Þjóðmál

Þjóðmál

Society IS ↓ 439 episodes

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Author

Þjóðmál

Category

Society

Podcast website

www.thjodmal.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#239 – Viðtal – Sigurður Ingi Jóhannsson fer yfir stöðuna 21.08.2024

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, ræðir um stöðuna í hagkerfinu, ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum, gagnrýni á fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar, fjármögnunarþörf ríkisins, hvort að breytinga sé að vænta á skattamálum eða tollamálum og fleira. Þá er jafnframt rætt um stöðuna á stjórnarheimilinu, stöðu Framsóknarflokksins bæði á landsv...

#238 – Góðverk á kostnað annarra – Munið að telja orlofsdagana 15.08.2024

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Stefán Einar Stefánsson ræða um lækkun tolla sem gætu bætt hag heimilanna til muna, námsmat í grunnskólum og umræðu um menntamál, hvort að þörf sé á því að skólamáltíðir og námsgögn séu ókeypis, vindorku og það hver á rétt á því að virkja vindinn, allt of stórt framkvæmdavald og þann gífurlega fjölda sem starfar hjá stofnunum með eftir...

#237 – Mjúk lending með Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair 12.08.2024

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, fer yfir stöðu félagsins, það bakland sem liggur í hluthöfum þess, aðlögun á leiðarkerfinu í ljósi breyttra aðstæðna á markaði, samkeppnisumhverfið, fyrri ummæli sín um að það sé erfitt að reka tvö flugfélög með heimahöfn á Íslandi, af hverju lögð var áhersla á að bjarga félaginu í kórónuveiru-faraldrinum, samninga við stéttarfélög, mýtuna um ríkisstyrki og...

#236 – Hvert leita Marel peningarnir? – Japanskur titringur á mörkuðum – Rýnt í bréf Jóns í Stoðum 09.08.2024

Hörður Ægisson og Örn Arnarson fara yfir titringinn sem varð á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í upphafi vikunnar, horfurnar á vaxtalækkun hér á landi, dýrar skuldir ríkisins sem hafa neikvæð áhrif á atvinnulífið og aðra þætti hagkerfisins, bréf Jóns Sigurðssonar í Stoðum til hluthafa, horfur á hlutabréfamarkaði, skammir eyðslusamra stjórnmálamanna sem kenna fyrirtækjum um að ýta undir verðbólgu og...

#235 – Brekkusöngurinn með Stefáni Einari og Sigríði Andersen 01.08.2024

Stefán Einar Stefánsson og Sigríður Á. Andersen undirbúa þjóðina fyrir verslunarmannahelgina sama dag og nýr forseti tekur við völdum. Við höldum aðeins áfram að ræða um réttmæti og starfsemi erlendra veðmálasíðna, ræðum um óraunhæf markmið stjórnvalda í loftlagsmálum og möguleikana á orkuskiptum, hlutverk ríkisvaldsins, glæpamenn sem skipta um nafn, stöðuna í stjórnmálunum, sálarangist stuðningsm...

#234 – Veðmálastuðull – Forsetaafsláttur – Vandræði Carbfix – Fjölmiðlar í umhyggjumóti 29.07.2024

Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um starfsemi veðmálasíðna og hvort að ríkisvaldinu takist að loka á erlendar síður eins og sumir kalla eftir, um kaup verðandi forseta á nýjum bíl, opnunarhátíðina á Ólympíuleikunum og listrænt frelsi stjórnenda hennar, um það vandræðabarn sem Carbfix ætlar að verða og þann kostnað sem viðskiptavinir Orkuveitu Reykjavíkur þurfa að bera vegna verkefnisins og ma...

#233 – Flugferð með Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Play 25.07.2024

Einar Örn Ólafsson, forstjóri og einn stærsti eigandi flugfélagsins Play, ræðir um stöðu félagsins og uppbyggingu, samkeppnina hér heima og innanlands, horfurnar framundan, þær breytingar sem kunna að verða á framboði félagsins, flotamálin, stöðu ferðaþjónustunnar, hlutabréfamarkaðinn, viðhorf stjórnvalda gagnvart ferðaþjónustunni og margt fleira.

#232 – Hlýjan í vaxtasloppi ríkisins – Einar einn í parísarhjólinu – Biden pakkar saman 22.07.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjar vendingar í bandarískum stjórnmálum, auknar skuldir ríkisins og hvaða áhrif þær hafa á hegðun fjárfesta, tillögu um nýjan varaseðlabankastjóra, hvaða áhrif háir vextir eru farnir að hafa í hagkerfinu, stöðuna á hlutabréfamarkaði, hugmyndir Viðskiptaráðs í menntamálum, húsnæðismarkaðinn, skógarhögg í Öskjuhlíð og margt fleira.

#231 – Skotið sem geigaði – Kosningabaráttan vestanhafs tekur á sig nýja mynd 15.07.2024

Friðjón Friðjónsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson ræða um stöðuna í bandarískum stjórnmálum, hvaða áhrif banatilræði við fyrrverandi forseta mun hafa á kosningabaráttuna, hvaða áhrif heilsuleysi sitjandi forseta kann að hafa, hvort að stefnumál eins og viðskiptafrelsi og frelsi einstaklingsins eigi upp á pallborðið hjá forsetaefnum og flokkum, hverjir séu líkleg varaforsetaefni, hvaða hópar séu lík...

#230 – Mömmuríkið lagar ekki allt – Kjósandinn er harður húsbóndi 09.07.2024

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stöðuna í stjórnmálunum hér heima og erlendis, af hverju hver ríkisstjórnin fellur á fætur annarri, hvaða væntingar kjósendur hafa til stjórnvalda og hvort þær væntingar hafa breyst á liðnum árum, hvort að Miðflokkurinn með Sigmund Davíð í fararbroddi sé svarið við óánægju hægri manna, hvort að stjórnmálamönnum sé refsað að ósekju, hvaða áhrif þrálá...

#229 – Tilgangur lífsins er lífið sjálft – Sumarspjall við Hannes Hólmstein 02.07.2024

Hannes Hólmsteinn Gissurarson mætir í Þjóðamálastofuna og fer yfir það helsta. Rætt er um bjagaðar hugmyndir um velferðarríkið, loftslagsbreytingar og það hvort að maðurinn sé að ganga að jörðinni dauðri, um það hvernig frjáls viðskipti gera meira fyrir þróunarríki heldur en þróunaraðstoð, hvort að fólksfjölgun í heiminum sé kostur eða vandamál, hvernig valið hefur færst til embættismanna og eftir...

#228 - Þrællinn greiðir laun þrælahaldarans 27.06.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson sameinast á ný eftir mánaðar viðskilnað í hlaðvarpi Þjóðmála. Við ræðum um fylgi Sjálfstæðisflokksins sem mælist sífellt lægra, stofnun nýrrar mannréttindaskrifstofu fyrir Vinstri græna, kynjaða skuldabréfaútgáfu ríkisins og annað af vettvangi stjórnmála. Þá er rætt um yfirtökuna á Marel og hvaða áhrif hún kann að hafa á markaðinn, vendingar í Seðlabankanu...

#227 – Einu sinni var hægri flokkur – Vandræði Samfylkingar í útlendingamálum 20.06.2024

Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson ræða um tillögu að vantrausti á matvælaráðherra sem felld var á Alþingi í dag, hvort og þá hvaða áhrif tillagan hefur á stjórnarsamstarfið, viðhorf stjórnvalda til hvalveiða og atvinnulífsins yfirleitt, fráleitar tillögur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, þögn formanns Samfylkingarinnar í útlendingamálum, fylgistap hægri flokka sem gleyma erindi sínu, tölur...

#226 – Út í Eyjum með Binna í Vinnslustöðinni 13.06.2024

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, betur þekktur sem Binni í Vinnslustöðinni, og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna. Rætt er meðal annars um hvalveiðar, stöðuna í sjávarútvegi, áhrif loðnubrests, lífið í Eyjum, stöðuna í pólitíkinni, tilraun fjármálaráðherra til að siga löggunni á samkeppnina og svar dómsmálaráðherra við því, menntastefnu sem hefur litlum árangri skilað og margt fleira.

#225 – Yfirlæti stjórnmálstéttarinnar afþakkað – Er hægrisveifla í Evrópu? 11.06.2024

Andrés Magnússon og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu fara yfir stöðuna í Evrópu í kjölfar kosninga til Evrópuþingsins sem fram fóru um helgina, yfirvofandi kosningar í Bretlandi og í Frakklandi þar sem mikil kergja ríkir – þó af ólíkum ástæðum. Þá er farið yfir þau hugtök sem notuð eru um ólíka stjórnmálaflokka og stjórnmálastefnur, hvort að stjórnmálamenn og eftir tilvikum embættismenn h...

#224 – Pólitíska pásan kveikti enga neista í ástlausu ríkisstjórnarsamstarfi 07.06.2024

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, fer yfir stöðuna í pólitíkinni. Ríkisstjórnin fékk að vera að mestu í fríði á meðan forsetakosningum stóð, en nú þegar þær eru yfirstaðnar hefur komið í ljós að sem svo oft áður er mikill órói á stjórnarheimilinu. Við ræðum um flókna stöðu Vinstri grænna sem leita að nýjum leiðtoga, skrif starfsmanna flokksins um stjórnarsamstarfið, stöðu Sjálfstæðisflokksi...

#223 – Rýnt í niðurstöðu forsetakosninga 02.06.2024

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöður forsetakosninganna. Við förum yfir hvað það var sem við teljum að hafi landað sigri fyrir Höllu Tómasdóttur, af hverju fylgið lækkaði hjá öðrum frambjóðendum, hvort að kosningarnar feli í sér einhver önnur skilaboð og þannig má áfram telja.

#222 – Uppgjör kosningabaráttu – Upplýsandi umræða fyrir kjósendur 01.06.2024

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um forsetakosningarnar sem fram fara í dag, hvernig helstu frambjóðendur hafa staðið sig, þau atriði sem hafa komið upp og haft áhrif á þróun kosningabaráttuna, stöðu Katrínar Jakobsdóttur, vöxt á fylgi við Höllu Tómasdóttur, ósannsögli Höllu Hrundar, hlutverk fjölmiðla í aðdraganda kosninganna, ólíka afstöðu fólks eftir stjórnmálaskoðunum og margt...

#221 – Í beinni frá Helsinki – Kosningavaka Þjóðmála undirbúin 28.05.2024

Þjóðmál ferðast til Finnlands og sækir viðburð þar sem tilkynnt er um nýja Michelin staði á Norðurlöndunum. Í þætti dagsins fara þeir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson yfir það helsta úr ferðinni en þá er stiklað á stóru í innlendum málefnum, s.s. hlutafjárútboði Íslandshótela, ákvörðun Hagkaups um að selja áfengi í netverslun og umræðuna sem sú ákvörðun hefur skapað, komandi forsetakosnin...

#220 – Hvernig borgum við fyrir framtíðardrauma? 23.05.2024

Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtæki í sjávarútvegi, fjalla um mikilvægi þess að viðhalda og auka við verðmætasköpun í sjávarútvegi, samanburðinn við önnur ríki, samskipti stjórnvalda og atvinnulífs, hvernig framtíðin kann að líta út, fyrirtækin sem verða til vegna nýsköpunar og þróunar og annað sem tengist þessari mikilvægu atvi...

#219 – Hvítasunnuhelgi með forsætisráðherra – Bjarni Benediktsson í viðtali 16.05.2024

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mætir í Þjóðmálastofuna og fer yfir stórum málin. Farið er yfir stöðuna í hagkerfinu, hvort að skrifa megi núverandi stöðu á efnahagsstjórn síðustu ára, stöðu og hlutverk Seðlabankans og aukin ríkisútgjöld. Þá er rætt um stöðuna í stjórnmálunum, stjórnarsamstarfið, hvort að tekist verði á við stór verkefni eins og málefni hælisleitenda og orkumál, fylgi Sjálfst...

#218 – Trúin á framtíðina – Heiðar Guðjóns í viðtali 13.05.2024

Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, ræðir um undarlegar tillögur stjórnvalda sem vilja leggja það til að Íslendingar gerist grænmetisætur og leggi af alla stóriðju, um stöðuna á Norðurslóðum og áhrif breytinga þar í efnahagslegu og samfélagslegu tilliti, um nýsköpun og sjálfbærni, umræðu stjórnmálamanna um atvinnulífið, stöðuna í hagkerfinu og horfurnar framundan, hræðsluna við erlendar...

#217 – Fallbyssan í Seðlabankanum – Katrín frambjóðandi elítunnar – Dagur missir kúlið 09.05.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum í heilt ár, þau áhrif og afleiðingar sem það hefur og margt fleira því tengt. Þá er rætt um komandi forsetakosningar og það helsta sem á sér stað í þeirri kosningabaráttu, umfjöllun um bensínstöðvarlóðir, allt það helsta á markaðinum, leiðréttingu á umræðu um tískumerki og margt fleira.

#216 – Viðtal við David D. Friedman 06.05.2024

Hagfræðingurinn og eðlisfræðingurinn David Friedman var nýlega staddur hér á landi. Hann kom við í Þjóðmálastofunni og ræddi þar um hinn frjálsa markað, hversu mikil völd hið opinbera ætti að hafa, um loftslagsmál, stöðu háskóla í hinum vestræna heimi og margt fleira.

#215 – Ásgeir er síðasta dúfan – Enn vetur á hlutabréfamarkaði 03.05.2024

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson fara yfir allt það helsta, hver sé líklegur til að verða varaseðlabankastjóri og hvaða áhrif það mun hafa á peningastefnunefnd bankans, hversu líklegt það sé að vextir lækki í bráð, um aukna arðgreiðslu Landsvirkjunar og möguleikana á að skrá hluta félagsins á markað, um stöðuna á annars daufum hlutabréfamarkaði, dauf uppgjör bankanna og margt fleira.

Listen to the Þjóðmál podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.