Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#89 – Lífsgæðin í dag fengin að láni – Innantóm umræða um hækkun skatta – Flókin staða lífeyrissjóða 16.09.2022 1:21:52
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um útgjaldaaukningu í fjárlögum og það hvort að ríkisstjórnin hafi misst tökin á fjármálum ríkisins, hvar fjármagni er sóað, hvort að núverandi lífsgæði sé fengin að láni, hvort hægt sé að loka gatinu í hallarrekstri og fleira. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og það tjón sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið lífeyrissjóðum sem eru stórir hluthafar Sí...
#88 – Fjármál Reykjavíkur í járnum og hagkerfið í línudansi 09.09.2022 44:30
Guðný Halldórsdóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur og varaborgarfulltrúi, ræða um fjármál Reykjavíkurborgar, stöðuna í hagkerfinu, það hvernig við nálgumst umræðu um skatta, ofurlaun og margt fleira.
#87 – Það sem ekki má ræða og verkefnin sem stjórnmálin ráða ekki við – Þarf að fara fram covid-uppgjör? 02.09.2022 1:07:13
Andrés Magnússon og Sigríður Á. Andersen fara yfir allt það helsta, hvort tilefni sé til að hefja umræðu um svonefnd Evrópumál, hvaða áhrif stríðið í Úkraínu mun hafa hér heima sem erlendis, hvort að viðskiptaþvinganir eigi rétt á sér, um hvaða burði við höfum til að taka á móti flóttamönnum og hvort að stjórnmálamenn ráði við flókin verkefni. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að skoða og gera up...
#86 – Hvað gerir Evrópa þegar henni verður kalt? – Björn Bjarnason fyrir yfir stöðu mála erlendis og hér heima 26.08.2022 1:03:23
Björn Bjarnason , fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða afleiðingar átökin þar geta haft á stjórnmál í Evrópu og víðar, hvort að ríki vesturlanda séu að standa með úkraínsku þjóðinni í raun og veru, um viðskipti vestrænna ríkja við Rússland og fleira. Þá er rætt um vandræðagang meirihlutans í Reykjavík, skort á erlendum fjárfestingum á Íslandi og tilgangslausar ríkisstofnanir.
#85 – Krýning Kristrúnar – Er pláss fyrir pólitík í stjórnmálum? – Einar tekur boltann en ekki hitann 19.08.2022 1:33:39
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um framboð Kristrúnar Frostadóttur til formanns Samfylkingarinnar, stöðu flokksins og hvar hann ætlar að staðsetja sig í íslenskum stjórnmálum. Einnig er einnig rætt um stöðu annarra flokka og hvort að það séu leiðtogakrísur framundan, klúður meirihlutans í Reykjavík við úthlutun leikskólaplássa, það hvort að borgarstjóri sé búinn að missa salinn og hl...
#84 – Kampavín og kjarasamningar – Skemmdarverk Samkeppniseftirlitsins – Hver ræður hverju innan Seðlabankans? 10.08.2022 1:20:00
Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson ræða um brotthvarf forseta ASÍ og átök innan verkalýðshreyfingarinnar, áhrif þess á komandi kjaraviðræður, áhrif byltingarinnar á liðsmenn hennar og fleira þessu tengt. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og þann skaða sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið í því máli. Loks er rætt um möguleika Seðlabankans til að takast á við verðbólgu og efnahagsaðstæður – e...
#83 – Titringur á samfélagsmiðlum með Brynjari Níelssyni 03.08.2022 51:00
Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, ræðir um það helsta í pólitískri umræðu í dag, af hverju hann nennir að pirra vinstrið með pistlum sínum á samfélagsmiðlum, hvort og þá hvaða árangur það hefur og margt fleira.
#82 – Brekkusöngur kapítalismans með Hannesi Hólmsteini 28.07.2022 1:04:55
Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor mætir í gott spjall í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að hið frjálsa markaðshagkerfi hafi í raun sigrað eftir að ráðstjórnarríkin hrundu og hvort kapítalisminn sé ríkjandi sigurvegari. Þá er rætt um það hvort að hugsuðir og hugmyndafræðingar séu enn til, um baráttu hugmynda, popúlisma, slaufun...
#81 – Undir ægivaldi Samkeppniseftirlitsins – Eru tilnefninganefndir óþarfar? 12.07.2022 1:29:22
Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta sem er að gerast í viðskiptalífinu; kaup Ardian á Mílu, tafir Samkeppniseftirlitsins á því máli og fleirum, valdabaráttu í Festi og hlutverk tilnefninganefnda, nýjar skráningar á markaði, verðbólguhorfur, það hvort að aðgerðir Seðlabankans séu að virka eða ekki og margt fleira.
#80 – Tjáningarfrelsið sett á bálköstinn? 30.06.2022 1:07:30
Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður, fjallar um tjáningarfrelsi og þjóðfélagsumræðu, hver má segja hvað, hvenær og hvernig – og hver ekki. Þá er rætt um hvaða afleiðingar það hefur ef að dómstóll götunnar tekur sér aukið vald á kostnað réttarríkisins, hvort að opinberar stofnanir og embættismenn hafi gengið of langt gagnvart almenningi og fyrirtækjum og hvort það samfélaginu sé stjórnað a...
#79 – Hver er Jordan Peterson og hvað hefur hann að segja? 22.06.2022 52:30
Gunnlaugur Jónsson fjallar um kanadíska sálfræðinginn Jordan Peterson, sem kemur í annað sinn til Íslands og flytur fyrirlestur í Háskólabíó á laugardaginn. Peterson hefur vakið athygli víða um heim og bækur hans hafa verið metsölubækur. En hver er þessi maður, hvað hefur hann að segja og af hverju sækja svo margir, þá sérstaklega karlmenn, í það að hlusta á hann? Þessum spurningum og fleiri til e...
#78 – Hvað er að gerast í hagkerfinu? – Þegar Kína hnerrar fær Evrópa kvef 16.06.2022 56:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðu mála í hagkerfinu, af hverju hlutabréfaverð er að lækka, hvað sé að valda aukinni verðbólgu, áhrif stríðsins í Úkraínu á hagkerfi bæði hér heima og erlendis, hvort við séum að fara inn í kreppuástand og fleira til. Þá er einnig rætt um nýlegt útboð Ölgerðarinnar og Nova og það hvernig mismunandi aðferðir við útboðin geta haft áhrif á trúverðu...
#77 – Ekki pláss fyrir tvær drottningar í sömu höll – Er Einar Þorsteinsson íslenska útgáfan af Obama? 08.06.2022 53:50
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um myndun nýs meirihluta í Reykjavík, það hvort að Dagur B. Eggertsson hafi snúið sér út úr erfiðri stöðu og hvort hann eigi erindi í formannsstól Samfylkingarinnar, hvort að Einar Þorsteinsson sé íslenska útgáfan af Obama og hversu lengi nýjabrumið varir, hvort að komið sé fordæmi fyrir því að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá ríkisstjórnarsamstarfi og...
#76 – Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vakna 02.06.2022 52:45
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fv. borgarfulltrúi, ræðir um endurmyndun vinstri meirihluta í Reykjavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og áform vinstri aflanna að setja flokkinn út í horn í landsmálunum. Þá er rætt um dyggðarstjórnarmál, hneykslunarbylgjur og bergmálshella í stjórnmálaumræðu sem nær litlum framförum.
#75 – Hvort sem þú býrð á Seyðisfirði eða í Seattle 23.05.2022 1:00:10
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjallar um það af hverju rúmlega 500 manns höfðu áhuga á því að hlýða á fyrirlestur þar sem hún fjallaði um áherslur sínar í nýju ráðuneyti, hvort að stjórnvöld hafi raunverulegan áhuga því að efla nýsköpun og útflutningstekjur, hvort að íslenskir háskólar séu nógu góðir til að takast á við framtíðina og hvort að hægt sé að g...
#74 – Kosningarnar krufnar – Hversu lengi endist Framsóknarbylgjan? 15.05.2022 1:05:30
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna, hvað það var sem vakti athygli og hvað kom á óvart. Rætt er um Framsóknarbylgjuna sem tröllríður stjórnálunum, hvað er að baki henni og hversu lengi það dugir, veika stöðu Viðreisnar, varnarbaráttu Sjálfstæðisflokksins, það hvort að bankasala hafi haft áhrif á niðurstöður kosninganna og margt fleira.
#73 – Pólitíkin þarf að tala minna og gera meira til að einfalda líf fólks og fyrirtækja 09.05.2022 38:00
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fer yfir stöðuna nú þegar lokasprettur kosningabaráttunnar er hafinn í borginni. Í þættinum er fjallað um menntamál og lausnir á biðlistum í leikskóla, atvinnumál í borginni, hina umdeildu borgarlínu, endurtekið efni vinstri manna úr borgarstjórnarkosningum fyrri ára og margt fleira. Þá svarar Hildur ásökunum um það að hún hafi ekki mæ...
#72 – Samfylkingin búin að hafa 28 ár til að bæta menntamál í Reykjavík 06.05.2022 54:00
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík, ræðir um menntamál og stöðu þeirra hér á landi. Hún segir nóg komið að 28 ára yfirsetu Samfylkingarinnar og forvera hennar á menntamálum í Reykjavík og breytinga sé þörf á þeirri stefnu sem þar ríkir. Rætt er um starfsemi sjálfsætt starfandi skóla og viðhorf yfirvalda gagnvart þeim, þau hugtök og stefnur sem hafa...
#71 – Ofhituð umræða um bankasölu 29.04.2022 51:30
Hörður Ægisson, ritstjóri viðskiptamiðilsins Innherja á visir.is, og Örn Arnarson, ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, ræða um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvað tókst vel og hvað hefði betur mátt fara, undarlegan fréttaflutning af málinu, þekkingarleysi stjórnmálamanna og ýmislegt annað sem snýr að þessu máli sem mikið er í umræðunni þessa dagana.
#70 – Villta tryllta vinstrið í verkalýðshreyfingunni – Rangstæð stjórnarandstaða 20.04.2022 57:50
Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson fara yfir undarlega atburðarrás í Eflingu þar sem hreinsanir standa yfir, valdabaráttu innan verkalýðshreyfingarinnar og áhrifin sem þessi farsi kann að hafa á komandi kjaraviðræður. Þá er einnig fjallað um útboðið á hlut ríkisins í Íslandsbanka og það hvort að sú gagnrýni sem fram hefur komið eigi rétt á sér eða ekki, stöðu efnahagsmála og hvenær þolinmæ...
#69 – Bankasala á Búnaðarþingi – Skál í boðinu 08.04.2022 1:12:25
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvort að hún hafi verið vel heppnuð og leikþátt stjórnmálanna í kringum söluna. Þá er rætt um stöðu formanns Framsóknarflokksins eftir ummæli sem hann lét falla í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna en einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar. Með þættinum var drukkið rauðvín frá Þýskalandi sem gerði umr...
#68 – Bergmálshellar fjölmiðla – Friður rofinn í Evrópu 01.04.2022 1:23:50
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um stöðu og hlutverk fjölmiðla, hver það er sem skráir söguna og út frá hvaða forsendum, hvort að nýir miðlar minnki vægi hefðbundinna fjölmiðla, hvort að fjölmiðlar njóti í dag ritstjórnar og margt fleira sem snýr að fjölmiðlum. Þá er einnig rætt um stjórnmálaumræðu í kringum aðild að NATO og ESB í kjölfar átaka í Úkraínu.
#67 – Pólitískir leikþættir vekja meiri athygli en alvöru rökræður 25.03.2022 58:50
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur stundum lýst sér sem sérlegum varðhundi allra lasta. Hún ræðir hér um það hversu langt ríkisvaldið á að teygja sig í búa til dagmömmuríki til að gæta okkar fyrir okkur sjálfum, hvernig reglur um áfengisverslun og tæknifrjóvgun eru langt á eftir samfélagslegri þróun, hvort að yngri kynslóðir geri óeðlilegar kröfur til hins opinbera og það...
#66 – Það vill enginn vera í reiða liðinu - Don't Get High On Your Own Supply 14.03.2022 46:30
Friðjón Friðjónsson, sem sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, og Katrín Atladóttir, sem mun í vor láta af störfum sem borgarfulltrúi, fara yfir málefni Reykjavíkurborgar, hvernig vinstri meirihlutinn er með sömu kosningaglærur og fyrir fjórum árum en með breyttum ártölum, það hvort að borgarlínan sé mál sem þurfi að ræða aftur og aftur og margt annað sem sn...
#65 – Úrslit í prófkjörum krufin með kampavíni – Bókhaldsbrellur í borginni – Framboð í beinni útsendingu 08.03.2022 1:11:50
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson frá Morgunblaðinu fara yfir úrslit úr öllum helstu prófkjörum sem búið er að halda, hver unnu og hver töpuðu, hvaða áhrif niðurstöðurnar hafa, hvers má vænta úr þeim prófkjörum sem eftir eru og undirbúning sveitarstjórnarkosninga í vor. Þá er fjallað um bókhaldsbrellur Reykjavíkurborgar sem eiga að fegra slæman fjárhag borgarinnar, hvort það hafi verið í...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.