Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Seinni níu
Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson
Author
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 6, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#20 - Áfengið dró Rúnar Frey í golf 09.08.2024 52:33
Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er listamaðurinn Rúnar Freyr Gíslason. Hann er þokkalegur kylfingur sem fór holu höggi á mjög áhorfendavænni golfholu. Rúnar er þeim hæfileika gæddur að hann fer alltaf að hlægja þegar hann meiðir sig. Hann er með 19 í forgjöf, meðlimur í Nesklúbbnum, og spilar helst með Loga Bergmann. Frábært spjall sem er óhætt að mæla með! Þátturinn er í boði: ECCO - Unbro...
#19 - Hjörvar bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir 31.07.2024 1:04:54
Hlaðvarpskóngur Íslands, Hjörvar Hafliðason, mætti til okkar í Seinni níu og ræddi um golf. Þrátt fyrir frekar stuttan golfferil þá hefur Hjörvar leikið golf víða um heim og vill helst spila golf í og við Sóvetríkin sálugu. Hann hefur t.d. farið í golfferð til Litháen og er á leiðinni til Eistlands. Við fórum yfir golfferilinn hjá Hjörvari, hvaða kylfur hann notar og hvern hann styður í atvinnuman...
#18 - Helgi Dan myndi ekki byrja í golfi í dag 22.07.2024 57:13
Helgi Dan Steinsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann er öflugur kylfingur með um +2 í forgjöf. Helgi er framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Grindavíkur og ræðir aðeins við okkur um stöðuna á Húsatóftavelli. Farið er yfir Opna breska og Íslandsmótið í golfi. Farið yfir ótrúlegt atvik þegar Helgi "sló" Steina Hallgríms úr keppni. Helgi segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í h...
#17 - Upphitun fyrir Íslandsmót og Opna breska með Palla Ketils 17.07.2024 1:07:08
Framundan er ein stærsta helgi ársins í golfinu. Af þeim sökum hlóðum við í upphitunarþátt fyrir Íslandsmótið í golfi og Opna breska meistaramótið sem hefst á morgun, fimmtudag. Páll Ketilsson, ristjóri Kylfings.is, kom til okkar í spjall og ræddi einnig við okkur um sinn heimavöll, Hólmsvöll í Leiru, þar sem Íslandsmótið fer fram. Við spáðum í spilin fyrir mótin og fórum líka yfir hvernig best væ...
#16 - Golfsálfræði með Hafrúnu Kristjáns 15.07.2024 53:06
Gestur vikunnar hjá okkur í Seinni níu er Dr. Hafrún Kristjánsdóttir sem er prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hafrún hefur starfað sem íþróttasálfræðingur um árabil og er á leið á sína fjórðu ólympíuleika þar sem hún aðstoðar okkar fremsta íþróttafólk. Hafrún er kylfingur með um 20 í forgjöf en var áður landsliðskona í handbolta. Hún viðurkennir að kasta stundum kylfum í bræði...
#15 - Ragga Sig: „Fékkstu fugl elskan?“ 09.07.2024 52:24
Gestur okkar þessa vikuna í Seinni Níu er hún Ragnhildur Sigurðardóttir sem er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi. Hún hefur gert golfið að sínu aðalstarfi og starfar sem bæði golfkennari og fararstjóri. Í skemmtilegu spjalli fer hún aðeins yfir golfferilinn, gefur góð ráð fyrir meistaramótin og segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á par4 braut. Logi er með powerrank og velur fimm furðul...
#14 - Finnur sem allt vinnur 02.07.2024 48:45
Finnur Freyr Stefánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann vann í vor Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í sjöunda sinn sem þjálfari sem er magnað afrek. Finnur stundar golf af miklu kappi og er með um 18 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum í Mosfellsbæ en 5. holan á Hlíðavelli er Finni ekki að skapi. Powerrank, spáð í holu höggi fyrir Loga og sérstaklega krassandi spurning vikunn...
#13 - Inga Lind: „Ég er ofmetinn nýgræðingur“ 27.06.2024 53:27
Gestur vikunnar í Seinni níu er fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir sem er kylfingur með um 21 í forgjöf. Hún stýrir þættinum Golfarinn sem sýndur er á Stöð2 og hefur algjörlega fallið fyrir golfíþróttinni á síðustu árum. Hún ræðir um golfið og deilir með okkur nokkrum frábærum heilræðum sem allir kylfingar ættu að tengja við. Í þætti vikunnar veljum við einnig fimm bestu 9 holu velli á landsbygg...
#12 - Úlfar hefur ekki farið holu í höggi í 40 ár! 20.06.2024 55:07
Úlfar Jónsson er gestur vikunnar í Seinni níu. Hann hefur sex sinnum staðið uppi sem Íslandsmeistari í golfi og náði þeim áfanga að vinna Íslandsmeistaratitilinn 6 sinnum á sjö árum. Í dag vinnur Úlfar sem PGA golfkennari ásamt því að vinna hjá GKG. Úlfar ræðir einnig við okkur um Opna bandaríska meistaramótið sem lauk um síðustu helgi sem hann telur eitt það risamót á síðustu árum. Powerrank og ý...
#11 - Birgir Leifur lærði golf á því að keppa við vinina 12.06.2024 59:36
Gestur vikunnar í Seinni níu er Birgir Leifur Hafþórsson sem er sigursælasti kylfingur Íslands. Biggi hefur alls sjö sinnum orðið Íslandsmeistari í golfi. Hann er nú að mestu búin að leggja keppniskylfurnar á hilluna og spilar meira sér til ánægju í dag ásamt því að ráðleggja ungum og efnilegum kylfingum. Í þættinum fer Birgir Leifur yfir glæsilegan feril, veikleika og styrkleika í golfinu, lífið...
#10 - Teitur fékk teighögg í lærið frá Keflvíkingi 05.06.2024 52:47
Gestur þáttarins er körfuboltagoðsögnin Teitur Örlygsson. Hann hefði viljað byrja fyrr í golfi og er í dag með um 16 í forgjöf. Teitur elskar að horfa á golf og missir varla af móti á PGA. Hann hefur brotið dræverinn sinn eftir mislukkað högg í Leirunni og fékk dræv frá Keflvíking í lærið af stuttu færi. Teitur ræddi við okkur um golfið, körfuboltann og margt fleira. Spurning vikunnar og Powerrank...
#9 - Kormákur fullnýtti golftrygginguna 28.05.2024 50:44
Kormákur Geirharðsson, vertinn á Ölstofunni, tónlistamaður og fatabúðareigandi, er gestur Seinni níu þessa vikuna. Kormákur er fínasti kylfingur með um 15 í forgjöf en forgjöfin var talsvert lægri á árum áður. Kormákur fékk ungur mikla golfdellu og vann nokkur sumar sem golfvallastarfsmaður á Grafarholtsvelli. Í spjalli sínu við Jón & Loga segir Kormákur meðal annars frá því þegar hann fór hol...
#8 - Steini Hallgríms fór með titilinn á þjóðhátíð 22.05.2024 1:01:35
Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Eyjapeyjinn Þorsteinn Hallgrímsson. Steini varð Norðurlandameistari árið 1992 og svo Íslandsmeistari árið 1993. Vinnuslys gerði svo út um atvinnumannaferil og tilraunir með hestasterasprautur dugðu ekki til. Þorsteinn er íslenskum golfáhugamönnum að góðu kunnur enda hefur hann helgað lífi sínu golfi undanfarna áratugi sem keppniskylfingur, eigandi á...
#7 - Gunnar Birgis opinn fyrir samstarfi 15.05.2024 57:10
Sjónvarpsmaðurinn Gunnar Birgisson er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Þátturinn átti upphaflega að vera einhvers konar upphitunarþáttur fyrir PGA Meistaramótið en endaði í umræðu um Eurovison, golf í Ásbyrgi, leit af samstarfsaðilum og meiri fyrirgefningu á golfvellinum. Njótið vel! ECCO - Ölgerðin - Unbroken - Lindin
#6 - Glæpsamlega gott golf með Jakobi Bjarnar 14.05.2024 56:24
Fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Jakob er kylfingur með um 16,6 í forgjöf og er virkur þátttakandi í golfíþróttinni á Íslandi. Meðal umræðuefna eru: - Íslenskar golflýsingar - Bakmeiðsli - Glæpsamlega gott golfmót á Spáni - Kátir piltar - Sóli Hólm sem Jakob Bjarnar ECCO - Unbroken - Lindin
#5 - Þorgerður Katrín 07.05.2024 45:44
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Seinni níu þessa vikuna. Þorgerður er kylfingur með um 11 í forgjöf og fór holu í höggi árið 2014. Við tókum mjög skemmtilegt spjall um golfið, smá um pólitík og svo var powerrank á topp5 klúbbhúsin á Íslandi. ECCO - Unbroken - Lindin bílaþvottastöð
#4 - Kröfuganga með Villa Birgis 01.05.2024 45:27
Vilhjálmur Birgisson er gestur Seinni níu þessa vikuna. Verkalýðsleiðtogi frá Akranesi sem þolir ekki óréttlæti. Óttast mest í golfi að sjanka. Spilar 9 holur á 50 mínútum upp á Skaga eldsnemma á morgnanna. Kjarabarátta er eins og erfið par5 hola. Golf er besta lyfið við andlegum kvillum. ECCO - Unbroken - Lindin
#3 - Halli Melló um golf á lyfjum 18.04.2024 43:59
Seinni níu fékk í heimsókn að þessu sinni leikarann Hallgrím Ólafsson eða Halla Melló eins og hann er jafnan kallaður. Halli Melló er leikari í Þjóðleikhúsinu en einnig kylfingur með um 10 í forgjöf. Hann er stöðugur á drævernum og hefur fengið albatross. ECCO - Lindin - Unbroken
#2 - Sigur endurskoðandans 15.04.2024 46:38
Uppgjör á sigri Scottie Scheffler á Masters. Logi Bergmann & Jón Júlíus fara yfir stóru sögulínurnar á Masters mótinu í ár. Shawarmahlíð kemur við sögu. - Er Scottie Scheffler nægilega skemmtilegur? - Er Tiger búinn? - Powerrank á helstu ósiðum á golfvellinum ECCO - Lindin - Unbroken
#1 - Upphitun fyrir Masters 10.04.2024 54:54
Fyrsti þáttur af Seinni níu GolfPodcast er kominn í loftið. Logi Bergmann og Jón Júlíus fara yfir allt það helsta í golfinu. - Farið yfir Masters - Powerrank - Viltu kaupa pútter af Silfurdreng? ECCO - UNBROKEN - LINDIN
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.