RÚV

Sjö mínútur með fréttastofu RÚV

News IS ↓ 64 episodes

Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Mar 15, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þegar heilt bæjarfélag var rýmt á nokkrum klukkustundum 13.11.2023

Hvernig var heilt bæjarfélag rýmt á nokkrum klukkustundum? Sjö mínútur með fréttastofu RÚV eru helgaðar stöðunni í Grindavík og aðdraganda þess að íbúum var gert að yfirgefa bæinn sinn. Viðmælandi er Valur Grettisson. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Vandræði hjá fyrrverandi forstjóra Marel og hvað gerist hjá KSÍ? 10.11.2023

Af hverju hætti forstjórinn hjá Marel? Hver verður næsti formaður KSÍ? Magnús Geir Eyjólfsson, Einar Örn Jónsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Er borgin í plús? Og er silla sýnatökupinni jarðhræringanna? 08.11.2023

Hvort verður borgin rekin í plús eða mínus á næsta ári? Af hverju hafa vísindamenn svona miklar áhyggjur nú af jarðhræringunum á Reykjanesskaga? Magnús Geir Eyjólfsson og Ragnhildur Thorlacius segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Svona var Íslendingunum forðað frá Ísrael eftir árás Hamas 06.11.2023

Hvernig var yfir hundrað Íslendingum forðað frá Ísrael eftir hryðjuverk Hamas í byrjun október? Og hvað kostar slíkar björgunaraðgerð? Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Árás á flóttamannabúðir og skotárás í Úlfarsárdal 03.11.2023

Getur árás á flóttamannabúðir verið eitthvað annað en árás? Hvað gerðist í Úlfarsárdal í gær? Dagný Hulda Erlendsdóttir og Sólveig Klara Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Ríkisstjórn sem virðist ekki springa og Matthew Perry 01.11.2023

Af hverju virðist ríkisstjórnin ekki geta sprungið? Hvers vegna syrgir heimsbyggðin Matthew Perry. Magnús Geir Eyjólfsson, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Nýtt mat í hoppukastalamáli og verst geymda leyndarmál Íslandssögunnar 27.10.2023

Hversu mikilvægir eru vindmælar eða öllu heldur skortur á þeim í Hoppukastalamálinu? Af hverju eru Bandaríkjamenn ekki löngu búnir að herða byssulöggjöfina sína? Hvert er eitt versta geymda leyndarmál Íslandssögunnar? Ólöf Erlendsdóttir og Ólöf Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Ruglingslegt hryðjuverkamál og sundraðir Repúblikanar 25.10.2023

Af hverju er hryðjuverkamálið svona ruglingslegt og hvers vegna geta Repúblikanar ekki komið sér saman um þingforseta. Stígur Helgason og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson.

Samherjaskjölin og munúðarfull fasteignaauglýsing 23.10.2023

Hvers vegna hefur rannsókn Samherjamálsins tekið svona langan tíma? Má auglýsa unaðstæki í fasteignaauglýsingu? Stígur Helgason, fréttamaður, og Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Ástandið í Mið-Austurlöndum og fjórða gosið væntanlegt 20.10.2023

Getur ekkert komið í veg fyrir innrás Ísraels á Gaza? Þarf alltaf að vera gos? Bjarni Pétur Jónsson og Kristín Jónsdóttir segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson.

Skelfileg loftárás á spítala á Gaza og heimsókn Joe Bidens til Ísraels 18.10.2023

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, er væntanlegur til Ísraels í dag í skugga skelfilegrar árásar á sjúkrahús á Gaza. Stjórnarandstaðan er nokkuð sátt með vandræðagang ríkisstjórnarinnar. Bjarni Pétur Jónsson og Magnús Geir Eyjólfsson segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson

Ráðherrar skiptast á embættum og Taylor Swift 16.10.2023

Hverjir voru sáttir við stólaleikinn á laugardag? Er Taylor Swift búin að sigra heiminn. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Ingunn Lára Kristjánsdóttir segja frá. Umsjónarmaður er Freyr Gígja Gunnarsson.

Ráðherrakapall, Gaza og Gylfi Þór 13.10.2023

Er einhver sem veit hver næsti fjármálaráðherra verður? Er von um frið í stríði Ísraels og Hamaz? Leikur Gylfi Þór Sigurðsson með landsliðinu í kvöld? Magnús Geir Eyjólfsson, Bjarni Pétur Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segja frá.

Frásögn af afsögn 10.10.2023

Afhverju sagði fjármálaráðherra af sér og hvaða áhrif hefur afsögnin á ríkisstjórnarsamstarfið? Magnús Geir Eyjólfsson segir frá atburðarrás gærdagsins.

Listen to the Sjö mínútur með fréttastofu RÚV podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.