Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

Sports IS ↓ 139 episodes

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com

Author

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Nov 16, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

#138 - Gurrý braut dræverinn í golfhermi 16.11.2026

Gestur Seinni níu þessa vikuna er engin önnur en Gurrý Jónsdóttir, snyrtifræðingur og hlaðvarpsstjórnandi. Gurrý byrjaði aftur í golfi árið 2022 en hafði æft golf sem barn. Hún er því með fína sveiflu og er býsna högglöng. Hún hefur oftar en einu sinni slegið alla leið inn á flöt á par-4 braut og segir fátt toppa þá upplifun. Gurrý er nú með golfdellu á háu stigi sem hún deilir með sambýlismanni s...

#137 - Adam Ægir segir holu í höggi á par3 velli gilda 08.11.2026

Við fengum knattspyrnumanninn Adam Ægi Pálsson í heimsókn til okkar í Seinni níu. Adam er einn af skemmtilegri knattspyrnumönnum landsins og það er óhætt að mæla með þessum þættinum. Það er ekki langt síðan að Adam byrjaði í golfi og hann er algjörlega fallinn fyrir íþróttinni. Hann tók miklum framförum í sumar og er með um 14 í forgjöf. Adam fór holu í höggi á dögunum en vandamálið var að það var...

#136 - Sigursteinn óttast mest að konan hans fari holu í höggi 02.11.2026

Sigursteinn Ingvar Rúnarson, betur þekktur sem Sir Spilar golf, mætti til okkar í Seinni níu. Hann ólst upp á golfvellinum hjá Golfklúbbnum Ós á Blönduósi og er í dag ein þekktasta YouTube-stjarna íslenska golfheimsins. Sigursteinn segir frá því hvernig myndböndin verða til og hvernig það er að taka upp efni á meðan leikið er með ókunnugum. Í þættinum komum við víða við. Sigursteinn segir okkur fr...

#136 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi 26.10.2026

Við fengum Hauk Óskarsson, framkvæmdastjóra Nesklúbbsins, í hörkuskemmtilegt spjall. Haukur komst í fréttirnar á dögunum þegar hann afrekaði það að leika alla golfvelli landsins á einu og sama árinu. Hann segir frá þessu magnaða ferðalagi og fer yfir það sem stóð upp úr á golfvöllum landsins. Haukur rifjar einnig upp þegar hann fékk bolta í bringuna frá öðrum kylfingi og steinlá. Þá kom í ljós að...

#135 - Örn valdi alls ekki draumahollið 19.10.2026

Við fengum hlaðvarpsstjörnu í heimsókn til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Örn Arnarson, fjölmiðlamaður og reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál, kom og fór yfir golfið með okkur. Örn er Keflvíkingur og hóf golfiðkun ungur í Leirunni. Í dag er hann með rúmlega 16 í forgjöf. Hann óttast mest stutt vipp, hefur aldrei farið holu í höggi og er í golfhópnum Kvíði. Örn valdi bæði draumahollið og holl...

#133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi 12.10.2026

Við fengum goðsögnina Karen Sævarsdóttur í heimsókn til okkar og þá fyrr hefði verið. Karen vann það einstaka afrek að verða Íslandsmeistari átta ár í röð frá árinu 1989 til 1996. Móðir hennar varð einnig þrisvar Íslandsmeistari og því eiga þær mæðgur 11 titla. Karen segir okkur frá mögnuðum ferli, rifjar upp skemmtileg augnablik frá titlunum átta, erfiðum atvinnumannaárum og háskólaárunum í Texas...

#132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel 05.10.2026

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Matreiðslumaðurinn Jói Fel heiðraði okkur með nærveru sinni og sagði okkur frá golfferli sínum. Jói byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum en þá voru allir æskuvinir hans byrjaðir í íþróttinni. Það tók hann smá tíma á ná tökum á íþróttinni en hann gafst ekki upp og er núna orðinn þokkalegur kylfingur. Hann er með um 20 í forgjöf og spilar m...

#131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð 30.09.2026

Við erum staddir í golfferð og tókum auðvitað upp þátt af Seinni níu. Aron Elí Sævarsson og Axel Óskar Andrésson komu í spjall en þeir eru einmitt staddir með okkur í golfferð á Los Moriscos á Spáni þar sem fer mjög vel um okkur. Í þættinum förum við yfir það hvernig upplifun það er að vera í golfferð. Ræðum um golfið hjá köppunum en líka aðeins um þeirra afrek í fótboltanum með liði Aftureldingar...

#130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf 20.09.2026

Það var létt yfir okkur í vikunni þegar Logi Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja og Íslandsmeistari í golfi 2023, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Logi er, líkt og nafni hans, alltaf léttur. Logi sagði okkur aðeins frá ferlinum sínum og það kom okkur ansi mikið á óvart að heyra að hann hafi orðið Íslandsmeistari aðeins sex árum eftir að hann hóf formlega að æfa golf. Það gerði han...

#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun 14.09.2026

Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn. Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á me...

#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari 07.09.2026

Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska. Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.

#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi 31.08.2026

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila. Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð...

#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun 24.08.2026

Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi. Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann...

#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins 17.08.2026

Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi. Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fy...

#124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi 11.08.2026

Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn. Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór aðeins yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót. Við v...

#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo 03.08.2026

Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni. Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tv...

#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu 27.07.2026

Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu . Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum. Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Log...

#121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás 20.07.2026

Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar. Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð kvenna í Evrópu. Hún hefur jafnframt tvívegis orði...

#120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt 13.07.2026

Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu . Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum. Höddi Magg byrjaði að spila golf um þrítugt og spilar lítið um þessar mundir. Raunar svo lítið að hann gaf syni sínum golfsettið sitt fyr...

#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver 06.07.2026

Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni. Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ó...

#118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube 29.06.2026

Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir. Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar sten...

#117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni 23.06.2026

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu , því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni. Gunna Dís er með 37 í forgjöf , er meðlimur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og leikur talsvert golf yfir sumartímann. Það er margt við golfíþróttina...

#116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið 15.06.2026

Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari. Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helg...

#115 - Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum 07.06.2026

Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla. Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum. Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fa...

#114 - Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvell 05.06.2026

Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet. Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði end...

Listen to the Seinni níu podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.