Snorri Másson

Snorri Másson ritstjóri

News IS ↓ 95 episodes

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir. Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ritstjori.is

Author

Snorri Másson

Category

News

Podcast website

www.ritstjori.is

Latest episode

Mar 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Fréttir vikunnar | Gervikapítalismi, slappur utanríkisráðherra og ritskoðun ritstjórans á TikTok (#21) 17.11.2023

Fréttir vikunnar eru lentar. Í dag beinum við sjónum okkar að nýjum „tímabundnum“ skatti stjórnvalda, stríðsátökum í Palestínu, ritskoðun á samfélagsmiðlum og íslenskri tungu. Samstarfsaðilar í fréttum vikunnar eru Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.

Viðtal | Elín Þöll Þórðardóttir: „Það er ekkert að því að vilja halda í sína menningu“ (#20) 15.11.2023

Helsta ógnin sem steðjar að íslenskri tungu er viðhorf sjálfra Íslendinga, að sögn prófessors í málvísindum. Þeir eru haldnir minnimáttarkennd. Elín Þöll Þórðardóttir er prófessor við McGill háskóla í Montréal í Kanada. Hún hefur starfað við rannsóknir á sviði málvísinda og talmeinafræði við erlenda og íslenska háskóla og hefur verið búsett utan landsteinanna í meira en 25 ár. Á undanförnum árum h...

Grein | Hin rammíslenska barátta gegn vókisma (#19) 13.11.2023

Hluti greinar af www.ritstjori.is: Hugsað til Gísla Pálma í viku íslenskrar tungu. Hvað finnst okkur um átak stjórnvalda af þessu tilefni? Og voru Ástríkur og Steinríkur „woke“?

Fréttir vikunnar | Hugmyndafræði á RÚV, svik Framsóknar og ótrúleg ummæli Pírata (#18) 10.11.2023

Í fréttum vikunnar að þessu sinni förum við yfir augljós kosningasvik Framsóknar, alveg ótrúleg ummæli oddvita Pírata um Morgunblaðið, ritskoðunartilburði á sviði gervigreindar og þörfina á því að íslenskir auðmenn gefi til baka til samfélagsins. Einnig: Hugmyndafræði í listrýni á RÚV. Ritstjórinn minnir á samstarfsaðila frétta vikunnar, Þ. Þorgrímsson, Domino’s Pizza og Hringdu.

Grein | Ákall til íslenskra auðmanna (#17) 09.11.2023

Grein af www.ritstjori.is - Við þurfum að taka málin í eigin hendur. https://www.ritstjori.is/p/akall-til-islenskra-aumanna

Grein | Öryggi er stórhættulegt í röngum höndum (#16) 07.11.2023

Grein af ritstjori.is 7. nóvember 2023: Það getur haft afar neikvæð áhrif ef varaformaður Sjálfstæðisflokksins gengur of langt til að ná stjórn á gervigreind.

#14 Viðtal: Steingrímur J. Sigfússon um vígbúnaðarbrjálæði, hrunið og stórútgerðina 01.11.2023

Hér rifjar Steingrímur J. Sigfússon upp tíma sinn sem fjármálaráðherra, embætti sem hann tók við á stormasömum tíma í febrúar 2009. Einnig er rætt um stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs og vígbúnaðarbrjálæðið sem nú hefur gripið um sig um víða veröld. Svo að fátt eitt sé nefnt fer Steingrímur einnig yfir nauðsyn þess að Íslendingar búi til sinn eigin mat, standi á eigin fótum sem sjálfstæð þjóð, en...

#13 Grein: Plís, ekki segja lýðræði og frelsi 30.10.2023

Grein á ritstjori.is 30. október: Menn tala um þriðju heimsstyrjöld og við erum með áhrifalausan forsætisráðherra. Það er mögulega hræðilegt

#12 Sannleikurinn um þriðju vaktina og lausn við klámvandanum 27.10.2023

Fréttir vikunnar: Kvennaverkfallið, þriðja vaktin, klámsýki, íslenski herinn og salan á Íslandsbanka. Samstarfsaðilar ritstjórans eru: Þ. Þorgrímsson, Domino's Pizza og Hringdu.

#11 Grein: Ég myndi deyja fyrir Vestmannaeyjar 23.10.2023

Grein 23. október 2023 af ritstjori.is. Kannski væri gott fyrir strákana okkar að stofna íslenskan her.

#10 Fréttir vikunnar: Hrun siðmenningar og sigur upplýsingaóreiðunnar 20.10.2023

Raunveruleg upplýsingaóreiða á stríðstímum og síðan ekki endilega svo raunveruleg upplýsingaóreiða á tímum heimsfaraldurs (opinberir starfsmenn eru farnir að tala gegn bólusetningu ungra manna). En helst beinum við athygli okkar í vikunni að hruni í frjósemi á meðal Íslendinga og líka Evrópubúa og förum yfir það hvað hægt er að gera í málinu. Afleiðingar þess að aðhafast ekki hljóta að verða mjög...

#9 Grein: Þarna erum við bara ekki að standa okkur 18.10.2023

Grein 18. október 2023 af ritstjori.is. Það er auðvitað tímabært að ríkið styðji frekar frjósemi en ófrjósemi. En meira þarf til

#8 Grein: Allt stefnir í sögulegt stórslys 16.10.2023

Grein frá 16. október 2023 á ritstjori.is. Stjórnmálamenn rífast ekkert um mikilvægasta mál okkar kynslóðar. Til hvers eru þeir þá?

#7 Fréttir vikunnar: Afsögn, ófyndin ræða og ritskoðun 13.10.2023

Helstu umfjöllunarefni þáttarins í dag eru stórundarlegur stólaleikur ríkisstjórnarinnar – og gífurlega óánægjuleg frammistaða hennar á öðrum sviðum. Þá víkjum við að ræðu Áslaugar Örnu frá því í síðustu viku um Svandísi Svavarsdóttur og loks förum við yfir ritskoðunartilburði Evrópusambandsins. Að auki fjöllum við sérstaklega um nýtt „listaverk“ sem nú gnæfir yfir Ingólfstorgi, þar sem sjá má lun...

#6 Grein: Með hverjum heldur þú í stríðinu? 11.10.2023

Grein frá 9. október á ritstjori.is. Það veltur á ýmsu, aðallega upplýsingunum sem þér er leyft að sjá. Linkur: https://www.ritstjori.is/p/hverjum-heldur-u-me-i-striinu

#5 Fréttir vikunnar: Samfylking Arnþrúðar Karlsdóttur og blaðamennska Viðskiptaráðs  06.10.2023

Það er komið að öðrum þætti frétta vikunnar hjá Snorra Mássyni ritstjóra þar sem þú getur verið viss um að fá þinn fréttaskammt fyrir vikuna. Farið er yfir allt frá ástandi efnahagsmála til vandræða verslunarinnar Kjötborgar og Julian Assange. Sérstaklega er kafað í þrjá þætti: Nýja ásýnd Samfylkingarinnar, blaðamennsku Viðskiptablaðsins og Viðskiptaráðs (þetta er það sama) og loks þróun stjórnmál...

#4 Grein: Hitler, Trump og ritstjórinn 04.10.2023

Grein frá 4. október: „Rannsóknarblaðamenn“ hafa því miður ekki einkaleyfi á sannleikanum. Lesa má greinina hér: https://www.ritstjori.is/p/hitler-trump-og-ritstjorinn

#3 Grein: Óvinur minn er barnaníðingur 03.10.2023

Grein frá 3. október 2023: Samkomulagið um veruleikann er hrunið Lesa á vef hér: https://www.ritstjori.is/p/ovinur-minn-er-barnaniingur

#2 Grein: Flóttinn frá flóttamönnunum 02.10.2023

Grein frá 2. október 2023: Umræðan breytist, en börnin eru enn þá í búrum. Lesa á vefnum hér: https://www.ritstjori.is/p/flottinn-fra-flottamonnunum

#1 Fréttir vikunnar: Vafasamir Vinstri grænir og smekkleysi í Reykjavík 29.09.2023

Í þessum þætti af fréttum vikunnar fer Snorri Másson ritstjóri yfir helstu fréttir sem nú berja á Íslendingum. Kafað er dýpra í vafasama baráttu Vinstri grænna gegn hatursorðræðu, umfjöllun viðskiptamiðlanna okkar um samkeppnisbrot og húsnæðiskreppu stjórnvalda. Meira um málið á www.ritstjori.is.

Listen to the Snorri Másson ritstjóri podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.