Podcaststöðin
Spekingar Spjalla
Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#63 Hrefna Sætran 20.12.2019 1:24:21
Hrefna Sætran kom til okkar og lýsti einhverri bestu samloku sem talað hefur verið um í Podcasti. Hrefna byrjaði snemma að herma eftir Sigga Hall og var farin að elda fyrir vini og fjölskyldu aðeins 6 ára gömul. Við erum að tala um matseðla og allt klárt. Við fórum yfir ferilinn hjá þessum magnaða matreðslumeistara og hvernig hún ruddi brautina fyrir konur í faginu. Svo eins og okkur einum er lagi...
#62 Árni Árnason 05.12.2019 1:17:07
Árni Árnason hefur starfað í markaðsbransanum í 20 ár. Fyrir ári síðan hóf hann að skrifa bókina um Friðbergi forseta, fyrstu skáldsögu sína en áður hafði hann skrifað bók um Bubba Morthens í samtalsformi. Árni hefur gengið með rithöfunda-drauminn í maganum í mörg ár og lét loks verða af því að selja fyrirtæki sitt og setjast við skriftir. Sinnir auðvitað öðrum verkefnum samhliða enda dugnaðarfork...
#61 Sverrir Þór Sverrisson 28.11.2019 1:45:23
Leikari, skemmtikraftur, tónlistarmaður en fyrst og fremst fagmaður. Það eru um 2.100 sveppategundir á Íslandi en sú lang þekktasta og skemmtilegasta er Sverrir Þór, sem barst til landsins árið 1977. Úr ætt Kóngasveppa en villisveppur þegar sá gállinn er á honum. Velkominn á heimili allra landsmanna, annað en frændi hans myglusveppurinn.
#60 Stefán Pálsson - Jólabjór 2.0 (seinni hluti) 22.11.2019 1:42:49
Nóvember er genginn rúmlega hálfa leið og það þýðir bara eitt. Jólabjórinn skreið í hillur Vínbúðarinnar þann 14. nóvember sl. og Spekingar brugðust ekki skyldum sínum að taka hann út. Eðli málsins samkvæmt var gestur þáttarins Stefán Pálsson og leiddi hann okkur í gegn um flóru og fjölbreytileika bjóranna. Þess má geta að Stefán leiddi jafnframt jólabjórsþátt Spekinga fyrir ári síðan. Speki...
#60 Stefán Pálsson - Jólabjór 2.0 (fyrri hluti) 22.11.2019 1:39:46
Nóvember er genginn rúmlega hálfa leið og það þýðir bara eitt. Jólabjórinn skreið í hillur Vínbúðarinnar þann 14. nóvember sl. og Spekingar brugðust ekki skyldum sínum að taka hann út. Eðli málsins samkvæmt var gestur þáttarins Stefán Pálsson og leiddi hann okkur í gegn um flóru og fjölbreytileika bjóranna. Þess má geta að Stefán leiddi jafnframt jólabjórsþátt Spekinga fyrir ári síðan. Spekingum t...
#59 Magni Ásgeirsson 14.11.2019 1:26:45
Magni kom til okkar og við ræddum allt á milli himins og jarðar. Er hægt að keppa í söng? Hefur Magni unnið söngvakeppni? Sveitaböll, rútuferðirnar aldamótatónleikar og raunveruleikasjónvarp.
#58 Jói Fel 07.11.2019 1:17:19
Jóa Fel þekkja allir sem hafa einhvern tímann látið ofan í sig fæði. Jóhannes Felixson er einn af okkar fremstu meisturum þegar kemur að því að skapa töfra í eldhúsinu. Við tókum hús á Jóa og fórum yfir ástríðu hans í matargerð ásamt trixunum í að skapa gott sjónvarp.
#57 Sober October uppgjör á Ölver 02.11.2019 1:07:23
Loksins er október búinn og þá tekur við uppgjör. Við mættum á Ölver með áhangendum þáttarins og gerðum upp Sober October. Sandra Björg frá Absolute Training kynnti úrslit og í framhaldi fjölluðum við um tilfinningar keppenda. Við þökkum 105 Koffínvatni og Absolute Training kærlega fyrir að taka þátt í þessu með okkur og Ölver fyrir að hýsa uppgjörið.
#56 Þórhallur Ágústsson “Járnkarl” 25.10.2019 1:28:28
Þórhallur kláraði Járnkarl núna í September og fór yfir allt ferlið með okkur. Hvernig dettur fólki þetta í hug? Hvað er næsta skref þegar maður er búinn að ákveða að fara Járnkarl? Þarf maður að vera afreksíþróttamaður? Afhverju er ekki boðið upp á áfengan bjór eftir keppnina? Þessum spurningum er svarað og svo fórum við yfir keppnisdaginn sjálfan. Þórhallur stjórnar jafnframt Podcast þætti...
#55 Jón Axel Ólafsson 17.10.2019 1:18:52
Gestur Spekinga þessa vikuna er Jón Axel Ólafsson. Jón Axel er nú fluttur til Ítalíu og fór viðtalið því fram Í hljóðveri K100. Jón Axel er einn okkar fremsti útvarpsfrömuður og hefur verið í tengslum við ljósvakamiðla frá 14 ára aldri. Þess á milli hefur hann ráðist í ýmis verkefni, svo sem markaðsmálefni, bókaútgáfu og nú húsgagnasmíði. Við þökkum Jóni Axel og Ásgeiri Páli kærlega fyrir að bjóða...
#54 Tómas Þór Þórðarson 2.0 11.10.2019 1:58:52
Tómas Þór Þórðarson er einn okkar allra besti íþróttafrétta- og dagskrágerðarmaður. Tómas Þór kom til Spekinga í annað sinn enda hafsjór af fróðleik. Við fórum yfir víðan völl og má þar nefna Gunnar Nelson, handbolta, fótbolta, NFL og framtíðar aðstöðu landsliða okkar.
#53 Sigga Dögg 03.10.2019 1:34:27
Sigga Dögg er engum lík þegar kemur að kynfræði. Sprenglærð í fræðunum sem hún miðlar til okkar hinna á áhrifaríkan og skemmtilegan hátt. Þann 14. nóvember nk. verður Sigga Dögg með fræðslu- og skemmtiviðburð á Kex hostel þar sem hún kynnir meðal annars niðurstöður úr fróðleikskönnun hennar um typpi ásamt því að opna á umræðuna um typpi almennt. Hægt er að nálgast miða á viðburðinn á tix.is.
#52 Sober October 27.09.2019 1:26:13
Spekingar efna til keppni í október. Spekingar ásamt Jóni Þór og Sævari munu ekki snerta áfengi, keppa í þyngdarlosun og alls konar áskorunum sem Sandra Björg í Absolute Training mun stýra. Við fórum yfir helstu leikreglur og hvernig hver og einn ætlar að vinna þessa keppni. Hægt verður að fylgjast með keppninni á Instagram síðu Podcaststöðvarinnar. Eins og oft kemur fyrir hjá okkur, þá fórum við...
#51 Pétur Marinó 3.0 20.09.2019 1:49:51
Það er bardagi framundan hjá Gunnari Nelson. Það er enginn betri en Pétur Marinó til að fara yfir stöðu mála hjá Gunna og undirbúa okkur undir komandi átök. Við fórum jafnframt yfir það helsta í UFC undanfarna mánuði og hvað er framundan í þessari spennandi íþrótt.
#50 Sandra Björg Helgadóttir 12.09.2019 1:17:26
Sandra Björg kom til okkar og sagði okkur frá Absolute Training sem hún rekur. Þar skiptir máli að rækta andlegu hliðina meðfram líkamlegri heilsu. Sandra er iðnaðarverkfræðingur sem vinnur við markaðsstörf og að fræða, mennta og þjálfa ungt fólk, fagaðila, stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja. Spekingar ætla að koma sér í form í október með hjálp Söndru. Þar verður hún með ýmsar þrautir/keppnir s...
#49 Tíu Jardarnir 06.09.2019 1:58:20
Nú er tímabilið í NFL að hefjast og þá er gott að fá okkur fróðari menn til að fara yfir ameríska fótboltann. Birgir Þór og Maggi Peran komu í skemmtilegt og fræðandi spjall um þessa ört vaxandi íþrótt á Íslandi. Við ræddum málin, allt frá Fantasy deildinni til hverjir muni standa uppi sem sigurvegarar Ofurskálarinnar. Við mælum með fyrir þá sem vilja kynna sér og hafa áhuga á amerískum fótbolta,...
#48 Anna Svava Knútsdóttir 29.08.2019 1:40:31
Anna Svava er töffari fram í fingurgóma og einn fyndnasti skemmtikraftur landsins. Þess á milli stýrir hún Gylfa Þór og Ísbúðinni Valdísi með harðri hendi. Drottning heim að sækja en í þetta skipti kíkti hún til Spekinganna og dró upp úr þeim alls kyns vitleysu.
#47 Siggi Gunnars 23.08.2019 1:43:55
Siggi Gunnars vissi ungur að hann yrði útvarpsmaður og stofnaði sína fyrstu útvarpsstöð 12 ára gamall. Lærði útvarpsfræði í Sunderland og er nú tónlistar- og dagskrárstjóri K100. Siggi er jafnframt með einn vinsælasta spinningtíma landsins auk þess að vera vinsæll veislu- og skemmtanastjóri. Það er nóg að gera hjá okkar manni og saga hans er virkilega skemmtileg.
#46 Vernharð Þorleifsson 16.08.2019 2:06:13
Vernharð Þorleifsson hóf ferilinn sem afreksíþróttamaður í júdó. Fyllti svo tómarúmið sem íþróttirnar skyldu eftir sig með því að framleiða hinn frábæra sjónvarpsþátt Venna Páer. Fasteignasali með húmor og marg fleira.
#45 Gerður í Blush 09.08.2019 1:28:00
Gerður Huld Arinbjarnardóttir skólaði okkur til í hjálpartækjum ástarlífsins. Við fórum yfir áskoranir að stofna fyrirtæki ung af aldri, hvernig daglegur rekstur gengur fyrir sig, samskipti kynjanna og margt fleira.
#44 Fjölnir Þorgeirsson 02.08.2019 1:29:27
Við áttum létt og skemmtilegt spjall við Fjölni, Hann er alinn upp í sveit á sumrin og átti alltaf létt með að fóta sig í íþróttum. Átti Íslandsmet í íslandsmetum, atvinnumaður í snóker, deitaði kryddpíu og bjargaði hestum upp úr Reykjavíkurtjörn. Ef hann er ekki íslenski draumurinn hver er það þá ? Svo fóru Spekingar yfir þá stóru helgi sem er framundan. Gangið hægt um gleðinar dyr og ekki gera...
#43 Siggi Hlö 25.07.2019 1:24:37
Siggi Hlö er einn ástsælasti fjölmiðlamaður og partýkóngur landsins. Fyrrum auglýsingafrömuður og nú ferðafrömuður ásamt því að stjórna stuði þjóðarinnar alla laugardagseftirmiðdaga. Það er partý hjá Spekingum þessa vikuna.
#42 Kári Ársælsson 19.07.2019 1:41:50
Kári Ársælsson knattspyrnumaður, flugumferðarstjóri, byggingastjóri og fyrrverandi Herbalife sölumaður er gestur Spekinga þessa vikuna. Við fórum yfir farsælan knattspyrnuferil Kára, ameríska háskólalífið, umhverfisvæna byggingaframkvæmd og margt margt fleira.
#41 Bragi Þórðarson 12.07.2019 1:32:15
Alfræðiorðabókin um motórsport kom til okkar. Bragi Þórðarson sér um mótorsport þættina á RÚV og skrifar auk þess um formúlu 1 á Vísi. Við ræddum við hann um Gokart, Buggy, Rally-Cross, Rally, Torfræru, Nascar og Formúlu 1. Hvernig hann byrjaði í mótorsporti og þennan mikla áhuga sem hann hefur á greininni. Bragi er með Mótorvarpið á Podcaststöðinni.
#40 Brynjar Þór Hreggviðsson 05.07.2019 1:23:58
Stangveiði er umfjöllunarefni Spekinga þessa vikuna. Til þess að gera því góð skil fengum við frábæran veiðimann til okkar til þess að fjalla um stangveiði. Allt frá því að vera byrjandi og hvernig það er að guide-a David Beckham í ánum. http://www.vesturrost.is
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.