RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Auglýsingaherferðin Blanksy, Óskar og Saxófónninn 05.04.2024 59:31
ÖBÍ, réttindasamtök öryrkja, hrundu á dögunum af stað auglýsingagjörningi þar sem þau virkjuðu áhrifavalda og sköpuðu dularfullan huldulistamann, Blanksy, sem gefið var að sök að hafa spreyað á bæði bíla og auglýsingaskilti. Í gær var hulunni svipt af öllu saman. Við ætlum að ræða hugsunina og aðferðafræðina á bak við þessa herferð og hvernig bæði áhrifavöldum og fjölmiðlum var beitt við Ölmu Ýrr...
Gos við Sundhnúkagíga, snjóflóðaeftirlit og snjallmælar 04.04.2024 55:00
Við ætlum að ræða aðeins um eldgosið við Sundhnúksgígaröðina. Gosið hefur nú staðið frá 16. mars og virknin talin stöðug. Tveir gígar eru nú virkir og samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Veðurstofunni hefur landris ekki mælst undanfarna daga sem þykir benda til þess að jafnvægi sé nú í aðstreymi kviku undir Svartsengi. Og í gær var hættustig Almannavarna fært af neyðarstigi á hættustig. Kristín Jónsd...
Gömul hús og gagnrýni á skipulagsmál, Havana-heilkennið, málfar og vísindaspjall 03.04.2024 58:57
Til stendur að rífa skátaskálann Fálkafell, ofan Akureyrar, Alþýðuhúsið eða Allinn var nýlega rifinn, það hefur verið í umræðunni árum saman að rífa hinn fræga skemmtistað, Sjallann og svo eru það örlög BSO, bifreiðastöðvar Oddeyrar, sem enn eru óráðin, en stöðin þarf að víkja fyrir lok maí. Nýtt er byggt og annað víkur - eða hvað? Árni Árnason, arkitekt og meðlimur í samtökunum Arfur Akureyrarbæj...
Lífsferill bygginga, barnamatur og pistill Páls Líndal 02.04.2024 59:14
Við ætlum að tala um það sem er kallað lífsferilsgreining bygginga en slík greining verður hluti af byggingarreglugerð þar sem mælt verður kolefnisspor mannvirkja yfir lífsskeið þeirra. Og nú er formlega hafið aðlögunartímabil vegna breytinganna sem taka gildi 1. September 2025 - eftir eitt og hálft ár. Það verður seint sagt að byggingareglugerðir séu einfaldar - þær eru mjög flóknar en við ætlum...
Akureyrarborg, tölvuleikjaiðnaður, leppur og erfðabreytt svínsnýru 27.03.2024 58:04
Stjórnvöld stefna að því að innan skamms verði Akureyrarbær Akureyrarborg. Í samráðsgátt stjórnvalda liggur til umsagnar borgarstefna þar sem sjónum er beint að því að efla tvö borgarsvæði á Íslandi - Reykjavík, sem heldur velli sem höfuðborg, og Akureyri, sem yrði svæðisborg. Hugmyndir um Akureyrarborg eru ekki nýjar af nálinni - en fyrir nokkrum árum sat bæjarstjórinn, Ásthildur Sturludóttir, ei...
Framtíð Náttúruminjasafns Íslands, kostnaður við fermingar, málsháttaspjall 26.03.2024 55:00
Það hefur lengi verið beðið eftir að Náttúruminjasafn Íslands komist í sómasamlegt húsnæði og ýmis áform verið uppi. Núna er sýning safnsins Vatnið í náttúru Íslands hýst í Perlunni. Undanfarið hafa svo verið lögð drög að því að safnið fái hús á Seltjarnarnesi sem var byggt undir lækningaminjasafn með möguleika á stækkun og vonast var til að húsið væri tilbúið seinna á þessu ári. Í Morgunblaðinu í...
Ólympíuleikar í nánd, loftslagsspjall, refaát á Patró 25.03.2024 59:10
Ólympíuleikarnir verða settir í París eftir 123 daga. Enn er óljóst hversu margir keppendur verða þar fyrir Íslands hönd en nokkrir eru líklegir og einn hefur þegar tryggt sér þátttökurétt. Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ og margfaldur Ólympíufari, sem keppandi og þjálfari, er bjartsýnn á að hópurinn verði fjölbreyttur. Hann hefur mikinn metnað fyrir hönd íslensks afreksíþróttafólks og tel...
Gasmengun frá gosinu, snjallvæðing íþrótta, málfar og dýr í geimnum 22.03.2024 58:03
Útlit er fyrir að brennisteinsdíoxíðsmengun frá elgosinu á Reykjanesskaga nái til meginlands Evrópu, jafnvel Rússlands. Í fyrradag var starfsmaður Bláa lónsins fluttur á sjúkrahús vegna gaseitrunar og Vinnueftirlitið hefur beðið fyrirtæki á svæðinu að yfirfara áhættumat og tryggja öryggi starfsfólks, til dæmis með gasmælum. Það hefur verið töluverð mengun frá þessu gosi en þó ekki jafn mikil og bi...
Skemmtiferðaskipin koma, háskólamál - fleiri með gráðu en færri af þeim sem byrja útskrifast, nemendur GRÓ-skólanna hittast í Kampala í Úganda 21.03.2024 59:11
Fyrsta skemmtiferðaskip þessa árs lagðist að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Og það eru um 90 önnur á leiðinni í hátt í 260 ferðum. Þeim fylgja hundruð þúsunda farþega. Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna ætlar að ræða við okkur á eftir um komur skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur og segja okkur frá nýrri farþegamiðstöð sem brátt mun rísa á Skarfabakka. Hagstofa Ísland...
Orkumálastjóri, matarprentun, málfarsmínúta og afnæming mjólkurofnæmis 20.03.2024 57:49
Við ætlum að ræða orku- og auðlindamálin við Höllu Hrund Logadóttur, orkumálastjóra, og það er af mörgu að taka. Við ræðum aukna ásókn erlendra fyrirtækja í íslenska orku og auðlindir - en Halla telur brýnt að endurskoða lög og reglur til að tryggja þjóðaröryggi og hagsmuni komandi kynslóða. Við ræðum líka orkuskiptin en ýmsir hafa undanfarið viðrað miklar efasemdir um að markmið stjórnvalda um or...
Rammáætlun endurskoðuð, Arnar Páll á þöglu ströndinni, málfar og pistill frá Páli Líndal 19.03.2024 59:31
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra stofnaði á dögunum starfshóp sem á að endurskoða hlutverk rammaáætlunar - þess ferlis sem á að meta heildrænt og með langtímahagsmuni að leiðarljósi, hvað á að vernda, hvað á að virkja og hvað á að skoða betur. Hópurinn á að leggja fram tillögur að einfaldara og skilvirkara regluverki og á grundvelli þeirra tillagna hyggst ráðherra leggja fram frumvarp að nýj...
Hrossatað og nýsköpun, Jarðvísindastofnun HÍ greinir hraunið, rætt um forvörslu á Þjóðskjalasafni 18.03.2024 59:26
Við ætlum að forvitnast um nýsköpun og sprota. Klak er félag í eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Origo, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Og það eru ýmsar leiðir til þess. Meðal annars svokallaðir viðskiptahraðlar. Einn slíkur er kallaður Hringiða o...
Saltfisksherferð, geimtilraunir SpaceX, málfar og Dýraþjónusta Reykjavíkur 15.03.2024 59:31
Við ræðum um saltfisk við Kolbrúnu Sveinsdóttur, verkefnastjóra hjá Matís - er lífið enn saltfiskur? Fiskneysla hefur dregist verulega saman svo að kannski er það ekki raunin en Kolbrúnu dreymir um að þessari afurð verði hampað í meiri mæli og að gómsætir saltfisksréttir verði á hvers manns borði, reglulega. Við ætlum að ræða fiskneyslu við Kolbrúnu og aðgerðir Matís og fleiri fyrirtækja til að au...
Sálræn áhrif hörmunganna á Gaza, Reykjavíkurskákmót, umhverfispistill 14.03.2024 59:18
Við ætlum að ræða hvaða áhrif eyðilegging, endurtekinn missir, ótti, matarskortur og linnulausar árásir hafa á andlega líðan fólks, bæði í núinu og til frambúðar - einkum í samhengi við yfirstandandi árásir ísraelshers á Gaza þar sem almenningur býr við hörmulegar aðstæður en líka áhrifin á heimsbyggðina sem stendur á hliðarlínunni með snjallsímann og getur fylgst með öllu á samfélagsmiðlum í nær...
Landsþing Samtakanna 78, Grænþreyta hjá almenningi og vísindaspjall 13.03.2024 59:08
Þróun dragsenunnar á Íslandi, saga tvíkynhneigðra og áhrif HIV á kynslóðir homma, tví- og pankynhneigðra karla - þetta og margt fleira mátti fræðast um á Landsþingi Samtakanna 78 sem fór fram um helgina og á föstudegi var aðalfundur samtakanna þar sem kjörin var ný stjórn. Við ræðum við Bjarndísi Helgu Tómasdóttur nýjan formann um þingið og stöðu hinsegin samfélagsins almennt. Það færist í aukana...
Svifryk, vetrarfuglatalning og neytendaspjall 12.03.2024 59:04
Í gær var hægur vindur á höfuðborgarsvæðinu, snjóinn hafði tekið upp, göturnar þurrar og eftir hádegi barst tilkynning frá Reykjavíkurborg - styrkur svifryks mældist hár víða um borgina og fólk beðið að draga úr akstri einkabílsins, taka strætó . Við ætlum að ræða svifryk, orsakir þess, áhrif og mögulegar aðgerðir við Svövu S. Steinarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíku...
Hjálparstarf í Kampala, umbúðamál hjá Kóka kóla, málfar og gamalt skíðamót 11.03.2024 59:18
Við heimsækjum Kampala höfuðborg Úganda í þætti dagsins en fyrir skemmstu heimsótti starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar landið til að skoða verkefni sem þar eru rekin fyrir framlög frá Hjálparstarfinu og íslenska ríkinu. Hluti verkefnanna í Úganda snýst um að valdefla ungmenni sem flykkjast úr sveitum landsins til höfuðborgarinnar í leit að betra lífi, en þeim mætir því miður oft misnotkun, eymd o...
Falsaðar raddupptökur og gervigreind, ný umbúðareglugerð ESB drepur litla sjampóbrúsa, málfar. 08.03.2024 55:00
Nýlega fór í dreifingu fölsuð upptaka af borgarstjóra Lundúna sem olli talsverðu uppnámi. Þar heyrðist rödd hans tala um að göngur mótmælenda sem eru hliðhollir málstað Palestínu, sem fyrirhugaðar voru á minningardegi um lok fyrri heimsstyrjaldarinnar, ættu að njóta forgangs umfram aðra viðburði. Hann réði yfir lögreglunni í Lundúnum og hún gerði eins og hann skipaði. En borgarstjórinn sagði þetta...
Heimsókn í flokkunarstöð Sorpu, hvað er úrvalsmjólk og hvernig er hún framleidd, málfar og vísindaspjall 06.03.2024 55:00
Frauðplastsdemantar, villt dýr og ást íslendinga á VHS-spólum koma við sögu í Samfélaginu í dag. Við fjöllum á næstunni um plast og plastumbúðir - og ætlum að hafa spakmælið: Í upphafi skyldi endinn skoða, sem leiðarljós. Vegferðin byrjar því í Mótttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sjö mjólkurframleiðendur í Þingeyjarsveit náðu þeim frábæra árangri að framleiða og fá greitt fyrir úrvalsmjól...
Erfið mál á Grænlandi, Læst úti - þjóðfundur ungs fólks, málfarsspjall um bændur 05.03.2024 56:16
Við hringjum til Nuuk í Grænlandi og tölum við Ingu Dóru Guðmundsdóttur eins og við gerum nokkuð reglulega. Að þessu sinni ætlum við að fjalla um tvö alvarleg mál. Um 150 grænlenskar konur hafa stefnt danska ríkinu vegna lykkjuherferðarinnar sem svo er kölluð en á sjöunda áratugnum var þúsundum stúlkna og ungra kvenna gert að fá lykkjuna - oft án þess að vera upplýstar um það. Við ræðum þetta við...
Mælirinn fullur hjá háskólakennurum, Fundur með börnum frá Grindavík og Oddrúnarmálið 04.03.2024 59:50
Samkvæmt nýlegri könnun er meira en þriðjungur starfsmanna í háskólum í hættu á kulnun. Nemendafjöldi hefur aukist en kennurum hefur ekki fjölgað að sama skapi, vinnuvikan er löng og stór hluti kennara nýtir frítíma sinn til að sinna rannsóknum og kennslu. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, sem situr í stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla og Sigrún Ólafsdóttir formaður félagsins ræða þet...
Dúfur, áhrif COVID-19 á Vestfjörðum, útför Navalnís 01.03.2024 58:59
Við ætlum að tala um COVID-19 en fyrr í vikunni voru 4 ár liðin frá fyrsta covid 19 smitinu hér á landi. Lára Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum fór fyrir rannsókn á samfélagslegum áhrifum og lýðheilsuaðgerðum vegna COVID-19 á Vestfjörðum. Hún segir okkur frá rannsókninni og helstu niðurstöðum. Útför rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalnís fór fram í Moskvu í dag. Hann...
Opið samtal um aldursfordóma í íslensku samfélagi 29.02.2024 59:06
Erum við einhvern tímann of gömul? Skilgreinir aldurinn okkur? Mótast viðhorf okkar til annarra af aldursfordómum - og hvað með viðhorfin til okkar sjálfra? Á þriðjudaginn var fór fram opið samtal um þetta á Borgarbókasafninu í Grófinni og þangað mættu tíu konur sem deildu reynslu sinni og sýn. Konur með mismunandi bakgrunn. Samfélagið fékk að taka þátt - og þátturinn í dag verður helgaður umræðum...
Gervigreind og persónuvernd, það sem brennur á ungu fólki, málfar og vísindaspjall 28.02.2024 59:17
Hvernig getur það farið ef ríkisstofnanir fara að nýta gervigreindina til að vinna persónuupplýsingar um borgara, fela henni það jafnvel alfarið. Félag forstöðumanna Ríkisstofnana hélt í gær málþing um gervigreind og þar talaði meðal annarra Inga Amal Hasan, lögfræðingur hjá Persónuvernd. Það er nefnilega að ýmsu að huga. Við ræðum við Ingu. Nýr forseti Landssambands ungmennafélaga var kjörinn um...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.