RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
15.05.2024 55:00
Krabbameinsskrá Íslands fagnar 70 ára afmæli nú í maí og af því tilefni verður blásið til afmælismálþings seinna í dag. Þetta er löng saga og ýmislegt sem hefur gerst og breyst á 70 árum. Þær Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins og Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur og prófessor ræða þessi tímamót. VIð fræðumst um íslensku nýsköpunarvikuna s...
Híbýlaauður - hönnun fjölbýlishúsa fyrr og nú, íslensk hundanöfn að fornu og nýju, málfar og pistill frá Páli Líndal. 14.05.2024 58:47
Við ætlum að fjalla um húsnæðismál og íbúðaþróun - Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, er hluti af hópi sem kallast Híbýlaauður - ég hitti hana á Hönnunarmars um daginn, við skoðuðum lególíkön af ýmsum blokkum, gömlum og nýjum, sem hafði verið raðað á langborð og ræddum stefnur og strauma í hönnun og byggingu fjölbýlishúsa, meðal annars hvort eldhúsglugginn væri að hverfa. Við f...
Guðmundur Fertram, málfarsmínúta og dýrasýning í Örfirisey 13.05.2024 59:28
Það vakti mikla athygli í fyrra þegar íslenska fyrirtækið Kerecis var selt dönsku stórfyrirtæki fyrir 1,3 milljarða dollara. Ef við gerum tilraun til að reikna það í krónur þá eru það um 180 íslenskir milljarðar. Sem þykir dágott og þar með varð Kerecis fyrsta íslenska sprotafyrirtækið sem er metið á meira en milljarð Bandaríkjadala. Fyrirtækið notar þorskroð til að græða sár sem gróa seint og ill...
Orkuvinnsla í geimnum, Heimsókn í Skalla, málfar og dýraspjall með Guðmundi Fylkissyni. 10.05.2024 57:57
Við ætlum að forvitnast um hugmyndir um orkuframleiðslu í geimnum. Þetta hljómar dálítið eins og vísindaskáldskapur en slíkar hugmyndir hafa verið uppi í hálfa öld. Og nú hefur íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs gert samstarfssamning við breska fyrirtækið Space Solar sem hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verða á sporbaug um jörðu. Þar mundu þau virkja geisla sólarinnar og miðla orku...
Þrítugsafmæli aðildar Íslands að EES-samningnum, Dýraverndarsambandið skorar á stjórnvöld, málfar og vísindaspjall með Eddu Olguddóttur 08.05.2024 59:27
Við ætlum að fjalla um evrópusamvinnu. Þrítugsafmæli EES-samningsins er fagnað í dag - með málþingi og uppskeruhátíð. Þessi samningur hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenskt samfélag - áhrifa hans gætir í viðskiptum og nýsköpun, rannsóknum, menntamálum, hann hefur haft áhrif á menningu, íþróttir og æskulýðsmál, skapað ýmis tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki, en hann er líka umdeildur, hefur í för me...
Tegundastigveldi í rannsóknum, álfasala SÁÁ, málfarsspjall - ýmis læti. 07.05.2024 59:02
Við tölum um það sem kallað er verndarlíffræði og niðurstöður stórrar rannsóknar á því efni sem voru birtar nýlega. Ragnhildur Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands, og Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, ræða við okkur um rannsóknina og niðurstöðurnar. Á morgun hefst álfasala SÁÁ þegar hópur sölumanna um allt land býður álfinn til sölu til að afla f...
Ungir frumkvöðlar, kíkt í gamla kassa hjá Landvernd, málfar og rafræn skjalavarsla á Þjóðskjalasafninu 06.05.2024 59:16
Fyrir helgi var Netaprent, fyrirtæki í eigu fjögurra Verslunarskólanema, valið fyrirtæki ársins í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland. Þetta fyrirtæki, Netaprent, framleiðir þrívíddarprentefni úr notuðum fiskinetum og var eitt þeirra 30 fyrirtækja frá 15 framhaldsskólum sem komust í úrslit og mun taka þátt í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fer fram á Sikiley í sumar. Við forvitnumst u...
Snerpa Power, öryggi smábátasjómanna, tíð og Ólympíuleikar 03.05.2024 55:00
Við tölum við Írisi Baldursdóttur. Hún er framkvæmdastjóri fyrirtækisins Snerpa Power sem hefur sérhæft sig í gerð hugbúnaðar sem gerir stórnotendum rafmagns og öðrum þátttakendum á raforkumarkaði kleift að fullnýta lifandi gagnastrauma og sjálfvirkni til lækkunar á raforkukostnaði og stuðla að ábyrgri nýtingu endurnýjanlegra auðlinda, eins og það er orðað í kynningu. Nú hefur Snerpa Power verið v...
Skipulag og náttúruvá, orkuskipti í flutningum og umhverfispistill 02.05.2024 58:30
Í dag ætlum við að fjalla um náttúruvá og skipulagsmál en skipulagsgerð er mikilvægur vettvangur til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja náttúruvá hvort sem er af völdum loftslagsbreytinga, eldsumbrota eða annarra þátta í náttúru- og veðurfari. Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvárþjónustu Veðurstofu Íslands, segir okkur frá vinnu við gerð áhættumats við skipulagsgerð í ljósi n...
Upphitun fyrir 1. maí, Reykjavíkurmaraþon í 40 ár, pistill frá Páli Líndal 30.04.2024 58:27
Kröfugöngur, baráttufundir, þrusuræður, kaffiveitingar og lúðrahljómur - já 1. maí er á morgun. Við ætlum af því tilefni að ræða stemninguna þennan dag og helstu baráttumál samtímans við Örnu Jakobínu Björnsdóttur, formann Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu - en hún verður fundarstjóri á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík á morgun. Á þessu ári er því fagnað að 40 ár eru liðin frá...
Nýr verkefnastjóri yfir málefnum Grindavíkur hjá forsætisráðuneytinu, útilistaverkin í borginni, málfar og þvottalaugarnar 1957 29.04.2024 59:29
Gylfi Þór Þorsteinsson sem lengi hefur starfað fyrir Rauða krossinn og tekið að sér ýmis flókin verkefni, t.d. uppsetningu og rekstur farsóttarhúsa á tímum COVID og móttöku flóttafólks frá Úkraínu hefur verið ráðinn til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur í forsætisráðuneytinu. Í því felst meðal annars að samhæfa samskipti og upplýsingagjöf til Grindvíkinga vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Gy...
Stóri Plokkdagurinn, Torg í borg, málfar og fjör og furðuverur í Austurstræti 26.04.2024 58:15
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Þá flykkjast plokkarar víða um land út á götur, út í móa og í fjörur þessa lands með ruslapokana sína og plokktangir og tína rusl. Mikið rusl. Fleiri, fleiri tonn af rusli. Fyrir suma er plokk hluti af lífsstíl. Að gera samfélaginu gagn, njóta þess að vera úti og sjá árangur erfiðis síns. Það er Rótarý hreyfingin á Íslandi sem skipuleggur stóra plokkdaginn. Þa...
Slow food, varist eftirlíkingar, málfarsmínúta og vísindaspjall 24.04.2024 55:00
Við forvitnumst um Slow food-hreyfinguna svokölluðu, en sú hugmyndafræði hefur breiðst út um allan heim. Það er viðhorf þeirra sem fylgja þessum lífsstíl að matur eigi að bragðast vel, hann eigi að vera laus við aukaefni og sem náttúrulegastur og sanngjarn á þann hátt að sá sem framleiðir matinn fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og afurðir. Dóra Svavarsdóttir er formaður Slow food Reykjavík. Vi...
Sorpbrennsla, frí molta í Gaju og málfarsspjall: misseri, sumarmál, hrafnahret o.fl. 23.04.2024 59:23
Við fjöllum um það sem kallað hefur verið hátækni-sorpbrennsla. Helgi Þór Ingason prófessor í verkfræði við Háskólann í Reykjavík fór fyrir hópi sem vann úttekt á fýsileika þess að reisa slíka brennslu hér á landi, enda stendur til að hætta nær allri urðun sorps. Ævar Örn Jósepsson ræddi um niðurstöður hópsins við Helga Þór. Við heyrum það á eftir. Og við ætlum að halda okkur í úrgangsmálunum því...
Skiptistöðin í Mjódd - staðan og viðhorf gesta, Kristín Eysteinsdóttir rektor Listaháskóla Íslands um aðsókn og húsnæðismál, málfar og heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands. 22.04.2024 59:24
Á föstudag fjölluðum við um þau tengsl sem fólk myndar við almannarými í borginni. Við ætlum að halda áfram að fjalla um almannarými ýmis konar- skiptistöðin í Mjóddinni hefur verið mikið til umfjöllunar á fundum umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar undanfarna mánuði. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, er einn þeirra sem vilja umbætur og telja skiptistöðina nær óboðlega. Við f...
Staðartengsl, einmitt og spellvirkjar úr dýraríkinu 19.04.2024 55:00
Hvernig tengjumst við stöðum og hvaða tök hafa þeir á okkur? Þetta hafa þjóðfræðingar við Háskóla Íslands rannsakað í nokkur ár í rannsóknarverkefni sem kallast aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi, (ágætis tungubrjótur það). Þátttakendur í rannsókninni hafa spásserað um miðborg Reykjavíkur með upptökugleraugu á nefinu og talað um þær minningar og tilfinningar sem umhverfið, h...
Rannsókn á áhrifum náms- og starfsvals á lífshamingju, Forbes-listinn og ríkukallafélagið, neytendaspjall - gjafabréf 18.04.2024 58:52
Hefur það sem við veljum að læra eða starfa við áhrif á velferð okkar og jafnvel lífshamingju? Skiptir máli að starfa við það sem við höfum ástríðu fyrir eða er það aukaatriði í stóra samhenginu. Sif Einarsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, ætlar að ræða þetta við okkur en hún fer fyrir stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni, Eldar í iðrum, en markmið þess er að skilja be...
Bruni í Kaupmannahöfn, HM í handbolta 2031, knepra og örplast 17.04.2024 59:00
Mikill eldur kom upp í sögufrægu húsi; gömlu kauphöllinni, Børsen, í Kaupmannahöfn í gær. Um helmingur byggingarinnar er sagður hafa brunnið til kaldra kola og ljóst að tjónið er gríðarlegt. Bæði efnislegt tjón en bruninn er líka vitaskuld mikið áfall fyrir Dani enda hefur þetta 400 ára gamla hús mikla þýðingu fyrir sögu þjóðarinnar. Viðbúnaður slökkviliðs var mikill og við sáum á myndum hvernig f...
Hönnun og mannréttindi, mannætubókmenntir og pistill frá Páli Líndal 16.04.2024 59:17
Við tölum um hönnun og samspil hönnunar og mannréttinda. Anna María Bogadóttir arkitekt ætlar að ræða þau mál í tengslum við Hönnunarmars sem hefst síðar í mánuðinum og þar sem hún heldur fyrirlestur á mannréttindamorgnum í Mannréttindahúsinu. Við tökum á móti Önnu Maríu hér á eftir og pælum meðal annars í hugtakinu algild hönnun. Mannætubókmenntir: um næringarfræði þýðinga - svona hljóðar yfirskr...
Áhrif sumarhúsa á fugla, umhverfispistill, málfar og þernustörf um borð í Gullfossi 15.04.2024 58:33
Hvaða áhrif hefur það þegar fólk byggir sér sumarbústað úti í móa, í kjörlendi lóu, spóa og jaðrakans? Hvað þá þúsundir sumarbústaða? Á undanförnum tveimur áratugum hefur sumarbústöðum á Íslandi fjölgað úr um 10 þúsund í 15 þúsund og það eru 7000 til viðbótar á skipulagi. Aldís Erna Pálsdóttir nýdoktor í líffræði hefur árum saman rannsakað hvernig mófuglar bregðast við þegar búsvæðum þeirra er ras...
Samtökin Akratorg, hleðsluinnviðir á Vestfjörðum, málfar og súrdeigsbakstur og samlíf fólks og örvera 12.04.2024 59:04
Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi safna núna undirskriftum í því skyni að fá bæjaryfirvöld til að skoða þann kost að láta breyta gamla húsi Landsbankans við Akratorg í ráðhús. Bjarnheiður Hallsdóttir er í stjórn þessara samtaka. Hún segir okkur nánar frá þessu máli. Svo tölum við aðeins um aðgengi að hleðslu fyrir rafbíla á Vestfjörðum. Hjá Bláma í Bolungarvík er unnið ýmsum verkefnum sem tengj...
Hvernig getur gervigreindin létt undir á vinnustöðum, Veðrið á Seyðisfirði - „eins og tveir heimar“, handbók loftslagsaktivistans. 11.04.2024 59:08
Við ætlum að tala um gervigreind og þá sérstaklega Chat GPT. Þessi tækni sem á íslensku hefur verið kölluð spunagreind, er á fleygiferð og er nú aðgengileg öllum sem vilja. En hvernig getur almenningur nýtt sér þetta tól sem best í daglegum störfum? Er það þegar að gerast hér á landi og ættu t.d. vinnustaðir að tileinka sér chatGPT nú þegar og þjálfa starfsfólk sitt í að nota þessa tækni? Og hvers...
Gagnaglíma, öryggi undir stýri, málfarsmínúta og endurröðun DNA 10.04.2024 59:22
Hvað er gagnaglíma og hvað gerir Gagnaglímufélag Íslands? Við komumst að því þegar Hjalti Magnússon sérfræðingur í netöryggi og formaður Gagnaglímufélagsins sest hjá okkur og segir okkur allt um málið. Við fjöllum líka um öryggi undir stýri. Sigrún A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá Vís ræðir við okkur um notkun snjalltækja við akstur, hætturnar af því og líka tækifærin sem geta falis...
Fallandi fæðingartíðni, fíknsjúkdómur og meðferð og neip 09.04.2024 57:49
Fæðingartíðni lækkaði mikið á Íslandi eftir efnahagshrunið en í Covid tók hún hins vegar kipp og hækkaði töluvert. Þessi aukning í frjósemi varð á sama tíma og fæðingarorlof var lengt úr 10 mánuðum í 12. En nú er fæðingartíðnin að lækka hratt aftur. Við ætlum að tala við Ásdísi Aðalbjörgu Arnalds forstöðumann Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og Sunnu Símonardóttur nýdoktor og aðjúnkt í félag...
Fiskmerkingar, eldflugur, málfar og gömul viðbragðsáætlun fyrir Vestmannaeyjar 08.04.2024 59:26
Við ætlum að forvitnast um fiskmerkingar við Ísland í Samfélaginu í dag. Slíkar rannsóknir hafa verið stundaðar hér í meira en hundrað ár og tæknin hefur auðvitað þróast í þessum rannsóknum eins og öðrum. Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur hefur umsjón með þessum verkefnum hjá Hafrannsóknastofnun. Og við höldum okkur við náttúruvísindin, nokkrar dýrategundir hafa þann eiginleika að geta g...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.