RÚV

Þú veist betur

Society IS ↓ 142 episodes

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Svefn 21.10.2020

Umræðuefni dagsins ætti ekki að vera nokkrum einstaklingi óviðkomandi, eða fjarlægt. Þetta er eitthvað sem við gerum að minnsta kosti einu sinni á sólahring og oftar en ekki sífellt að vandræðast með. Sofum við of mikið, of lítið, illa, seint? Hvernig lögum við það sem er að og hvernig hámörkum við þennan tíma sem tekur kannski 1/3 af sólahringnum okkar. Ég fékk til mín Ásthildi Margréti Gísladótt...

Krabbamein 2.hluti 07.10.2020

Í síðasta þætti byrjuðum við að tala um krabbamein, fræðast um söguna, hvað það er sem er í raun hættulegt við krabbameinið, hvað dregur fólk til dauða og hvaða kerfi innan líkamans spila helstu rullur í baráttu okkar við þennan sjúkdóm. Í þessum þætti höldum við áfram að tala við Örvar Gunnarsson krabbameinslækni sem við kynntumst í síðasta þætti og förum aðeins yfir hvað það er sem við getum ger...

Krabbamein 1.hluti 30.09.2020

Orðið krabbamein er líklegast og því miður orð sem við öll höfum heyrt eða átt við, hvort sem það erum við sjálf eða einhver í kringum okkur. En hvað er krabbamein? Fyrir mörgum er það bara orð sem þýðir eitthvað slæmt, án þess þó að við vitum endilega hvað það er nákvæmlega. Ég fékk til mín krabbameinslækninn Örvar Gunnarsson til að útskýra málið betur fyrir mér og þá með það að markmiði að tala...

Sorp 23.09.2020

Nafnið á þætti dagsins er hugsanlega ekki fallegasta umfjöllunarefni sem við höfum átt við, það er kannski ekki í daglegum hugsunarhring okkar allra að hugsa mikið um sorp, fyrirbæri sem er allt í kringum okkur og við eigum við dag hvern. Við hendum því í ruslið heima hjá okkur, svo út í tunnu og pælum ekki meira í því. En hvað svo? Hvert fer þetta allt, hvað er gert við þetta og getum við bara ge...

Fjármál fótboltans 16.09.2020

Það eru margir sem fylgjast með fótbolta nú til dags enda ein stærsta íþrótt í heimi ef ekki bara sú allra stærsta. Enska knattspyrnan og Ísland virðast vera nátengd fyrirbæri og liðin þar með fjölmarga fylgjendur hér á landi. En hvernig þróaðist fótboltinn á þann stað sem hann er í dag og hvaðan koma allir peningarnir manni finnst oft verða bara meiri og meiri, launamál leikmanna komin út fyrir þ...

Rafmagn 24.06.2020

Rafmagn er allt í kringum okkur, við komum heim, kveikjum ljósin og byrjum að elda án þess að pæla mikið í því hvað sé að gerast. Við bara gerum einfaldlega ráð fyrir því að hlutirnir virki, að þegar við stingum einhverju samband þá sé málið bara dautt. En hvaðan kemur rafmagnið okkar, hvernig er það sett upp og hvað gerir það að verkum að við erum ekki sífellt að fá straum hér og þar? Ég fékk til...

Samantekt í tilefni 17.júní 17.06.2020

Í sérstökum 17.júní þætti Þú veist betur lítum við aðeins yfir farinn veg og heyrum klippur úr liðnum þáttum, hugsanlega eitthvað sem fólk missti af eða gæti verið góð áminning um að hlusta aftur. Það er aldrei of oft hlustað eins og einhver sagði. Skammtafræði, fornleifafræði, erfðir, umferðaljós, bensín og flugvélar koma meðal annars við sögu.

Skammtafræði 2.hluti 10.06.2020

Í síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um hugtak sem er mörgum hugsanlega framandi, skammtafræði. Ég fékk Sigurð Inga prófessor í HR til að tala við mig og fórum við yfir söguna, um hvað málið kannski snýst að einhverju leyti, eins mikið og hægt er að gera það á 25 mín en það voru frekar áhugaverðar hliðar sem voru eftir. Ef við vitum, svona nokkurnveginn, um hvað skammtafræðin snýst, hvert...

Skammtafræði 1.hluti 03.06.2020

Í undanförnum þáttum hef ég oft byrjað á því að nefna umræðuefni þáttarins og talað um að þetta sé allt í kringum okkur án þess þó að við tökum mikið eftir því. Sjaldan hefur það átt jafn vel við og í þetta skiptið þegar umræðuefnið er skammtafræði. Persónulega hafði ég heyrt um fyrirbærið en gat ekki útskýrt það á neinn hátt, því fannst mér tilvalið að kafa aðeins dýpra í efnið og fá sérfræðing t...

Fornleifafræði 2.hluti 27.05.2020

Í síðasta þætti kom Lísabet Guðmundsdóttir til mín og við ræddum um fornleifafræði, fórum þá yfir helst hvaða staðir verða fyrir valinu, hvernig þetta byrjaði hér heima, þá mest í kringum íslendingasögurnar. Við snertum aðeins á hversu mikið af sögulegum verðmætum eru að tapast í veðri og vindum, áður en við náum að skoða og uppgötva hvað átti sér stað þar. Í þættinum í dag höldum við áfram, en fö...

Fornleifafræði 1.hluti 20.05.2020

Við höfum öll heyrt um fornleifafræði, sumir tengja það við Indiana jones, aðrir við silfur Egils í Mosfellsdal. En hvenær byrjuðum við að pæla í þessu, hvernig fer þetta fram, hvað er verið að gera núna og hvernig lítur framtíðin, eins skringilega og það hljómar, út fyrir fornleifafræði. Ég fékk Lísabet Guðmundsdóttur fornleifafræðing til mín til að fara yfir þetta allt með mér og í næstu tveim þ...

Vegakerfið 13.05.2020

Í þættinum í dag fjöllum við um fyrirbæri sem er allt í kringum okkur, við notum það, sjáum og pirrumst yfir því þegar það er verið að laga eða bæta það og við komumst ekki þangað sem við ætlum jafn hratt og við héldum. En höfum við einhvertíman pælt í því hvað þetta kerfi alltsaman, vegakerfi landsins, er stórt? Hvar byrjaði það og hvernig? Og hvernig heldur maður áfram að þróa það til framtíðar...

Flugvélar 06.05.2020

Í þættinum forvitnumst við um flugvélar, sögu þeirra, hver var fyrstur til að fljúga, hvernig þær virka og hvað framtíðin ber í skauti sér varðandi flugsamgöngur. Ef þú hefur einhvertíman setið í flugvél, hugsanlega stressaður eða stressuð, hugsandi um hvernig í ósköpunum þú samþykktir að ferðast í einhverju fyrirbæri sem þú skilur ekki gæti verið góð hugmynd að hlusta. Matthías Sveinbjörnsson ver...

Umferðaljós 29.04.2020

Umfjöllunarefni þáttarins í þetta skiptið eru umferðaljós, fyrirbæri sem hefur líklegast áhrif á líf okkar allra, að minnsta kosti flestra, hvort sem við erum akandi eða ferðumst með öðrum leiðum. Grétar Þór Ævarsson kom í heimsókn en hann vinnur hjá Reykjavíkurborg á samskiptasviði og er líklegast sá aðili á landinu sem veit hvað mest um málið. Ef þið hafið einhvertíman verið stopp á rauðu ljósi...

Lýðheilsa 22.04.2020

Í þætti dagsins tökum við fyrir hugtakið Lýðheilsa, eitthvað sem við höfum hugsanlega öll heyrt áður en mögulega ekki alveg áttað okkur á því hvað þýðir. Ég fékk Guðrúnu Magnúsdóttur lýðheilsufræðing til mín í heimsókn og við fórum yfir söguna, hvað sé átt við með lýðheilsu (er þetta bara nöldur?) og hver framtíðin er. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Erfðir 15.04.2020

Í þessum þætti af Þú veist betur ætlum við að reyna að tækla erfðir, DNA. Hvað er þetta efni sem virðist stjórna svo mörgu varðandi margt í lífi okkar og hvernig gerir það nákvæmlega það. Kári Stefánsson taugalæknis og taugameinisfræðingur sem flestir Íslendingar ættu að þekkja var gestur þáttarins og reyndi að svara þessum stærstu spurningum varðandi þetta flókna viðfangsefni. Umsjón: Atli Már St...

Bensín 08.04.2020

Í fyrsta þætti Þú veist betur fjöllum við um Bensín. Þórður Gunnarsson master í viðskiptafræði með áherslu á orkumál og viðamikla reynslu í bransanum talar við mig um hvaðan við fáum þetta dýrmæta efni, hvað við gerum við það og hvernig það er verðlagt. Af hverju er bensín ódýrara á sumrin en á veturna? Svarið fæst í Þú veist betur. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Listen to the Þú veist betur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.