RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Lyfjatengd andlát, vímuefni, geðheilbrigði og olíudropar á COP29 14.11.2024 55:00
Síðustu daga og vikur hefur talsvert verið fjallað um lyfjatengd andlát. Landlæknir birti nýlega tölur sem sýndu að árið 2023 urðu 56 andlát á Íslandi sem rekja mátti til eitrunar vegna ávana- og fíkniefna. Ein manneskja sem lést af völdum lyfjaeitrunar í hverri einustu viku, allt árið 2023, og rúmlega það. Þessi andlát eru birtingamyndir vandamála í heilbrigðiskerfinu, félagslega kerfinu, velferð...
Er Ísland herlaust í raun? Lýðræðisþátttaka ungs fólks, vísindaspjall 13.11.2024 58:37
Ísland er stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu, hér fara fram heræfingar og íslenskir ríkisstarfsmenn starfrækja loftvarnarkerfi. Ísland telst engu að síður herlaust land - og fólk stærir sig oft af því á alþjóðavettvangi - en stenst það? Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar háskólans á Bifröst, hefur undanfarið velt því fyrir sér hvort þetta sé allt saman nógu gagnsætt. H...
Örnefni, COP 29, hjúkrunarkennsla og byggingar sem spilla heilsunni 12.11.2024 59:17
Í dag ætlum við að pæla aðeins í örnefnum. Hvað þýða þau? Hvað er á bak við þau? Hvað segja þau okkur um samfélagið okkar? Við heimsækjum Emily Lethbridge, rannsóknardósent á Árnastofnun, og ræðum örnefni. Þessa dagana stendur yfir norræn, fámenn en góðmenn ráðstefna um hjúkrunarkennslu í Háskólanum á Akureyri. Þar er meðal annars verið að fjalla um hermikennslu með fjarstýrðum hátæknidúkkum og tæ...
Sýndarverslanir, handverk, hernám og hápólitískar kosningar í útvarpsráð 11.11.2024 59:32
Í dag kíkjum við á sýningu á handverki og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Við þræðum sýninguna í fylgd Gunnhildar Eddu Guðmudsdóttur, framkvæmdarstjóra Handverks og hönnunar og spjalla aðeins við handverksfólkið og hönnuðina sem eru á sýningunni. Við heimsækjum síðan Þjóðskjalasafn Íslands, eins og alltaf annan hvern mánudag. Þar tekur Unnar Ingvarsson á móti okkur og sýnir okkur skjöl frá fyrri hlu...
Máltækni, hláturgas og afleiðingar forsetakosninga í Bandaríkjunum 07.11.2024 59:37
Ef tækin tala ekki íslensku þá erum við ekki með í stafrænu veröldinni. Tækin og íslenska verða til umfjöllunar hjá Eyrúnu Magnúsdóttur í dag. Hún ræðir um máltækni við Lilju Dögg Jónsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms, sem er miðstöð máltækni hér á landi. Og við ætlum líka að fjalla um það sem við vitum og það sem við vitum ekki um losun gróðurhúsalofttegunda frá votlendi. Endurheimt votlendis g...
Afdrifaríkt ár í lífi mæðgna frá Grindavík, kórmótmæli við menningar- og viðskiptaráðuneytið 06.11.2024 58:50
Nú styttist í að ár verði liðið frá því ólgan undir Grindavík náði nýjum hæðum og bærinn var rýmdur í skyndi. Í fyrra ræddi Samfélagið við mæðgurnar Lillý og Sjönu - Lillý er hársnyrtimeistari og rak stofu í Grindavík, Sjana bjó á elliheimilinu Víðihlíð. Í dag förum við aftur í heimsókn til þeirra, lítum yfir farinn veg og heyrum hvernig þeim reiddi af í nýjum aðstæðum fjarri Grindavík. Fyrir um t...
Kynjuð áhrif heimsfaraldurs, ráðstefnan í Kólumbíu gerð upp, forsetakosningar í Bandaríkjunum og málfarsspjall 05.11.2024 58:50
Heimsfaraldurinn kollvarpaði tímabundið starfi framhaldsskóla, í mars 2020, þegar samkomubann var sett á var farið að kenna allt í fjarkennslu, um haustið var hert og slakað á víxl og skólastarfið var sífellt að aðlaga sig. Hvaða áhrif hafði þetta á kennara? Nokkrir fræðimenn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa undanfarið rannsakað þetta í þaula og safnað fjölbreyttum gögnum. En stærsta ein...
Ofbeldi í íþróttum, Þorgerður í Kólumbíu, tak fortíðarinnar á matartímum leikskólabarna, störf fyrir fólk með skerta starfsgetu 04.11.2024 59:30
Í dag fjöllum við um kynferðislega áreitni og ofbeldi í íþróttum. Á Þjóðarspeglinum síðasta föstudag kynnti Anna Soffía Víkingsdóttir, doktor í félagsfræði, rannsóknir sem byggja á viðtölum við íþróttamenn sem lýsa sinni reynslu af kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Við ræddum við Önnu Soffíu á Þjóðarspeglinum um þessar rannsóknir og um þá menningu sem viðgengst í íþróttum á Íslandi. Við heyrum næ...
Þjóðarspegillinn 2024 01.11.2024 59:32
Samfélagið sendir út frá Þjóðarspeglinum, ráðstefnu í Háskóla Íslands þar sem helstu rannsóknir á sviði félagsvísinda eru kynntar. Sannkölluð uppskeruhátíð félagsvísindafólks. Tónlist: Iðunn Einarsdóttir - Sameinast. Önnu Jónu Son - Almost over you.
Eiga ömmur og afar að fara á námskeið? Töfrar fráveitunnar, pistill um gloppuskýrslu í loftslagsmálum 31.10.2024 57:37
Verðandi eða nýbakaðir foreldrar fara stundum á ýmis námskeið; tengslanámskeið, svefnnámskeið, brjóstagjafarnámskeið og svo framvegis - en hvað með ömmur og afa? Þurfa þau að fara á námskeið? Við ræðum við Sveindísi Önnu Jóhannsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa, sem hefur haldið sérstök námskeið fyrir ömmur og afa. Í þessu kristallast líka samskipti kynslóðanna sem hafa verið til umræðu í Samf...
Endalok mannúðaraðstoðar á Gaza, dánaraðstoð, sykursýkislyf og Alzheimer 30.10.2024 1:00:44
Við fjöllum um hlutskipti barna á Gaza, nú þegar ísraelska þingið Knesset hefur sett lög sem gera Palestínu-flóttamannahjálpinni, stofnun á vegum Sameinuðu þjóðarinnar, ógerlegt að halda áfram mannúðaraðstoð sinni á svæðinu. Birna Þórarinsdóttir Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kemur til okkar hér rétt á eftir. Í gærkvöldi var fjallað um dánaraðstoð í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þar heyrðum við...
Vopnin sem lögreglan beitir, dagbók frá Kólumbíu, pistill um seiglu 29.10.2024 59:01
Komið þið sæl. Samfélagið heilsar. Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon eru umsjónarmenn. Við fjöllum um vopnaburð lögreglu almennt og sérstaklega um rafvarnarvopn og verkefni ríkislögreglustjóra í kringum Norðurlandaráðsþingið og heimsókn Volodimírs Zelenskís, forseta Úkraínu. Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir,...
Neyslusamfélagið tekur á CE-merkingum og eiturefnum, skjalasafn Péturs J. Thorsteinssonar sendiherra 28.10.2024 58:20
Við fjöllum um nítrósamín-menguð leikföng og CE-merkingar í nýjum dagskrárlið hér í samfélaginu - neyslusamfélaginu. Í Neyslusamfélaginu skoðum við ákveðin neytendamál ofan í kjölinn og viljum gjarnan fá spurningar sem brenna á hlustendum á netfangið samfelagid@ruv.is Við kíkjum svo í heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem við fáum að kafa ofan í skjalasafn Péturs J. Thorsteinssonar, sem var,...
Safnarölt í Reykjanesbæ og hafbotnsrannsóknir 25.10.2024 58:27
Samfélagið heilsar úr saumavélaherbergi byggðarsafnsins í Reykjanesbæ, sem er staðsett í Duus-safnahúsinu í Keflavík. Um helgina er haldin sérstök safnahelgi á Suðurnesjum og í tilefni þess röltum við safnanna á milli og fræðumst um starfsemi þeirra, safnkosti og jafnvel hugmyndafræði. Við fáum til okkar Höllu Kareni Guðjónsdóttur, verkefnastjóra safnahelgar á Suðurnesjum, og Guðlaugu Maríu Lewis,...
Kosningar og gervigreind, samfélagsleg nýsköpun, ritlist og líffræðilegur fjölbreytileiki í Cali 24.10.2024 55:00
Forsvarsmenn samfélagsmiðla á borð við Facebook, Instagram og TikTok vita að það eru kosningar framundan á Íslandi og eru því sérlega vakandi fyrir því að koma í veg fyrir að misvísandi upplýsingar, matreiddar af gervigreind, komist í umferð. Við byrjum þáttinn á Vélvitinu; Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar um gervigreind og upplýsingaóreiðu í tengs...
Svipmynd af landbúnaðarháskóla, sjötíu ára gömul tökuorð, vísindaspjall 23.10.2024 58:42
Alþjóðlegar byggráðstefnur, landslagsarkítektúr, hinn sögufrægi Kollubar og leikskóli sem vantar börn. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í þætti dagsins. Pétur Magnússon heimsótti Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, ræddi við nemendur og kennara og kynntist samfélaginu. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, segir frá sjötíu ára gömlum tökuorðum sem rædd voru í hinum sígilda þæt...
Ferðamennska í Grindavík, rúntur með slökkviliðinu, ráðstefna um líffræðilegan fjölbreytileika 22.10.2024 59:01
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum viðraði í gær áhyggjur af því að það vantaði upplýsingaskilti sem vöruðu ferðamenn við hugsanlegum hættum í og við Grindavík. Ferðamenn í útivistarfatnaði rölta nú um götur Grindavíkur, virða fyrir sér illa farin hús, skoða ljósmyndasýningu í Menningarhúsinu Kvikunni og fá sér í svanginn. Sumir eru á eigin vegum - aðrir í skipulögðum rútuferðum. Við ræðum ferðaþjónus...
Grindavík opnar 21.10.2024 59:25
Samfélagið er í Grindavík í dag. Bærinn opnaði almenningi snemma morguns og Pétur og Arnhildur mættu rétt um dagrenningu, ræddu við fólkið í bænum um jarðhræringarnar, pólitíkina og bæjarlífið.
Samfélagið í Sjávarklasanum og kaffinördar 18.10.2024 58:41
Samfélagið sendir út í Sjávarklasanum í Grandagarði. Þar starfa fjölmörg fyrirtæki, allt frá litlum, nýstofnuðum sprotafyrirtækjum til rótgróinna sjávarútvegsrisa. Við ræðum við fólkið sem starfar í Sjávarklasanum og fræðumst um starfsemina og samfélagið í húsinu. Og við fáum í heimsókn umsjónarmenn stærsta kaffiumræðuvettvangs landsins, Facebook-hópsins Kaffinördar, og ræðum kaffinördisma, kaffis...
Bómullarkynslóðin rakin upp, niðurtröppunarmóttaka, Svansmerkið 17.10.2024 59:19
Barnasprengjukynslóð eftirstríðsáranna, Kynslóðin sem var með húslykil um hálsinn og horfði á MTV, Þúsaldarkynslóðin eða þumalputtakynslóðin og Zeta-kynslóðin - um tíma hefur það tíðkast að gefa kynslóðum nafn. Í dag ætlum við að ræða kynslóðirnar og einblína sérstaklega á hugtakið bómullarkynslóð - hvað felst í því? Í pallborði um þetta verða: Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, sálfræðingur sem lengi...
Ritskoðun barnabóka - pallborðsumræður. Vísíndaspjall með Eddu. 16.10.2024 59:08
Er mikið varið í barnabækur í dag? Er úrvalið nógu gott? Þarf að uppfæra bókakostinn og þær hugmyndir sem haldið er að börnum í takt við nýja tíma? Er réttlætanlegt að aðlaga barnabækur eða ritskoða þær? Við förum á dýptina í pallborðsumræðum. Þátttakendur: Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, bókarýnir, foreldri og sérstök áhugamanneskja um múmínbækur. Jónas Sigurgeirsson, fr...
Torfbæir, rafrusl, umhverfisvænn arkítektúr og ljósvist 15.10.2024 59:26
Kort sem syngur afmælissöng, skór með blikkandi sólu, stafrænir myndarammar og rafrettur - allt eru þetta raftæki og eins og útvarpið nú eða síminn eða tölvan sem þú ert að hlusta á okkur í verður þetta einhvern tímann rafrusl. Við ræðum raftækjaúrgang; umfang, ógnir og tækifæri við tvo starfsmenn Úrvinnslusjóðs - þær Írisi Gunnarsdóttur viðskiptastjóra og Eddu Andrésdóttur samskiptastjóra. Við ve...
Fólk á förnum vegi um stjórnarslitin, Stjörnu-Sævar og halastjarnan, ástarbrjef frá Holdsveikispítalanum 14.10.2024 59:19
Það eru umbrotatímar í pólitíkinni. Við heyrum hvað fólki á förnum vegi finnst um stjórnarslitin og framtíðina - gefum fólki sem í morgun var á rölti um Kringluna, Borgartún, Katrínartún og Snorrabraut orðið. Og úr pólitíkinni yfir í önnur stórmál, kannski á öðrum skala. Freðinn risi úr öðru sólkerfi hefur undanfarið tekið þátt í að lýsa upp næturhimininn - við fáum Sævar Helga Bragason, jarðfræði...
Hamlar bókafæð lestraráhuga barna? Óvinsælasta skordýr landsins og pistill frá Birgittu Björgu 11.10.2024 57:54
VIð höldum áfram að fjalla um barnabækur - eftir ritskoðunarumfjöllun síðustu daga. Kiddi klaufi er skáldsagnapersóna sem nýtur mikilla vinsælda meðal barna hér á landi - en Þór Bergmann Orrason og Kristín María Jóhannesdóttir, krakkar sem Samfélagið ræddi við á skólabókasafni Seljaskóla í Breiðholti, viðurkenndu að hafa lesið sömu Kidda klaufa bækurnar mörgum sinnum og að þær bötnuðu ekki beinlín...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.