RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 episodes

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Feb 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Elli hunda og katta, markaðsbrestur Stefáns og löggæsla án valdbeitingar 31.01.2025

Öldrunarmálin verða okkur hugleikin í dag, við eldumst öll og það gera dýr líka. Hanna Arnórsdóttir Rodgers, dýralæknir, ætlar að ræða við okkur um aldurstengda færnisskerðingu hjá hundum og köttum og hvernig eigendur geta annast þessa ferfætlinga í ellinni þá í ellinni. Hvernig upplifa minnihlutahópar á Íslandi samskipti við lögregluna? Og getum ímyndað okkur framtíð þar sem við tryggjum öryggi f...

Réttindi hinsegin fólks í Bandaríkjum Donalds Trump og Íslendingasögur í Landnámssetrinu 30.01.2025

Annað kjörtímabil Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta hófst með sannkölluðu forsetatilskipanaflóði. Á síðustu viku hefur hann meðal annars tekið ákvarðanir um innflytjendamál, loftslagsmál og rekstur hins opinbera, en eitt af því sem hefur vakið athygli eru tilskipanir Trumps sem tengjast kynjamálum og réttindum hinsegin fólks, sem gætu haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir hinsegin fólk í Ban...

Útivinna í frosthörkum, sjúklingar sem neytendur og merkileg músatilraun 29.01.2025

Það er fimbulkuldi á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi fólks vinnur úti allan daginn í frosthörkunum. Við förum í heimsókn á byggingasvæði í Kópavogi og ræðum við starfsmenn frá ýmsum löndum - það er mikilvægt að huga að örygginu, hálka og ísing víða, og þekkt að vinnuslys í byggingariðnaði eru mun algengari á veturna en á sumrin. Neytendalögin gilda ekki um heilbrigðisþjónustu. Við heyrum í Brynhildi...

Ólíkindatólið tjaldur og nýlendulaus næring 28.01.2025

Tjaldurinn er ólíkindatól og undanfarin ár hefur líffræðingurinn Sölvi Rúnar Vignisson einbeitt sér sérstaklega að rannsóknum á honum - við ætlum að ræða við Sölva Rúnar um líf og hegðun Tjalda, sem sumir eru orðnir staðfuglar og jafnvel farnir að yfirgefa fjörurnar fyrir ánamaðka í túnum. Síðan fjöllum við um nýlendustefnu, framtíðina og matarmenningu, afnýlenduvæðingu, sundlaugar og kvikmyndir....

Veðurstofustjóri um veitur og veður, Hvað ef og Risaeðlur, Fyrstu götuljósin í Reykjavík 27.01.2025

Við ræðum áhrif loftslagsvárinnar á ýmsa innviði, einkum vatns- og fráveitur, við Hildigunni Thorsteinsson, veðurstofustjóra. Sveitarfélög þurfa á næstu árum að ráðast í ýmsar aðgerðir vegna aukinna öfga í veðurfari - en kröfur um slíkt eru í dag af skornum skammti. Hvað ef loftsteinn hefði ekki lent á jörðinni fyrir 65 milljónum ára? Hefði líf á jörðinni verið öðruvísi í dag? Væru enn risaeðlur á...

Samfélagið í Borgarnesi 24.01.2025

Í dag heilsum við ykkur frá Borgarnesi, nánar tiltekið frá hljóðveri Ríkisútvarpsins í Menntaskóla Borgarfjarðar. Við verðum með hugann við þetta svæði í dag. Við ætlum að ræða rekstur sveitarfélaga, aukaíbúðir sem standa auðar um allt land og byggðabrag við Vífil Karlsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og ráðgjafi hjá samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Inga Dóra Halldórsdó...

Sólarpönk, samkennd með blómum og kaffiathafnir 23.01.2025

Í dag höldum við áfram að fjalla um framtíðina. Höldum áfram með viðtalsröð okkar, þar sem við ræðum við framtíðarhugsuði sem taka þátt í framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins næstu helgi. Við ætlum við að fræðast um bókmenntagrein, listastefnu og aðgerðastefnu sem hefur fengið heitið sólarpönk. Þetta er leið til að sjá fyrir sér framtíð þar sem fólk lifir í sátt og samlyndi við hvert annað og vis...

Samfélagsmiðlar eftir endurkomu Trumps, klippimyndaframtíð, mislingar og bólusetningar 22.01.2025

Forríkir tæknimógúlar hafa undanfarið fylkt sér að baki Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Elon Musk, ríkasti maður heims, sem á Teslu, SpaceX og samfélagsmiðilinn X, er orðinn innsti koppur í búri hjá Trump og jafnvel talinn vilja gerast einhvers konar strengjabrúðumeistari yfir honum. Jeff Bezos, forstjóri Amazon og annar ríkasti maður heims, stendur líka þétt við bak forsetans og það sama má segj...

Loftslagsbreytingar og fráveita, samfélagslistir og tákn framtíðar, græna gímaldið 21.01.2025

Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þo...

Greftrunarsiðir samtímans, Framtíð Daríu Testo og rafræn skjalavarsla 20.01.2025

Hvernig hugsum við um dauðann og örlög jarðneskra leifa okkar eftir hann? Líklega mismikið - á meðan sum eru búin að skipuleggja jarðarförina í þaula er öðrum sléttsama - þau verða hvort eð er ekki lífs. Við ætlum að ræða útfarir og greftrunarsiði samtímans við Dagrúnu Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðing, sem undanfarið hefur rannsakað afstöðu fólks til jarðarfararinnar og hinstu hvílu og skráð hvernig tí...

Gervigreindarráðstefna í HR, siðferði gervigreindar og gagnaöryggi 17.01.2025

Samfélagið sendir út frá gervigreindarráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík. Við ræðum við sérfræðinga í gervigreind og heilbrigðismálum, gervigreind og lögfræði, gervigreind og aktívisma og gervigreind almennt.

Barátta um persónuupplýsingar, Myndarsögur, framtíðarborgir og höfundaverkstæði Eiríks Arnar Norðdahl 16.01.2025

Um árabil hefur írska persónuverndarstofnunin háð harða baráttu við voldugustu tæknirisa heims. Reglulega berast fréttir af stórum sektum, upp á allt að tugi milljarða evra, sem eru tilraunir til að fá risana til að fara eftir evrópskum lögum sem gilda meðal annars hér á Íslandi. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar verður gestur okkar í dag. Við spyrjum hana út í þessa baráttu, samspil pers...

Framtíðin sem blóm, örveruflóra, víkingaímyndir 15.01.2025

Hvernig hugsum við um framtíðina? Er hún línuleg? Hringur? Kannski í laginu eins og blóm? Í fyrsta viðtali í framtíðarviðtalsröð Samfélagsins og Borgarbókasafnsins ræðum við við Juan Camilo, fjölmenningarfulltrúa hjá Háskóla Íslands og fræðimann og kennara, í breiðum skilningi þeirra orða, um framtíðina, forvera, menntun og ýmislegt fleira. Síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara...

Ímyndarkrísa endurskoðenda, matvendni og framtíðarfestival 14.01.2025

Eru endurskoðendur leiðinlegir? Almenningur virðist að minnsta kosti vera þeirrar skoðunar, ef marka má nýja rannsókn Valdimars Sigurðssonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Og þessi ímyndarkrísa endurskoðenda gæti haft alvarleg áhrif, þar sem nýliðun í faginu er lítil og of fáir endurskoðendur eru útskrifaðir til að anna eftirspurn. Við ræðum við Valdimar Sigurðs...

Tímamótastyrkur til að koma skikki á vatnsmálin, Refsiábyrgð ráðherra - er hún til? Leiðsögumaðurinn Vigdís Finnbogadóttir 13.01.2025

Í dag fjöllum við um vatn eina dýrmætustu auðlind Íslands. Þekking okkar á ástandi vatns er takmörkuð og ásókn í það eykst stöðugt. Umhverfis- og orkustofnun hlaut á dögunum 3,5 milljarða styrk frá Evrópusambandinu til að koma betra skikki á vatnamál á Íslandi, fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar og tjörnin í Reykjavík eru á meðal þess sem nýtur góðs af. Við ræðum þetta við Hólmfríði Þorsteinsdóttur sér...

Samfélagið í Hamraborginni 10.01.2025

Samfélagið fjallar um Hamraborgina í Kópavogi, sýn fólks á hana, listina sem þar verður sífellt fyrirferðarmeiri og ýmsar hræringar. Tónlist í þættinum: KRISTJÁN JÓHANNSSON - Hamraborgin (LP). Herra Hnetusmjör - Labbilabb ásamt Friðrik Dór.

Framtíðir og skaðleg aukaefni í matvöru 09.01.2025

Í dag ætlum við að velta okkur upp úr framtíðinni; eða kannski er réttara að segja að við ætlum að velta okkur upp úr framtíðum. Þær eru víst alls konar, mögulegar og ómögulegar. Við heimsækjum Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson hjá Framtíðarsetri Íslands, sem nálgast þetta viðfangsefni með aðferðum framtíðarfræðinnar. Íslenskir brauðostar, kotasæla og rifinn ostur innihalda flest rotvarnarefni...

Baráttan við heimalestur, seinleg áfallahjálp fyrir Grindvíkinga, vísindaspjall 08.01.2025

Um fimm sinnum í viku heyja fjölmargir foreldrar baráttu við að fá börnin sín til að lesa. Heimalestur er útbreidd hefð á Íslandi, þar sem börn eru látin lesa upphátt fyrir foreldra sína í fimmtán mínútur í senn, allt að fimm sinnum í viku. Þetta er hluti af ábyrgð foreldra í lestrarkennslu barna, en hvernig hefur þetta fyrirkomulag reynst foreldrum og börnum? Hafa allir foreldrar í raun og veru k...

Er í alvöru hægt að lækka matvöruverð? og áratugur af sniðgöngu 07.01.2025

Bera íslenskar matvöruverslanir hag neytenda fyrir brjósti eða ráða gróðasjónarmið þeirra einfaldlega ríkjum? Og hvernig koma boðaðar verðhækkanir á matvöru fram á nýju ári og geta neytendur fylgst með því hvaða verslun er raunverulega að selja ódýrasta matinn? Við ætlum að ræða hækkanir á matvöruverði, mikinn hagnað matvöruverslanakeðja hér á landi undanfarin ár og hegðun þeirra gagnvart neytendu...

Hrútskýringar og niðrandi tal í íslenskum stjórnmálum, málningakeppni í Nexus 06.01.2025

Við byrjum á skrímslum, vélmennum og stríðsmönnum. Í Nexus fer nú fram fígúrumálningakeppni, þar sem keppendur senda inn sína bestmáluðu smáfígúru frá árinu 2024. Við kíktum í heimsókn í morgun og ræddum við Guðbrand Magnússon, starfsmann Nexus, um keppnina, um áhugamálið fígúrumálningar og fleira. Við ætlum að fjalla um orðræðu karla í íslenskum stjórnmálum í garð stjórnmálakvenna og þá hvort hún...

Frostvandræði á Akureyri og hugmyndahraðhlaup fyrir háskólanema 03.01.2025

Fimbulfrost setti svip sinn á áramótin á Akureyri, það lækkaði töluvert í hitaveitutönkunum og Norðurorka virkjaði neyðarstjórn. Ástandið er skárra núna þó frostið sé aftur að herða tökin. Í fyrri hluta þáttarins ræðum við Baldur Viðar Jónsson, vélfræðing hjá Norðurorku - um snjóbræðslukerfi sem eiga ekkert í gaddinn, ofanjarðarlagnir frá áttunda áratugnum, nýjar og gamlar borholur - já bara hitav...

Kristín styður 37 fjölskyldur á Gaza, Opni háskólinn og gervigreind 02.01.2025

Það má segja að Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur á Svalbarðseyri, búi í tveimur heimum. Þegar hún er ekki í vinnunni í heimahlynningunni á Akureyri er hún vakin og sofin yfir því að styðja fjölskyldur á Gaza, fjárhagslega en ekki síður andlega. Segja má að hún reki óformleg hjálparsamtök og í kringum þau hefur skapast stórt samfélag. Grunnskóli, framhaldsskóli, háskóli… en hvað svo? Sím...

Árið í Samfélaginu: seinni hluti 30.12.2024
Árið í Samfélaginu: fyrri hluti 27.12.2024
Huldumaður á bakvið geitarbrennuhótanir, umhverfisvænni jól, uppgjör Vísindavefsins 20.12.2024

Rúmlega 4000 manns hafa boðað komu sína á Facebook-viðburðinn Íkea-geitin brennd. Í viðburðarlýsingu segir: Komum öll saman og brennum þessa helvítis Íkea-geit. Við ætlum að fjalla um þessa geit, uppruna hennar, sögu og skemmdarfýsnina sem virðist tengjast henni sterkum böndum. Við ræðum við Guðnýju Camillu Aradóttur, yfirmann samskiptasviðs Íkea, Terry Gunnell, prófessor emerítus í þjóðfræði og h...

Listen to the Samfélagið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.