Snorri Másson

Snorri Másson ritstjóri

News IS ↓ 95 episodes

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir. Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ritstjori.is

Author

Snorri Másson

Category

News

Podcast website

www.ritstjori.is

Latest episode

Mar 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Grein | Áður en þú tjáir þig – hvað heldurðu að lögreglunni finnist? 23.01.2024

Fæstir spyrja sig þessarar spurningar áður en þeir stinga niður penna, en freistast þó til að klaga í lögguna þegar önnur úrræði þrjóta. Grein: www.ritstjori.is

Grein | Bjarni sjálfur hefur brugðist 22.01.2024

Okkur leyfist sem betur fer að tjá okkur um útlendingamál, en það er grátlegt að formaður Sjálfstæðisflokksins reyni að saka „þingið“ um að bregðast. Grein á vef ritstjórans: https://www.ritstjori.is/p/bjarni-sjalfur-hefur-brugist

Fréttir vikunnar | Ritskoðun í Borgarleikhúsinu, fjölbreytileiki í flugi og sjálfstortíming 19.01.2024

Leikhúsmálin, orkumálin, eldgos í Grindavík, forval Repúblikana og ýmislegt fleira í fréttum. Samstarfsaðilar ritstjórans í fréttum vikunnar eru Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.

Fréttir vikunnar | Nýja íhaldssemin, fjárfestingar Miðflokksins og siðareglur ríkisstarfsmanna 12.01.2024

Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir ólögmætar aðgerðir matvælaráðherra og þá ómögulegu stöðu sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í, svo er vikið að erjum í Blaðamannfélagi Íslands, að sæmilegum tekjum Miðflokksins úr opinberum sjóðum og að nýjum siðareglum ríkisstarfsmanna. Í samhengi við þetta allt förum við yfir þá íhaldssveiflu sem orðið hefur á meðal ungs fólks. Hvers vegna er það?...

Grein | Leiðinlegasti maður Íslandssögunnar hefur óvart rétt fyrir sér (#42) 10.01.2024

Hvað verður um Vínbúðina þegar hún verður bara orðin hver önnur vínbúð? Dýrt að vera með óstarfhæfa ríkisstjórn. Grein af www.ritstjori.is.

Grein | Allir íbúar Svíþjóðar skulu búa sig undir stríð (#41) 08.01.2024

Grein af ritstjori.is: Sænsk hermálayfirvöld eru ekkert að grínast. Hvernig verður daglegt líf? https://www.ritstjori.is/p/allir-ibuar-svijoar-skulu-bua-sig

Fréttir vikunnar | Forsetinn á móti ættjarðarljóðum, símasjúklingamyndband og Gay rektor (#40) 05.01.2024

Við förum yfir ákvörðun sitjandi forseta um að segja þetta gott, líklega arftaka Guðna og kosti þeirra og ókosti, víkjum að stöðu íslenskrar tungu í atvinnurekstri, ræðum afsögn Claudine Gay, rektors Harvard-háskóla, og loks stöðuna í Palestínu. Samstarfsaðilar frétta vikunnar eru Þ. Þorgrímsson, Domino's Pizza og Hringdu.

Grein | Dóri DNA hugleiðir í alvöru forsetaframboð (#39) 02.01.2024

Grein af ritstjori.is: Dóri DNA er ekki að grínast með forsetaframboð, samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum ritstjórans. Við þurfum forseta sem vill vekja ljón í stað þess að leiða lömb.

Fréttir vikunnar | Lífshættulegar launahækkanir, verðbólga Sjálfstæðisflokksins og skattur dauðans (#38) 29.12.2023

Fréttir vikunnar að þessu sinni: Verðbólga í boði Sjálfstæðisflokksins, vel heppnuð áróðursherferð Samtaka atvinnulífsins, Íslendingar deyja hægt og rólega út - og svo: skattur á hina dauðu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Domino's, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.

Grein | Að deyja út, löturhægt (#37) 27.12.2023

Það hljómar ekki glæsilega, en það er þó það sem Íslendingar eru að gera. Góðu fréttirnar eru að vel er hægt að snúa dæminu við. Grein af www.ritstjori.is.

Fréttir vikunnar | Pólitískir sendiherrar, jólaleiðbeiningar Fjölmiðlanefndar og eldgos (#36) 22.12.2023

Eldgos við Grindavík ber á góma og almannavarnahlutverk RÚV í því samhengi. Því næst er farið yfir leiðbeiningar Fjölmiðlanefndar um hvernig beri að haga sér um hátíðirnar – enga upplýsingaóreiðu í jólaboðinu! Einnig: Erfið staða í Bandaríkjunum, sendiherraskipun utanríkisráðherra og málfrelsi á samfélagsmiðlum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Domino's, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.

Grein | Rofið við raunveruleikann (#35) 19.12.2023

Ritstjórinn hefur samúð með þjáningarbróður sínum í Silfrinu, en auðvitað hefur RÚV ekkert raunverulegt almannavarnahlutverk á 21. öld. Einnig: Háfreudískt tíst sonar útvarpsstjóra

Í alvöru, samt: Ekki kaupa bækur í Bónus (#34) 18.12.2023

Grein af www.ritstjori.is. Með fullri virðingu fyrir Ester í Bónus, eru aðrir líklegri til þess að halda lífi í ævafornri bókmenningu Íslendinga.

Fréttir vikunnar | Aumingjavæðing, slaufun Esterar hjá Bónus og verkfall (#33) 18.12.2023

Á dagskrá fréttavikunnar: Seinkun grunnskóla, tregða Bónus til að selja bækur um þriðju vaktina, virkjanaþrá Samfylkingar, verkfall flugvirkja og nafnleynd tæknifrömuða í Kísildal. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino’s og Hringdu.

Grein | Hvaðan koma skoðanir þínar? (#32) 14.12.2023

Það er oft þungbært að svara þeirri spurningu. En við fáum aðstoð í nýrri bók Magnúsar Sigurðssonar, framúrskarandi íslensks skálds.

Grein | Nafnlaus nörd á netinu afhjúpaður (#31) 12.12.2023

Forbes afhjúpar nafnlausan tæknifrömuð af óljósum ástæðum. Er það gott? Nýstárleg hugmyndafræði ríður húsum – og Egill Helgason mun ekki fíla hana.

Fréttir vikunnar | Jólaskatturinn, gaslýsingar og valdalaus forsætisráðherra (#30) 08.12.2023

Í fréttum vikunnar: Skattur á jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna, gaslýsingar hins opinbera, PISA-kannanir og ástæður hrunsins og loks nýjar tillögur ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino’s og Hringdu.

Grein | Myndband sem segir meira en þúsund orð (#29) 06.12.2023

Grein af ritstjori.is: Katrín Jakobsdóttir vs. Guðmundur Emil?

Grein | Nú þarf stóran galdur (#28) 05.12.2023

Grein af ritstjóra: Skólakerfið er að bregðast Íslendingum. Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.

Fréttir vikunnar | Slúður um Pírata, sjálftaka Sjálfstæðisflokksins og víkingar vakna (#27) 30.11.2023

Slúður um handtöku Pírata, afnám styrkja til stjórnmálaflokka sem Sjálfstæðisflokkurinn hagnast mest á, fullveldisdagurinn og í því samhengi: Víkingar vakna, og loks kynjamál Ríkisútvarpsins. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.

Grein | Passaðu þig hvað þú ert með í símanum (#26) 29.11.2023

Fyrirhuguð hert löggjöf um hatursorðræðu á Írlandi tekur ekki aðeins til efnis sem þú deilir, heldur líka efnis sem þú hefur í vörslu þinni. Þróunin er víti til varnaðar.

Grein | Það er eitthvað rotið í ríkinu (#25) 28.11.2023

24 milljónir í „skaðabætur“ til skrifstofustjóra. Ef við megum ekki reka neinn, verðum við eiginlega að reka alla. Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.

Fréttir vikunnar | Miðstýrt ríkishagkerfi og sannleikurinn um samfélagsábyrgð fyrirtækja (#24) 24.11.2023

Illa heppnaður áætlunarbúskapur Seðlabankans og nýr forseti Argentínu sem vill leggja niður seðlabanka. Einnig: Dagur erlendrar tungu og brellan sem er „samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja.“ Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.

Viðtal | Eiríkur Atli: Stelpur fylla í túttur, strákar fá sér hár (#23) 21.11.2023

Eiríkur Atli Hlynsson er 27 ára verkfræðingur og iðnaðarmaður með eigið fjölskyldufyrirtæki, sem fór fyrr í þessum mánuði til Tyrklands í hárígræðslu. Hann segir enga skömm að því að bregðast strax við hármissinum – og mælir heils hugar með því að leggja land undir fót.

Grein | Ekkert nýtt, nema valdarán (#22) 20.11.2023

Grein af ritstjori.is: Valdarán eru ekki lengur bara í sögubókunum. Hvað eiga Spánverjar, Argentínumenn og OpenAI sameiginlegt þessa dagana?

Listen to the Snorri Másson ritstjóri podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.