Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

Sports IS ↓ 120 episodes

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

Author

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#94 - Patrik braut 10 kylfur á síðasta ári 12.01.2026

Við fáum til okkar skemmtilegan gest í þessari viku í Seinni níu því tónlistamaðurinn Patrik Atlason kom í heimsókn til okkar. Patrik er með um 7 í forgjöf en hann hóf að leika golf í Covid. Í þættinum er komið víða við en Patrik segir okkur frá sýn sína á golfíþróttina. Hann segir okkur meðal annars frá þeirri áráttu sinni að brjóta golfkylfur en hann braut 10 golfkylfur á síðasta ári. Patrik vel...

#93 - Banatilræði Sigurðar Kára við forsætisráðherra í Vestmannaeyjum 05.01.2026

Við fáum til okkar frábæran gest í fyrsta þátt ársins 2026. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fv. þingmaður, mætti til okkar í skemmtilegt spjall um golf. Sigurður Kári er með ca 11 forgjöf um þessar mundir og dreymir um að komast í einna tölu forgjöf. Hann hefur leikið golf um árabil og sagði okkur frá því þegar hann féll fyrir íþróttinni í útskriftarferð úr framhaldsskóla. Í þættinum förum...

#92 - Áramótaþáttur Seinni níu 31.12.2025

Nú er komið að síðasta þætti ársins af Seinni níu. Líkt ogjólaþátturinn okkar þá er áramótaþátturinn uppfullur af skemmtilegum brotum úr þáttum ársins. Í þættinum er rætt kylfinga á öllu getustigi. Allt frá atvinnumönnum í golfi til byrjenda og eiginlega allt þar á milli. Meðal þeirra sem bregða við í þættinum eru Bjarni Benediktsson, Gummi Ben, Sigríður Andersen, Auðunn Blöndal, Egill Einarsson,...

#91 - Jólaþáttur Seinni níu 24.12.2025

Árið 2025 hefur verið frábært hjá okkur í Seinni níu. Af því tilefni ætlum við að gefa út tvo samantektarþætti með skemmtilegum umræðum við gesti okkar á árinu. Fyrri þátturinn kemur út á aðfangadag og sá síðari á gamlársdag. Þættirnir eru báðir um tvær klukkustundir en þar reynum við þar að grípa niður á skemmtileg augnablik í þeim ca 50 þáttum sem við höfum gefið út á árinu. Við óskum kylfingum...

#90 - Óli Jó leitar að golfboltum í svartamyrkri 16.12.2025

Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og knattspyrnuþjálfari, kemur í heimsókn og ræðir aðallega um golf. Ný bók var að koma út um Ólaf þar sem hann gerir upp litríkan þjálfaraferil. Það var létt yfir Óla Jó en hann hefur leikið golf frá unga aldri. Hann var snemma farinn að venja komur sínar út á Hvaleyri og hefur verið félagsmaður...

#89 - Bogi Nils fór í dáleiðslu til að laga vippin 09.12.2025

Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Bogi NilsBogason, forstjóri Icelandair, kíkir í heimsókn til okkar. Bogi er mjög flottur kylfingur með um 4,5 í forgjöf og hóf ungur að leika golf á Eskifirði þar sem hann ólst upp og er enn skráður í klúbbinn á sínum heimaslóðum. Hann er líka félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur og býr við Korpúlfsstaðavöll. Bogi sinnir auðvitað stóru hlutverki í einu...

#88 - Jón Bjarki braut tvær kylfur og fór svo holu í höggi 03.12.2025

Við fáum skemmtilegan gest til okkar í þessari viku í Seinni níu. Jón Bjarki Oddsson kemur í heimsókn en hann starfar sem kírópraktor og sinnir því fjölmörgum kylfingum sem eru að glíma við meiðsli af einhverju tagi. Jón Bjarki er hörku kylfingur með um 1 í forgjöf. Hann er með golfhermi á skrifstofunni þar sem hann sinnir störfum sem kírópraktor sinnir því bæði meðferðum og kennir golf. Jón Bjark...

#87 - Heimir Karls vann bæði Anniku og Monty 25.11.2025

Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu en hann hefur spilað golf um árabil. Heimir náði þeim einstaka árangri að verða bæði Íslandsmeistari í fótbolta og handbolta. Í seinni tíð hefur hann einbeitt sér að golfinu og náði best rétt undir 10 í forgjöf. Í dag er Heimir með um 16 í forgjöf og kveðst vera sterkastur í innáhöggunum. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur og er e...

#86 – Þórhallur fann draumahúsið á golfvellinum 19.11.2025

Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því tilokkar kemur Þórhallur Sverrisson sem er einna best þekktur fyrir að hafa leikið aðalhlutverkið í kvikmyndinni Íslenski draumurinn. Myndin fagnaði 25 ára afmæli fyrir skömmu og því rifjum við aðeins upp þá frábæru kvikmynd auk þess að ræða auðvitað um golf. Þórhallur er rétt undir 10 í forgjöf og spilar mjög reglulega. Hann byrjaði að spila fy...

#85 - Kristján Þór sjankaði á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum 12.11.2025

Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara í heimsókn þessa vikuna þegar Kristján Þór Einarsson mætti til okkar í Seinni níu. Kristján varð Íslandsmeistari í golfi árin 2008 og 2022. Í bæði skiptin komu titlarnir í Vestmannaeyjum. Í þættinum rekur Kristján aðeins keppnisferilinn, velur fimm bestu keppnisgolfholur landsins. Hann segir okkur jafnframt frá sínum mesta ótta í golfi sem er að sjanka. Kristjá...

#84 - Reiðilestur frá Bogdan ýtti Arnari yfir í golf 04.11.2025

Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna þegarArnar Már Ólafsson, golfkennari og frumkvöðull í golfkennslu, kom í heimsókn til okkar. Arnar ræddi við okkur um golf í yfir klukkustund en hann er einn færasti golfkennari landsins og hefur þjálfað marga af bestu kylfingum Íslands. Í þættinum fer Arnar aðeins fyrir ferilinn í golfkennslu enhann er nýlega kominn aftur heim til Íslands eftir l...

#83 - Evu Maríu dreymir um að spila með Clooney 29.10.2025

Við fengum góðan gest í þátt vikunnar í Seinni níu. Fjölmiðlakonan Eva María Jónsdóttir kom í heimsókn til okkar. Hún er kylfingur í Nesklúbbnum og er með um 25 í forgjöf. Hún kom óvænt í golfíþróttina fyrir um tíu árum og hefur golfið haft það mikil áhrif á hana að hún fékk sér dagvinnu sem kennari til að geta stundað golf af krafti yfir sumartímann þegar kennsla liggur niðri. Í þættinum segir Ev...

#82 - Hrafnhildur hefur spilað alla golfvelli landsins 21.10.2025

Við fáum frábæran gest í Seinni níu. Það er útvarpskonanHrafnhildur Halldórsdóttir sem kom í heimsókn til okkar en flest okkar ættu að kannast við rödd hennar úr Síðdegisútvarpinu á Rás2. Hrafnhildur hóf að leika golf fyrir um 20 árum og varð alvegheilluð af golfíþróttinni. Svo heilluð að hún hefur leikið alla golfvelli á Íslandi. Það tókst henni í sumar með því að ferðast ásamt eiginmanni sínum á...

#81 - Sigurvin þolir ekki leiðinlegar golfsögur 15.10.2025

Við fáum góðan gest í Seinni níu í þessari viku en knattspyrnuþjálfarinn Sigurvin Ólafsson kemur í heimsókn til okkar. Sigurvin er alin upp í Vestmannaeyjum og byrjaði ungur að leika sér í golfi en hefur aldrei almennilega hellt sér í golfið. Venni er ekki alveg með á hreinu hver forgjöfin er en er sagt að hann sé með óþolandi fallega golfsveiflu. Hann hefur sjaldnast frumkvæðið að því að fara í g...

#80 - Egill Einarsson er með 7 golfkennara 05.10.2025

Við í Seinni níu erum staddir á Ítalíu en fáum frábæran gest í þáttinn. Egill Einarsson mætir til okkar og fer yfir það hvernig það sé að vera byrjandi í íþróttinni. Egill byrjaði í vor og golfíþróttin hefur heltekið hann. Hann er að vinna með 7 golfkennurum að því að ná betri tökum á íþróttinni. Í þættinum ræðum við um golf á skemmtilegum nótum en Egill kemur með frábært Powerrank, velur draumaho...

#79 - Ryder-bikarinn gerður upp frá Royal Troon 30.09.2025

Það var líf og fjör á Ryder-bikarnum um helgina þar sem Evrópu vann góðan sigur. Mikil spenna var á lokadeginum eftir óvænta viðspyrnu Bandaríkjamanna í síðustu umferð. Í nýjasta þætti Seinni níu er farið á faglegu nótunum yfir þetta frábæra mót. Logi og Jón eru staddir í Skotlandi og er þátturinn tekinn við 18. brautina á Royal Troon vellinum. Logi kemur með Powerrank yfir fimm bestu hlutina við...

#78 - Ingi Rúnar er með sex ása á ferilskránni 24.09.2025

Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu en Ingi Rúnar Gíslason, kylfingur, golfkennari og sölumaður Titleist hjá ÍSAM kemur í heimsókn til okkar. Í þættinum hitum við upp fyrir Ryder-bikarinn en Ingi Rúnar mun lýsa mótinu um helgina. Við spáum aðeins í spilin og erum sammála um að þetta verði hörkumót. Við duttum aðeins á tæknilegar nótur í þættinum að þessu sinni. Meðal annars segir Ingi...

#77 - Fannar fór holu í höggi en átti að vera á fundi 16.09.2025

Við fáum til okkar einn þekktasta áhrifavald landsins í íslensku golfi því Fannar Már Jóhannsson kom í heimsókn til okkar. Fannar Már þekkja margir sem Fannar golf en hann hann hefur síðastliðið ár gert frábært efni af golfvellinum á Instagram og TikTok. Fannar fer aðeins yfir það ferli að búa til svona efni og viðbrögðin. Fannar segir okkur einnig frá því þegar hann fékk alveg nóg af golfi um 16...

#76 - Aron Pálmarsson drævar yfir 250 metra 09.09.2025

Við fengum frábæran gest í þátt vikunnar af Seinni níu því handboltamaðurinn Aron Pálmarsson kom í heimsókn. Aron var að ljúka mögnuðum handboltaferli á dögunum og er nú orðinn forfallinn kylfingur. Hann ætti því að hafa meiri tíma fyrir golfið núna þegar hann er hættur í handboltanum. Aron byrjaði ungur í golfi en spilaði lítið á meðan handboltaferlinum stóð. Hann byrjaði aftur að spila þegar han...

#75 - Valdís Þóra var lengi að jafna sig eftir dramatískt viðtal 02.09.2025

Gestur vikunnar í Seinni níu er Valdís Þóra Jónsdóttir frá Akranesi. Hún er þrefaldur Íslandsmeistari í golfi og hefur náð einna lengst íslenskra atvinnukylfinga. Hún lék á Evrópumótaröð kvenna en náði einnig að leika á tveimur risamótum ferlinum. Í þættinum förum við yfir ferilinn og erfið bakmeiðsli sem urðu þess valdandi að hún þurfti að hætta golfiðkun fyrir nokkrum árum. Valdís er þó eitthvað...

#74 - Neal Shipley upplifði drauminn og lék með Tiger á Masters 26.08.2025

Í þessari viku fáum við frábæran gest því PGA-kylfingurinnNeal Shipley kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þetta er í fyrsta sinn sem við tökum Seinni níu upp á ensku sem er skemmtileg tilbreyting. Shipley var á landinu í síðustu viku og hóf heimsóknina til Íslands á því að koma í Seinni níu. Shipley er 24 ára gamall og vann sér inn keppnisrétt áPGA-mótaröðinni á næstu leiktíð. Hann er nú þeg...

#73 - Böddi Bergs setti tappann í flöskuna og forgjöfin hríðféll 19.08.2025

Böðvar Bergsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Böddi er flínkur kylfingur með um 4 í forgjöf og mikill golfáhugamaður. Hann hóf ungur að leika golf í Grafarholti og sem ungur peyji varð hann þrefaldur Íslandsmeistari í golfi sem kylfusveinn hjá Sigurði Péturssyni. Í þættinum segir Böddi okkur frá ákvörðun sinni að hætta að drekka áfengi sem hefur reynst honum mikið gæfuspor. Í kjölfarið he...

#72 - Dagbjartur ætlar að setja ís í bikarinn 12.08.2025

Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson var gestur okkar í Seinni níu. Hann kom í spjall degi eftir að hann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í golfi eftir frábæra spilamennsku á Íslandsmótinu í golfi sem fram fór á Hvaleyrarvelli. Í þættinum förum við aðeins yfir Íslandsmótið með Dagbjarti og hvernig upplifun það er fyrir ungan mann (22 ára) að verða Íslandsmeistari í golfi. Dagbjartur segi...

#71 - Ólafur Þór hefur starfað hjá Keili í 37 ár 05.08.2025

Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna en Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum Keili kíkti í heimsókn til okkar. Það er nóg um að vera hjá kappanum þessa daganna enda fer Íslandsmótið í golfi fram á Hvaleyrarvelli um helgina. Ólafur byrjaði ungur að starfa hjá Golfklúbbnum Keili, fyrst sem vallarstarfsmaður og vallarstjóri en er í dag framkvæmdastjóri. Hann tók við af f...

#70 - Gunnlaugur Árni er einn efnilegasti kylfingur Evrópu 29.07.2025

Við fengum góða gest til okkar í Seinni níu. Gunnlaugur Árni Sveinsson kom til okkar en hann er einn efnilegasti kylfingur í Evrópu. Hann er í 15. sæti á áhugaheimslistanum um þessar mundir og stefnir á að komast alla leið sem kylfingur. Gulli leikur með hinum þekkta LSU háskóla í Bandaríkjunum en sá skóli er einn allra besti íþróttaháskóli Bandaríkjanna. Hann var valinn í Arnold Cup sem fram fór...

Listen to the Seinni níu podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.