RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 episodes

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Feb 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útrásarvíkingar, ofbeldi meðal ungmenna og hugtakið „umhverfisvænt“ 05.09.2024

Við ætlum að heyra hvað nákvæmlega felst í aðgerðum sem ráðist verður í til að sporna gegn ofbeldi meðal barna. Í lok júní kom út aðgerðaáætlun á vegum ríkislögreglustjóra til að reyna draga úr ofbeldi meðal barna sem hefur aukist um helming á fimm árum og er mikið áhyggjuefni. Hefur enn ein nefndin verið stofnuð og enn ein skýrslan verið gefin út? Eru þetta orðin tóm hjá stjórnvöldum eða verður r...

Vanlíðan barna, víkingar og umhverfismál 04.09.2024

Hvernig tökum við á vanlíðan barna og ungmenna og hvað er raunverulega að hrjá börn sem sýna ofbeldishegðun? Eru það fjölskylduáföll, heimilisofbeldi, vanræksla og óregla á heimilum eða hreinlega áhrif samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldur og efnahagshrunið? Í Skotlandi tókst yfirvöldum að draga úr vopnaburði meðal ungmenna með því að huga að geðheilbrigði þeirra í samvinnu við lögreglu....

Rafræn skilríki taka breytingum, hulin þekking kvenna eftir barnsburð og vísindaspjall 03.09.2024

Rafræn skilríki eru notuð víða - hvort sem þú þarft að skrá þig inn í netbankann, á Ísland.is nú eða endurnýja líkamsræktarkortið. Stafrænt Ísland hefur séð um þessa þjónustu og hingað til hefur enginn þurft að borga en nú verður breyting á. Eldri innskráningarþjónusta Stafræns Íslands lokar og hófst það ferli í gær. Íslykillinn er úr sögunni, auðkenningarþjónusta ríkisins nú einungis í boði fyrir...

Neyslurýmið Ylja, mosinn í Hólavallagarði og gamlar ljósmæðrabækur á Þjóðskjalasafni 02.09.2024

Í dag heimsækjum við neyslurýmið Ylju í Borgartúni, sem var opnað á ný í síðasta mánuði eftir um átján mánaða rof í þjónustu við fólk í virkri vímuefnaneyslu. Við ræðum við Evu Dögg Þórsdóttur verkefnafulltrúa í neyslurýminu Ylju og Kristínu Davíðsdóttur sviðsstjóra hjá Landspítalanum um hvernig reynslan hefur verið hingað til. Við ætlum að fræðast um mosa. Nánar tiltekið mosaflóruna í Hólavallaga...

Útivera í leyfisleysi, sjálfbær fjármál og samlíf manna og máva 14.06.2024

Með kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt. Allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er að mestu orðin göngugata og eigendur veitingastaða hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan verið undanfarið að reka gesti inn, vegna þess að margir staðanna hafa ekki tilskyld leyfi. Við ræðum við Aðalgeir Ásvaldsson samt...

Fuglastríð í Garðabæ og bárujárn 13.06.2024

Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku fyrir íbúum í Sjálandshverfi og víðar, réðust jafnvel á börn á göngustígum. Bærinn hefur ráðist í aðgerðir vegna þessa og íbúar stofnað sérstakar mávasveitir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eirík Sigurðsson sem er meðlimur í einni slíkri...

Ungliðahreyfingar gagnrýna útlengindalög, staða hafsins og vísindaspjall 12.06.2024

Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Við ræddum við Árna Kristjánsson frá ungliðahreyfingu Amnesty og Aníta Soley Scheving frá Andó...

Heiðursmorð og annað ofbeldi, Háskóli unga fólksins, málfar og dómsmál um „græna“ grísi 11.06.2024

Það var sláandi fyrirsögn á visi.is í síðustu viku, þar sem faðir ungrar konu segir, Hefði slátrað dóttur sinni byggju þau í arabalandi. Svokölluð heiðursmorð tíðkast í mörgum ríkjum, þau tengjast æru fjölskyldunnar og allir taka þátt, foreldrar, systkini og jafnvel ömmur og afar. Slíkt mál var þingfest í síðustu viku hjá Héraðsdómi Reykjaness, þar sem átta manns er ákært fyrir ofbeldi í nánu samb...

Vasinn hennar Lísu og fleiri forvitnilegir munir, að úða garðinn eða úða ekki, málfar og upptaka úr safni RÚV 10.06.2024

Það leynast gjarnan gamlir, mögulega verðmætir hlutir á heimilum landsmanna sem forvitnilegt væri að heyra af. Þjóðminjasafnið hefur stundum boðið fólki að koma með slíka muni, sem kunnáttumenn skoða. Sjálfsagt eru margir hér á landi sem hafa séð breska þáttinn Antik roadshow, þar sem vel er mætt með alla vega hluti, sagðar sögur og fá verðmat. Við ræðum við Lilju Árnadóttur fyrrverandi sérfræðing...

Brúarvinnuflokkar sameina krafta sýna í Elliðaárdal, Baskasetur og hátíð á Djúpavík, dýraspjall um sæotur 07.06.2024

Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar eru tveir, annar í Vík í Mýrdal og hinn á Hvammstanga og þessa dagana sameina þeir krafta sína í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Brúin yfir Elliðaár, neðan við Árbæjarstíflu, þurfti allsherjar yfirhalningu - vegriðið orðið slappt, steypan léleg, það þarf að skipta um legur og þensluraufar og hvaðeina. Við kíktum á framkvæmdina á dögunum og ræddum við VIlhjálm Arnórsso...

06.06.2024

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Fjallað um vetni sem orkugjafa en ekki bara vetni heldur líka hvernig það tengist lífsstarfi Þorsteins Inga Sigfússonar, heitins, sem var prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands og forstjóri nýsköpunarmiðstöðva. Í vikunni var blásið til heiðursmálþings í minningu Þorsteins í hátíðarsal aðalbyggingar háskólans, fjallað um fjölbreyttan feril h...

05.06.2024

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir

04.06.2024

Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur velti fyrir sér hvað við eigum að kalla eiginmann forseta, þar sem í fyrsta sinn er maki karlkyns, Ýmsu var velt upp svo sem forsetamaki, forsetaherra o.fl. Einnig var talað um að kjósa taktískt, strategísk eða með hjartanu. Hraunið flæðir eins og engin sé morgundagurinn á Reykjanesi, verið er að nýta það sem undirlag í vegagerð, en er hægt að nýta það...

Ársskýrsla Unicef, múgæsingur og ótti í Hafnarfirði, heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands 03.06.2024

Ársskýrsla Unicef kom út fyrir skömmu og við ætlum að ræða við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna. Það hefur enginn farið varhluta af stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem margir þjást og börn mest af öllum. Varnarlaus börn eru fórnarlömb í stríði og þurfa að reiða sig á hjálp sem því miður hefur ekki getað borist nema af skornum skammti. Þúsundir barna hafa verið drepin og s...

Kosningar á Akureyri, strandveiðar, málfar og dýr á flótta 31.05.2024

Við fræðumst um utankjörfundaratkvæðagreiðslur, fyrirkomulag þeirra og tilgang, heimsækjum utankjörfundarstað sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra á Akureyri og ræðum við sýslumanninn Svavar Pálsson og fleiri viðstadda. Við forvitnumst um strandveiðar en strandveiðitímabilið hófst í byrjun mánaðar. Við ætlum að slá á þráðinn til formanns strandveiðifélags Íslands, Kjartans Páls Sveinssonar s...

Áhrif makkarins á lungnaveika, Sjálfkeyrandi bílar á götunum, á bremsunni gagnvart netrisanum Temu 30.05.2024

Í áttunda sinn á rúmlega þremur árum gýs á Reykjanesskaga og glóandi hrauninu fylgir mökkur, ýmis gös og mengunarefni sem stundum rata til byggðar, allt eftir því hvernig vindurinn blæs. Þegar mengun er mikil hefur hún áhrif, sérstaklega á þau sem eru viðkvæm fyrir. Við ætlum að ræða loftmengunina, fyrst við Andrjes Guðmundsson, formann Lungnasamtakanna, og svo við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing...

29.05.2024
Samfélagið sendir út frá Loftslagsdeginum í Hörpu 28.05.2024

Markmið Loftslagsdagsins, sem er árlegur viðburður, er að fjalla um loftslagsmál á mannamáli og í ár er einblínt á aðgerðir. Hér er spurt: hverjir eru að gera hvað núna? Hvað aðgerðir eru í pípunum og hvað ættum við að vera gera? Við tölum við nokkur þeirra sem hafa haldið erindi og tekið þátt í umræðum hér í dag: Chanee Jónsdóttur Thianthong, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun sem kynnti glænýjar tö...

Ný umferðarmerki, líffræðinemar á Madagaskar, málfar, upptaka úr safni útvarpsins 27.05.2024

Við ætlum að ræða umferðarmerki, í vor tók gildi ný reglugerð um slík merki- þetta eru tímamót enda hefur reglugerðinni ekki verið breytt í tæp 30 ár. Merkin eru nú flokkuð með nýjum hætti, sjötíu merki hverfa á braut og á fimmta tug nýrra bætist við - t.d. merki um að kanínur geti verið á ferli við veginn. Einar Pálsson, forstöðumaður Vegaþjónustudeildar vegagerðarinnar, ræðir við okkur um nýju r...

Er lýsi gagnlegt? Kynjaþing 2024, málfar og dýraspjall - langlífur albatrosi 24.05.2024

Það brá mörgum í brún í gær þegar fréttir voru sagðar af rannsóknum á fiskiolíum á borð við lýsi og omega 3 fitusýrum þar sem sterkar vísbendingar virðast koma fram um að fiskiolía eða lýsi geti beinlínis verið óhollt. Þvert á það sem okkur hefur verið kennt um - kannski ekki aldir - en býsna lengi. Samkvæmt þessum rannsóknum eykur neysla á bætiefnum á borð við lýsi sem innihalda omega 3, líkurnar...

Fatlað fólk í bíómyndum, vespur og veirur, umhverfispistill Stefáns Gíslasonar um Dag líffræðilegs fjölbreytileika 23.05.2024

Hvernig birtist fatlað fólk í bíómyndum og sjónvarpsþáttaröðum - sem venjulegt fólk eða jafnvel furðuverk, hetjur, illmenni? Hvaða áhrif hafa þessar birtingarmyndir á fatlað fólk, sjálfsmynd þess og viðhorf samfélagsins? Þetta var umfjöllunarefnið á viðburði sem ÖBí réttindasamtök og Borgarbókasafnið stóðu fyrir í gær - þar var opinn hljóðnemi og fólk deildi sinni sýn. Við ræðum við Kjartan Þór In...

Lofthreinsiver og niðurdæling Co2, hverfistré, stimplun og vísindaspjall 22.05.2024

Fyrr í mánuðinum var lofthreinsiverið Mammoth sem svissneska fyrirtækið Climeworks starfrækir ræst við virkjun Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Þar verður innan skamms hægt að fanga allt að 36 þúsund tonn af koltvísýringi á ári úr andrúmsloftinu sem svo er dælt niður í jörðina þar sem hann binst við berglög. Þar kemur Carbfix til skjalanna sem býr yfir tækni sem gerir það kleift. Við ætlum að ræða...

Þróun fjarskiptaþjónustu, umhverfisvænna malbik og málfarsspjall 21.05.2024

Við fjöllum um fjarskiptamál - gagnamagn, stöðu heimasímans, 5G-væðingu og fleira. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, kemur til okkar og við ræðum nýjustu tölfræðina, gömul kerfi sem víkja fyrir nýjum, áhættu og hvernig fjarskiptum landans er háttað í dag. Svo tölum við um malbik. Fyrir ári síðan heimsóttum við Malbikstöðina á Esjumelum en þar á bæ segjast menn stefna að því að fram...

Nýjunar í siglingatækni, loftmengun í Reykjavík og stimpilklukka 17.05.2024

Við ætlum að forvitnast um nýja tækni í siglingum og hvernig hægt er að minnka eldsneytisnotkun og þar með útblástur og tryggja betur öryggi á sjó. Karl Birgir Björnsson er einn stofnenda og framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Hefring Marine, sem sérhæfir sig í slíkum lausnum en Karl fékk sérstaka viðurkenningu Sjávarklasans í gær fyrir árangur með nýsköpunarfyrirtæki. Í vikunni fór fram...

Réttað yfir Trump, litarefni í mat og umhverfispistill 16.05.2024

Við ætlum að forvitnast um réttarhöld sem nú fara fram yfir Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og nú aftur forsetaframbjóðanda. Málið snýst um greiðslur til klámmyndaleikkonunnar sem kallar sig sig Stormy Daniels sem voru greiddar til að tryggja að hún segði ekki opinberlega frá sambandi sínu við forsetann fyrrverandi í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Og hvaðan greiðslurnar komu þe...

Listen to the Samfélagið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.