluti 29.05.2022 55:00
Í síðasta þætti af Þú veist betur þá opnuðum við víntunnuna og ræddum við Dominique Pledel um hvaðan vín kemur, en það á uppruna sinn á kákasusfjöllum fyrir mörg þúsund árum þar sem fólk byrjaði að gerja vínber. En við náðum einungis að klára söguna, eða eins mikið af henni og þú getur farið yfir á 40 mínútum svo núna er nútíminn eftir og framtíðin maður lifandi. En ef við byrjum á deginum í dag,...
Vín - 1.hluti 22.05.2022 55:00
Nú veit ég ekki hvað klukkan er hjá þér hlustandi góður, þátturinn er á dagskrá Rásar 2 kl 8 á sunnudagsmorgni og ég veit þó fyrir víst að þá er vín kannski ekki ofarlega í huga. En þó ég hafi aldrei ?fattað? þetta fyrirbæri þá er deginum ljósara að vín hefur verið partur af samfélagi manna lengi, hvort sem við drekkum það eða ekki. Það er líka mikilvægt að skilgreina strax um hvað ræðir, hér á ég...
Flensur 15.05.2022 55:00
Það er nánast ómögulegt að telja hversu oft maður hefur lent í þvi í gegnum tíðina að nefna við einhvern að maður sé kannski með smá kvef og fá svarið ?Það er nú einhver flensa að ganga?. Á hverju ári fáum við boð í inflúensusprautu, við heyrum um fuglaflensu sem er að ganga yfir ákkúrat núna til dæmis og svo erum við auðvitað að koma út úr löngu covid flensu ferli. En hvað eru flensur? Hver ber e...
Börn 08.05.2022 55:00
Það er alveg ljóst að öll verðum við einhvernveginn til. Þá er ég ekki að tala um býflugur og blómin, eða þegar tveir einstaklingar elska hvort annað og úr verður barn. Það getur auðvitað spilað stóra rullu en stærstu rulluna spilar náttúruna sjálf og þróun sem hefur átt sér stað í mörg þúsund ár. Ferlið er flókið og svo magnað að það er í raun lygilegt, eða það var að minnsta kosti það sem mig gr...
Rafíþróttir 01.05.2022 55:00
Við virðumst vera frekar íþróttalega sinnuð þessa dagana þar sem við förum frá íþróttasálfræðinni í síðasta þætti yfir í rafíþróttir. Sjálfur hef ég spilað og haft gaman af tölvuleikjum síðan ég var krakki, og verandi fæddur árið 1986 þá hef ég haft tækifæri til að fylgjast með þróun leikja og internetsins frá fyrstu hendi. Ég sat inn í geymslu með PC turn og spilaði leiki af diskettum en spila nú...
Íþróttasálfræði 10.04.2022 55:00
Í dag ætlum við að ræða einn kima af sálfræði sem hefur verið mér ofarlega í huga í frekar langan tíma. Fyrir þau ykkar sem fylgjast eitthvað með íþróttum hefur orðið íþróttasálfræðingur kannski komið ykkur oftar og oftar fyrir sjónir, þannig hefur það verið fyrir mig að minnsta kosti. Mig langaði þessvegna til að fræðast aðeins meira um þessa undirgrein af sálfræði og vita um hvað hún snérist, hv...
Fæðubótarefni 03.04.2022 55:00
Ég var að ræða við félaga mína um daginn um áhugaverð efni til að fjalla um fyrir Þú veist betur og einn þeirra spurði beint út, fæðubótarefni, er þetta allt bara kjaftæði? Ég tók hann á orðinu og byrjaði að íhuga hvernig væri best að nálgast þetta efni. Sem við fyrstu sýn virðist kannski frekar einfalt, en er það svo í raun alls ekki. Það er oft óljóst hvað átt er við, og eins og mun koma í ljós...
NATO 27.03.2022 53:38
Þessa dagana erum við að upplifa frekar skringilega tíma, fólk á mínum aldri er að upplifa stríð sem virkar einhvernveginn aðeins nærri okkur en oft áður og þar af leiðandi erum við oft að tala um hluti og hugsanlega mynda okkur skoðun á hlutum sem við höfum ekki endilega þurft að gera áður. Ég ímyndaði mér þá að það væri varla til betri tímasetning til að setjast niður og læra meira um þetta fyri...
Býflugur 20.03.2022 27:00
Við höldum okkur kannski í sama kima og í síðasta þætti þar sem við töluðum um dýralækningar en minnkuð viðfangsefnin kannski örlítið. Ég er nefnilega ekki svo viss um að dýralæknar séu mikið af koma býflugum og skyldmennum þeirra til bjargar. Eða mér þætti það frekar furðulegt ef svo er. En ég hef sjálfur heyrt meira og meira talað um býflugur á þessum síðustu árum, heyrt af mikilvægi þeirra og h...
Dýralækningar 13.03.2022 50:11
Þá erum við komin aftur almennilega af stað með Þú veist betur og í þetta skiptið ætlum við að ræða aðeins um starf sem öll þau sem eiga eða hafa átt gæludýr kannast vel við. Þau annast þessa einstaklinga sem okkur þykir svo vænt um en mér hefur oft liðið eins og þetta sé tiltölulega vanþakklát starf eða hugsanlega bara misskilið. Ég ákvað því að athuga málið enn frekar og fékk til mín Hönnu Arnór...
Alls kyns tengt kvikmyndum og sjónvarpi 06.03.2022 55:00
Nú þegar ég er kominn úr öðrum verkefnum og Þú veist betur að fara aftur af stað langaði mig til að taka saman alls kyns búta úr viðtölum sem ég tók fyrir þættina Með verbúðina á heilanum um hvernig það er að sinna hinum ýmsu hlutverkum varðandi kvikmyndagerð. Það getur verið að sum ykkar hafi heyrt eitthvað af þessu, þó hér séu á ferðinni líka óklippt viðtöl sem rötuðu ekki í heild sinni í þættin...
Jólin 19.12.2021 55:00
Nú eru jólin á næsta leiti, í raun bara 5 dagar þangað til við setjumst niður, borðum góðan mat og opnum pakka vonandi umkringd okkar besta fólki. En ég hef oft velt því fyrir mér hvaðan allar þessir hefðir koma, skata á þorláksmessu, aðfangadagsmatur sem fyrir mig var alltaf hamborgarhryggur og auðvitað stærsta spurningin hverjir eru þessir jólasveinir og hvaðan koma þeir eiginlega? Hún Jóna Símo...
Refir 12.12.2021 49:15
Vinnslan á þessum þætti er orðin þannig að ég er alltaf að hugsa um hvað gæti verið gaman að tala um, hvað veit ég lítið um en væri til í að vita meira. Hvað gæti öðrum fundist gaman að heyra meira um? Oft kemur eitthvað fram í samtölum sem hljómar áhugavert, annað, eins og umræðuefni þáttarins í þetta skiptið, kemur bara eins og elding í hausinn á mér. Eins og til dæmis refir. Ég hugsaði um allar...
Peningar 05.12.2021 53:27
Hvað er það sem getur valdið áhyggjum, gleði og andvaka nóttum? Jafnvel þó við eigum nóg, þá væri fínt að eiga aaaaðeins meira? Það er oft talað um hversu erfitt það sé að mæla hamingju, og útaf þeirri ástæðu hefur oft verið reynt að tengja það við viðfangsefni okkar í þetta skipti. Peninga. Sum okkar virðast fæðast með peningavit, önnur okkar eiga aðeins erfiðara með þá að fara, ég viðurkenni fús...
Bílar 28.11.2021 55:00
Það er stór dagur í lífi flestra þegar þau verða 17 ára og hægt að taka bílpróf, ég man að það var allavega tilfellið hjá mér á sínum tíma. Ökuskólinn er eitthvað sem við höfum mörg reynslu af, og flest skoðun á, en þó þar fari fram okkar helsta kennsla varðandi bíla þá er hún mestmegnis varðandi það hvernig eigi að haga sér í umferðinni og hvernig hún virkar. Ökukennsla eru síðan þessir taugatrek...
Ópíóðar 21.11.2021 55:00
Það er nánast öruggt að hvert og eitt okkar hefur upplifað einherskonar sársauka, og hér á ég við líkamlegan sársauka. Við meiðum okkur, lendum í slysi, þurfum að fara í aðgerð eða hvernig sem það er. Þegar við upplifum þennan sársauka, eða verki, þá reynum við oft hvað við getum að losna undan honum. Flest þekkjum við paracetamol eða íbúfen sem er hægt að nálgast í næsta apóteki og veitir frið fr...
Um blinda - Seinni hluti 14.11.2021 55:00
Í síðasta þætti byrjuðum við á samtali um það að vera blind, þau Iva og Keli settust niður með mér og við ræddum allt sem þessu tengist, þau gáfu mér opið skotleyfi til að spyrja að öllu milli himins og jarðar, eitthvað sem við ætlum að halda áfram með þættinum í þetta skiptið. Við enduðum þáttinn síðast þegar við vorum að færa okkur yfir í ýmsar tæknipælingar og þar tökum við upp þráðinn.
Um Blinda - Fyrri hluti 07.11.2021 55:00
Það hefur verið venjan í þáttunum hingað til að ræða fyrirbæri eða hluti sem er kannski auðvelt að festa fingur á hvað eru nákvæmlega. Eða hvernig þeir eru skilgreindir. Flugvélar, bensín, vegakerfið og þar fram eftir götunum. Í þetta skiptið breytum við aðeins til og skoðum aðeins lífsstíl. Þó það sé ekki einu sinni gott orð til að lýsa efni þáttarins heldur. Ég þarf nefnilega að segja eina sögu...
Að brugga bjór 31.10.2021 42:13
Það er kannski fínt að setja ákveðin fyrirvara eða viðvörun varðandi þátt dagsins, hann snýst um bjór og hvernig hann er bruggaður, ekki til að hvetja til drykkju, heldur til að fræðast meira um þennan drykk sem ég held að sé nú óhætt að segja að flestir landsmenn viti að minnsta kosti af, hvort sem þau drekki hann eða ekki. Ég gerði mér ferð niður í Malbygg þar sem ég hitti bruggarann Berg Gunnar...
Samfélagsmiðlar 24.10.2021 55:00
Við notum þau öll, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við höfum skoðun á þeim og notkun okkar á þeim, hver hefur ekki muldrað setningu um að reyna að hanga ekki svona mikið á facebook, eða instagram, hvernig sem það er. En hver er saga þessara miðla, hvernig komu þeir til og hvernig virka þeir. Ég fékk til mín Sigurð Svansson sem veit meira en flest varðandi þessi mál.
Sambönd 17.10.2021 55:00
Ég vona að þátturinn í þetta skiptið stuði ekki of marga, því oft er óþægilegt þegar spegli er haldið upp að okkur án fyrirvara. Það er samt nánast óhjákvæmilegt að fara í einhverskonar samanburð þegar talið berst að samböndum eða kynlífi. Það er þó ekki tilgangur þáttarins heldur frekar að ræða hvað sé gert í para og kynlífsráðgjöf, og kannski hvað við getum gert til að laga okkar eigin sambönd....
Stærðfræði 10.10.2021 55:00
Við ráðumst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í þætti dagsins, enda er viðfangsefnið allt í kringum okkur. Án stærðfræði væri erfitt að gera nokkurn skapaðann hlut, hún er mögulega eitthvað sem fer í taugarnar á okkur framan af, það er nokkurnveginn bókað mál að á einhverjum tímapunkti í grunnskóla mun einhvern spyrja ?Af hverju þurfum við eiginlega að læra þetta?? í stærðfræði tíma. Það er o...
Bólusetningar 03.10.2021 55:00
Í þætti dagsins myndu sumir segja að við séum að tala um mál málanna. Er orðið bólusetning hugsanlega orð ársins? Hvað sem því líður þá virðast þær vera á milli tannanna á fólki, sem er kannski undarlegt þar sem að það hafa farið fram alls kyns bólusetningar hér á landi í mjög langan tíma. Mislingar, hlaupabóla, lömunarveiki, allt eru þetta sjúkdómar sem voru hérna einu sinni algengir en hafa nána...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.