Podcaststöðin

Spekingar Spjalla

Comedy IS ↓ 290 episodes

Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.

Author

Podcaststöðin

Category

Comedy

Podcast website

podcast.is

Latest episode

Apr 17, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#39 Sesi 28.06.2019

Sesi kom til okkar og við ræddum um hvað er mest pirrandi við flug og því sem tengist því að fljúga. Að því loknu tækluðum við málefni sem snertir okkur öll, hvernig við eigum að nota salerni, og hvað má og hvað má ekki.  

#38 Kristinn SOÐ 21.06.2019

Kristinn Guðmundsson listamaður og kokkur gefur út matreiðsluþættina SOÐ. Dansari með mjúkar línur og snillingur í eldhúsinu... eða í stúdíó-inu.  Soð hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frumlega og skemmtilega matargerð.  Aðstoðarleikstjóri Á hvítum, hvítum degi og hann er gestur Spekinga þessa vikuna.

#37 Eva Ruza 13.06.2019

Hin stórskemmtilega Eva Ruza er gestur okkar þessa vikuna. Við fórum yfir uppvaxtarárin, gleðina og hvernig hún pantar pizzu í útlöndum.  Eva er frábær kynnir og veislustjóri og er margt til lista lagt.

#36 Spekingar Spjalla 07.06.2019

Spekingar fengu til sín góða gesti þessa vikuna. Sævar og Jón Þór komu og við ræddum um sumarið framundan. Við fórum yfir það helsta í grill málum og hvernig maður gerir vel við sig í grill mat. Við snertum létt á golf sumrinu og hvað sumarið hefur upp á að bjóða. Við enduðum svo á þungri steggjunarumræðu þar sem tveir í hópnum hafa verið steggjaðir og hinir tveir eru eftir. 

#35 Stebbi Jak - Dimma 30.05.2019

Rokkari með réttlætiskennd. Stebbi kom í skemmtilegt spjall og við fengum að líta rétt inn í líf hans, hvernig hann byrjaði í tónlist og hvernig hann fór úr því að vera feiminn í að vera besti performer landsins.  Gestastjórnandi var Sævar þar sem Sæþór var vant við látinn á ströndinni.

#34 Lóa Pind Aldísardóttir 23.05.2019

Lóa Pind Aldísardóttir fjólmiðlakona með meiru kom í létt spjall til okkar. Við fórum yfir Eurovision, Tossa, Hvar er best að búa og fleiri þörf málefni sem Lóa hefur verið að vinna að.

#33 Magnús Scheving 16.05.2019

Magnús Scheving, afreksmaður í íþrótta- og athafnalífinu, er gestur Spekinga þessa vikuna. Við fórum yfir víðan völl, allt frá því að Magnús hóf að hlaupa með skilaboð á milli húsa sem lítill pjakkur til þess að halda risa stóra hvatningar fyrirlestra um allan heim.

#32 Helga Braga Jónsdóttir 09.05.2019

Helga Braga er einn allra besti skemmtikraftur landsins. Helga Braga á marga ódauðlega karaktera sem lífgað hafa upp landann og það hefur hún að sjálfsögðu gert í eigin persónu. Við fórum yfir frábæra kafla úr lífi hennar, frá upphafi leiklistarinnar til WOW ævintýrsins.

#31 Hjálmar Örn 03.05.2019

Hjálmar Örn (hjalmarorn110) er gestur Spekinga þessa vikuna. Hjálmar Örn hætti dagvinnunni og lét drauma sína rætast. Hann er nú í fullu starfi sem skemmtikraftur. Hjálmar heldur úti líflegu Snapchatti þar sem margir karektarar koma við sögu. Við fórum meðal annars  yfir skrautlega skólagöngu og hvernig tæplega 2 milljónir hurfu út af bankareikningi hans. 

#30 Snorri Barón 25.04.2019

Snorra Barón er margt til lista lagt. Auglýsinga- markaðs- og umboðsmannasnillingur sem tæklar allar hindranir í vegi hans með glæsibrag. Snorri kom í kaffi til Spekinga í vikunni. Snorri, ásamt fleirum, rekur auglýsingastofuna Maura og markaðs- og umboðsskrifsstofuna Bakland .

#29 Heiðar Logi 18.04.2019

Það er magnað hvernig Heiðar Logi tók rétta beygju í lífinu og hefur skapað sér stórt nafn sem atvinnumaður á brimbretti. Glæsileg fyrirmynd sem ferðast um landið í leit að góðri öldu. Við hvetjum alla til að fylgjast með Heiðari á Instagram og Snapchat undir heidarlogi.

#28 Kryddi - Frægðarförin til Dallas 11.04.2019

Kristinn Rúnar Kristinsson AKA Kryddi kom til okkar í annað sinn. Við fórum yfir frægðarför hans til Dallas þar sem hann hitti átrúnaðargoðið sitt Dirk Nowitzki og elti þar átján ára gamlan draum.  Kristinn gaf út bókina Maníuraunir - Reynslusaga strípalingsins á Austurvelli í október 2018 og heldur fyrirlestrana Rússíbanalífið mitt. Bók og bókun fyrirlestra eru á www.kristinnrunar.com .

#27 Auðunn Blöndal 04.04.2019

Sannkallaður atvinnumaður á sínu sviði. Auðunn Blöndal þekkja flestir landsmenn enda hefur hann verið á skjám landsmanna í átján ár. Við áttum skemmtilegt spjall við Auðunn, fórum yfir ýmis mál og auðvitað Atvinnumennina okkar en þriðja þáttaröð hófst síðastliðinn sunnudag.

#26 Patrekur Jóhannesson 28.03.2019

Handknattleiks-frömuðurinn Patrekur Jóhannesson er gestur Spekinga þessa vikuna. Frábær leikmaður og enn betri þjálfari. Patrekur hefur iðkað handknattleik sem leikmaður og þjálfari á hæsta stigi með góðum árangri. Nú er hann í vígahug og gerir hann atlögu að Íslandsmeistaratitlinum með Selfossi áður en hann færir sig yfir til Skjern í Danmörku í sumar. Við óskum Patreki góðs gengis í komandi átök...

#25 Frosti Logason 24.03.2019

Frosta Logason þekkja allir, afburða gítarleikari sem snéri séri sé að þjóðmálum. Stýrir nú útvarpsþættinum Harmageddon með Mána Péturssyni, þar sem þjóðmálin eru rædd eins og þau eru.

#24 Ármann Reynisson 24.03.2019

Viðskipta- og athafnamaður sem vatt kvæði sínu í kross og hóf ritstörf. Ármann Reynisson er litríkur persónuleiki og brautryðjandi í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Ármann er gestur okkar þessa vikuna og við komum víða við. Ármann skrifar vinjettur og nítjánda bók hans kemur út í haust. Fyrri bækur hans má nálgast á www.armannr.com .

#23 Pétur Marinó Jónsson 2.0 13.03.2019

Pétur Marinó Jónsson snýr aftur til Spekinga og fór yfir helstu atburði UFC frá desember sl. Nú bíður annað risastórt verkefni hjá Gunnari Nelson þann 16. mars nk. gegn Leon Edwards og við fórum að sjálfsögðu yfir það. Pétur Marinó er ritstjóri og eigandi MMA FRÉTTA , stjórnandi Tappvarpsins hlaðvarpsþáttar og stjórnar jafnframt Búrinu á Stöð2Sport og lýsir þar bardögum.

#22 Héðinn Sveinbjörnsson 28.02.2019

Héðinn Sveinbjörnsson er hress og skemmtilegur. Hann er einnig heimspekilega þenkjandi. Héðinn er stjórnandi þáttarins Koma svo! sem er pepp fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefnum barna og ungmenna. Koma svo! hóf göngu sína í haust og hefur verið á Kjarnanum en er nú kominn í samstarf við Podcaststöðina. Hægt er að nálgast Koma svo! á öllum helstu hlaðvarpsveitum, Spotify, Sound...

#21 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir 22.02.2019

Spekingar mættu ofjarli sínum þessa vikuna þegar Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mætti í heimsókn. Hæstvirtur ráðherra ber ekki bara langan titil heldur er nafn hennar næstum því lengra. Þórdís Kolbrún er eldklár, ótrúlega skemmtileg og hefur kennt okkur að ef hugur fylgir verki þá getum við öll náð langt. Af henni eigum við að læra í leik og í starfi.

#20 Ilmur Kristjánsdóttir 14.02.2019

Ilmi Kristjánsdóttur er margt til lista lagt. Gríðarlega hæfileikarík leikkona og handritshöfundur og lætur auk þess til sín taka í þjóð- og velferðarmálum. Það er engin ófærð þegar Ilmur tekur að sér hlutina. Við hvetjum hlustendur til að læka og sub´skræba Podcaststöðina í hlaðvarpsforritum og á Facebook og Instagram (ZuckerbergsMiðlarnir).

#19 YouTubeJón 2.0 08.02.2019

YouTubeJón er mættur aftur. Hvað er að frétta af YouTube og hvað er að frétta af Jóni. Sævar Ríkharðsson var einnig með okkur og við fórum stóru málin.

#18 Tómas Þór Þórðarson 30.01.2019

Tómas Þór Þórðarson er gestur þáttarins þessa vikuna. Tómas Þór gefur Guðmundi Benediktssyni ekki þumlung eftir þegar kemur að fagurfræðum íþróttafréttamennskunnar. Matti og Tómas fóru yfir handboltann en settu svo fókusinn á Superbowl sem er handan við hornið. Við hvetjum hlustendur til að gerast áskrifendur að þættinum með því að ýta á “subscribe”. Það kostar ekkert. Þáttinn má jafnf...

#17 Reynir snappari 24.01.2019

Reynir1980 (Reynir Bergmann) er einn vinsælasti snappari landsins. Hann hefur vakið gríðarlega athygli fyrir að vera bæði skemmtilegur og hreinskilinn snappari og það kunna fylgjendur hans að meta. Reynir kíkti til okkar og við fórum yfir uppvaxtarárin og hvernig Snapchat hefur haft áhrif á líf hans. Þáttinn má jafnframt nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum fyrir iPhone og Android, í iTunes á sl...

#16 HM og handboltahetjur 18.01.2019

Glöggir landsmenn hafa tekið eftir því að nú er í gangi HM í handbolta. Strákarnir okkar eru komnir áfram í milliriðla. Einar Ingi Hrafnsson og Jóhann Gunnar Einarsson kunna leikinn upp á tíu. Við fengum þá í heimsókn og ræddum um handboltann.

#15 Hafsteinn Ægir Geirsson 11.01.2019

Hafsteinn Ægir Geirsson hefur verið fremsti hjólreiðamaður landsins í áraraðir. Fram að því var hann fremsti siglingarmaður landsins með 2 ólympíutúra á bakinu. Með hjólreiðunum rekur hann Hjólaþjálfun ásamt kærustu sinni, Maríu Ögn Guðmundsdóttur en hún gefur Hafsteini ekkert eftir þegar kemur að hjólreiðunum. Þið finnið flest allt sem tengist hjólreiðum á hjolathjalfun.is og einnig á Snappinu, h...

Listen to the Spekingar Spjalla podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.