RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Samfélagið á hugvísindaþingi 07.03.2025 58:15
Samfélagið heilsar af hugvísindaþingi í Háskóla Íslands. Í dag ætlum við meðal annars að hamra járnið á meðan það er heitt, eða eins og sagt er á þýsku - Das Eisen muss man schmieden solange es heiß ist. Við ræðum orðatiltæki, sem tengjast fornu handverki eða iðnaði og eru oft til í mörgum tungumálum við Oddnýju G. Sverrisdóttur, prófessor í þýsku. Og við ræðum við fleiri fræðimenn um fleira spenn...
Kæfir gervigreindarreglugerðin nýsköpun? og gagnrýnar nálganir að fötlunarfræði 06.03.2025 58:58
Gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins tók gildi í ágúst, en enn á eftir að taka hana upp á Íslandi að fullu þótt innleiðing hennar sé í gangi. Borið hefur á gagnrýni á þessa reglugerð að hún kæfi nýsköpun og uppbyggingu gervigreindarfyrirtækja í Evrópu, og skekki þar með samkeppnishæfni álfunnar í gervigreindarkapphlaupinu við Bandaríkin og Kína. En er eitthvað til í þessari gagnrýni? Við ræðum...
Strandlengja Íslands, barátta gegn ofbeldi og tilvistarkrísa kóalabjarna 05.03.2025 55:00
Strandlengja Íslands er 5000 kílómetrar að lengd og stjórnvöld hafa síðastliðin fjögur ár unnið að því að hreinsa hana með markvissum hætti. Fyrirtækjum og félagasamtökum býðst að sækja um styrk til þess að taka að sér ákveðinn hluta strandlengjunnar, ganga fjörur og tína netadræsur og annað plastrusl. Átakið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum og nú er lokaár þess runnið upp. Hve...
Framtíð lyfjafræði og nýfundin bréf frá berklahælinu 04.03.2025 59:31
Lyfjafræðingar eru þreyttir á vantrausti frá heilbrigðiskerfinu og vilja gera meira til að aðstoða sjúklinga. Í dag fáum við til okkar Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, formann lyfjafræðingafélags Íslands, og Sigríði Pálínu Arnardóttur, lyfjafræðing í Reykjanesapóteki, til að ræða framtíð lyfjafræðinnar og apóteka á Íslandi. Ingunn Sigurjónsdóttir var veik af berklum stóran hluta sinnar barnæsku...
Þrotabússkjöl Utangarðsmanna og kynjatvíhyggja í vísindum 03.03.2025 55:00
Þrotabú utangarðsmanna er eitt af því sem geymt er í hefðbundinni skjalaöskju á Þjóðaskjalasafninu. Lítil dagbók, nokkuð pönkaraleg og kvittanir með heimspekilegu kroti eru meðal þess sem í því leynast. Við skoðuðum þrotabússafn Utangarðsmanna með Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalaverði. Hversu mörg eru kynin? Eru þau bara tvö, eða er tvíhyggjan einföldun á vísindunum. Arnar Pálsson, erfðafræði...
Á vaktinni með innlagnastjórum á Landspítala 28.02.2025 1:01:20
Í Samfélaginu í dag förum við á vakt á Flæðisdeild Landspítalans og köfum ofan í flæðið sem er forsenda þess að spítalinn virki - og hefur sjaldan verið þyngra en nú. Hvað er að frétta af þessum títtnefnda fráflæðisvanda? Hvað gerir starfsfólkið þegar þetta mennska flæði er nánast stopp og hvað gerist þegar stíflurnar bresta? Við fylgjumst sérstaklega með Kristinu Kötlu Swan og Þórdísi Friðsteinsd...
Hallar á konur í hæliskerfinu? Textíllinn sem við viljum ekki 27.02.2025 59:18
Þegar Valgerður Guðmundsdóttir, lektor við Lagadeild Háskólans á Akureyri, starfaði hjá Útlendingastofnun rak hún sig á það að henni fannst erfiðara að heimfæra frásagnir kvenna sem sóttu um alþjóðlega vernd upp á flóttamannshugtakið, eins og það er skilgreint í lögum, en frásagnir karla. Þetta varð kveikjan að doktorsrannsókn sem hún lauk við nýverið. Við ræðum við Valgerði um stöðu kvenkyns hæli...
Fræhvelfingin á Svalbarða, dularfullir djúpsjávarháfar og vísindaspjall 26.02.2025 58:52
Nýverið var greint frá því að 14 þúsund fræsýnum hefði verið lögð inn í Alþjóðlegu fræhvelfinguna á Svalbarða - dómsdagshvelfinguna eins og hún er stundum kölluð. Árni Bragason fyrrverandi landgræðslustjóri var forstjóri Nordgen, Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar, um árabil, hann kemur til okkar í Samfélagið og við forvitnumst um fræhvelfinguna og starfsemi hennar. Vísindamenn á Hafrannsóknastof...
Birkiyrki, fátækt og flækjustig þéttbýlis 25.02.2025 59:26
Í hartnær hálfa öld hefur Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur unnið að kynbótum á íslensku ilmbjörkinni – með góðum árangri: birkiyrki úr hans smiðju hefur meðal annars verið flutt til ræktunar í birkilandinu mikla Finnlandi. Þorsteinn heldur fyrirlestur um kynbætur á birki á fræðslufundi hjá Skógræktarfélagi Íslands í kvöld – og verður gestur Samfélagsins hér á eftir og segir frá kynbótum sín...
Tollastríð og fermingar 24.02.2025 45:10
Tollastríð hefur vofað yfir heimsbyggðinni síðustu vikur og mánuði, einna helst vegna ákvarðana og yfirlýsinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Stjórnvöld víða um heim, meðal annars hér á Íslandi, eru byrjuð að búa sig undir mögulegt tollastríð, en hvað felur það í sér? Við ráðumst að rót í dag, fáum til okkar Þórólf Matthíasson prófessor emeritus í hagfræði til að ræða tollastríð, Trump og leikja...
Sent út frá félagsráðgjafaþingi 21.02.2025 55:00
Samfélagið sendir út frá félagsráðgjafaþingi á Hilton hótel Nordica í Reykjavík. Þar voru hátt í 400 félagsráðgjafar saman komnir og málefni rædd í mörgum málstofum. Við ræðum við; Steinunni Bergmann, formann Félagsráðgjafafélags Íslands Maríu Björk Ingvadóttur, framkvæmdastjóra Félagsráðgjafafélags Íslands Freydísí Jónu Freysteinsdóttur, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands Helgu Só...
Skapandi viðbrögð við umhverfisógnum, básabúðin Venus og listabókstafir 20.02.2025 58:58
Hvernig tökumst við á við breytta heimsmynd vegna loftslagsbreytinga, hnignunar líffræðilegs fjölbreytileika og annarra umhverfisógna. Á dögunum kom út samnorrænt greinasafn sem fjallar um hlutverk lista, bókmennta og skapandi athafna í að bregðast við þessum breytingum. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, er annar ritstjóra safnsins og hún ætlar...
Reykur - ný skaðaminnkandi þjónusta, Vísindaspjall um eftirréttarhólfið 19.02.2025 59:00
Reykur er ný skaðaminnkandi þjónusta fyrir fólk sem reykir ópíóíða og örvandi efni. Þjónustan er á vegum skaðaminnkunarsamtakanna Matthildar, og þykir frekar nýstárleg á íslenskan mælikvarða. Samfélagið heimsótti hálfgerðar höfuðstöðvar Reyks í Andrými á Bergþórugötu, og ræddi við Svölu Jóhannesdóttur, forgöngukonu verkefnisins, um þjónustuna, vímuefnareykingar og skaðaminnkun. Edda Olgudóttir kem...
Framtíðin gerð upp, tækifæri fólks með fötlun til menntunar, þéttbýli 18.02.2025 59:21
Í dag gerum við upp viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, sem lauk í síðustu viku og hafði staðið yfir í rúmar fjórar vikur. Í þessum viðtölum könnuðum við framtíðarvonir fólks sem tók þátt í framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins, sem var haldið í lok janúar, en þær Dögg Sigmarsdóttir og Martyna Karólína Daniel, verkefnastjórar á Borgarbókasafninu, koma til okkar til að gera upp festiva...
Gervigreind heimsk eða hjálpleg? Rúntað um Reykholt og heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands 17.02.2025 51:28
Á hvaða sviðum er gervigreindin gagnleg og á hvaða hátt er hún heimsk? Á dögunum hélt einn helsti gervigreindarsérfræðingur Norðurlandanna, Serge Belongie, prófessor í tölvunarfræði við Kaupmannarhafnarháskóla og forstöðumaður Pioneer-stofnunarinnar um gervigreind, fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík. Markmið hans var að svipta hulunni af meintum töfrum gervigreindarinnar og hvetja til Norræns sa...
Blómabúskapur, valentínusardagur, háskólalausa háskólasamfélagið á Suðurlandi 14.02.2025 55:00
Í dag er Samfélagið umvafið blómum og sendir út frá garðyrkjustöðinni Espiflöt í Reykholti í Bláskógabyggð. Í dag er dagur elskenda og blómasala því mikil. Við fjöllum um blóminn og valentínusardaginn, fáum til okkar blómabændur, fræðifólk og vörumerkjamenn til að kryfja þennan forvitnilega dag. Við kíkjum líka í heimsókn í Háskólafélag Suðurlands og ræðum við starfsmenn um nám, fræðimennsku og fr...
Frumskógur stafrænna lausna í heilbrigðiskerfinu, Uppskera og 20 ára afmæli fötlunarfræðinnar, Áhrif loftmengunar á heilsu 13.02.2025 59:11
Við ætlum að fjalla um tækni og heilbrigðiskerfið. Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu eru margar en eru þær góðar? Virka þær? Skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins þurfa að flakka á milli appa og forrita til þess að nálgast nauðsynlegar upplýsingar. Við ætlum að ræða við Eyrúnu Magnúsdóttur um för hennar í gegnum þann frumskóg forrita sem notendur heilbrigðisþjónustu villast í þegar þeir veikja...
Réttindi fatlaðs fólks eftir 100 ár, Söfn og hamfarir og áhrif kannabiss á heilsuna 12.02.2025 59:27
Við byrjum á síðasta viðtalinu í viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, sem við höfum haldið úti í samvinnu við Borgarbókasafnið síðustu fjórar vikur. Í dag fáum við til okkar Venu Naskrecku, fjöllistakonu og aðgerðarsinna fyrir réttindum fatlaðs fólks. Og við ætlum einmitt að ræða réttindi fatlaðs fólks og hvernig þau komi til með að líta út eftir hundrað ár eða svo. Við ætlum að fræðas...
Hönnun hraunvarnargarða, Áhrif Trumps á loftslagið, Ekki í mínum bakgarði 11.02.2025 55:00
Við byrjum þáttinn á hönnun Hraunvarnargarða. Síðasta föstudag mættum við á uppskeruhátíð tækni- og tölvufólks á Íslandi, UTmessuna í Hörpu. Þar hittum við Hörn Hrafnsdóttur, sérfræðing í straum- og vatnafræði hjá Verkís og ræddum um hönnun hraunvarnargarða við Svartsengi og Grindavík, og hvernig fagið hraunvarnargarðahönnun hefur þróast á síðustu árum. Halldór Björnsson, fer yfir stöðu og horfur...
Hvar eru bækurnar frá May Morris, Söfn og hamfarir, Fárviðrið 1981 10.02.2025 49:14
Risastór bókagjöf enskrar merkiskonu, May Morris, virðist hafa horfið sporlaust - utan einnar bókar sem Brynjar Karl Óttarsson, sögukennari við Menntaskólann á Akureyri er nokkuð viss um að hafi tilheyrt henni. Hann rannsakar gamlar bækur og skjöl í kjallara Amtsbókasafnsins á Akureyri og hirslum Menntaskólans - og tímafrek yfirlegan hefur skilað nokkrum forvitnilegum uppgötvunum. Við ræðum við Br...
Predikað um gervigreind, gagnaflækjur og tækni á UTmessunni 07.02.2025 59:03
Í dag er Samfélagið á UTmessunni í Hörpu, þar sem tækni- og tölvufólk messar yfir hvert öðru um allt það helsta í heimi tækninnar. Við ræðum við hina og þessa, meðal annars um gervigreind, sem er ansi plássfrek á UTmessunni, gagnaflækjur, heilbrigðistækni, upplýsingatæknilögfræði, nýjar kynslóðir þráðlauss nets og frelsi frá vinnu.
Græn nýsköpun og upprifjun á húðflúrhátíð 06.02.2025 57:46
Í dag er sjötti febrúar og búið að vera aftakaveður frá því snemma í morgun. Fólk er beðið um að vera ekki mikið á ferli. En eins og margir gera í óveðri sem þessu, ætlum við að vera með hugann við eitthvað allt annað en veðrið. Hér á eftir fáum við til okkar þær Íseyju Dísu Hávarsdóttur og Kolfinnu Kristínardóttur, frá Klak Icelandic Startups, til að ræða aðeins um nýsköpun og viðskiptahraðal fyr...
Framtíðin, Akureyrarveikin og köld böð 05.02.2025 59:20
Á árunum 1948-1949 braust út veirufaraldur á Akureyri. Fjöldi fólks veiktist og sum hafa glímt við eftirköst veikinnar, sem jafnan er kölluð Akureyrarveikin, alla ævi. Ýmsum spurningum er enn ósvarað um þennan dularfulla faraldur. Óskar Þór Halldórsson, hefur undanfarin ár grúskað í sögu Akureyrarveikinnar og rætt við hátt í sjötíu manns sem annað hvort veiktust eða þekktu einhvern sem veiktist. V...
Íþróttaþvottur og borgarmyndir 04.02.2025 25:58
Samfélagið er í styttri kantinum í dag vegna þingsetningar. Engu að síður fáum við fáum tæpan hálftíma saman, og á þessum hálftíma ætlum við meðal annars að fjalla um íþróttir og siðferði. Íþróttaþvottur er hluti af siðferðilegum þvottabrögðum þar sem aðilar reyna að losna undan gagnrýni á siðferðilegt inntak starfsemi eða stjórnarhátta með því að skreyta sig með dygðugum verkefnum. Nokkurn veginn...
Grindhvalir og gömul skjöl 03.02.2025 48:31
Grindhvalaævintýri Svanhildar. Einkaskjöl sýslumannsfeðga. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-02-03 Hjálmar - Hegðun skýja um vetur. Mitchell, Joni - Little Green.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.