Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

Sports IS ↓ 120 episodes

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

Author

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver 06.07.2026

Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni. Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ó...

#118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube 29.06.2026

Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir. Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar sten...

#117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni 23.06.2026

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu , því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni. Gunna Dís er með 37 í forgjöf , er meðlimur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og leikur talsvert golf yfir sumartímann. Það er margt við golfíþróttina...

#116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið 15.06.2026

Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari. Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helg...

#115 - Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum 07.06.2026

Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla. Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum. Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fa...

#114 - Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvell 05.06.2026

Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet. Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði end...

#113 - Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð 25.05.2026

Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto. Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf. Í þættinum er aðeins farið yfir f...

#112 - Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach 19.05.2026

Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár. Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en...

#111 - Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag 11.05.2026

Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli. Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotland...

#110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum 04.05.2026

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína. Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í fle...

#109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni 27.04.2026

Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar. Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf. Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunu...

#108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi 19.04.2026

Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar. Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í...

#107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005 13.04.2026

Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari. Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti landsliða árið 2005. Keppni þeirra á milli endaði með jafntefli og við fórum aðeins yfir það afrek. Simmi er m...

#106 - Golf er kvíðalyfið hjá Rikka G 08.04.2026

Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Útvarpsmaðurinn og íþróttalýsandinn Ríkharð Óskar Guðnason var gestur þáttarins sem var að hluta helgaður Masters. Rikki er ljómandi góður kylfingur með rétt tæpa fimm í forgjöf og byrjaði ungur að spila golf í Öndverðarnesi. Rikki átti að verða múrari og sagði okkur skemmtilega frá því hvernig hann endaði sem útvarpsmaður. Við spáðum í spilin fy...

#105 - Seinni níu x Steve Dagskrá 29.03.2026

Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem skipa tvíeykið í hlaðvarpinu Steve dagskrá, komu í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þeir hafa haldið úti sínu vinsæla hlaðvarpi frá árinu 2018 og hafa verið að færa sig upp á skaftið á golfvöllum landsins að undanförnu. Í þættinum er komið víða við enda er þetta lengsti þáttur af Seinni níu frá upphafi. Við hitum aðeins upp fyrir Masters, dra...

#104 - Kristín Elfa er golfsjúkasta kona landsins 23.03.2026

Við fengum golfsjúkustu konu landsins, að eigin sögn, í heimsókn í Seinni níu. Kristín Elfa Axelsdóttir, kylfingur í GKG, hóf að leika golf fyrir fimm árum og nú snýst líf hennar að stórum hluta um að komast í golf. Hún starfar hjá Festi, þar sem ríkir mikil golfmenning sem varð til þess að hún prófaði golf. Það var ekki aftur snúið og á síðasta ári lék Kristín yfir 100 átján holu golfhringi. Kris...

#103 - Broddi er hnitmiðaður kylfingur 16.03.2026

Við fengum heimsmeistara og ólympíufara í Seinni níu því badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson kom í heimsókn til okkar. Hann keppti á Ólympíuleikunum árið 1992 og var nánast ósigrandi í íþróttinni hér á landi á sínum tíma. Núna á golfið hug hans allan og leikur hann bæði í Nesklúbbnum og á Flúðum. Við ræðum um ferilinn bæði í badminton og hvað var það sem dró hann yfir í golfíþróttina. Broddi s...

#102 - Golfneistinn hvarf hjá Ólöfu Maríu á hátindi ferilsins 10.03.2026

Við fengum fjórfaldan Íslandsmeistara í heimsókn til okkar í Seinni níu. Ólöf María Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í golfi, kom í heimsókn til okkar og við fórum yfir ferilinn hennar. Ólöf María var brautryðjandi í íslensku golfi en hún var fyrst til þess að vinna sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna árið 2005. Hún spilaði í nokkur ár meðal þeirra bestu í Evrópu áður en hún ákvað að leg...

#101 - Oddur var óvænt með 1,9 í forgjöf 03.03.2026

Við fengum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Oddur Þórðarson, fréttamaður á RÚV, kom í heimsókn til okkar og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu hversu öflugur hann er í golfi. Oddur er með 7 í forgjöf og er að eigin sögn góður í að redda sér í kringum flatirnar. Hann byrjaði ungur í golfi og ólst upp á Korpúlfsstaðavelli. Um tíma vann Oddur einnig á Korpunni sem golfvallastarfsmaður o...

#100 - Þór er með pútter úr dánarbúi 23.02.2026

Það var mjög létt yfir okkur í Seinni níu og við fengum bæjarstjórann á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, í heimsókn til okkar. Þetta er þáttur númer 100 af Seinni níu og var auðvitað aðeins farið yfir þau tímamót. Þór er þokkalegur kylfingur með 22,2 í forgjöf en sér fram á að forgjöfin geti lækkað eftir að hafa fengið nýjar mjaðmir. Þór er auðvitað í Nesklúbbnum og er þar í virku samtali við kj...

#99 - Axel ætlar sér fleiri Íslandsmeistaratitla 16.02.2026

Við fáum til okkar frábæran gest því Axel Bóasson, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi, kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Í þættinum förum við yfir ferilinn hjá Axel en hann er nýlega tekinn við sem yfirþjálfari hjá Golfklúbbnum Keili eftir atvinnumannaferil. Hann segir okkur frá hæðum og lægðum á keppnisferlinum og greinir okkur frá því hversu andlega erfið þess íþrótt er fyrir kylfinga sem...

#98 - Stebbi Hilmars er með plástur á pútternum 09.02.2026

Við fengum til okkar meiriháttar gest í Seinni níu því söngvarinn ástsæli Stefán Hilmarsson kom í heimsókn. Við komum víða við í þættinum en Stefán segir okkur frá golfinu sínu og hvernig það kom til að hann hóf golfiðkun. Stefán hóf að spila árið 2001 en Eyjólfur Kristjánsson dró hann í íþróttina en þeir höfðu báðir fylgst með golfi í sjónvarpi löngu áður. Tony Finau er uppáhaldskylfingurinn hjá...

#97 - Fúsi þarf extra þykk grip 02.02.2026

Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því handboltahetjan Sigfús Sigurðsson kemur í heimsókn til okkar. Hann ræðir aðeins við okkur um handbolta en aðallega um golf. Sigfús er með um 15 í forgjöf og hóf ungur að leika golf. Hann hætti hins vegar á unglingsaldri þar sem það þótti ekki töff að spila golf á þeim árum. Fúsi er með stórar krumlur og lenti í vandræðum snemma á ferli...

#96 - 4-járnið í uppáhaldi hjá Helgu Möller 26.01.2026

Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu því til okkar kom söngkonan ástsæla Helga Möller. Við komum víða við í þættinum en Helga hefur lengi spilað og var best með um 14 í forgjöf. Golf var stór þáttur í fjölskyldu Helgu en foreldrar hennar bjuggu til golfholur nærri sumarhúsi þeirra sem varð vísirinn að golfvellinum í Grindavík. Við fengum að heyra draumahollið hjá Helgu og einnig sagði hún...

#95 - Sigmundur Ernir byrjaði sem kylfusveinn 19.01.2026

Við fáum til okkar góðan gest í Seinni níu þessa vikuna því Alþingismaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kom í heimsókn til okkar. Hann hefur leikið golf lengi og hóf ungur að leika golf á Akureyri. Í raun byrjaði hann ferilinn sem kylfusveinn og stundaði það af meiri krafti en sjálft golfið fyrstu árin. Sigmundur er með 14 í forgjöf og spilar að eigin sögn frekar tíðindalítið golf. Hann er frekar b...

Listen to the Seinni níu podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.