Þjóðmál

Þjóðmál

Society IS ↓ 439 episodes

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Author

Þjóðmál

Category

Society

Podcast website

www.thjodmal.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#139 – Ráðherrabreytingar og ráðherrapirringur – Framsókn dregur fram Jónas frá Hriflu 19.06.2023

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um aðdraganda, áhrif og afleiðingar ráðherraskipta í ríkisstjórn, þau áhrif sem Jón Gunnarsson hefur haft og hvaða áhrif Guðrún Hafsteinsdóttir kann að hafa, það hvort að umræða um málefni útlendinga hafi breyst og þá hvernig, hvernig þingheimur tekst á við breytingar á áfengismálum, það hvort að stjórnmálin séu eftirsóttur starfsvettvangur og hvaða at...

#138 – Stífla í orkuframleiðslu og íbúðauppbyggingu – Sigurður Hannesson fer yfir heitu málin 16.06.2023

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um orkumál og það hvort að stjórnvöld hafi sett sér óraunhæf markmið í loftslagsmálum, um uppbyggingu á íbúðamarkaði og mat á því hvaða áhrif þessi tvö atriði hafa á lífsgæði hér á landi. Þá er rætt um stöðuna á fjármálamarkaði og fyrirhugaðar sameiningar fjármálafyrirtækja, samkeppnishæfi landsins og margt annað.

#137 – Heykvíslunum mætt með Gucci tösku – Átök um verðmæti fyrirtækja 12.06.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um ráðningu nýs framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sameiningar fyrirtækja á borð við VÍS og Fossa sem og Regins og Eikar, niðurskurð á Karólínska spítalanum og margt fleira.

#136 – Ásgeir varpar sprengjum – Mýtan um elítusamfélagið 08.06.2023

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um ummæli seðlabankastjóra um ríkissáttasemjara og verkalýðshreyfinguna, rætt er um verkfall BSRB, mýtuna um elíusamfélög, hverjir það eru sem greiða skatta í raun og veru og margt fleira gagnlegt.

#135 – Á heimleið frá Svíþjóð – Laun ráðherra – Vel heppnað útboð Hampiðjunnar 04.06.2023

Við skelltum í upptöku á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi og kveðjum Svíþjóð í bili. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um væntanlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar við verðbólgu, launahækkanir æðstu ráðamanna, hlutafjárútboð Hampiðjunnar og fleira.

#134 – Í beinni frá Svíþjóð – Heimsókn á Karolinska – Reykbombur Viðreisnar um gjaldmiðlamál 02.06.2023

Við leggjum land undir fót og kíkjum til Stokkhólms. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heimsókn hlaðvarpsins til Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð og það hvort – og þá hvað – megi læra af rekstri þessa stóra spítala. Þá er einnig rætt um brotthvarf ríkissáttasemjara úr starfi, undarlegum málflutningi Viðreisnar um gjaldeyrismál og margt fleira.

#133 – Óumdeildir stjórnmálamenn eru gagnslausir – „Nýja vinstrið“ festir woke-isma í lög 30.05.2023

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um aðdragandann að myndun ríkisstjórnar árið 2013, um mistökin við að verja minnihlutastjórn falli árið 2009 og mörg af þeim pólitísku álitamálum sem við erum að eiga við í dag. Rætt er um óumdeilda stjórnmálamenn sem Sigmundur Davíð segir gagnslausa, átök við embættismenn og það hvernig stjórnmálamenn hafa afsalað...

#132 – Einmana Seðlabanki í stríði við verðbólgu 24.05.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem virðist standa einn í baráttu við verðbólguna. Rætt er um hlutverk vinnumarkaðarins og ríkisins sem virðast stikkfrí af allri ábyrgð á núverandi stöðu. Þá er rætt um stöðu bankanna og möguleika þeirra á erlendri fjármögnun, nýlegt viðtal við formann Samfylkingarinnar og margt fleira.

#131 – Hver á vindinn og hvað gerist þegar ríkið verður of stórt? 18.05.2023

Ragnar Árnason hagfræðiprófessor ræðir um auðlindanýtingu og það hvort að réttlætanlegt sé að skattleggja nýtingu auðlinda með öðrum hætti en annað. Einnig er rætt um það hvernig hægt er að takast á við verðbólgu og hvaða afleiðingar verðbólga hefur í nútíð og framtíð, sem og afleiðingar þess þegar ríkisvaldið verður of stórt og umsvifamikið.

#130 – Lítill mótmælafundur en stór leiðtogafundur – Tvískinnungur Pírata – Galopin lyfjagátt 14.05.2023

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir heitustu málin. Rætt er um erindisleysi í kringum mótmælafund um helgina, tvískinnung þingmanna Pírata, vandræði Lyfju vegna aðgangs starfsmanna að lyfjagátt, leiðtogafund Evrópuráðsins í vikunni og fleira.

#129 – Og þá kom steypiregn og ríkið óx og óx 11.05.2023

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um fjölda ríkisfyrirtækja og hvað mögulega sé hægt að gera með öll þessi fyrirtæki, um ríkisstjórnarsamstarfið, um það hvort að stjórnmálamenn hafi hæfileika og getu til að takast á við alvöru verkefni, hvort að ríkisstjórnin sé búin að missa tökin á ríkisútgjöldum, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að missa tengingu við atvin...

#128 – Velkomin á áfangastaðinn Raunveruleika – Marel í vandræðum – Engin þörf fyrir aukin lífsgæði? 04.05.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um öra verðlækkun á Marel sem hefur áhrif á allan hlutabréfamarkaðinn, uppgjör Festi sem er á skjön við umræðu um meintar verðhækkanir matvörurisa, það hvort að bankarnir eiga að lina þjáningar fólks vegna hækkandi vaxta, hlutverk Seðlabankans sem stendur einn í baráttu við verðbólguna, það hvort að við þurfum í raun og veru aukin lífsgæði, hugmyndir...

#127 – Engar rósir á borðum ríkisstjórnarinnar – Vondur díll fyrir Einar í borginni 01.05.2023

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um rómantíkina sem er horfin úr ríkisstjórnarsamstarfinu, um orkumál og vindmyllur, erfiða fjárhagsstöðu borgarinnar og vonlausa stöðu Einar Þorsteinssonar, aðför að sjávarútvegi og margt fleira. Vönduð umræða í vönduðu hlaðvarpi þar sem fjallað er um stjórnmál, viðskipti og efnahagsmál með fjölbreyttum hætti.

#126 – Gagnsókn í Úkraínu – Bjóðum kafbátana velkomna – Hverjir hefja þriðju heimsstyrjöldina? 27.04.2023

Kristján Johannessen og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu hafa skrifað og fjallað manna mest um stríði í Úkraínu. Í hlaðvarpi Þjóðmála ræða þeir um stöðuna í stríðinu, áhrif þess á alþjóðastjórnmálin, hvernig næstu vikur geta orðið og það hvort að mögulegt sé að sjá fyrir endi á átökunum. Þá er rétt um komur bandarískra kafbáta til Íslands, möguleikana á þriðju heimsstyrjöldinni sem gæti h...

#125 – Andvökunætur Alvotech – Bjagaðar hugmyndir Katrínar um arðgreiðslur 19.04.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um þær áskoranir sem Alvotech stendur frammi fyrir, hóflega væntingastjórnun til vaxtafyrirtækja og hvaða afleiðingar rekstur félagsins getur haft á íslenskt efnahagslíf. Þá er rætt um misheppnaða tilraun forsætisráðherra til að tengja saman arðgreiðslur og verðbólgu, aðför matvælaráðherra að sjávarútvegi, stöðuna á samruna VÍS og Fossa og undarlegan...

#124 – Rekstur Reykjavíkur í ruglinu og „rútínubréf“ í ruslinu – Þriðja vaktin fer yfir málin 13.04.2023

Þórður Gunnarsson hagfræðingur og Örn Arnarson , ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, fjalla um fjárhagsvandræði Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga, útskýringar – eða útúrsnúninga –borgarstjóra á vandanum, óðavöxt stjórnsýslunnar í borginni og hvort að hægt sé að snúa við þessu olíuskipi sem siglir í strand. Þá er fjallað um skýrslu starfshóps um endurskoðun þjónustuhandbókar um vetrarþ...

#123 – Páskauppgjörið með Herði og Stefáni Einari 05.04.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í páskaskapi. Fjallað er um ársfund Seðlabankans og ráðningu aktívista í nýja stöðu innan bankans, breytingar á forystu Samtaka atvinnulífsins, leigubílstjóra sem líta á snjallsímavæðingu sem „verkfæri Satans“, orð forsætisráðherra um að atvinnulífið skuldi ríkinu pening, „táknræna“ skattahækkun, um gildi Gildis og margt fleira í gamansömum þætti með...

#122 – Ríkisstjórn í hagkvæmnishjónabandi – Dracula í blóðbankanum 31.03.2023

Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, mæta í Þjóðmálastofuna eftir viðburðarríka viku. Rætt er um endalok Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðla, misheppnaða vantrauststillögu á dómsmálaráðherra og kostnaðarsamt ríkisstjórnarsamstarf, fjármálaáætlun sem enginn fagnar og það hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisútgjöl...

#121 – Hið ósýnilega stríð Seðlabankans – Kjósendur VG ávarpaðir úr Saga Class sæti 23.03.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í sínu besta formi í afmælisþátt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt um er hækkandi stýrivexti, vandann sem felst í því að takast á við verðbólgu, um stjórnmálamenn sem fljúga á fyrsta farrými og vilja auka tekjur ríkisins frekar en að lækka útgjöld þess og margt annað áhugavert. Þá er sérstaklega rætt um valdabaráttu um og innan Seðlabankans, sem kann að hafa á...

#120 – Þórður Pálsson fer yfir stöðuna – Niðursveifla er lækning, ekki sjúkdómur 17.03.2023

Þórður Pálsson fer yfir stöðu mála í alþjóðlega fjármálakerfinu sem titrar aðeins þessa dagana – og ástæður þess að titringurinn er til staðar, um aukna skuldasöfnun ríkja, um efnahagshorfurnar framundan og ástæðuna fyrir því að hann telur að Seðlabankinn þurfi að hækka vexti enn frekar. Þá er rætt um hagnað og arðgreiðslur fyrirtækja, en hvoru tveggja er mikilvægt til að hagkerfin haldi áfram að...

#119 – Breytt heimsmynd – Þörf á alvöru umræðu um öryggis- og varnarmál 13.03.2023

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða áhrif stríðið þar hefur haft á samstarf vestrænna ríkja, hverjir mögulegir eftirmálar stríðsins geta orðið og annað þessu tengt. Þá er rætt um öryggis- og varnarmál hér á landi, skort á umræðu um þessa þætti á vettvangi stjórnmála, hugmyndir sem komið hafa fram um íslenskan her og fleira. Þá er einnig fjallað um sumt af því helsta...

#118 – Sjáumst í næsta stríði – Miðlunartillaga og minnipokamenn 08.03.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á vinnumarkaði og hvað nú tekur við eftir að miðlunartillaga var samþykkt, rætt er um fjarlægan möguleika á þjóðarsátt gegn verðbólgu, um meint ofurlaun forstjóra og það hvaða hlutverki lífeyrissjóðir gegna við mótum starfskjarastefnu skráðra fyrirtækja, afsökunarbeiðni Aftenposten og fleira.

#117 – Verðbólga og vargöld á vinnumarkaði – Vinnumálaráðherra í felum 27.02.2023

Karítas Ríkharðsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða um hækkandi verðbólgu, deilu Eflingar á vinnumarkaði og fleira. Rætt er um það hvort og þá hvernig stjórnmálin eigi að bregðast við og hvaða áhrif núverandi staða kann að hafa á stjórnarsamstarfið. Þá eru ræddar vangaveltur um það hvort að Alþingi megi sín mikils gagnvart ráðuneytum og ríkisstofnunum þar sem þau síðarnefndu hafa talsvert svigrúm til...

#116 – Rútuslys á vinnumarkaði en Efling fær kaffi með forsætisráðherra 20.02.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjustu vendingar í vinnudeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins, boð um verkbann, hvort tilefni sé fyrir stjórnvöld til að grípa inn í málið, stöðu (og mistök) ríkissáttasemjara, orðræðunni um þá sem ekki lúta boðum Eflingar og margt fleira. Þá er rætt um fyrirhugaðan samruna VÍS og Fossa í samanburði við samruna Kviku og Íslandsbanka.

#115 – Réttlátt réttarfar – Jón Steinar fer yfir málin 13.02.2023

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fv. hæstaréttardómari, ræðir um þá gagnrýni sem hann hefur lagt fram á íslenska dómskerfið, það hvernig dómarar starfa og hvernig þeir eru skipaðir, hvaða afleiðingar það getur haft að gefa afslátt af grundvallarreglum réttarríkisins, fjallað er um dómara sem dæmdu bankamenn í fangelsi eftir að hafa sjálfir tapað töluverðum upphæðum og margt fleira.

Listen to the Þjóðmál podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.