Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

Sports IS ↓ 120 episodes

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

Author

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#44 - Siggi Sveins er örvhent stórskytta sem spilar rétthent 31.01.2025

Stórskyttan Sigurður Valur Sveinsson er gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna. Siggi Sveins á að baki frábæran handboltaferil þar sem hann lék sem atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni. Við förum aðeins yfir handboltaferilinn en ræðum líka mikinn golfáhuga Sigga. Hann er með um 17 í forgjöf í dag en var lægst með um 12 í forgjöf. Í ljós kom að þessi örvhenta stórskytta spilar rétthent! Við ræðum þ...

#43 - Sigríður Andersen dæmir hiklaust víti á sjálfan sig 24.01.2025

Gestur vikunnar í Seinni níu er Sigríður Andesen sem er nýkjörin aftur á þing fyrir Miðflokkinn. Hún fór að spila golf 2021 eftir að hafa hætt á þingi og fékk í kjölfarið mikla golfdellu. Komið er víða við í þættinum. Sigríður segir frá nýju Íslandsmeti sem hún setti í bekkpressu á dögunum. Einnig fáum við að heyra frá ótrúlegri golfferð sem Sigga fór ein í til Orlando eftir að hafa kynnst Golf No...

#42 – Pétur í ECCO hefur þrisvar farið á Masters 16.01.2025

Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er Pétur Þór Halldórsson sem hefur um árabil verið ECCO umboðið hér á landi. Í þættinum er farið yfir það hvernig Pétur byrjaði í golfi eftir að hafa byrjað að flytja inn golfskó frá Ecco. Í dag selja fyrirtæki hans árlega um 50 þúsund pör af ECCO-skóm til Íslendinga. Í spjalli okkar við Pétur er komið víða við en í ljós kom að Pétur hefur þrisvar farið og fy...

#41 – Brynjar Níelsson nennir ekki að æfa 09.01.2025

Fyrsti gestur ársins hjá okkur í Seinni níu er Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður og lögmaður. Brynjar hefur spilað marga af bestu golfvöllum Bretlandseyja þó hann eigi í erfiðleikum með að muna nöfnin á þeim öllum. Brynjar var mjög góður íþróttamaður á sínum yngri árum og var mjög liðtækur í öllum boltaíþróttum. Það hefur hins vegar ekki skilað sér inn í golfið en líklega á æfingaleysi e...

#40 – Áramótauppgjör Seinni níu 30.12.2024

Lokaþáttur ársins í Seinni níu er sannkallaður áramótaþáttur. Í þættinum spilum við brot úr þáttum frá 32 af þeim viðmælendum sem komu í heimsókn til okkar á árinu. Spiluð eru brot úr mörgum af vinsælustu þáttum ársins. Meðal þeirra brota sem eru spiluð í þættinum: - Halli Melló segir frá því hvað hann óttast mest - Þorgerður Katrín fer yfir það sem fer í taugarnar á henni á golfvellinum - Jakob B...

#39 – Venni kastaði kylfu og sló í meðspilara á sömu holu 20.12.2024

Síðasti gestur okkar í Seinni níu á þessu ári er Vernharð Þorleifsson sem flestir þekkja fyrir afrek sín í júdó á sínum tíma. Hann keppti á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996 í júdó en á þeim tíma þótti það mikið afrek að vinna sér inn þátttökurétt á leikunum. Eftir júdóferilinn skapaðist tómarúm í lífi Venna sem fór meðal annars að gera leikna sjónvarpsþætti sem um einkaþjálfarann Venna Páer. Þe...

#38 – Golf hjálpaði Blikum að verða Íslandsmeistarar 12.12.2024

Við fáum góða gesti í þátt vikunnar í Seinni níu. Blikarnir Damir Muminovic og Höskuldur Gunnlaugsson urðu Íslandsmeistarar með liði Breiðabliks í haust. Þeir eru hins vegar báðir forfallnir golfáhugamenn og vilja spila golf eins mikið og kostur er. Damir byrjaði í golfi fyrir rúmu ári síðan og búinn að ná ótrúlegum tökum á golfíþróttinni. Hann er í dag með um 10 í forgjöf og spilaði ekki nema um...

#37 – Elsa beið í sjö ár á biðlista Nesklúbbsins 05.12.2024

Gestur okkar þessa vikuna er heimsmeistarinn Elsa Nielsen sem er líklega þekktari fyrir afrek sín í badminton en golfi Hún varð heimsmeistari fyrir nokkrum árum í tvíliðaleik og hefur í tvígang keppt á Ólympíuleikunum. Elsa byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum og hefur náð virkilega góðum tökum íþróttinni. Hún er núna með um 7 í forgjöf, er mikil keppnismanneskja og er varaformaður Nesklúbbsins. Els...

#36 - Andra Ólafssyni var slaufað á miðjum golfhring 27.11.2024

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Andri Ólafsson sem starfar sem samskiptastjóri hjá Landspítala Íslands Andri var á árum áður öflugur fjölmiðlamaður og tengist enn fjölmiðlum með því að halda úti þáttum á Stöð 2 Sport um NFL. Hann stendur einnig að nýrri sjónvarpsþáttaröð um Kanann. Andri byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum. Hann leggur mikið upp út því að líta vel út á golfvellinum og að...

#35 – Forsetinn í heimsókn – 27 nýjar golfholur á höfuðborgarsvæðinu 22.11.2024

Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hulda hefur verið í forystu hjá GSÍ undanfarin ár og var komið víða við í skemmtilegu spjalli. Hulda greindi frá því að nýlega hefði verið samþykkt deiliskipulag um nýjan 27 holu golfvöll í landi Hafnarfjarðar sem verður staðsettur nærri Hvaleyrarvatni. Við fórum einnig yfir mikla fjölgun kylfinga á Íslandi. G...

#34 - Arnar Gunnlaugsson er með hátt xG á golfvellinum 15.11.2024

Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Arnar er fínn kylfingur með um 10 í forgjöf en að eigin sögn kemst hann ekki neðar sökum æfingaleysis í stutta spilinu. Arnar hefur verið mjög sigursæll þjálfari á síðstu árum og í þættinum flökkum við á milli þess að spjalla um golf og fótbolta. Arnar hefur spilað golf víða um heim og á mörgum heimsþekktum golfvöl...

#33 - Edwin afþakkaði bolta frá Seve Ballesteros 07.11.2024

Golfvallarhönnuðurinn Edwin Roald Rögnvaldsson kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Golfvallahönnun fær sviðið í þessum þætti ásamt skemmtilegri umræðu um golf á mannlegum nótum. Edwin segir okkur frá því hvernig hann varð að golfvallarhönnuði. Sömuleiðis segir hann okkur ótrúlega sögu af því þegar hann afþakkaði pent golfbolta sem Seve Ballesteros ætlaði að gefa honum. Jafnframt kom í ljós að...

#32 - Tómas Þór náð mögnuðum tökum á golfíþróttinni á skömmum tíma 31.10.2024

Næsti gestur okkar í Seinni níu er fjölmiðlamaðurinn Tómas Þór Þórðarson sem hefur undanfarin ár verið umsjónamaður enska boltans hjá Símanum. Hann sagði okkur frá því hvernig það væri að vera frambjóðandi til Alþingis og hvernig hann hefur þróað með sér mikla golfdellu. Þrátt fyrir stuttan golfferil er Tómas nú kominn með ca 13 í forgjöf og og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni á skömmum tíma...

#31 - Fiskikóngurinn bauð öllum í Bíldudal í golf 25.10.2024

Við fengum frábæran gest núna á dögunum þegar sjálfur Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson, kom í heimsókn til okkar í hlaðvarpið Seinni níu. Kristján segir okkur í þættinum frá sínum frábæru og einstöku auglýsingum sem hafa farið sigurför um íslenskan auglýsingamarkað. Einnig segir Kristján frá þátttöku sinni í hinu vinsæla Costa Blanca golfmóti sem yfir hundrað Íslendingar tóku þátt í núna í...

#30 - Margeir bíður enn eftir ásnum 18.10.2024

Margeir Vilhjálmsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Hann er frábær kylfingur að eigin sögn með um 1 í forgjöf. Hann segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi en í kjölfarið hefur Margeir orðið mjög áberandi karakter í íslensku golfi. Margeir var um tíma framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og tók virkan þátt í uppbyggingu á Korpúlfsstaðavelli og Básum. Við fórum yfir atvi...

#29 - Ólafía Þórunn gerir upp magnaðan feril 10.10.2024

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fyrrverandi atvinnukylfingur. Ólafía lagði keppniskylfurnar á hilluna fyrir tveimur árum en hún er eini íslenski kylfingurinn til að leika á öllum fimm risamótunum í keppnisgolfi kvenna. Ólafía var valin íþróttamaður ársins árið 2017. Í þættinum fer Ólafía yfir ferilinn og segir okkur frá því nýju fyrirtæki sem hún er að stofna...

#28 - Freyr Gígja lét Eurovision-stjörnu heyra það á Kiðjabergsvelli 03.10.2024

Þó golfsumarið sé að líða undir lok þá höldum við ótrauðir áfram í hlaðvarpinu Seinni níu. Að þessu sinni kemur til okkar fréttamaðurinn Freyr Gígja Gunnarsson en margir ættu að kannast við röddina í fréttatímum RÚV. Freyr Gígja leikur aðallega golf á Hvaleyrarvelli og er fínn kylfingur með 9,9 í forgjöf. Freyr er mjög stöðugur kylfingur en þarf að eigin sögn að bæta púttin. Þáttastjórnendur hvött...

#27 - Frímann Gunnarsson spilar Oxford golf 27.09.2024

Leikarinn Gunnar Hansson mætti til okkar í Seinni níu. Gunnar er mjög öflugur kylfingur og var lægst með um 3,5 í forgjöf. Hann spilaði mikið golf á sínum yngri árum og hefur tvívegis farið holu í höggi. Jafnframt fórum við aðeins yfir golfáhuga eins þekktasta karakters Gunnars, sem er hann Frímann Gunnarsson. Sá þykir margt bogið við hefðbundnar golfreglur og hefur því tekið upp sínar eigin reglu...

Seinni Níu Masterclass - Það afþakkar enginn auka 20-30 metra 23.09.2024

Seinni Níu Masterclass er þáttur fyrir kylfinga sem vilja kafa aðeins dýpra. Í þessum þætti fáum við í heimsókn hann Bjarna Má Ólafsson frá Golfstöðinni sem sérhæfir sig í styrktarþjálfun fyrir kylfinga. Bjarni Már fræðir okkur um kosti þess að stunda styrktarþjálfun samhliða því að spila golf. Styrktarþjálfun getur verið góð leið til að ná í auka lengd af teig og fyrirbyggja meiðsli. Við fáum að...

#26 - Hermann í Kemi elskar 60 gráðu fleygjárnið 20.09.2024

Nýjasti gestur okkar í Seinni níu er Hermann Guðmundsson sem rekur fyrirtækið Kemi. Hermann er duglegur kylfingur sem hefur lægst verið með um 10 í forgjöf. Hann spilar mikið golf í Bandaríkjunum og uppáhaldskylfan hans er 60° fleygjárnið. Logi velur fimm fallegstu par-3 holur landsins. Seinni Níu er í boði: ✈️ - PLAY 💊 - Unbroken 👟 - ECCO ⛳ - Eagle Golfferðir 🚗 - XPENG ✨ - Lindin bílaþvottas...

#25 - Einar Örn hefur tvisvar farið holu í höggi 12.09.2024

Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play, er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Hann er kylfingur með um 15 í forgjöf en náði lítið að spila golf í sumar eftir að hafa tekið við sem forstjóri hjá Play í vor. Einar Örn hefur mikið spilað erlendis og hefur tvívegis farið holu í höggi á erlendri grundu. Við erum með Powerrank á fimm bestu golfvöllunum á Alicante svæðinu og hvaða velli á að fo...

#24 - Eyfi spilar ekki í rigningu 05.09.2024

Tónlistamaðurinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Eyfi byrjaði í golfi um aldamótin og fékk mikla golfbakteríu. Hann hefur hins vegar sjaldan spilað eins lítið golf og hann hefur gert í ár og eru nokkrar ástæður fyrir því. Eyfi segir okkur frá því þegar hann fór holu í höggi á Korpúlfstaðavelli, við fáum magnað Powerrank yfir fimm bestu lögin hjá Eyfa, og svo kemur...

#23 - Hlynur Geir á djamminu með Shane Lowry 31.08.2024

Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum á Selfossi, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann fór yfir frábæran keppnisferil í íslensku golfi, sagði okkur frá uppbyggingu golfsins á Selfossi og sagði okkur einnig magnaða sögu af sjálfum sér á djamminu með Íranum Shane Lowry í Tórínó. Magnaður þáttur! Þátturinn er í boði: ECCO - XPENG - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#22 - Kári tilkynnir að nýr Urriðavöllur verði hannaður af Robert Trent Jones Jr. 20.08.2024

Kári Sölmundarson, formaður hjá Golfklúbbnum Oddi, ræðir við okkur í Seinni Níu um stækkun Urriðavallar í 27 holur. Kári fer yfir stöðu mála hjá Golfklúbbnum Oddi og þar á bæ eru menn stórhuga. Búið er að ráða Robert Trent Jones Jr. í að hanna Urriðavöll sem 27 holu golfsvæði en sá hefur hannað marga af þekktustu golfvöllum í heimi. Kári segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi og hvernig...

#21 - Theodór Hervarsson fer yfir golfveðrið 15.08.2024

Í nýjasta þætti af Seinni níu kemur til okkar stjörnuveðurfræðingurinn Theodór Freyr Hervarsson. Hann er fínn kylfingur með um 13 í forgjöf. Teddi svarar áleitnum spurningum golfáhugamanna um íslenska veðrið en sjálfur segist hann geta spila golf í nánast í hvaða veðri sem er. Teddi er fyrrum Íslandsmeistari í fótbolta með liði ÍA en veðurfræðin á hug hans allan í dag og starfar hann hjá Veðurstof...

Listen to the Seinni níu podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.