Podcaststöðin
Spekingar Spjalla
Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#88 Silja Úlfarsdóttir 02.07.2020 1:34:47
Hlaupadrottning Íslands og afreksþjálfarinn Silja Úlfarsdóttir er gestur Spekinga þessa vikuna. Eftir að hafa drottnað yfir hlaupabrautum landsins snéri hún sér að þjálfun og hefur þjálfað bestu íþróttamenn landsins. Í fyrsta sinn mættu Spekingar ofjarli sínum enda Silja geggjaður karakter. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa Siríus stúdíóinu og er í boði Áberandi og 250 lita .
#87 Björgvin Páll Gústavsson 19.06.2020 1:36:40
Markmaður þjóðarinnar Björgvin Páll Gústavsson er gestur Spekinga þessa vikuna. Ótrúlegur karakter inni á vellinum en ljúfur drengur utan línanna. Við drápum niður fæti á ýmsum tímapunktum á ferli Bjögga en hann er hvergi nærri hættur á milli stanganna. Handbolti er ekki eini boltinn sem Bjöggi heldur á lofti en meðfram því að vera afreksíþróttamaður miðlar hann þekkingu sinni og reynslu til yngri...
#86 BBQ kóngurinn 11.06.2020 1:35:24
Alfreð Fannar Björnsson, hinn eini sanni BBQ kóngur Íslands er gestur Spekinga þessa vikuna. Kóngurinn var með tangarhald á Spekingingum og skóflaði þeim upp með spaðanum, Weber spaðanum að sjálfsögðu ekki pizzastaðnum. Mikilvægar umræður fóru fram nú þegar grillvertíðin er hafin. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa Siríus stúdíóinu og er í boði Áberandi og 250 lita .
#85 Sesi og FoodJúbJón 05.06.2020 1:52:23
Sumarið er tíminn og við það tilefni fengum við Sesa og FoodJúbJón til að ræða um allt annað en sumarið sem er framundan. Almennt spjall um allt og ekkert og það er greinilega Spekingum ekkert óviðkomandi. Spekingar Spjalla eru í boði Nóa Siríus, Áberandi og 250 lita.
#84 Haraldur Dean Nelson 28.05.2020 1:47:23
Haraldur Dean Nelson er ötull réttindabaráttumaður fólks sem vill fá að stunda íþróttagrein sína á sömu forsendum og íþróttamenn annarra greina. Fjölskyldumaður, umboðsmaður bardagamanna- og kvenna og framkvæmdastjóri Mjölnis er gestur Spekinga þessa vikuna. Að vanda fórum við yfir víðan völl. Spekingar Spjalla eru í boði Áberandi og 250 lita .
#83 Ævar Þór Benediktsson 21.05.2020 1:29:25
Ævar Þór Benediktsson leikari, rithöfundur, vísindamaður eða bara alhliða listamaður er gestur Spekinga í þetta sinn. Ævar Þór trónir nú á toppum metsölulista með nýja bók sína Hryllilega stuttar hrollvekjur. Við fórum yfir sviðsmynd Ævars, frá því að vera "vinur/kærasti" Georgs Bjarnfreðarsonar til leiklistar, ritstarfa og margt fleira. Spekingar Spjalla eru í boði 250 lita og Áberandi .
#82 Spekingar Spjalla 09.05.2020 1:18:18
Spekingarnir eru tveir þessa vikuna. Við svöruðum spurningum hlustenda sem komu inn gegn um instagram síðu Spekinga . Við ræddum um framkvæmdir í nýja stúdíóinu, málefni líðandi stundar í þjóðfélaginu en aðallega um hluti sem skipta engu máli.
#81 Fannar Sveinsson 24.04.2020 1:35:04
Gestur Spekinga þessa vikuna er einn allra besti maður þjóðarinnar. Það var gaman að rifja upp feril Fannars, hvernig hann byrjaði ungur að gera sketsa og er nú bæði fyrir framan og aftan kvikmyndavélina í vinsælustu sjónvarpsþáttum landsins. Í lok þáttar kemur skúbb varðandi þætti sem hefja göngu sína 8. maí næstkomandi. Endilega fylgið okkur á Instagram .
#80 Happy hour 16.04.2020 1:47:29
Kári Kongó Sigurðsson æskulýðsfrömuður er gestur Spekinga þessa vikuna. Auk starfa Kára í æskulýðsmálum fer hann um allt land með fræðsluna Fokk me-Fokk you ásamt Andreu Marel. Á þessum síðustu og verstu hefur Kári verið duglegur á samfélagsmiðlum að hvetja landsmenn í að halda rútínu og gleyma ekki mikilvægustu klukkustundum sólarhringsins., Happy hour.
#79 Auðjón Guðmundsson 10.04.2020 1:53:36
Auðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus er gestur Spekinga þessa vikuna. Páskaeggin reka smiðshöggið á páskahátíðina og gegnir Nói Síríus þar veigamiklu hlutverki. Við tókum hús á Auðjóni og ástríðu hans á matvælaframleiðslu auk þess sem við svöruðum spurningum um eftirlætli allra, sælgæti.
#78 Örn Árnason 03.04.2020 1:27:26
Örn Árnason er einn okkar ástsælasti leikari og skemmtikraftur. Í tæp 40 ár hefur þjóðin fengið að njóta Arnar á leiksviði og í sjónvarpi. Þá ól hann upp hálfa þjóðina í þáttunum Með afa. Við minnum ykkur á að fylgja Spekingar Spjalla á Instagram. Spekingar Spjalla er í boði OAT KING .
#77 Spekingar spjalla 29.03.2020 1:50:49
Á þessum sérstöku og erfiðu tímum (fordæmalausum myndi einhver segja) er gott að setjast upp í sófa og hlusta á Spekingana sína. Í stúdíó-inu þessa vikuna leika lausum hala JútjúbJón og Sesi. Sérstakur gestur er Steini Stuð. Annar Spekinga (sem ekki vill láta nafn síns getið) fékk þá sniðugu hugmynd (að eigin mati) að búa til drykkjuleik úr ástandinu. Óþverrabragð já ég veit og sá sem þetta ritar...
#76 Friðrik Ingi Rúnarsson 19.03.2020 1:30:59
Friðrik Ingi Rúnarsson er einn okkar allra færasti og farsælasti körfuknattleiksþjálfari. Góður leikmaður en ákvað að leggja skóna á hilluna og einbeita sér alfarið að þjálfun. Íslandsmeistari á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari Njarðvíkur einungis 22 ára og liggja ófáir titlarnir í valnum nú rúmlega 30 árum síðar. Við þökkum hlustendum fyrir spurningarnar til Friðriks og minnum ykkur á að fylgja o...
#75 Hörður Magnússon 12.03.2020 1:44:37
Markahrókurinn og fjölmiðlamaðurinn Hörður Magnússon hefur verið samofinn íslensku íþróttalífi í 35 ár eða allar götur frá hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik. Fimur og frábær bæði á velli og á bak við hljóðnemann. Spekingar eru hvorki múlbundnir né í taumi og því geystumst við yfir víðan völl með Herði.
#74 Birgir Leifur Hafþórsson 07.03.2020 1:37:14
Birgir Þór Hafþórsson afrekskylfingur, PGA-kennari og MBA-nemi er gestur Spekinga þessa vikuna. Íslenska þjóðin hefur fengið að fylgja þessum frábæra kylfingi á golfvellinum og kynnast þeim góðum gildum og hugarfari sem einkenna Birgi Leif. Spekingar Spjalla er í boði OatKing sem fæst í öllum helstu verslunum.
#73 Helgi Jean Claessen 20.02.2020 1:50:50
Helgi Jean Claessen tók ákvörðun um að snúa lífi sínu til betri vegar og hjálpar nú öðrum að gera slíkt hið sama með námskeiðum, fyrirlestrum og helgarferðum. Hann heldur einnig úti hlaðvarpinu Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars auk þess að bralla ýmislegt fleira. Strákarnir í Hæ Hæ verða með Live show og skemmtikvöld! Í Gamla Bíó 27. febrúar nk. kl. 20:00. Nælið ykkur í miða áður en það verður up...
#72 Spekingar Spjalla 14.02.2020 1:40:55
Lægðin raskar ekki dagskrá Spekinga. Þrátt fyrir vonskuveður mættu Spekingar í Stúdíó og drógu með sér tvo mæta menn. Jón Þór og Steini eru gestir Spekinga þessa vikuna þar sem ýmis málefni voru krufin. Eins og áður voru skoðannir þáttastjórnenda og gesta eins strá í vindi (lægð) og menn ekki oft endilega sammála sjálfum sér.
#71 Eðvarð Egilsson 07.02.2020 1:44:54
Eðvarð Egilsson tónlistarmaður er gestur Spekinga þessa vikuna. Eðvarð bjó í 9 ár í Los Angeles þar sem hann lét drauma rætast með hljómsveitinni Steed Lord og tónlistarsköpun undir eigin merkjum ásamt módelstörfum og leiklist með heimsfrægu tónlistarfólki. Þegar Eddi snéri aftur til Íslands varð hann ástfanginn, orðinn faðir og lætur nýja drauma rætast. Þessa dagana að Eddi að leggja lokahönd á t...
#70 Ofurskálin 2020 - Birgir Þór og Gunnar Ormslev 31.01.2020 1:56:01
Leikið verður um Ofurskálina LIV á sunndudaginn. Af því tilefni komu Birgir Þór Björnsson og Gunnar Ormslev til Spekinga og gera henni góð skil ásamt því að fara yfir NFL tímabilið. Birgir Þór hefur farið á kostum í vetur með Tíu Jarda hreyfingunni en Tíu Jardarnir verða með gleðskap ásamt Einherjum í Keiluhöllinni fyrir og með leiknum. Pub Quiz og með´því á boðstólnum og byrja herlegheitin kl. 22...
#69 Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir (Tæknivarpið) 24.01.2020 1:13:56
Atli Stefán Yngvason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson frá Tæknivarpinu eru gestir Spekinga þessa vikuna. Við drápum niður fæti á ýmsum málum tengdum tækni sem snerta okkar daglegu líf. Tæknivarpið er frábær þáttur sem fjallar um málefni úr tækniheiminum frá skemmtilegu sjónarhorni. Þáttinn má finna inn á hlaðvarpsveitu Kjarnans. Tæknivarpið á facebook .
#68 Eva og Sylvia (Normið) 17.01.2020 1:08:51
Snillingarnir í Norminu eru gestir Spekinga þessa vikuna. Eva og Sylvia stjórna hlaðvarpsþættinum Normið ásamt því að þjálfa hjá Dale Carnegie og bardúsa ýmislegt fleira. Þátturinn er í samstarfi við www.snus.is.
#67 EM í handbolta 10.01.2020 1:28:14
EM í handbolta er handan við hægra hornið. Þá er ekki úr vegi að fara yfir leikmenn landsliðsins, leikina framundan og við hvaða árangri við megum búast við á mótinu. Gestir þáttarins eru Styrmir Sigurðsson, fulltrúi Handkastsins og Þórhallur Ágústsson, fulltrúi almúgans. Þátturinn er í samstarfi við www.snus.is . Handkastið á facebook .
#66 Tuttugu Tuttugu 03.01.2020 1:26:30
Steinþór Kristjánsson, aka Steini dúkari, var mættur í stúdíó Spekinga til að ræða fyrstu daga ársins og hvað er framundan í íslensku samkvæmislífi á næstu misserum.
#65 Áramótaþáttur 2.0 28.12.2019 3:02:06
Spekingar gerðu upp árið 2019. Þátturinn var tekinn upp seint að kvöldi og með öl í hönd. Að því sögðu skal þátturinn því ekki skoðast sem íslensk samtímaheimild um árið 2019 þar sem staðreyndir sem flugu fram kunna að vera kolrangar eða lauslegar í besta falli. Skoðanir þáttastjórnenda og gesta endurspegla ekki skoðanir þjóðarinnar og oft á tíðum ekki einu sinni þeirra eigin. Gestir: Jón Þó...
#64 Simmi Vill 20.12.2019 1:46:24
Sigmar Vihjálmsson aka Smmi Vill óð inn í stúdíó Spekinga og fór yfir málin, á milli himins og jarðar. Af hverju var hann leiðinlegur á handboltavellinum? Afrekin á handboltavellinum, fjölmiðlaferillinn, sögur úr veitingabransanum og fleiri ævintýri.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.