Podcaststöðin
Spekingar Spjalla
Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#108 Superbowl - Andri Ólafsson og Birgir Þór Björnsson 03.02.2021 2:37:33
Superbowl 55 er framundan og því ekki úr vegi að fá tvö sérfræðiséní til að ræða um amerískan fótbolta. Andri Ólafsson og Birgir Þór Björnsson þekkja leikinn út og inn og ekki skemmir að þeir eru báðir algjört augnakonfekt fyrir augað. Umræða um amerískan fótbolta eins og hún gerist best. Öll Superbowl partý þurfa að innihalda Eitt Sett og Pringles. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcasts...
#107 Valdimar Grímsson 29.01.2021 1:26:30
Valdimar Grímsson er einn af allra bestu handknattleiksmönnum þjóðar vorrar. Meðfram handboltanum ræktaði Valdimar viðskiptaferil sinn og sinnir honum nú af alúð. Í stað þess að kasta bolta er Valdimar nú í hestamennsku, golfi og á skíðum. Maðurinn með stáltaugarnar á punktinum er gestur Spekinga þessa vikuna. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áber...
#106 Páll Sævar Guðjónsson 21.01.2021 1:40:36
Páll Sævar Guðjónsson, „Röddin“, er gestur Spekinga þessa vikuna. Líklega hafa vel flestir Íslendingar heyrt guðdómlega rödd Páls í hátölurum Laugardalsvallar eða Laugardalshallar. Þegar Páll er ekki að stýra þjóðarleikvöngum okkar eða Frostaskjólinu þá lýsir hann pílunni á Stöð 2 Sport eða sinnir hinum ýmsu félagsstörfum sem eru honum hugleikin. Við fórum vítt og breitt yfir völlinn og komumst me...
#105 Áramótaþáttur 3.0 31.12.2020 3:11:29
Árið 2020 er búið og gert. Það kemur aldrei aftur en að vanda þarf að gera árið upp og það gerðu Spekingar. Fullyrðingar og staðhæfingar um fréttir ársins skulu ekki skoðast sem íslenskar samtímaheimildir um árið 2020 enda byggja þær á lauslegu og stundum óstabílu minni þáttastjórnenda og gesta. Skoðanir þáttastjórnenda og gesta endurspegla skoðanir þjóðarinnar en eru ekki þeirra eigin. Gestir þát...
#104 Árni Helgason 22.12.2020 1:55:32
Árni Helgason, fyrsti fyndni lögfræðingurinn (að mati Matta), er gestur Spekinga þessa vikuna. Lögmaður, uppistandari, pistlahöfundur en fyrst og fremst hlaðvarpsstjarna. Þegar Árni er ekki að loka stórum samningum, semja langar vandaðar skýrslur eða brainstorma um næsta uppistand/sjónvarpsþátt, stýrir hann Hisminu með Grétari sínum Theodórssyni. Hismið hóf göngu sína á árinu 2013 og sjö+ ár í ísl...
#103 Kjartan Atli Kjartansson 17.12.2020 1:42:56
Kjartan Atli Kjartansson er sannkallaður fjölmiðlamógúll. Byrjaði sem blaðamaður og er nú í útvarpi og sjónvarpi. Meðfram fjölmiðlastörfum þjálfar Kjartan Atli körfubolta og nú er bókin hans, Hrein karfa, komin í hillurnar. Þetta byrjaði þó allt á parketinu á daginn og rímum á kvöldin. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi og 250 lita .
#102 Steiney Skúladóttir 10.12.2020 1:43:11
Steineyju Skúladóttur er margt til lista lagt. Skaust fram á sjónarsviðið í Hraðfréttum og í Reykjavíkurdætrum á árinu 2014, nældi sér í Edduverðlaunin fyrir Framapot 2018 og tilnefnd til Edduverðlaunanna 2020 í flokknum Sjónvarpsmaður ársins. Á árinu 2019 hlutu þættirnir Heilabrot verðskuldaða athygli en þar fjölluðu Steiney og Sigurlaug Sara um geðheilsu og andlega vanheilsu ungs fólks. Framunda...
#5 Spekingar Special 27.11.2020 1:20:09
Spekingar hafa vægast sagt staðið sig feikilega illa í að gefa út þætti að undanförnu. Eiga þeir ekkert skilið nema skömm í hatt sinn fyrir lélega frammistöðu á því sviði. Fullir iðrunar lofa þeir bót og betrun á komandi misserum og þekkjandi þá, er ekkert víst að það klikki. Í fimmta þætti sérstakrar seríu sem heitir Spekingar Special stikluðu Spekingar á málefnum líðandi stundar ásamt því að dre...
#101 Jólabjór 3.0 með Atla Þór Albertssyni 14.11.2020 3:16:54
Að vanda taka Spekingar þá gríðarlegu ábyrgð á sínar herðar að smakka jólabjórana. Sérstakur gestur er Atli Þór Albertsson leikari og alhliða lífskúnstner. Í ár voru tappar 29-30 bjórtegunda rifnir upp en mönnum ber ekki saman um nákvæman fjölda. Kári Sigurðsson stjórnaði flæðinu og Jón Þór Skaftason og Sævar Ríkharðsson voru okkur til halds og trausts. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podc...
#4 Spekingar á krísutímum 23.10.2020 5:24
Á þessum síðustu og verstu hefur Gróa gamla á leiti verið ólseig að dreifa rógburði um óeiningu í röðum Spekinga. Kári Sigurðsson var jafnframt óþreytandi í tilraunum til að stía þeim í sundur í síðasta þætti sem vel á minnst var nr. 100. Hvort Gróa og Kári séu ein og sama manneskjan er erfitt að fullyrða um en enginn hefur þó séð þau tvö saman á sama tíma. Í ljósi atburða réðu Spekingar Capacent...
#100 Eitthundrað 13.10.2020 1:49:34
Spekingar gefa út þátt nr. 100 þessa vikuna. Við það tilefni voru sóttir og færðir í stúdíó færustu álitsgjafar landsins til að fara yfir fyrstu upptöku Spekinga sem tekinn var upp á fyrri hluta ársins 2018. Upptakan hefur aldrei verið birt opinberlega en í þessum þætti fá hlustendur að heyra valdar klippur sem þola birtingu. Fyrsta upptakan verður birt í heild sinni samhliða öðrum upplýsingum um...
#3 Spekingar Special 02.10.2020 34:59
Spekingar Special fóru ekki bara yfir sætar, áberandi og litríkar fréttir vikunnar heldur heyrðum við einnig í Eygló, móður Matta, sem upplýsti okkur um lesleti. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi og 250 lita .
#99 Eva Ruza & Hjálmar Örn 29.09.2020 2:01:28
Eva Ruza og Hjálmar Örn eru klárlega á meðal skemmtilegasta fólks landsins. Þar sem er líf, þar er fjör og það var heldur betur raunin í þessum þætti. Við lögðum spilin á borðið og fórum yfir lífsins ljúfu stundir. Farvegur skemmtikraftsins er hlykkjóttur en með áræðni og dugnaði kemst hann á leiðarenda. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði...
#2 Spekingar Special 25.09.2020 35:50
Spekingar Special fóru yfir sætar, áberandi og litríkar fréttir vikunnar. Helgin er framundan og BBQ Kóngurinn fór yfir matseðil helgarinnar. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi og 250 lita .
#98 Gulli Helga 22.09.2020 1:42:17
Gunnlaugur Helgason, Gulli Helga eða ÞjóðarGull(i) eins og Spekingar kalla hann er gestur okkar þessa vikuna. Gulli er bæði frábær smiður og fjölmiðlamaður en bestur þegar hann er í báðum hlutverkum samtímis. Fröken útvarp bauð Gulla upp í dans árið 1984 og dansa þau ennþá saman, nú alla virka morgna á Bylgjunni. Eftir mjaltir skellir Gulli sér í smíðasvuntuna og bregður sér í raunhagkerfið eða te...
#1 Spekingar Special 18.09.2020 38:16
Mikill þrýstingur og háværar raddir hafa knúið Spekinga til þess að gefa út sérstakan þátt með óhefðbundnu sniði. Við tókum stöðuna á fréttum vikunnar og tókum púlsinn á Steina dúkara. Stóra spurningin er hvað er að vera leslatur? Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi og 250 lita .
#97 Guðmundur Jörundsson 16.09.2020 1:49:58
Guðmundur Jörundsson fatahönnuður er gestur Spekinga þessa vikuna. Þrátt fyrir að það hafi ekki verið planið að verða fatahönnuður hefur Guðmundur og JÖR slegið rækilega í gegn hjá íslensku þjóðinni. Við fórum meðal annars yfir álagið sem fylgir því að hanna eigin fatalínu og vera með 10 manns í vinnu. Af því dró Guðmundur stóran lærdóm og byggir nú vörumerki sitt aftur á eigin forsendum. Bieber e...
#96 Spekingar Special 10.09.2020 1:03:12
Spekingar eru með breyttu sniði þessa vikuna. Að höfðu samráði við Þríeykið, Katrínu Jakobsdóttur og Kára Stefánsson var ákveðið að Spekingar yrðu aðeins tveir í hljóðverinu. Við fórum yfir málefni sem brenna á þjóðinni nú um stundur og slógum á þráðinn til JútjúbJóns sem fór yfir matseðil helgarinnar. Öðruvísi þáttur en gaspur og fleipur ekki langt undan. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stú...
#95 Brynhildur Guðjónsdóttir 03.09.2020 1:35:02
Sviðslistakonan Brynhildur Guðjónsdóttir stjórnar nú Borgarleikhúsinu eftir að hafa átt sviðið í islensku leiklistarlífi í yfir tvo áratugi. Leikkona, leikskáld og leikstýra sem hefur auðgað listina á Íslandi og stýrir skútu Borgarleikhússins á krefjandi tímum. Brynhildur er einstakur listamaður og fáum við íslendingar að njóta góðs af því. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa Siríus stúdíóinu og...
#94 Þórður Helgi Þórðarson 27.08.2020 2:43:11
Þórður Helgi Þórðarson (Doddi litli) er einn farsælasti útvarpsmaður Íslands. Eftir Tvíhöfða, Ding Dong og Litlu Hafmeyjuna snéri Þórður sér að virðulegri dagskrárgerð á Rás 2, útvarpi allra landsmanna. Í hjáverkum bregður hann sér í gula Henson gallann og tryllir lýðinn með Love Guru eða smíðar tónlist undir eigin nafni. Ótrúlegur maður og ótrúlegur ferill. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa S...
#93 Þórarinn Ævarsson 20.08.2020 1:47:58
Þórarinn Ævarsson hefur tekið stöðu með almenningi á farsælum ferli sínum í viðskiptum. Bakarinn sem skapaði Dominos og IKEA á Íslandi og breytir nú viðskiptalandslaginu á Íslandi enn á ný með Spaðanum. Þórarinn er einstaklega skemmtilegur karakter með sterkar skoðanir á íslensku samfélagi. Við fórum yfir feril Þórarins og sýn hans á verslun og viðskiptum. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa Sir...
#92 Sigga Lund 13.08.2020 1:30:43
Hún hressir, bætir og kætir. Sigga Lund er gestur Spekinga þessa vikuna. Fjölmiðlakona sem hefur margoft verið á undan sinni samtíð varðandi málefni sem brenna á samfélaginu. Allir hafa hlustað á Siggu í gegn um útvarpsbylgjurnar og nú loksins er hún fáanleg í hlaðvarpsformi. Í þættinum fáum við að heyra glænýtt Zúúber skúbb. Spekingar Spjalla er tekinn upp í Nóa Siríus stúdíóinu og er í boði Áber...
#91 JúTjúbJón snýr alltaf aftur 06.08.2020 1:30:36
Þegar erfitt er að bóka gesti yfir verslunarmannahelgi er gott að treysta á JúTjúbJón. Matti og JúTjúbJón tóku stöðuna á íslenska ferðasumrinu sem og önnur málefni. Stemningin súrnaði þó í stúdíó-inu þegar JúTjúb þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um að drepa Matta í hinum klassíska leik Giftast, sofa hjá og myrða. Jafnframt tóku þeir félagar upp símann og heyrðu í vin þáttarins Sesa sem og fjarstöd...
#90 Birkir Már Sævarsson 30.07.2020 1:10:05
Feiminn bakvörður sem lætur verkin tala inni á vellinum. Fæddist Valsari og verður þar þangað til hann þarf að bræða úr hlaupabrettunum á Bolungravík. Heldur betur ekki búinn að fá nóg af Víkingaklappinu. Við fórum yfir hitt og þetta, pepsi Max deildina, hvernig er að vera atvinnumaður í fótbolta, fjallahjólreiðar og margt fleira.
#89 Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir 23.07.2020 1:40:17
Presturinn, gleðigjafinn og næstum því fararstjórinn Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur Spekinga þessa vikuna. Sr. Jóna Hrönn ákvað 7 ára að verða prestur en þá voru enn 3 ár í að fyrsta konan yrði vígð á Íslandi. Sr. Jóna Hrönn er bráðskemmtilegur stuðbolti sem lýsir upp öll herbergi sem hún gengur inn í. Við áttum fræðandi spjall um lífið, dauðann og allt þar á milli. Spekingar Spjalla e...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.