RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 episodes

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Feb 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Nóbelsverðalaunahafi gagnrýnir gervigreindarfrömuð, snjóflóð af mannavöldum, meira um ritskoðun barnabóka 10.10.2024

Í dag fjöllum við um gervigreind. Við fáum til okkar Eyrúnu Magnúsdóttur, umsjónarmann þáttanna Vélvitið, sem voru á dagskrá hér á Rás 1 snemma árs. Hún verður með okkur um það bil aðra hvora viku til að fjalla um gervigreind, og við byrjum í dag með umfjöllun um nóbelsverðlaunahafann Geoffrey Hinton og Sam Altman, framkvæmdarstjóra gervigreindarfyrirtækisins Open AI Síðan ætlum við að fjalla um s...

Ritskoðun barnabóka, Nóbelsverðlaun og risafurur 09.10.2024

Ritskoðun er ekki bara stunduð af stjórnvöldum í einræðisríkjum - hún er daglegt brauð á þúsundum íslenskra heimila, við rúmstokk barna. Er nauðsyn að ritskoða barnabækur eða óþarfi? Hversu langt á að ganga? Af hverju gerir fólk svona mikið af því? Samfélagið birti fyrirspurnir í nokkrum Facebook-hópum sem snúa að börnum, uppeldi og menntun og fékk á fimmta tug svara frá foreldrum og kennurum sem...

Hitafundur um Coda Terminal, Stiknun eða króknun? Málfarsspjall um orðmyndanir 08.10.2024

Í dag fjöllum við um umdeilt mál í Hafnarfirði. Mikill hitafundur var haldinn í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær, þar sem kynntar voru breytingar á aðalskipulagi sem tengjast Coda Terminal-verkefninu, svokallaða. Verkefnið hefur mætt talsverðri andstöðu íbúa, og það kom bersýnilega í ljós á fundinum í gær Samfélagið var á fundinum í gær og ræddi við kjörna fulltrúa, talsmenn Carbfix, og íbúa Hafnarfj...

Getuleysi Sameinuðu þjóðanna, kaffinördismi, reykingar í flugvélum 07.10.2024

Í dag er ár liðið frá hrottalegri árás Hamas á Ísrael - í heilt ár hafa Ísraelsmenn varpað sprengjum á Gaza og nú Líbanon. Sprengjum sem myrt hafa á fimmta tug þúsunda. Fyrir helgi ræddum við við Fidu Abu Libdeh, athafnakonu, sem er uppalin í Palestínu. Í hennar huga er síðastliðið ár brot af miklu lengri sögu átaka og kúgunar. Í dag ætlum við að velta fyrir okkur hvað heimurinn getur gert. Hvers...

Hafsbotninn í brennidepli, svipmynd af Textílmiðstöðinni á Blönduósi 04.10.2024

Samfélagið heilsar frá tveimur landshlutum í dag. Arnhildur er stödd í Öskju, sem er heimili náttúruvísindanna í Háskóla Íslands. Þar er í gangi haustráðstefna jarðfræðafélags Íslands. Hafsbotninn hefur verið í brennidepli undanfarið - kortlagning hans, námugröftur á hafsbotni - þýðing hans fyrir lífríkið og ég ætla hér á eftir að spjalla við Anett Blischke, jarð- og jarðeðlisfræðing hjá íslenskum...

Lýðræðishrun á útvarpsþingi, Palestínumenn á Íslandi og vísindaspjall um kefír og múmíur 03.10.2024

Hið árlega Útvarpsþing var haldið hér í útvarpshúsinu í dag. Því lauk núna rétt áður en við hófum útsendingu. Á þinginu er fjallað um ýmislegt sem snýr að fjölmiðlum, og kannski sérstaklega Ríkisútvarpinu. Í ár var yfirskrift þingsins fjölmiðlar og fræðsla Við fáum til okkar tvö þeirra sem héldu erindi á þinginu, Skúla Braga Geirdal, verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd og Ingunni Láru Kristjánsdóttu...

Fjármálatips, Foreldrahús, stýrivextir, umhverfisáhyggjur ungs fólks 02.10.2024

Í tæp fjögur ár hefur línuritið sem sýnir meginvexti Seðlabankans hækkað með mislöngum hléum, grafið sýnir ójafnan en brattan tröppugang upp á við - en í dag leitaði það örlítið niður á við aftur. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivextina úr 9,25 prósentum í slétt níu. Þetta eru tímamót en óljóst hvaða þýðingu þau hafa og vextirnir enn helvíti háir svo vitnað sé í seðlabankastjóra sjálfan. Við fengu...

Eru blaðamennskan á hættulegum slóðum? Róið og róað í vögguvísum og barnagælum, orkupistill frá Páli Líndal 01.10.2024

Í dag fjöllum við um blaðamennsku, fjölmiðla, samfélagsmiðla og fleira í þeim dúr. Við ræðum eftirmála rannsóknar lögreglu á blaðamönnum og viðhorf almennings og stjórnarmanna gagnvart faginu. Við ræðum við Valgerði Jóhannsdóttur, prófessor í blaðamennsku við Háskóla Íslands og Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Við fjöllum um barnagælur og vögguvísur, einkum það að róa s...

Svissneskur fíknigeðlæknir, skjöl frá fyrstu árum bílaaldar og heilbrigt mataræði 30.09.2024

Í dag ræðir Samfélagið við einn fremsta fíknigeðlækni Sviss. Dr. Thilo Beck yfirlæknir hjá Arud, samtökum sem reka stærstu fíknigöngudeild Sviss, ræðir við okkur um lyfjameðferðir við ópíóíðafíkn, skaðaminnkun, og hvað Íslendingar geti gert til að bæta meðferðarúrræðin sem standa til boða hér á landi. Við kíkjum í leynilega skjalageymslu Þjóðskjalasafnsins í ónefndu iðnaðarhverfi í Reykjavík. Þar...

Gervigreind, kynjuð rými í stærðfræðikennslu, snjallsímar og læsi 27.09.2024

Samfélagið sendir út frá Menntakviku, ráðstefnu á vegum menntavísindasviðs Háskóla Íslands, sem haldið er í 28. skipti. Pétur og Arnhildur fá til sín góða gesti sem ætla að segja frá rannsóknum sínum og erindum, sem tengjast meðal annars gervigreind í skólastarfi, kynjuðum rými í raunvísindum, sýndarveruleika, talmeinafræði, símanotkun og mörgu fleiru. Tónlist úr þættinum: LÚPÍNA - Lúpínu bossa no...

Viðhaldsmeðferðir, samgöngur, almenningssalerni og tvö þúsund útvörp á Akureyri 26.09.2024

Í dag höldum við áfram að fjalla um viðhaldsmeðferðir við ópíóíðafíkn, frá ýmsum hliðum. Í gær héldu skaðaminnkunarsamtökin Matthildur málþing um viðhaldsmeðferðir. Á þinginu voru ræddar meðferðir þar sem ópíóíðalyf eru notuð til að meðhöndla ópíóíðafíkn. Svona meðferðir hafa verið veittar á Vogi um árabil og það eru mjög skýrar reglur um hvernig svona meðferðir eru veittar og hvaða lyf eru notuð....

Ósamþykktar meðferðir við ópíóíðafíkn, vinnumansal, misneyting á vinnumarkaði, matvendni 25.09.2024

Í dag ræðir Samfélagið við föður ungs manns sem hefur verið í óhefðbundinni, og í raun ósamþykktri, viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn. Sonurinn fær uppáskrifuð morfínlyf frá lækni í skaðaminnkandi tilgangi, og faðirinn segir að meðferðin hafi haft gríðarleg áhrif á líf sonar síns og fjölskyldu sinnar. Í gær fjallaði fréttaskýringaþátturinn Kveikur um veruleika erlendra verkamanna á Íslandi. Fjöldi þ...

Rökrætt um fósturskimanir, nýjar krabbameinsrannsóknir og málspjall 24.09.2024

Í dag standa tvö ráðuneyti, heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið fyrir málþingi um fóstur- og nýburaskimanir. Markmiðið er að skapa þarna samtalsvettvang um þessi mál og hvaða hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframförum á þessu sviði. Þarna verða líka rædd ýmis siðferðileg álitamál sem tengjast fóstur og nýburaskimunum. Til að ræða þetta fáum til okkar Rannveigu Trausta...

Fíknivandi á landsbyggðinni, síðasta fötufjósið og Keflavíkurflugvöllur árið 1947 23.09.2024

Í dag höldum við áfram að fjalla um þjónustu við einstaklinga með fíknivanda á landsbyggðinni. Í síðustu viku kíktum við í heimsókn í bíl frú Ragnheiðar á Akureyri, þar sem teymisstjórar verkefnisins lýstu úrræðaleysi sem blasti við skjólstæðingum þeirra á Norðurlandi. Við fáum til okkar Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann SÁÁ — sem hefur yfirgripsmikla reynslu sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi á Ak...

Stúdentahreyfingar, STEM Húsavík, starfamessa á Austurlandi 20.09.2024

Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands Íslenskra Stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands Íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Ís...

Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði, líforka, rautt kjöt, sykursýki og fjármögnun á eigin tortímingu 19.09.2024

Í dag fjöllum við um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Oft er talað um glerþakið þegar rætt er um hindranir sem konur mæta á vinnumarkaði; þá sérstaklega hvað varðar kjör og stöðuhækkanir. Hindrar glerþakið líka uppgang hinsegin fólks á atvinnumarkaði? Við ræðum þetta og fleira við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá stéttarfélaginu Visku. Árum saman hafa dýrahræ verið urðuð hér á landi, þvert...

Stóra sundlaugarmálið í Mývatnssveit og frú Ragnheiður á Akureyri 18.09.2024

Í dag fjöllum við um mikið hitamál í Þingeyjarsveit; um sögu sundlaugar í Reykjahlíð, þéttbýliskjarna við Mývatn, sem var fjarlægð með stórtækum vinnuvélum af óljósum ástæðum, í óþökk íbúa svæðisins. Þótt laugarkarið hafi verið grafið upp fyrir meira en átta árum er grunnur laugarinnar enn eins og opið sár fyrir utan íþróttamiðstöð Reykjahlíðar, íbúum til ama. Í dag heimsækjum við Reykjahlíð, ræðu...

Mývatnsrannsóknir, loftslagskvíði og náttúruhugvísindi 17.09.2024

Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski má segja að þessi ráðstefna sé uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er...

Tengsl manns og náttúru, svipmynd af Bifreiðastöð Oddeyrar, arkítektúr á Héraðsskjalasafninu á Akureyri 16.09.2024

Í dag fagnar Samfélagið degi íslenskrar náttúru með því að velta fyrir sér tengslum manns og náttúru, eða kannski frekar rofi á tengslum manns við náttúru. Við ræðum þetta við Þuríði Helgu Kristjánsdóttur. Það er fastur liður hjá okkur í Samfélaginu að kíkja í heimsókn í skjalasafn annan hvern mánudag. Í dag heimsækjum við héraðsskalasafnið á Akureyri. Og í lok þáttar fáum við svipmynd af Bifreiða...

Staðan í ferðaþjónustu, veitingarekstur í miðborginni og matþörungar í fjörunni 13.09.2024

Samfélagið sendi út frá Skúla Craftbar, öldurhúsi við Fógetagarðinn í miðborg Reykjavíkur og umræðuefni dagsins tengist einmitt miðborginni, því hvað hún stendur fyrir og þeirri þjónustu sem þar er í boði. Við ræðum ferðaþjónustu, veitingarekstur og stöðu íslenskrar þjóðmenningar almennt við Ólaf Örn Steinunnar- Ólafsson og Björn Árnason veitingamenn og Katrínu Önnu Lund, prófessor í ferðamálafræð...

Ábyrgð fyrirtækja á hamfarahlýnun, loftslagsaðgerðir á Íslandi, mannvæn tækni 12.09.2024

Á Íslandi hefur aðeins einu stórfyrirtæki tekist að uppfylla kröfur Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun. Hin falla á prófinu, misilla. Þetta sýnir úttekt á vegum ráðgjafarfyrirtækisins PWC. Með ákveðnum reikniformúlum má komast að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki á Íslandi beri ábyrgð á nánast allri beinni losun Íslands - en hvað er til ráða? Hvaða gulrætur virka, hvaða prikum á að sveifla? Um...

Jóhanna Vigdís fer yfir stjórnmálaveturinn, kórmótmæli og vísindaspjall 11.09.2024

Þingveturinn er formlega hafinn og það stefnir í líflegt haust á hinu háa Alþingi. Við fáum Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, í heimsókn til að ræða það sem koma skal. Fylking verkalýðsfélaga boðaði til fjöldamótmæla á Austurvelli í gær þar sem krafist var aðgerða í þágu heimilanna. Önnur mótmæli voru haldin í morgun. Kórmótmæli, ekki eins fjölmenn, en ekki síður áhugaverð. Vísindaspjall m...

Kappræður forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum, ævintýraleiðangur með ísbrjótnum RV Polarstern 10.09.2024

Í kvöld mætast þau Kamala Harris og Donald Trump, forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum, í sjónvarpskappræðum. Þetta verður í fyrsta og líklega eina skiptið sem þau mætast í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, ætlar að setjast hjá okkur og fara yfir stöðuna fyrir kappræðurnar. Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur á Hafró, fór í sumar í ógl...

Sjálfsmyndarkrísa blaðamanna, mosakrot og landgræðsla, stórbruni á Raufarhöfn 09.09.2024

Hvernig hafa íslenskir blaðamenn brugðist við miklum og örum breytingum í fjölmiðlaumhverfinu, og hvernig hafa hugmyndir þeirra um hlutverk sitt þróast í takt við þær? Eru blaðamenn í sjálfsmyndarkrísu? Í dag fáum við Jón Gunnar Ólafsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, í heimsókn til að ræða þessar áleitnu spurningar. Mosi, hann er mjúkur og til af honum 600 tegundir á Íslandi. Í síð...

Húðflúrhátíð, sælgæti og neytendasálfræði 06.09.2024

Samfélagið sendir út frá húðflúrhátíðinni FjölnisFest, sem haldin er Iðnó í miðborg Reykjavíkur. Við ætlum að kynnast heimi húðflúranna betur í dag, verðum hér í Iðnó og ræðum við gesti hátíðarinnar, meðal annars skipuleggjanda hennar, Atla Fjölnisson. Í lok þáttar bregðum við okkur í heimsókn í Háskólann í Reykjavík, þar sem við ræðum við Valdimar Sigurðarson, prófessor í markaðs- og neytendasálf...

Listen to the Samfélagið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.