Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

Sports IS ↓ 120 episodes

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

Author

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#69 - Auðunn Blöndal fór holu í höggi í Búlgaríu 22.07.2025

Auðunn Blöndal var gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Auðunn þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hann hefur verið einn vinsælasti útvarps- og sjónvarpsmaður landsins um árabil. Auðunn er með 19,9 í forgjöf og elskar að fara í golfferðir. Hann var duglegur að æfa undir handleiðslu kennara í vetur og sér fram á að geta einbeitt sér meira að golfinu á næstu árum. Auddi er ágætur af teig en e...

#68 - Arnar Jónsson lék undir aldri í meistaramótinu 16.07.2025

Stórleikarinn Arnar Jónsson kom til okkar í Seinni níu. Arnar var nýbúinn að leika það ótrúlega afrek að leika undir aldri í meistaramótinu á Flúðum þegar hann kíkti í heimsókn til okkar. Arnar lék á 81 höggi en er 82 ára gamall. Magnað afrek. Arnar fer yfir golfferilinn í þættinum. Hann byrjaði frekar seint að spila golf en hafði leikið sér á golfvellinum sem ungur drengur sem kom sér vel þegar g...

#67 - Heiðrún Lind spilar betur þegar hún er reið 09.07.2025

Heiðrún Lind Marteinsdóttir er gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna. Hún er í eldlínunni um þessar mundir í umræðu um veiðigjöld enda framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Heiðrún er nýlega byrjuð í golfi og tók þátt í sínu fyrsta meistaramóti núna á dögunum. Í þættinum fer hún yfir upplifun sína af mótinu og hvað kom henni mest á óvart. Hún kveðst efnileg í öllum þáttum leikins en...

#66 - Golfið bjargaði geðheilsunni hjá Bjössa Hreiðars eftir óvænta uppsögn 02.07.2025

Sigurbjörn Örn Hreiðarsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er þekktari fyrir afrek sín í fótboltanum en á golfvellinum. Bjössi hefur orðið Íslandsmeistari sem fyrirliði Vals og var einnig í þjálfarateymi liðsins sem varð Íslandsmeistari árin 2017 & 2018. Bjössi segir okkur frá því hvernig hann byrjaði aftur í golfi fyrir nokkrum árum og hellti sér svo af fullum krafti í íþróttina e...

#65 - Sóli Hólm hugsar bara um golf 25.06.2025

Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Sólmundur Hólm sem hóf nýlega að leika golf. Hann er algjörlega fallinn fyrir íþróttinni og hugsar eiginlega ekki um neitt annað en hvenær hann kemst út á golfvöll. Sóli er reyndar að glíma við meiðsli sem má rekja til óhóflegrar golfiðkunar á vormánuðum en er að vonast til að komast aftur á völlinn sem allra fyrst. Sóli er meðlimur í Golfklúbbi Þorl...

#64 - Ragga Kristins er ein sú högglengsta í Evrópu 18.06.2025

Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2023 og leikur sem atvinnumaður á LET Access mótaröðinni sem segja má að sé B-mótaröð bestu kvenkylfinga í Evrópu. Í þættinum förum við vel yfir golfið með Röggu en þar kemur meðal annars í ljós að hún er meðal högglengstu kvenkylfinga Evrópu. Hún er að slá um 250 metra að...

#63 – Helga tók ranga kylfu og fór holu í höggi 11.06.2025

Það var svo sannarlega gaman hjá okkur í Seinni níu þessa vikuna en til okkar kom Helga Sverrisdóttir, hjúkrunarfræðingur og félagi í Nesklúbbnum. Helga fer yfir það af mikilli hreinskilni hvernig það er að byrja í golf og þær áskoranir sem því fylgir. Hún segir okkur meðal annars frá þeirri þolraun sem það var að taka þátt í meistaramóti eftir að hafa nýlega hafið golfiðkun. Helga segir okkur ein...

#62 - Ívar Hauks segir flesta kylfinga með of lítinn fláa á drævernum 04.06.2025

Einn litríkasti golfkennari Íslands – og líklega Spánar – Ívar Hauksson, kom í spjall til okkar í Seinni níu . Ívar hefur búið á Spáni síðustu 30 árin við golfkennslu og er stundum kallaður Kóngurinn á Mar Menor . Í júní tekur Ívar að sér golfkennslu hér á Íslandi, og komast færri að en vilja. Í ár eru um 75 manns á biðlista eftir að komast undir handleiðslu Ívars, sem kennir golf frá morgni til k...

#61 - Bjarni Fritz sló draumahöggið á einni bestu par-3 holu landsins 28.05.2025

Handboltaþjálfarinn, fyrirlesarinn og rithöfundurinn Bjarni Fritzson er gestur vikunnar í Seinni níu. Bjarni var mjög öflugur handboltamaður og hefur síðustu ár þjálfað karlalið ÍR. Hann er einnig rithöfundur en barnabækur hans um Orra óstöðvandi hafa notið gríðarlegra vinsælda. Bjarni er með um 15 í forgjöf og er kominn með mikla golfdellu. Hann er bæði meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur og hjá Go...

#60 - Þórdís geymdi silfurpeninginn í bílnum í tvo mánuði eftir drama á golfvellinum 21.05.2025

Gestur vikunnar í Seinni níu er Þórdís Geirsdóttir sem hefur verið félagi í Golfklúbbnum Keili í hálfa öld. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik árið 1987 og hefur svo verið meðal fremstu kylfinga landsins um árabil. Hún hefur verið óstöðvandi á mótaröð eldri kylfinga og varð Íslandsmeistari 50+ í níu ár í röð. Hún hefur farið fimm sinnum holu í höggi og við fengum hana til að Powerranka ásanna sín...

#59 - Haraldur Franklín á tíu golfsett 14.05.2025

Gestur vikunnar er atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús sem leikur á Áskorendamótaröðinni. Í þættinum fer Haraldur yfir stöðuna á ferli sínum en hann ætlar sér að halda áfram næstu ár í atvinnumannagolfinu og telur sig geta náð inn á Evrópumótaröðina. Í þættinum förum við aðeins yfir mikinn áhuga Hadda á golfkylfum og græjum. Hann á tíu golfsett og er með verkstæði þar sem hann skiptir sjá...

#58 - Kiddi Óskars gerir upp ævintýrið á Hellu 08.05.2025

Kristinn Óskarsson er gestur vikunnar í Seinni níu . Þessi landsþekkti körfuboltadómari er einnig mjög liðtækur kylfingur og er í dag með um 3–4 í forgjöf. Í þættinum förum við meðal annars yfir ótrúlega frammistöðu hans á Íslandsmótinu 2012 á Hellu, þegar Kristinn endaði í 5. sæti eftir að hafa verið í toppbaráttunni nær allt mótið. Kristinn segir frá því hvernig sú reynsla, að leika í lokaráshóp...

#57 - Agnar Már tekur á rástímahömstrum í GKG 30.04.2025

Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG), kom í heimsókn til okkar í Seinni níu . Hann sagði frá óvenjusnemmri opnun Leirdalsvallar, sem hefur sjaldan opnað jafn snemma og í ár. Við ræddum einnig nýja nálgun GKG við rástímaskráningu, sem miðar að því að koma í veg fyrir að sömu einstaklingar hamstri eftirsótta rástíma. Agnar fór jafnframt yfir stórbrotna uppbyggi...

#56 - Stefán Einar varð sveiflu Geirmundar að bráð 23.04.2025

Gestur Seinni Níu þessa vikuna er enginn annar en Stefán Einar Stefánsson, sem hefur verið mjög áberandi í þjóðmálaumræðunni síðustu mánuði – bæði í hlaðvörpum og í Spursmálum á mbl.is. Stefán er að snúa aftur á golfvöllinn eftir nokkurra ára hlé og er nú skráður með 54 í forgjöf. Hann hefur þó áður náð niður í 12 í forgjöf, svo þetta eru áhugaverðir tímar fram undan. Í þættinum segir Stefán okkur...

#55 - Kristján Óli endaði fyrir aganefnd eftir deilur á golfvellinum 14.04.2025

Við erum ansi léttir í Seinni níu eftir Masters mótið. Til okkar kemur sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson sem er kylfingur með golfdellu á verulega háu stigi. Hann var meðal þeirra sem mættu á golfvöllinn um helgina þegar golfvellir voru opnaðir. Við kryfjum aðeins Masters mótið með Kristjáni sem fylgist vel með. Hann er með um 10 í forgjöf og ætlar sér að lækka niður í 7 í sumar. Hann er s...

#54 – Haukur Örn endaði aleinn á Augusta National 08.04.2025

Gestur vikunnar í Seinni níu er Haukur Örn Birgisson, fv. forseti Golfsambands Íslands. Hann stendur í ströngu um þessar mundir, en hann á sæti í framkvæmdastjórn Opna mótsins og var nýkominn til landsins frá Norður-Írlandi, þar sem hann var að taka út keppnisstað mótsins í ár. Opna breska fer fram á Royal Portrush um miðjan júlí. Haukur segir okkur frá því í þættinum hvernig hann hefur risið til...

#52 - Jóhann Alfreð valdi fimm þægilegustu golfholur landsins 03.04.2025

Í þætti vikunnar af Seinni Níu fáum við til okkar Jóhann Alfreð Kristinsson, sem er þekktur sem uppistandari í Mið-Ísland , dagskrárgerðarmaður og margt fleira. Jóhann byrjaði að leika golf fyrir nokkrum árum og hefur fengið mikla golfbakteríu. Hann er með 34 í forgjöf en stefnir á að komast niður fyrir 27, svo hann geti tekið þátt í 4. flokki í Meistaramóti GR, þar sem hann er félagi. Í þættinum...

#52 - David Duval bað Ólaf Lofts um að spila með sér 28.03.2025

Ólafur Björn Loftsson heimsótti okkur þessa vikuna í Seinni níu. Ólafur er í dag landsliðsþjálfari Íslands í golfi en var um tíma atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í höggleik. Ólafur rifjar upp sigur sinn í Íslandsmótinu í höggleik árið 2009 þegar hann fékk fjóra fugla í röð á síðustu holunum til að komast í umspil um titilinn. Óli kom með powerrank um þá fimm bestu sem hann hefur spilað með. Ót...

#51 - Haraldur fór holu í höggi - en samt ekki 21.03.2025

Gestur vikunnar í Seinni níu er Haraldur Haraldsson sem nýr framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum Oddi. Hann var að ljúka störfum sem framkvæmdastjóri hjá Víkingi Reykjavík eftir 14 ára starf en félagið hefur farið í gegnum mikið gæfuskeið á síðustu árum. Í þættinum er aðeins farið yfir fótbolta en aðallega rætt um golf. Haraldur er fínasti kylfingur með um 8 í forgjöf og hefur spilað golf í um 30 ár....

#50 - Hlegið í ráðuneytinu þegar Bjarni mætti með golfsettið 14.03.2025

Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er enginn annar en Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann steig nýverið úr stóli formanns Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa leitt flokkinn frá árinu 2009. Bjarni byrjaði í golfi þegar hann var í háskólanámi í Miami og ætlar sér nú að taka golfið föstum tökum eftir að hafa spilað lítið síðustu ár – stjórnmálin voru einfaldlega að flækjast fyr...

#49 - Stórkostlegur sigur Árna Helgasonar - í 4. flokki 06.03.2025

Gestur okkar þessa vikuna er lögmaðurinn og varaþingmaðurinn Árni Helgason. Má segja að Árni hafi verið ein fyrsta hlaðvarpsstjarna Íslands, en hann stýrði hlaðvarpinu Hismið um árabil við miklar vinsældir. Árni hóf að stunda golf fyrir nokkrum árum og er með um 22 í forgjöf. Í þættinum er fjallað ítarlega um glæstan sigur hans í 4. flokki á Meistaramóti Nesklúbbsins í sumar. Hann segir frá heimsó...

#48 - Rögnvaldur felldi tár þegar hann endurheimti járnasettið 28.02.2025

Við fengum glaðasta golfkennara landsins, Rögnvald Magnússon hjá Golfklúbbnum Oddi, til að ljúka með okkur febrúarmánuði. Röggi mætti til okkar nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann var að leika á Pinehurst golfsvæðinu. Röggi er frá Bolungarvík og við fengum kappann til að velja fimm bestu golfholurnar á Vestfjarðakjálkanum. Hann sagði okkur einnig frá því þegar hann felldi tár eftir að hafa end...

#47 - Þórður ætlaði að hætta áður en hann fór holu í höggi 20.02.2025

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er hagfræðingurinn Þórður Gunnarsson. Hann er reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál en hefur einnig mjög mikinn áhuga á golfi. Í þættinum förum við aðeins yfir TGL-golf sem hefur vakið mikla athygli á síðustu vikum. Þórður velur fimm skemmtilegustu golfholur landsins og einnig draumahollið. Þórður segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á Nes...

#46 – Gummi Ben er konungur tjaldsins 15.02.2025

Það var mikið hlegið þegar Guðmundur Benediktsson mætti íheimsókn til okkar í Seinni níu. Í þættinum var reynt að tala um golf en umræðan leiddist líka út í umræðu um fótbolta og einnig hvernig stendur á því að Gummi Ben sé ber að ofan í nýrri auglýsingaherferð. Gummi Ben er ekki skráður í golfklúbb en er á biðlista inn í Nesklúbbinn. Hann spilar mikið í golfhermi og þar gengur honum vonum framar....

#45 - Guðrún Brá fór tvisvar á albatross í sömu viku 07.02.2025

Gestur okkar þessa vikuna er atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Hún hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari í golfi ætlar sér að ná þeim fjórða til að jafna við föður sinn Björgvin Sigurbergsson varð fjórum sinnum Íslandsmeistari í höggleik. Guðrún sagði okkur frá því hvernig það væri að vera atvinnumaður í golfi og þá leið sem hún ætlar að fara í ár til að tryggja sér betri stöðu á Evróp...

Listen to the Seinni níu podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.