Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.thjodmal.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#143 – Allir gluggar opnir en enginn heima – Stríðfréttaritarar Þjóðmála fara yfir stöðuna 30.06.2023 50:30
Kristján Johannessen og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu þekkja manna best stöðuna á austur-vígstöðum. Þeir fara yfir undarlega atburðarrás síðustu helgi þegar það leit út fyrir uppreisn í rússneska hernum, hvernig staðan er núna og hvað kann að vera framundan. Hlaðvarp Þjóðmála nærir og fræðir þjóðina.
#142 – Sáttin sem fól í sér sprengju – Hvað gerist næst í Íslandsbankamálinu? – Már setur sig í heimsklassa 27.06.2023 1:20:15
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabankans á starfsháttum Íslandsbanka, hvaða áhrif hún kunni að hafa, hvaða viðbrögð hún ætti að kalla fram og annað sem tengist málinu. Þá er fjallað stuttlega um ævintýralegt viðtal þar sem fyrrverandi seðlabankastjóri reynir, með undraverðum hætti, að endurskrifa söguna sér í hag.
#141 – Skyndilausnir skila ekki viðunandi árangri – Frelsismálin draga línur í sandinn – Áslaug Arna í viðtali 24.06.2023 59:21
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðherra, ræðir um það af hverju það skiptir máli í efnahagslegu tillitil að fá stráka til að hefja háskólanám, hvernig við berum okkur saman við önnur ríki og hvað við gætum mögulega lært af öðrum þjóðum. Þá gagnrýnir hún stjórnmálamenn sem líta á skattgreiðendur sem hlaðborð sem hægt sé að velja úr og ræðir um það hvernig stjórnmálin e...
#140 – Twitter stjórnsýsla Svandísar – Gildi og Hampiðjan – Forræðishyggjan á Þjóðminjasafnið 21.06.2023 1:11:44
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um bann við hvalveiðum, skrýtna umræðu um orkumál, stöðuna í súru ríkisstjórnarsamstarfi og annað það helsta í pólitíkinni. Þá tökum við stöðuna á sameiningu VÍS og Fossa, fjöllum um útboð Hampiðjunnar og af hverju Gildi er ekki á lista yfir hluthafa, bílastæðamál við Leifsstöð, stöðuna í áfengissölu og margt fleira.
#139 – Ráðherrabreytingar og ráðherrapirringur – Framsókn dregur fram Jónas frá Hriflu 19.06.2023 1:15:41
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um aðdraganda, áhrif og afleiðingar ráðherraskipta í ríkisstjórn, þau áhrif sem Jón Gunnarsson hefur haft og hvaða áhrif Guðrún Hafsteinsdóttir kann að hafa, það hvort að umræða um málefni útlendinga hafi breyst og þá hvernig, hvernig þingheimur tekst á við breytingar á áfengismálum, það hvort að stjórnmálin séu eftirsóttur starfsvettvangur og hvaða at...
#138 – Stífla í orkuframleiðslu og íbúðauppbyggingu – Sigurður Hannesson fer yfir heitu málin 16.06.2023 47:12
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um orkumál og það hvort að stjórnvöld hafi sett sér óraunhæf markmið í loftslagsmálum, um uppbyggingu á íbúðamarkaði og mat á því hvaða áhrif þessi tvö atriði hafa á lífsgæði hér á landi. Þá er rætt um stöðuna á fjármálamarkaði og fyrirhugaðar sameiningar fjármálafyrirtækja, samkeppnishæfi landsins og margt annað.
#137 – Heykvíslunum mætt með Gucci tösku – Átök um verðmæti fyrirtækja 12.06.2023 50:45
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um ráðningu nýs framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sameiningar fyrirtækja á borð við VÍS og Fossa sem og Regins og Eikar, niðurskurð á Karólínska spítalanum og margt fleira.
#136 – Ásgeir varpar sprengjum – Mýtan um elítusamfélagið 08.06.2023 54:30
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um ummæli seðlabankastjóra um ríkissáttasemjara og verkalýðshreyfinguna, rætt er um verkfall BSRB, mýtuna um elíusamfélög, hverjir það eru sem greiða skatta í raun og veru og margt fleira gagnlegt.
#135 – Á heimleið frá Svíþjóð – Laun ráðherra – Vel heppnað útboð Hampiðjunnar 04.06.2023 27:00
Við skelltum í upptöku á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi og kveðjum Svíþjóð í bili. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um væntanlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar við verðbólgu, launahækkanir æðstu ráðamanna, hlutafjárútboð Hampiðjunnar og fleira.
#134 – Í beinni frá Svíþjóð – Heimsókn á Karolinska – Reykbombur Viðreisnar um gjaldmiðlamál 02.06.2023 1:02:26
Við leggjum land undir fót og kíkjum til Stokkhólms. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heimsókn hlaðvarpsins til Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð og það hvort – og þá hvað – megi læra af rekstri þessa stóra spítala. Þá er einnig rætt um brotthvarf ríkissáttasemjara úr starfi, undarlegum málflutningi Viðreisnar um gjaldeyrismál og margt fleira.
#133 – Óumdeildir stjórnmálamenn eru gagnslausir – „Nýja vinstrið“ festir woke-isma í lög 30.05.2023 1:28:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um aðdragandann að myndun ríkisstjórnar árið 2013, um mistökin við að verja minnihlutastjórn falli árið 2009 og mörg af þeim pólitísku álitamálum sem við erum að eiga við í dag. Rætt er um óumdeilda stjórnmálamenn sem Sigmundur Davíð segir gagnslausa, átök við embættismenn og það hvernig stjórnmálamenn hafa afsalað...
#132 – Einmana Seðlabanki í stríði við verðbólgu 24.05.2023 53:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem virðist standa einn í baráttu við verðbólguna. Rætt er um hlutverk vinnumarkaðarins og ríkisins sem virðast stikkfrí af allri ábyrgð á núverandi stöðu. Þá er rætt um stöðu bankanna og möguleika þeirra á erlendri fjármögnun, nýlegt viðtal við formann Samfylkingarinnar og margt fleira.
#131 – Hver á vindinn og hvað gerist þegar ríkið verður of stórt? 18.05.2023 45:25
Ragnar Árnason hagfræðiprófessor ræðir um auðlindanýtingu og það hvort að réttlætanlegt sé að skattleggja nýtingu auðlinda með öðrum hætti en annað. Einnig er rætt um það hvernig hægt er að takast á við verðbólgu og hvaða afleiðingar verðbólga hefur í nútíð og framtíð, sem og afleiðingar þess þegar ríkisvaldið verður of stórt og umsvifamikið.
#130 – Lítill mótmælafundur en stór leiðtogafundur – Tvískinnungur Pírata – Galopin lyfjagátt 14.05.2023 1:05:00
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir heitustu málin. Rætt er um erindisleysi í kringum mótmælafund um helgina, tvískinnung þingmanna Pírata, vandræði Lyfju vegna aðgangs starfsmanna að lyfjagátt, leiðtogafund Evrópuráðsins í vikunni og fleira.
#129 – Og þá kom steypiregn og ríkið óx og óx 11.05.2023 56:51
Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um fjölda ríkisfyrirtækja og hvað mögulega sé hægt að gera með öll þessi fyrirtæki, um ríkisstjórnarsamstarfið, um það hvort að stjórnmálamenn hafi hæfileika og getu til að takast á við alvöru verkefni, hvort að ríkisstjórnin sé búin að missa tökin á ríkisútgjöldum, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að missa tengingu við atvin...
#128 – Velkomin á áfangastaðinn Raunveruleika – Marel í vandræðum – Engin þörf fyrir aukin lífsgæði? 04.05.2023 1:01:15
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um öra verðlækkun á Marel sem hefur áhrif á allan hlutabréfamarkaðinn, uppgjör Festi sem er á skjön við umræðu um meintar verðhækkanir matvörurisa, það hvort að bankarnir eiga að lina þjáningar fólks vegna hækkandi vaxta, hlutverk Seðlabankans sem stendur einn í baráttu við verðbólguna, það hvort að við þurfum í raun og veru aukin lífsgæði, hugmyndir...
#127 – Engar rósir á borðum ríkisstjórnarinnar – Vondur díll fyrir Einar í borginni 01.05.2023 1:43:03
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um rómantíkina sem er horfin úr ríkisstjórnarsamstarfinu, um orkumál og vindmyllur, erfiða fjárhagsstöðu borgarinnar og vonlausa stöðu Einar Þorsteinssonar, aðför að sjávarútvegi og margt fleira. Vönduð umræða í vönduðu hlaðvarpi þar sem fjallað er um stjórnmál, viðskipti og efnahagsmál með fjölbreyttum hætti.
#126 – Gagnsókn í Úkraínu – Bjóðum kafbátana velkomna – Hverjir hefja þriðju heimsstyrjöldina? 27.04.2023 48:30
Kristján Johannessen og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu hafa skrifað og fjallað manna mest um stríði í Úkraínu. Í hlaðvarpi Þjóðmála ræða þeir um stöðuna í stríðinu, áhrif þess á alþjóðastjórnmálin, hvernig næstu vikur geta orðið og það hvort að mögulegt sé að sjá fyrir endi á átökunum. Þá er rétt um komur bandarískra kafbáta til Íslands, möguleikana á þriðju heimsstyrjöldinni sem gæti h...
#125 – Andvökunætur Alvotech – Bjagaðar hugmyndir Katrínar um arðgreiðslur 19.04.2023 1:08:09
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um þær áskoranir sem Alvotech stendur frammi fyrir, hóflega væntingastjórnun til vaxtafyrirtækja og hvaða afleiðingar rekstur félagsins getur haft á íslenskt efnahagslíf. Þá er rætt um misheppnaða tilraun forsætisráðherra til að tengja saman arðgreiðslur og verðbólgu, aðför matvælaráðherra að sjávarútvegi, stöðuna á samruna VÍS og Fossa og undarlegan...
#124 – Rekstur Reykjavíkur í ruglinu og „rútínubréf“ í ruslinu – Þriðja vaktin fer yfir málin 13.04.2023 43:15
Þórður Gunnarsson hagfræðingur og Örn Arnarson , ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, fjalla um fjárhagsvandræði Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga, útskýringar – eða útúrsnúninga –borgarstjóra á vandanum, óðavöxt stjórnsýslunnar í borginni og hvort að hægt sé að snúa við þessu olíuskipi sem siglir í strand. Þá er fjallað um skýrslu starfshóps um endurskoðun þjónustuhandbókar um vetrarþ...
#123 – Páskauppgjörið með Herði og Stefáni Einari 05.04.2023 1:14:26
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í páskaskapi. Fjallað er um ársfund Seðlabankans og ráðningu aktívista í nýja stöðu innan bankans, breytingar á forystu Samtaka atvinnulífsins, leigubílstjóra sem líta á snjallsímavæðingu sem „verkfæri Satans“, orð forsætisráðherra um að atvinnulífið skuldi ríkinu pening, „táknræna“ skattahækkun, um gildi Gildis og margt fleira í gamansömum þætti með...
#122 – Ríkisstjórn í hagkvæmnishjónabandi – Dracula í blóðbankanum 31.03.2023 1:14:12
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, mæta í Þjóðmálastofuna eftir viðburðarríka viku. Rætt er um endalok Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðla, misheppnaða vantrauststillögu á dómsmálaráðherra og kostnaðarsamt ríkisstjórnarsamstarf, fjármálaáætlun sem enginn fagnar og það hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisútgjöl...
#121 – Hið ósýnilega stríð Seðlabankans – Kjósendur VG ávarpaðir úr Saga Class sæti 23.03.2023 1:13:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í sínu besta formi í afmælisþátt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt um er hækkandi stýrivexti, vandann sem felst í því að takast á við verðbólgu, um stjórnmálamenn sem fljúga á fyrsta farrými og vilja auka tekjur ríkisins frekar en að lækka útgjöld þess og margt annað áhugavert. Þá er sérstaklega rætt um valdabaráttu um og innan Seðlabankans, sem kann að hafa á...
#120 – Þórður Pálsson fer yfir stöðuna – Niðursveifla er lækning, ekki sjúkdómur 17.03.2023 51:30
Þórður Pálsson fer yfir stöðu mála í alþjóðlega fjármálakerfinu sem titrar aðeins þessa dagana – og ástæður þess að titringurinn er til staðar, um aukna skuldasöfnun ríkja, um efnahagshorfurnar framundan og ástæðuna fyrir því að hann telur að Seðlabankinn þurfi að hækka vexti enn frekar. Þá er rætt um hagnað og arðgreiðslur fyrirtækja, en hvoru tveggja er mikilvægt til að hagkerfin haldi áfram að...
#119 – Breytt heimsmynd – Þörf á alvöru umræðu um öryggis- og varnarmál 13.03.2023 1:04:00
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða áhrif stríðið þar hefur haft á samstarf vestrænna ríkja, hverjir mögulegir eftirmálar stríðsins geta orðið og annað þessu tengt. Þá er rætt um öryggis- og varnarmál hér á landi, skort á umræðu um þessa þætti á vettvangi stjórnmála, hugmyndir sem komið hafa fram um íslenskan her og fleira. Þá er einnig fjallað um sumt af því helsta...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.