Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#214 – Jack í kók fyrir Bessastaðakapphlaupið – Bjartasta vonin á markað 26.04.2024 52:59
Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson ræða um þau forsetaframboð sem komin eru fram, erfiðar spurningar sem frambjóðendur hafa fengið um lífsgildi sín og viðhorf, hvernig kannanir eru að þróast og fleira því tengt. Þá er rætt um stöðu verðbólgunnar, þróun og áhrif vaxta, skráningu Oculis á markað og annað skemmtilegt í líflegum þætti.
#213 – Reynum að hætta að rífast fyrir framan börnin 22.04.2024 58:31
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, fer yfir stöðuna í stjórnmálunum, undarlega grein nýs formanns VG um orkumál, skot Framsóknar á Samfylkinguna um helgina, stöðu Bjarna Benediktssonar, hvort að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn gætu mögulega unnið saman, um skrýtna stöðu í borginni og afneitun borgarfulltrúa á veruleikanum. Þá er rætt um komandi forsetakosningar, áhugavert viðtal við Ka...
#212 – Kjósendum mútað með eigin peningum – Kauptækifæri á markaði 18.04.2024 56:58
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem er líkleg til að viðhalda verðbólguþrýstingi, yfirlýsingar þeirra sem héldu því fram að hugtakið gróðaverðbólga væri raunverulegt, skrýtin átök bankaráðs Landsbankans við Bankasýsluna, árshátíðarferð Landsvirkjunar, fjármunina sem streyma til Rúv, hugmyndir um alheimsskatt og margt fleira.
#211 – Íran og Ísrael ræsa vélarnar – Albert Jónsson fer yfir stöðuna í alþjóðakerfinu 15.04.2024 1:11:03
Albert Jónsson, fv. Sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóðamálum, ræðir um áhrif og afleiðingar af árás Írans á Ísrael um helgina, stöðu Ísraels og viðbrögð alþjóðasamfélagsins, hvernig útlitið er framundan á þessu svæði, hvaða hagsmuni Kínverjar hafa á svæðinu og fleira þessu tengt. Þá er rætt um stöðuna í Úkraínu, hvort að Bandaríki og evrópsk ríki hafi brugðist Úkraínumönnum o...
#210 – Endurnýjuð heit í hagkvæmnishjónabandi ríkisstjórnarinnar – Flókin staða í hagkerfinu næstu mánuði 10.04.2024 1:18:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um skipun nýrrar ríkisstjórnar, hvort líklegt sé að hún nái að leysa þann ágreining sem ríkt hefur, hvaða aðrir möguleikar voru í boði, hvort að VG reyni að sprengja ríkisstjórnina síðar á árinu og hvort að gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokksins á Svandísi Svavarsdóttur hafi verið innantóm. Þá er rætt um stöðu Alvotech sem hefur valdið óróa á markaði...
#209 – Mamma fer í framboð og hinir finna bara út úr þessu 05.04.2024 1:02:44
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um nýjustu vendingar í pólitíkinni, forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, hvaða áhrif pólitísk fortíð hennar hefur og þá hvaða áhrif hún mun hafa, hverjir möguleikar annarra forsetaframbjóðenda eru, hvernig ný ríkisstjórn getur litið út, hvort að þessar breytingar feli í sér tækifæri fyrir aðra flokka og margt fleira.
#208 – Fullvissan í óvissunni – Björn Berg og Þórður Pálsson fara yfir stöðuna í hagkerfinu 01.04.2024 1:05:15
Björn Berg Gunnarsson og Þórður Pálsson fara yfir stöðu mála í hagkerfinu, hvort og hvenær megi vænta þess að vextir lækki, hvaða áhrif verðbólguvæntingar hafa, stöðuna á fasteignamarkaði, hvernig næstu ár kunna að líta út í efnahagslegu tilliti og margt fleira.
#207 – Páskaþáttur með Þorsteini Má Baldvinssyni 27.03.2024 1:20:25
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fjallar um sögu og uppbyggingu félagsins, hvernig það kom til að þrír ungir frændur ákváðu að reyna fyrir sér í sjávarútvegi, um framtíð greinarinnar og samkeppnina við erlenda risa, hvaða möguleikar kunna að felast í fiskeldi, hvort til greina komi að skrá Samherja í Kauphöllina, hvernig umræða um fiskveiðistjórnunarkerfið hefur þróast, 12 ára barátt...
#206 – Þú tryggir ekki (samskiptin) eftir á – Forsætisráðherra á ríkisstyrk 20.03.2024 1:15:10
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM, um ákvörðun Seðlabankans um óbreytta stýrivexti og ákall formanns VR um götuóreiðir, forstjóraskipti hjá Play og hvort að hægt sé að reka hér tvö alþjóðleg flugfélög, um hlaðvarpsgerð starfsmanna Rúv um sjálfa sig, um endalausar uppsprettur skattahækkana, um ríkisstyrk til forsætisráðherra og margt fleira.
#205 – Hér er enginn lítill í sér – Sigmundur Davíð í viðtali 15.03.2024 1:41:25
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum bæði hér og erlendis. Rætt er um þunga málaflokka sem stjórnmálin eiga erfitt með, hvort að gagnrýni Miðflokksins á Sjálfstæðisflokkinn eigi rétt á sér, hvort að erindi stjórnmálamanna sé það sama í aðdraganda kosninga og að kosningum loknum, um Samfylkinguna sem Sigmundur Davíð segir vera...
#204 – Hvað ætlar þú að gera við peninginn sem þú sparar með skólamatnum? – Frumvarp aðlagað að lægsta samnefnara á þinginu 11.03.2024 54:23
Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um stöðuna á vinnumarkaði í kjölfar undirritun kjarasamninga, ummæli stjórnarmanns VR um að það sé nóg til af fjármagni í þjóðfélaginu sem þurfi bara að sækja, ummæli Joseph Stiglitz um stýrivexti og verðbólgu, ímyndað samfélagslegt tap af meintu samráði skipafélaga, stjórnarkjör í Festi og undarlega hegðun lífeyrissjóða í aðdraganda kjörsins, fyrirhugaða sölu í...
#203 – Hugmyndir breyta heiminum – Þjóðmál á Iðnþingi - Aukaþáttur 09.03.2024 35:00
Hlaðvarpi Þjóðmála er annt um raunhagkerfið og var því að sjálfsögðu statt á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins, sem nú fagna 30 ára afmæli. Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs, og Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja og yfirgreinanda Þjóðmála. Þá er einnig rætt við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og...
#202 – Vinnumarkaðurinn ríkisvæddur með nýjum samningum – Ríkið vill matarsóun í skólum 08.03.2024 1:16:20
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjan kjarasamning sem undirritaður var í dag, hvaða áhrif hann hefur, hvað hann mun kosta, aðdraganda hans, undarlega aðkomu ríkisins að samningnum. Þá er rætt um þá aðila sem eiga ekki aðild að þessum samningi og hver staða þeirra er. Einnig er rætt um árásir á stjórnmálamenn, þörf á öryggisgæslu þeirra og annað því tengt.
#201 – Lífið er ekki málfundafélag – Hannes Hólmsteinn í viðtali 04.03.2024 1:44:09
Hannes Hólmsteinn Gissurarson ræðir um stöðuna í alþjóðakerfinu og pólitíkina hér heima í ítarlegu viðtali. Þá er fjallað um hlutverk háskóla, hvernig þjóðfélagsumræða er að þróast, rifjað er upp þegar hann ásamt fleirum stóð fyrir opnun ólöglegrar útvarpsstöðvar, rætt er um að það sé betra að flytja vörur og þjónustu á milli landa frekari en hermenn, hlutverk ríkisins í þeirri stöðu sem nú er kom...
#200 – Hér stöndum við og getum ekki annað 29.02.2024 1:17:07
Tímamótaþáttur í hlaðvarpi Þjóðmála, þáttur nr. 200. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta í viðskiptalífinu, nýtt nafn á sameinað félag Fossa og VÍS, bréf forstjóra Stoða til hluthafa, hversu oft sé hægt að nýta hækkað veiðigjald, samdrátt í hagkerfinu, viðbrögð Seðlabankans, stöðu Alvotech, undarlega baráttu gegn Rapyd, stöðuna í pólitíkinni og margt fleira.
#199 – Stjórnmálamenn þurfi að þora að taka afstöðu – Diljá Mist í viðtali 26.02.2024 1:14:50
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, ræðir um nýlega ferð sína til Úkraínu, um stöðuna í stjórnmálunum hér heima og erlendis, hvernig henni varð við þegar veist var að henni fyrir utan Alþingi nýlega, um stjórnmálamenn sem veigra sér undan því að taka afstöðu til mála, blýhúðun á regluverki og hvort að það séu einhverjar líkur á því að...
#198 – Gömlu byssurnar sóttar upp í hillu – Ríkisstjórnin með fyrirvara ofan á fyrirvara 23.02.2024 1:06:22
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna. Þeir ræða um skrautlega uppákomu í þinginu, hvernig umræða um útlendingamál hefur tekið breytingum, krísustjórnun RÚV fyrir hönd Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarsamstarfið, stöðu fjölmiðla, hlaðvarpsframleiðslu opinberra stofnana og margt fleira.
#197 – Kaldur vetur á austurvígstöðvum – Evrópa vaknar við vondan draum 20.02.2024 46:15
Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu og stríðsfréttaritari Þjóðmála, ræðir um stöðuna í Úkraínu, hvernig herjum Rússa og Úkraínumanna hefur orðið ágengt, hvort að vestræn ríki séu að standa sig í stuðningi við Úkraínu, um tækjatjón Svartahafsflotans, ummæli Trump um varnarmál Evrópuríkja og margt fleira.
#196 – Bjórkvöld Þjóðmála – Live from Kringlukráin 15.02.2024 1:23:33
Við færðum Þjóðmálastofuna á Kringlukrána og tókum upp þátt fyrir framan fullt hús af hlustendum sem nutu þess að vera viðstaddir upptöku á valentínusardaginn. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um undarlega umræðu stjórnmálamanna um HS Orku, hugmyndir VG um svonefnt atvinnulýðræði, um stöðu flugfélaganna og ferðaþjónustunnar, stöðuna í kjaraviðræðum auk þess sem teknar eru áhugaverðar...
#195 – Hversu margar ríkisstofnanir þarf í 400 þúsund manna samfélagi? 12.02.2024 1:02:13
Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte, ræða um samspil hins opinbera og einkageirans, hvort að líkur séu á því að opinberir aðilar nýti sér þær lausnir sem einkafyrirtæki hafa upp á að bjóða eða þá þekkingu og reynslu sem þau búa yfir, hversu margar ríkisstofnanir það þarf til að reka um 400 þúsund manna samfélag, hvernig gögn nýtast til f...
#194 – Að loknu Viðskiptaþingi – Hvað eru fylgistölur stjórnmálaflokka að segja okkur? 08.02.2024 1:22:59
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um Viðskiptaþing, hvernig Viðskiptaráð hefur þróast, hvort að stjórnendur í atvinnulífinu eigi að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og þá hvernig, um samskipti einkageirans og hins opinbera, hvort að áhersla fyrirtækja á samfélagsskýrslur fari þverrandi og fleira þessu tengt. Þá er einnig tekin umræða um stöðuna í stjórnmálunum, hvort að ólík afstaða stj...
#193 – Ísland er gulleyja full af tækifærum – Þórdís Kolbrún í ítarlegu viðtali 02.02.2024 1:17:25
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra og varformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum og á stjórnarheimilinu, þá gagnrýni sem ríkisstjórnin fær á sig fyrir að ná ekki saman um stór og mikilvægi mál, um fjármálaráðuneytið og ríkisfjármálin, fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka, hvernig hægt er að bregðast við stöðunni í Grindavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og margt fleira...
#192 – Verðbólgan kólnar og gul viðvörun á vinnumarkaði – Er ástæða til að stofna þjóðarsjóð? 31.01.2024 1:18:59
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hjaðnandi verðbólgu og útlitið framundan, hvort að von sá á vaxtalækkun, kjaraviðræður sem nú eru í frosti, ummæli Vilhjálms Birgissonar í nýlegu viðtali í Spursmálum, hvort að rétt sé að stofna þjóðarsjóð eða ekki, andstöðu Landverndar við framförum, um stöðu Alvotech og Marel og margt fleira.
#191 – Sannleikurinn er fyrsta fórnarlambið í stríði – Upplýst umræða um átökin fyrir botni Miðjarahafs 25.01.2024 1:20:51
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Bjarni Már Magnússon, prófessor og forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst, ræða um stöðuna fyrir botni Miðjarahafs, um þá skautun sem á sér stað í umræðu um þau mál, frjálslega notkun gildishlaðinna hugtaka, og margt annað sem tengist þeim átökum sem nú eiga sér stað á svæðinu.
#190 – Er fálkinn orðinn múkki? – Tvígrip á glasið og ólögleg blokkering 23.01.2024 1:14:30
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir atburði dagsins í pólitíkinni, vantrauststillögu sem var lögð fram en dregin til baka, aðdragandann og mögulegar afleiðingar, stöðuna í ríkisstjórnarsamstarfinu, aðgerðir vegna stöðunnar í Grindavík og þær ríkislausnir sem þar eru boðaðar, færslu utanríkisráðherra um mótmæli vegna hælisleitenda og margt fleira.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.