Þjóðmál

Þjóðmál

Society IS ↓ 439 episodes

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Author

Þjóðmál

Category

Society

Podcast website

www.thjodmal.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#189 – Launahækkanir en engar kjarabætur – Sáttartónninn brestur á hátónum 19.01.2024

Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur og Hörður Ægisson ræða um hvaða möguleikar eru til staðar varðandi húsnæði Grindvíkinga, hvaða áhrif það mun hafa á verðbólgu og vexti, hvað óvinsæl ríkisstjórn er líkleg til að gera, um stöðuna í kjaraviðræðum, um verðmætasköpun útflutningsgreina og margt fleira.

#188 – Svandís í vanda og siðfræðingarnir þagna – Árangur áfram, ekkert stopp í hlaðvarpi þjóðarinnar 09.01.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heitustu mál dagsins. Svandís Svavarsdóttir er í vanda og hlutabréfin eru græn. Það er ekki endilega orsakasamhengi þarna á milli en það er farið nánar yfir það í þættinum. Rætt er um stöðu matvælaráðherrans og ríkisstjórnarinnar, um þróun mála í kjaraviðræðum, dulda varasjóði ríkisins, stöðuna í orkumálum og afturhaldsáróður Landverndar, mögulegan...

#187 – Aukin orkuframleiðsla er forsenda framfara og hagsældar 05.01.2024

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og efnahagsráðgjafi Þjóðmála, ræða um orkumál í sögulegu og efnahagslegu samhengi. Rætt er um mögulegan orkuskort hér á landi, hvaða þýðingu það hefur að búa til orku, til hvers hún er nýtt, hvernig hægt er að auka orkuframleiðslu, hvernig við stöndum í samanburði við aðrar þjóðir og mar...

#186 – Guðni kveður Bessastaði – Margir (halda að þér séu) kallaðir en fáir útvaldir 02.01.2024

Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli...

#185 – Áramótaþáttur og flugeldasýning á Kringlukránni 30.12.2023

Það er mikill gestagangur í síðasta hlaðvarpþætti ársins sem tekinn er upp á Kringlukránni. Við horfum til viðskipta, atvinnulífs, stjórnmála og annarra þáttar þegar við förum yfir allt það helsta á árinu, tökum stöðuna um áramót og leggjum mat á komandi ár. Við förum yfir þetta í þremur lotum. Fyrst koma þeir Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson. Í lotu tvö koma þau Gréta María...

#184 – Ekkert jólastress, bara stjórnarkreppa – Tökum aðra mynd 22.12.2023

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um skipan sendiherra, stöðuna á stjórnarheimilinu og í stjórnmálunum almennt, ríkisstjórn sem þorir ekki að takast á við alvöru mál og annað það helsta sem við þurfum að vita fyrir jólin.

#183 – Þunn lína milli stjórnmála og loftslagsmála – Guðlaugur Þór mætir í Þjóðmálastofuna 18.12.2023

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, mætir í Þjóðmálastofuna og svarar spurningum um orku- og loftslagsmál, þau áhrif sem þessir málaflokkar hafa á stjórnmálaumræðu, skattlagningu og lagasetningu. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að staðsetja umhverfismál á vinsti-hægri ás stjórnmálanna, hvaða áhrif atvinnulífið hefur á þessa málaflokka, hvort að aðgerðir á Íslandi skip...

#182 – Yfirtökutilboð og verkfall hálaunastéttar – Möguleikinn á skynsömum kjaraviðræðum 15.12.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, málefni Marels, verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra sem eru að stórskaða okkur, hvaða kröfur aðilar vinnumarkaðarins munu leggja fram í komandi kjaraviðræðum, horfurnar í hagkerfinu, skort á umræðu um hlutabréfaverð og margt fleira.

#181 – Kyrrstaða er vond staða – Hvernig er hægt að bera betur í dag en í gær? 11.12.2023

Gestur Pálmason stjórnendaráðgjafi hefur á undanförnum árum unnið með stjórnendum fyrirtækja, leiðtogum innan félagasamtaka og stjórnmálamönnum bæði hér á landi og erlendis. Hann mætir í Þjóðmálastofuna og ræðir um það hvort að sömu lögmál gildi um leiðtoga í ólíkum geirum, um leiðtoga sem verða værukærir og lenda í kyrrstöðu, hvort að stefnumótun sé ofnotað hugtak, hvort og þá hvernig markmið við...

#180 – Aðventumorgunn og gestagangur á Jómfrúnni 07.12.2023

Þáttur dagsins var tekinn upp á Jómfrúnni. Þar mættu nokkrir góðir viðmælendur til að ræða meðal annars um listamannalaun, niðurstöðu Pisa könnunar, furðulega umfjöllun ríkisfjölmiðilsins um krónuna, leit að heimildarmönnum, það hvort að Icesave skipti lengur máli í umræðunni, málefni Marels og Eyri Invest, orkumál og margt margt fleira. Meginmarkmið þáttarins var þó að hafa gaman, svona eins og í...

#179 – Þingmaður handtekinn og hópferð til Dubai – Ekkert að sjá hér 01.12.2023

Það hefur hvorki þurft dyraverði né lögreglu í Þjóðmálastofuna hingað til. Það þurfti heldur ekki í dag þegar þeir Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson mættu og fóru yfir allt það helsta sem ber á góma í okkar ágæta samfélagi. Þar má nefna handtöku þingmanns og undarlega eftirmála þess, mikinn fjölda Íslendinga á loftslagsráðstefnu SÞ, hvort að loftslagsmál snúist í raun um það eða pólitíska hugm...

#178 – Björn Berg og Bergur Ebbi rýna inn í framtíðina 27.11.2023

Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari, ræða framtíðina í nýjasta hlaðvarpsþætti Þjóðmála. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig framtíðin lítur út og hvað hún beri í skauti sér en við vitum þó að hún kemur. Í þættinum ræðum við almennt um framtíðina, hvort við séum of upptekin af því að hugsa um hana, hvort það skiptir máli hvað við vitum eða vi...

#177 – Of mörg fordæmi fyrir fordæmalausum aðstæðum 24.11.2023

Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Konráð S. Guðjónsson, fráfarandi aðalhagfræðingur Arion banka og nýráðinn aðstoðarmaður fjármálaráðherra, ræða um stöðuna í hagkerfinu, peningamálafund Viðskiptaráðs og ummæli seðlabankastjóra þar, horfur í vaxtamálum, stöðuna í Grindavík, kjaraviðræður sem eru framundan og margt fleira.

#176 – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp ásamt öllu hinu 20.11.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson gera upp Hátíðarkvöld Þjóðmála sem haldið var á degi íslenskrar tungu í síðustu viku, þær viðurkenningar sem Þjóðmál veittu og margt fleira sem snýr að þessu vel heppnaða kvöldi. Þá er rætt um stöðuna í Eyri Invest sem hefur áhrif á stöðu Marel, hlutabréfakaup forstjóra, komandi stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, stöðuna í Grindavík og margt fleira.

#175 – Söknuður að samfélagi – Hvað verður um Grindavík og Grindvíkinga? 16.11.2023

Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Marine Collagen í Grindvík, og Vilhjálmur Árnason alþingismaður, sem einnig er búsettur í Grindavík, ræða um þá stöðu sem komin er upp í bænum sem nú er búið að rýma, um þær áskoranir sem íbúar standa frammi fyrir við að koma lífinu í eins eðlilegt horf og hægt er, um stöðu atvinnulífsins á svæðinu og margt annað sem snýr að lífi Grindvíkinga um þessar mundi...

#174 – Jörðin skelfur og Marel titrar – Skattar hækka í Garðabæ 09.11.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í Þjóðmálastofuna, þó ekki skjálfandi eins og jörðin. Í þættinum er meðal annars fjallað um skattahækkanir í Garðabæ, uppsögn forstjóra Marel, lokun Bláa lónsins og það hvernig fámennur hópur hefur komið í veg fyrir að íbúar á Suðurnesjum búi við raforkuöryggi, það hvort að verkalýðshreyfingin sé líkleg til að standa sameinuð að kjarasamningum, grein...

#173 – Stríð og friður í nútímanum – Stríðsfréttaritari Þjóðmála fer yfir stöðuna 06.11.2023

Kristján Johannessen, stríðsfréttaritari Þjóðmála og fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um stöðu mála í Úkraínu og fyrir botni Miðjarahafs. Rætt er um það hvort að innrás Rússa inn í Úkraínu falli í skuggann af átökum Ísraelsmenna við hryðjuverkasamtökin Hamas, hvernig vopnum er beitt á þessum svæðum, hvernig stuðningi Vesturlanda er háttað, hvaða hlutverki Ísland gegnir í þessu öllu saman og mar...

#172 – Grimmd fyrir botni Miðjarahafs – Yfirveguð umræða um hitamál 31.10.2023

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um átökin sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarahafs, orsök þeirra og afleiðingar, hvort og þá hvernig afleiðingar þeirra koma fram í íslenskum stjórnmálum. Rætt er um söguna sem liggur þarna að baki, um grimma stefnu Hamas-samtakanna, hvernig tillagan um tveggja ríkja lausn hefur fallið um sjálfa sig, hvort að hægt sé að byggja undir hagsæld í Ga...

#171 – Markaðurinn lítill í sér – Vesen að eiga vildarpunkta – Bótaþegar á rafmagnsbílum 26.10.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hlutabréfamarkað í ládeyðu, flókna stöðu Marel og það hvort að verið sé að skortselja félagið, erfiðleika þingmanna við að eiga vildarpunkta, um verkalýðsleiðtoga sem eru ekki takt við félagsmenn sína, gagnrýni formanns Samfylkingarinnar á skattalækkanir fyrir tekjulága, afslátt við sölu á hlut í Hampiðjunni, litla framleg matvöruverslana, ríkissty...

#170 – Heiðrún Lind stígur ölduna í ólgusjó 23.10.2023

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, ræðir um stöðu sjávarútvegsins, hvort að leyndarhyggja ríki yfir greininni eins og sumir stjórnmálamenn halda fram, möguleikann á frekar samþjöppun, um fiskeldi og tækifærin sem þar liggja, fjárfestingar og arðsemi og margt annað sem snýr að þessari mikilvægu atvinnugrein á Íslandi.

#169 – Afleiðingar óróleikans á hagkerfin – Lilja Dögg kíkir í Þjóðmálastofuna 18.10.2023

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ræðir um stöðuna í efnahagslífinu hér heima og erlendis, hvaða áhrif átök hafa á hagkerfi heimsins og hvort að til sé að verða ójafnvægi í heimskerfinu út frá efnahag þjóða. Þá er rætt um stöðu ríkisstjórnarinnar, hvort það hafi virkilega verið bara best að kjósa Framsókn, Samkeppniseftirlitið og samskipti þess við atvinnulífið, stöðu fjöl...

#168 – Fjölskyldumynd í brotnum ramma á sunnudegi – Ríkisstjórn með kíki á blinda auganu – Hús Gyðinga merkt með stjörnu í Berlín 15.10.2023

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stólaskipti innan ríkisstjórnarinnar, helstu verkefni hennar, hvaða mál hún er að einblína á – og ekki að einblína á – og hver skilaboð hennar eru. Þá er einnig fjallað um átökin fyrir botni Miðjarahafs og það vaxandi gyðingahatur sem við höfum því miður orðið vitni að síðustu daga.

#167 – Aukaþáttur – Bjarni segir óvænt af sér 11.10.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða í sérstökum aukaþætti um aðdraganda og ástæður fyrir óvæntri afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Rætt er um álit umboðsmanns Alþingis og þá þau atriði sem þar koma fram, hvaða pólitísku afleiðingar afsögn Bjarna hefur, hvort að andstæðingar Bjarna hafi borið sigur úr býtum og margt annað sem þessu tengist.

#166 – Biðleikur Seðlabankans – Ráðherragrín eða ráðherrapirringur – Hrikalegir atburðir í Ísrael 09.10.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um það hvort að ákvörðun Seðlabankans um að hækka ekki vexti í síðustu viku hafi átt að koma á óvart eða hvort um biðleik sé að ræða, um skrýtin viðbrögð við ráðherragríni og enn eitt höggið í innri samskipti ríkisstjórnarinnar, um sviptingar á fjármálamarkaði, um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað í Ísrael um helgina og furðuleg viðbrögð þeirra s...

#165 – Haustfundur með Þórði Pálssyni – 15 ár frá hruni – ESG staðlar sem enginn bað um 06.10.2023

Þórður Pálsson mætir í Þjóðmálastofuna og fjallar um aðdraganda og eftirmála fjármálahrunsins haustið 2008, þar sem nú eru liðin 15 ár frá þeim tíma. Við fjöllum um það hvort að staða Íslands hafi verið öðruvísi en annarra ríkja, hvort það sé eðli fjármálamarkaða að taka dýfur eða jafnvel hrynja með reglulegu millibili, hvort og þá hvernig hagkerfið hefur breyst síðan þá og margt fleira. Við tökum...

Listen to the Þjóðmál podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.