Podcaststöðin

Spekingar Spjalla

Comedy IS ↓ 290 episodes

Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.

Author

Podcaststöðin

Category

Comedy

Podcast website

podcast.is

Latest episode

Apr 17, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#14 Spekingar Spjalla 08.01.2019

Spekingar voru tveir í stúdíó í dag. Við gerðum upp jólin, áramótaheit, markmiðasetningu og laufléttar fréttir í lokin.

#13 Áramótaþáttur 28.12.2018

Nú er árið á enda og að því tilefni fengum við til okkar mikla spekinga. Þórhallur Ágústsson og YouTube Jón eru gestir okkar í síðasta þætti ársins og við fórum yfir það helsta.

#12 Simmi Smiður 20.12.2018

Simmi smiður er gestur okkar þessa vikuna. Við fórum yfir það hvernig það er að vera smiður sem komst ekki í slökkviliðið en varð lögga. Við kynntumst Simma á Snapchat og við fórum yfir kosti og galla þess að vera með opið Snapchat.

#11 Óskar Finnsson 13.12.2018

Óskar Finnsson er meðal fremstu veitingamanna á Íslandi og rak fyrsta alvöru steikhús landsins, Argentínu. Óskar hefur ástríðu fyrir matargerð og hefur starfað við hana víðsvegar um heiminn.

#10 Pétur Marinó Jónsson 06.12.2018

Pétur Marinó Jónsson er gestur okkar þessa vikuna. Pétur Marinó kann öll brögðin í bókinni þegar kemur að bardagaíþróttum og sérstaklega UFC. Framundan er stór bardagi hjá Gunnari Nelson. Við fórum yfir það og miklu miklu fleira.

#9 Stefán Pálsson – Jólabjór 30.11.2018

Hinn bráðskemmtilegi Stefán Pálsson er gestur okkar þessa vikuna. Stefán er hafsjór af fróðleik og fræddi okkur um jólabjóranna. Stefán er kennir í Bjórskólanum og er í símaskránni ef þig vantar heimakennslu.  

#8 Guðmundur Benediktsson 23.11.2018

Gummi Ben er hinn eini sanni maður þjóðarinnar. Það er EKKERT sem leikur ekki í höndunum á þeim manni. Ísskápastríð hefst á ný þann 28. nóvember nk. og á sama tíma verður Stóra fótboltabókin með Gumma Ben fáanleg í öllum betri bókaverslunum.

#7 Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir 16.11.2018

Júlíana Sara og Vala Kristín eru skemmtilegar og hæfileikaríkar leikkonur, höfundar og margt fleira. Júlíana og Vala eru gestir okkar þessa vikuna.

#6 Kristinn Rúnar Kristinsson 09.11.2018

Kristinn Rúnar Kristinsson deildi með okkur sögum af baráttunni við geðhvörf. Nú er komin út bók hans, Maníuraunir – Reynslusaga strípalingsins á Austurvelli. Í bókinni segir Kristinn sögur af mikilli hreinskilni, tæpitungulaust og dregur ekkert undan. Bókina er hægt að nálgast á www.kristinnrunar.com.

#5 Logi Bergmann Eiðsson 02.11.2018

Logi Bergmann stjórnmálafræðingur er þekktari fyrir afrek sín í fjölmiðlum. Logi er einn reyndasti spyrill landsins en nú var hann hinum megin við borðið. Logi er gestur Spekinga í þessari viku og það var spjallað.

#4 Bára Einarsdóttir 18.10.2018

Veiðikona, afreksíþróttakona í skotfimi, flugkona og áhugakona um jaðarsport. Bára Einarsdóttir var gestur okkar að þessu sinni. Hún sagði okkur frá heimsmeistaramótinu í Kóreu, veiðiferðum til Eistlands, frábæran en stuttan feril í torfæru og margt fleira.

#3 Einar Bárðarson 11.10.2018

Einar Bárðarson athafnaskáld fagnar 20 ára höfundarafmæli í ár. Við áttum létt og skemmtilegt spjall við Einar og fórum yfir Dansband EB, Skítamóral, tónlistina, umboðsmennskuna og margt margt fleira.

#2 YouTube Jón og Vísindakirkjan 27.09.2018

YouTube Jón mætti óboðinn í hljóðverið, spjallaði við okkur um Vísindakirkjuna og hvernig áhugi hans á kirkjunni jaðrar við þráhyggju.

#1 Steinn Ármann Magnússon 26.09.2018

Steinn Ármann Magnússon er maður margra hatta og ótrúlega fjölhæfur á mörgum sviðum. Steinn Ármann er fyrsti gestur okkar spekinga og við spjölluðum.

Kynning 18.09.2018

Spekingar Spjalla er vikulegur þáttur um fólk fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki… og margt margt fleira. Hér kemur létt kynning á þáttastjórnendum Matta og Sæþóri.

Listen to the Spekingar Spjalla podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.