RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sálarlíf fiska, kvenfélag á Patreksfirði, ofbeldisforvarnarkvikmyndin Geltu 19.12.2024 55:00
Um helgina verður frumsýnd kvikmynd sem ætlað er að fræða ungt fólk um hatorsorðræðu. Kvikmyndin heitir Geltu sprettur upp úr starfsemi ofbeldisforvarnarskólans Ofsa og í dag ræðum við við Bennu Sörensen, stofnanda skólans, og Sigríði Lárettu, leikara og höfund. Sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsins er óvíða jafn öflugt og á Patreksfirði. Þar starfar Lionsklúbbur og tvö félög sem eingöngu eru ski...
E-efnasúpan, skautun og óöfundsverð staða ungra kjósenda 18.12.2024 57:49
Þau binda, verja gegn rotnun, sýrustilla og kekkjaverja, gefa sætt bragð eða súrt og kannski fátt sem sameinar þau annað en að þau eru táknuð með E-i, sem stendur fyrir Evrópu og ákveðnu númeri. Neyslusamfélagið kafar í dag ofan í E-efnasúpuna og leitar svara við spurningum dyggs hlustanda sem er með ofnæmi fyrir ákveðnu slíku efni. Í Mjólkursamsölunni kemur í ljós að innihaldslýsing osts hefur br...
Lognmolla í ólgusjó, Meðalhitinn yfir 1,5, Jólamálfarsspjall 17.12.2024 55:00
Í síðustu viku gáfu stjórnmálafræðingar við Háskóla Íslands út bók sem byggir á íslensku kosningarannsókninni, og beinir sjónum sínum einna helst að alþingiskosningunum 2021 og íslenskum kjósendum í áranna rás. Tveir af höfundum bókarinnar, Jón Gunnar Ólafsson og Hulda Þórisdóttir, ætla að setjast hjá okkur og ræða bókina, lýðræðið, og hvort Alþingiskosningarnar 2021 hafi verið sögulega leiðinlega...
Forvarnir og hættuleg endurkoma reykinga, koma ungversks flóttafólks 1956 16.12.2024 59:01
Reykingar virðast njóta aukinnar hylli í dægurmenningu - frægt fólk í Hollywood sportar sígarettum á almannafæri, svokallaðir sígarettuáhrifavalda, cigfluencers, hafa skotið upp kollinum á samfélagsmiðlum og síðastliðið ár komu reykingar fyrir í 9 af hverjum 10 kvikmyndum sem tilnefndar voru til stærstu Óskarsverðlaunanna. Blaðamenn tala um áhrif tísku og einhvers konar afturhvarf til kæruleysisle...
Uppskeruhátíð Snjallræðis, Jólaóþarfi og Albatrosinn viska 13.12.2024 57:59
Við ætlum að kynna okkur nýjabrumið í nýsköpun, nú fer fram uppskeruhátíð Snjallræðis í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar kynna nokkur teymi hugmyndir sem vonandi eiga eftir að bæta og breyta heiminum til góðs. Við ræðum við fulltrúa nokkurra teyma og verkefnastjóra snjallræðis, Odd Sturluson. Við fáum svo jólapistil frá Stefáni Gíslasyni, hann fjallar um óþarfa, hvaða kerti og neysluspil eigi að varast fy...
Hulduherinn sem knýr áfram gervigreindarbyltinguna, krabbameinsrannsóknir, víkingar og þjóðarsálin 12.12.2024 57:14
Við byrjum þáttinn á að fjalla um gervigreind. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar og við ætlum að ræða gervigreind og vinnumarkaðinn, ekki þó endilega í því samhengi sem við heyrum oft um. Við ætlum ekki bara að velta fyrir okkur hvaða störf koma til með að hverfa vegna gervigreindar, heldur skoða milljónir láglaunastarfa sem fylgja gervigreindarbyltingunni...
Framtíð Kaffistofu Samhjálpar, skotið á dróna Fiskistofu - nýr veruleiki í fiskveiðieftirliti? 11.12.2024 58:23
Í meira en fjóra áratugi hefur kaffistofa Samhjálpar tekið við fólki sem hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálft, veitt þeim tímabundið húsaskjól og gefið þeim að borða. Starfsemi kaffistofunnar hefur þróast og breyst í gegnum árin og segja má að starfsemin hafi aldrei verið mikilvægari en í dag. Þó er framtíð kaffistofunnar óljós, en Samfélagið kíkti í heimsókn til að fræðast um starfsemina í...
Skaðaminnkun og popúlismi, útnárar fjarskiptakerfisins og áhrif mögulegrar Valkyrjustjórnar á náttúruvernd. 10.12.2024 58:58
Við fjöllum um vímuefnalöggjöf og popúlisma. Evrópska skaðaminnkunarráðstefnan fór fram í síðustu viku í Póllandi, og meðal þess sem var fjallað um voru áhrif popúlískra stjórnmálahreyfinga í Evrópu á skaðaminnkun og vímuefnalöggjöf almennt. Við ræðum við Svölu Jóhannesdóttur, formann Matthildarsamtakanna og sem var á ráðstefnunni, um stöðuna í Evrópu, sem og hér á landi. Skagaströnd er ekki eini...
Gjörningur á Austurvelli, Stefnir í hafísárið 2025? Fyrstu ár Þjóðleikhússins 09.12.2024 55:00
Við ætlum að bjóða upp á ís í samfélaginu í dag, eða samtal um ís; hafís, klakastíflur, freðna jörð jafnvel hláku. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, þekkir vel til þessarar höfuðskepnu, vatns á föstu formi og hún kemur til okkar hér rétt á eftir. Mannréttindasamtökin Amnesty International komast í nýrri rannsóknarskýrslu að þeirri niðurstöðu að nægilegu...
Leyndardómar bókhlöðunnar og hraðasektir um jól 06.12.2024 59:56
Samfélagið sendir út frá Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík, kynnir sér Kvennasögusafnið og fleira á fyrstu hæð byggingarinnar en fær líka að sjá vistarverur drauga og rannsaka harðlæsta hvelfingu í kjallaranum. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, ræðir umferðaröryggi, hraðasektir og jólin við Ásmund Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Tónlist: BOB DYLAN &...
Dýr, menn og Díegó - Pallborðsumræður, vísindaspjall 05.12.2024 55:00
Samfélagið efnir til pallborðsumræðna um dýr og viðhorf mannfólks til þeirra, hver er staða dýra í dag? Hvernig eiga réttindi þeirra eftir að þróast í framtíðinni - Og hvers vegna flykkist fólk um og leggur jafnvel allt í sölurnar fyrir ákveðin dýr - dýr eins og háhyrninginn Keikó eða köttinn Díegó. Þátttakendur: Kristinn Schram þjóðfræðingur sem hefur meðal annars skrifað um samskipti mannskepnun...
Húmor er dauðans alvara, Höfðaskips leitað við Langanes, 100 ár Rauða krossins á Íslandi 04.12.2024 58:36
Hláturinn lengir lífið. Þorsteinn Bachmann, leikari og leikstjóri ætlar að ræða við okkur um húmor og hlátur - sem er eitt hans skærasta leiðarljós í lífinu. Vísindamenn undirbúa nú leit að flutningaskipinu Höfðaskipi sem sökk árið 1682 með miðaldahandrit og merka muni innbyrðis. Neðansjávarrannsóknum hefur fleygt fram á undanförnum árum - og því er ekki talið ólíklegt að skipið finnist, við Langa...
Fríbúðin, baksviðs hjá Góða hirðinum, hvert verður orð ársins? 03.12.2024 59:11
í Borgarbókasafninu í Gerðubergi er rekin fríbúð. Við heimsóttum hana í síðustu viku í tilefni af svörtum föstudegi og tilboðin voru svimandi, allt frítt. Atli Pálsson, sérfræðingur á Borgarbókasafninu segir okkur frá hugmyndafræðinni á bak við fríbúðir. Og við höldum okkur í hringrásinni - Meirihluti þess sem ratar í Góða hirðinn selst og meðalverð hluta er í kringum 500 krónur. Samfélagið kynnti...
Skaðaminnkunarstefna, Jólaplöntur og fyrsta rafmagnsljósið 02.12.2024 59:08
Fyrir rúmu ári ákvað heilbrigðisráðherra að ráðast í heildarendurskoðun á áfengis- og vímuefnastefnu íslenskra stjórnvalda. Hluti af þeirri vinnu var að skipa starfshóp sem átti að semja tillögur að skaðaminnkunarstefnu, þeirri fyrstu sem skrifuð hafði verið á Íslandi. Og í lok síðustu viku skilaði hópurinn umfangsmikilli lokaskýrslu sem inniheldur meðal annars greiningu á stöðu skaðaminnkunar á Í...
Samfélagið í rusli 29.11.2024 58:18
Samfélagið kynnti sér starfsemi Sorpu á Sævarhöfða en þar finnur fólk vel fyrir auknum umsvifum vegna svarts föstudags. Þátturinn var sendur út frá Jólahorni Góða hirðisins. Tónlist og stef: Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). TALKING HEADS - Once In A Lifetime. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-12-02 Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr...
Framtíð gervigreindar á Íslandi, undirbúningur fyrir svartan föstudag, samkynhneigð hjá hestum 28.11.2024 58:53
Með nýrri aðgerðaráætlun stjórnvalda um gervigreind er markmiðið að stuðla að því að Ísland verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapi tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn. Átætlunin var birt í samráðsgátt fyrr í þessum mánuði og fjöldi umsagna hefur borist, meðal annars frá Samtökum um mannvæna tækni. Í dag setjumst við niður með Gamithru Marga, meðstofnanda samtakann...
Loftslagsráð gagnrýnir aðgerðaáætlun stjórnvalda, Flöff og endurvinnsla textíls, dularfullt efni í vatni 27.11.2024 59:15
Loftslagsráð segir að þáttaskil þurfi að verða í framkvæmd loftslagsaðgerða. Ný, uppfærð aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum dugar ekki til að mati ráðsins sem segir skýra langtímasýn og hugrekki mikilvægt og pressan sem hvílir á herðum næstu ríkisstjórnar. Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, ræðir þetta við okkur. Undanfarið höfum við fjallað talsvert um fatnað og textíl og áhrif...
Umhverfisráðstefnur gerðar upp, geðheilbrigðisþjónusta við einhverfa, faðmlög frá trjám 26.11.2024 58:39
Síðustu vikur höfuð við fengið regluleg innslög frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar. Hún er nýkomin frá Aserbaísjan, þar sem hún tók þátt í COP 29 loftslagsráðstefnunni og fylgdist með því sem fram fór á henni. Þar á undan var hún á COP-ráðstefnu um lífræðilegan fjölbreytileika í Kólumbíu. Þorgerður María ætlar að setjast hjá okkur í byrjun þáttar og gera upp þessar ráðstefnu...
Hvað verður um fötin? Líkamsrefsingar og tæplega 300 ára gamalt morðmál 25.11.2024 59:08
Örlítill hluti fatnaðar sem íslendingar losa sig við ratar í endursölu og nær allur textíll er sendur í endurvinnslu til útlanda. Á föstudaginn fjölluðum við ítarlega um tísku og áhrif hennar á umhverfið og við höldum því áfram í dag. Í morgun fórum við í heimsókn í flokkunarstöð Rauða krossins og fræddumst um örlög textílsins sem við losum okkur við. Það var fyrst árið 2009 sem leitt var í lög sk...
Föt, tíska og umhverfið 22.11.2024 58:58
Í dag fjöllum við um föt. Við fjöllum um föt sem við kæðumst og föt sem við kaupum og klæðumst aldrei, og áhrif þeirra á umhverfið. Síðasta áratug hafa fatahönnunarnemendur í Listaháskóla Íslands hannað og framleitt föt úr óseljanlegum fötum úr fatasöfnun Rauða krossins, og í tilefni þess var haldið málþing um tísku og umhverfi í Norræna húsinu, á vegum LHÍ og Umhverfisstofnunnar. Við ræðum við ke...
Minningardagur trans fólks, rýnt í gestabækur reðasafnsins, átök um fjármagn á COP 29 21.11.2024 58:50
Í gær var haldin minningarstund í húsnæði Samtakanna 78. Tilefnið var minningardagur trans fólks sem haldinn er árlega, þann 20. nóvember, þar sem þess trans fólks sem hefur verið myrt eða tekið eigið líf er minnst. Við fórum í heimsókn síðdegis í gær til að fylgjast með undirbúningi athafnarinnar og ræða við skipuleggjendur. Gestabækur geta veitt innsýn inn í skoðanir, viðhorf og tilfinningar þei...
Kolefniseiningamarkaður, Dularfullt símasambandsleysi í Breiðholti, Öldrun flugna 20.11.2024 56:56
Getur Ísland náð markmiðum sínum í loftslagsmálum með því að framleiða eða kaupa kolefniseiningar? Á ríkið að selja fyrirtækjum sem vilja rækta kolefnisskóga land? Og hvernig á að tryggja að kolefniseiningar sem eru framleiddar eða keyptar geri gagn, dragi úr losun eða þoki heiminum nær kolefnishlutleysi? Við ætlum að fjalla um kolefniseiningar, kaup og sölu á þeim en starfshópur um stöðu og tækif...
Innslag frá COP29 í Bakú, loftslagsspjall við Mikael Allan Mikaelsson, málfarsspjall um stórforeldri 19.11.2024 59:06
COP29, loftslagsráðstefna Sameinuðuþjóðanna, fer nú fram í Bakú í Aserbaísjan. Meðal yfirlýstra markmiða ráðstefnunnar er að marka stefnu til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis á heimsvísu. Gestgjafaþjóð ráðstefnunnar, Aserbaísjan, er hins vegar mikil jarðefnaeldsneytisþjóð, og erfitt gæti orðið að sannfæra stjórnvöld þar í landi, og víðar, að breyta út af venjunni. Þorgerður María Þorbjarnardó...
100 ferðir á Fálkafell, COP29 í Bakú, Alþingiskosningar 1949 18.11.2024 59:06
Fálkafell er gamall skátaskáli ofan Akureyrar. Skátaflokkurinn Fálkar reisti skálann árið 1932 og hann er alla jafna læstur nema skátarnir séu eitthvað að brasa þar - en vinsældir hans hafa stóraukist á árinu, allavega vinsældir gönguleiðarinnar þangað. Á hverjum degi gengur fjöldi fólks frá bílastæði við Súluveg upp nokkuð brattan vegslóða sem liggur að skálanum. Svo virðist sem auknar vinsældir...
Sjálfstæðisdagur Póllands, Íslenskusénsinn og COP-29 15.11.2024 58:15
Á mánudaginn, 11. nóvember, var sjálfstæðisdagur Póllands haldinn hátíðlegur víða - meðal annars á Amtsbókasafninu á Akureyri. Á þessu ári voru 22 þúsund landsmanna fæddir í Póllandi og pólska innflytjendasamfélagið er það stærsta hér - nokkuð fjölmennara en á Akureyri. Við hittum á fullorðna og börn sem voru að fagna sjálfstæðisdeginum, fræddumst um hann og ekki síst um pólska samfélagið á Akurey...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.