RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sprettur og fjölmenning í HÍ og víðar, staðlar og staðlaráð Íslands, umhverfissálfræði 27.02.2024 55:00
Innflytjenda- og útlendingamál hafa verið í brennidepli í þjóðfélagsumræðunni undanfarið og ríkisstjórnin kynnti á dögunum aðgerðir til að sporna gegn því að fólk sæki hér um vernd. Inngilding hefur líka verið áberandi í umræðunni. Eitt er víst, íslenskt samfélag sem lengi var einsleitt er breytt, við ætlum að ræða þessar breytingar og viðbrögð við þeim við Juan Camilo Roman Estrada, verkefnastjór...
Þórólfur um sýklalyfjaónæmi, Ísland og fyrsta hnattflugið 1924, Sigur Íslands í heimsmeistarakeppninni 1989 rifjaður upp 26.02.2024 59:07
Starfshópur um aðgerðir til að bregðast við auknu sýklalyfjaónæmi hefur lokið störfum og skilað tillögum sínum. Þær eru viðamiklar og taka til áranna 2025-2029. Þórólfur Guðnason fyrrverandi sóttvarnalæknir var formaður starfshópsins. Hann fer yfir tillögurnar með okkur á eftir. Við ætlum að fara hundrað ár aftur í tímann og rifja upp fyrsta hnattflugið, stórmerkilegan leiðangur sem hafði viðkomu...
Jarðkönnun í Grindavík, sjálboðaliðar í dreifbýli og nýr kolkrabbi 23.02.2024 55:00
Almannavarnir kynntu fyrr í vikunni stöðuna á jarðkönnunarverkefni sem hefur staðið yfir í nokkrar vikur og er hluti af heildaráhættumati fyrir Grindavík. Verkefnið hefur samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum þann tilgang að auka öryggi einstaklinga með því að rannsaka og kortleggja sprunguhættu. Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna segir okkur nánar frá þessu. Má kvenfélagið selja...
Veðurskeytastöðvar á hverfanda hveli, heilbrigðisstarfsfólk um nikótínpúða, umhverfispistill - vistkjöt 22.02.2024 59:07
Samfélagið fjallaði á þriðjudag um markaðssigur nikótínpúðanna á Íslandi Þriðjungur karla undir 35 ára aldri notar púðana daglega og fimmtungur ungra kvenna. Púðarnir hafa nánast jarðað íslenska neftóbakið og það sem meira er, þeir hafa hafið innreið sína í grunnskólana. Við ætlum að ræða við Viðar Jensson, sem sinnir tóbaksvörnum hjá Embætti landlæknis og Láru G. Sigurðardóttur, lækni og doktor í...
Vannærð börn á Gaza, vegamál og upplýsingatækni, málfar og vísindaspjall 21.02.2024 58:54
Við sáum og heyrðum fréttir í gær af skelfilegu ástandi á Gaza þar sem komið hefur í ljós að hlutfall vannærðra barna hefur stóraukist undanfarið. 1 af hverjum 6 börnum undir tveggja ára í norðurhluta Gaza glímir við bráðavannæringu eins og það er orðað. Við ætlum að ræða þessi mál við Birnu Þórarinsdóttur framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Við ætlum líka að tala um eftirlit með vegum landsins, um...
Fagfélag um mengum, markaðssigur nikótínpúða og málfarsspjall 20.02.2024 58:31
Við fáum að heyra allt um nýstofnað fagfélag um mengun á Íslandi - FUMÍS. Félagið einbeitir sér að mengun í jarðvegi og vatni og vill stuðla að aukinni þekkingu á góðum og vönduðum vinnubrögðum í þeim málum. Formaður félagsins Erla Guðrún Hafsteinsdóttir ætlar að ræða við okkur á eftir. Nikótínpúðar hafa á örfáum árum náð mikilli útbreiðslu og nú er svo komið að stór hluti ungs fólks notar þá að s...
Stefna um móttöku skemmtiferðaskipa, „leikskólavandinn“ í fjölmiðlum, málfar og Graf Zeppelin. 19.02.2024 59:37
Það koma hátt í 200 þúsund farþegar með skemmtiferðaskipum til Ísafjarðar á þessu ári. Sem hlýtur að teljast ansi mikill fjöldi en í Ísafjarðarbæ búa um fjögur þúsund manns. Nú hefur Ísafjarðarbær unnið að gerð stefnu um móttöku skemmtiferðaskipa og kallar eftir athugasemdum vegna hennar á vef sínum. Samfélagið mælti sér mót við hafnarstjórann Hilmar K. Lyngmo og ræddi þessi mál við hann. Greining...
Trjágróður á Akureyri, Ívar gröfukall á Flateyri og flóðsvín í heitum laugum 16.02.2024 58:36
Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Akureyri - þar er Arnhildur Hálfdánardóttir. Og efni þáttarins kemur líka úr þremur áttum. Við byrjum á Akureyri, þar er skýjað, kalt og frekar stillt, vettlingaveður og við ætlum að tala um tré. Akureyri er stundum kölluð bærinn í skóginum og...
Keppt í púsluspili, heimsókn til rannsóknarnefndar samgönguslysa, pistill um umhverfisáhrif sætuefna 15.02.2024 55:00
Við tölum um púsluspil og púslmenningu. Svanhildur Eva Stefánsdóttir í Spilavinum er sérfræðingur í púsli og öllu sem viðkemur þeirri ágætu dægradvöl. Og það má segja að hún sé í rauninni keppnismanneskja þegar kemur að púsli - því Spilavinir ætla á sunnudaginn að efna til púsluspilakeppni í fyrsta sinn. Febrúar er nefnilega púslmánuður þar á bæ og meðal annars geta púslarar skipst á púslum eða lo...
Málþing um grænmetisrækt, svikasímtöl sjaldan algengari, málfar og vísindaspjall 14.02.2024 55:00
Samtök grænkera á Íslandi boða í dag til málþings um hindranir og tækifæri í framleiðslu grænkerafæðis á Íslandi. Borghildur Gunnarsdóttir umhverfis- og auðlindafræðingur er aðalfyrirlesari á málþinginu en hún fjallaði í meistararannsókn sinni um stöðu nýliða í grænmetisrækt á Íslandi. Hún ætlar að ræða við okkur hér rétt á eftir um framtíð grænmetisræktar á Íslandi, hindranir í veginum og stöðuna...
Viðlagakassinn, Trukkaveitan, sprengidagsspeki og pistill umhverfissálfræðings 13.02.2024 55:00
Eru til 12 lítrar af vatni á hvern heimilismeðlim, þurrmatur, hleðslubanki, prímus. Hér á landi er lagt upp með að fólk geti bjargað sér í þrjá daga ef neyðarástand skapast og innviðir bresta, til dæmis vegna náttúruhamfara. Við ætlum að ræða viðlagakassann við Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, ekki síst í ljósi yfirstandandi hamfara á Reykjanesskaganum. Trukkaveitan - hvað...
Brú yfir Fossvog, söguhópur Ský, málfar og heimsókn frá Safni RÚV 12.02.2024 58:34
Við kynnum okkur stöðuna á nýrri brú sem á að leggja yfir Fossvog innan fárra ára. Hönnunarsamkeppni fór fram árið 2021 og það stefnir í að útboð vegna landfyllinga fari fram innan skamms. Ásdís Kristinsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, og Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni, fara yfir þessi mál með okkur. Nokkur vörubretti af skriftvélum, gatas...
Heitavatnsleysi, algóriþminn sem elur okkur upp, tilraunaeldhús Matís og fræskiptamarkaður 09.02.2024 55:00
Dregið hefur verulega úr eldgosinu á Reykjanesskaga - en enn er heitavatnslaust og sums staðar kaldavatnslaust. Þorgils Jónsson, fréttamaður sem er búinn að vera á vaktinni á Suðurnesjum í dag verður á línunni hjá okkur. Börn verja mörg miklum tíma á netinu og þar er ýmislegt sem þarf að varast. Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd, hefur undanfar...
Íslenska með hreim, opinberar ráðleggingar um hreyfingu fyrir öll, málfar og vísindaspjall um sjónhimnuna 07.02.2024 59:03
Við ræðum um hreim og hvernig fólk sem talar íslensku að móðurmáli bregst við erlendum hreim, hvað það les í hann og hvaða ályktanir það dregur um fólk sem talar með hreim. Stefanie Bade er nýdoktor í íslenskri málfræði og rannsakaði viðhorf til hreims í doktorsrannsókn sinni. Í dag fór fram kynningarfundur um endurskoðaða útgáfu opinberra ráðlegginga um hreyfingu og takmörkun kyrrsetu. Helsta bre...
Kynfræðsla í grunnskólum, landvarðanámskeið og málfarsspjall með Önnu Sigríði 06.02.2024 59:11
Hvernig á að fá grunnskólakennara til að kenna kynfræðslu? Hvernig má styðja betur við þá og gera kennsluna markvissari? Þetta rannsakaði Íris Valsdóttir í meistaraverkefni sínu í kennslufræðum. Íris hefur sjálf kennt á miðstigi í grunnskóla og þekkir óöryggi þegar kemur að kynfræðslu og hvernig skuli bera sig að af eigin raun. Í rannsókninni tók hún viðtöl við sjö skólastarfsmenn; umsjónarkennara...
Bólusetningar og viðbrögð við mislingum, niðurrif húss við Laugaveg, málfar og fyrsti falsaði peningaseðillinn á Íslandi 05.02.2024 58:56
Á dögunum greindist erlendur ferðamaður með mislinga, maðurinn var tiltölulega nýkominn til landsins með flugi og því fjöldi fólks sem kann að hafa orðið útsettur fyrir smiti. Mörg hafa í dag sent fyrirspurnir á heilsuveru, foreldrar barna sem eru of ung til að fá bólusetningu hafa sumir áhyggjur og fólk keppist við að reyna að fá yfirsýn yfir eigin bólusetningar já og barnanna - en það getur veri...
Nýtt bann við aldursmismunun, framgangur Vaxa technologies og umhverfispistill 01.02.2024 57:58
Um verslunarmannahelgina í fyrra mátti fólk undir 23 ára aldri ekki tjalda á tjaldsvæðinu á Flúðum, stundum eru haldin böll þar sem engum undir þrítugu er hleypt inn og fyrir nokkrum árum var fjallað um það í fréttum að Icelandair væri hætt að ráða flugfreyjur og flugþjóna yfir 35 ára aldri. Við höldum áfram að ræða aldurstakmarkanir hvers konar í Samfélaginu í dag, meðal annars þær sem fyrirtæki...
Þingmaður um aldurstakmarkanir, nýtt eldsneyti þróað á skip, málfar og vísindaspjall um lyfleysur. 31.01.2024 58:58
Við höldum áfram að ræða aldurstakmarkanir í lögum - kíktum í heimsókn á Alþingi til Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, þingmanns Framsóknar, en hún hefur mikið velt þessu fyrir sér og lagði nýlega fram frumvarp ásamt nokkrum samflokksmönnum þar sem lagt er til að hætt verði að gera þá kröfu að forseti Íslands þurfi að vera orðinn 35 ára á kjördag, Verkfræðistofan Verkís mun leiða umfangsmikið, fj...
Aldurstakmarkanir í lögum, undirbúningur landtengingar við Reykjavíkurhöfn, umhverfispistill 30.01.2024 59:14
Baldur S. Blöndal, lögfræðingur, varð nýlega 25 ára og má því taka að sér hlutverk skiptastjóra þrotabús. Það eru hins vegar tíu ár í að hann megi gera atlögu að því að verða hæstaréttardómari. Baldur hefur í gegnum tíðina svarað ýmsum spurningum á Vísindavefnum, meðal annars um aldurstakmarkanir í lögum. Við ræðum við hann hér á eftir en næstu daga ætlum við að fjalla um aldur og þá helst aldurst...
Opið samtal, íðorðabankinn, málfar og þorrablót í heita pottinum 29.01.2024 59:32
Við ætlum að ræða um lýðræði, umræðuhefð og samtöl. Borgarbókasafnið hefur í nokkur ár boðað til Opins samtals um ýmis málefni, fólk getur þá komið og speglað sig í samborgurum sínum og rætt málin. Dögg Sigmarsdóttir, verkefnastjóri Borgaralegrar þátttöku á Borgarbókasafninu, ætlar að ræða þetta fyrirbæri, opið samtal, við okkur hér rétt á eftir. Við kynnum okkur Íðorðbanka Árnastofnunar en hlutve...
Heimsókn í höfuðstöðvar Orkuveitunnar, Sjálfbærniráðstefna Festu, dýraspjall 26.01.2024 59:15
Við heimsækjum höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Þar hafa sem kunnugt er staðið yfir mjög umfangsmiklar framkvæmdir vegna alvarlegs galla í húsinu og skemmda vegna leka. Einn möguleiki var hreinlega að rífa húsið en ákveðið var að ráðast í að fjarlægja útveggi hússins, rétta það af og endurbyggja veggina. Nú eru þessar framkvæmdir í fullum gangi og stefnt að því að taka húsið í notkun í byrjun n...
Nýsköpun í kirkjugörðum, engin loðna, umhverfispistill Stefáns Gíslasonar 25.01.2024 52:29
Þegar rætt er um kirkjugarða eru nýsköpun, ratleikir og partístand kannski ekki það fyrsta sem kemur upp í huga fólks - en það er heilmikil nýsköpun sem á sér stað í kirkjugörðum um allan heim, straumar og stefnur. Við ræðum við Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, meðal annars um þéttingu byggðar í görðunum og QR-kóða sem bráðlega verða settir á grafir í Kó...
Gervigreind í heilbrigðiskerfinu, hvalir í Hafnafjarðarhöfn, málfar og vísindaspjall 24.01.2024 59:07
Fjórða iðnbyltingin er hafin og gervigreindin er farin að létta undir með ýmsum starfsstéttum, taka að sér að greina gögn, flokka þau og jafnvel spá fyrir um framtíðina. Nýlega hafa fræðimenn rannsakað hvernig gervigreindin getur nýst til að styrkja starfsemi heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Niðurstöðurnar benda til þess að gervigreindin geti stórminnkað álag á heilbrigðisstarfsfólk, jafnvel dreg...
Smáfuglar, uglur og fjármálalæsi í aðalnámskrá 23.01.2024 59:14
Samtök fjármálafyrirtækja berjast fyrir því að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins, en nýleg Gallup-könnun sýnir að fjármálalæsi Íslendinga er verulega ábótavant og grunnhugtök vefjast fyrir fólki. Við ræddum við framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja í Samfélaginu í gær en samtökin halda úti fræðsluvefnum Fjármálavit.is og hafa séð áhugasömum kennurum fyrir námsefni....
Alþingi kemur saman, fjármálalæsi, málfar og Þjóðaskjalasafn 22.01.2024 55:00
Alþingi kom saman í dag og verkefnin eru ærin. Náttúruhamfarir við Grindavík og framtíð íbúanna þar ber hæst og mörg erfið úrlausnarefni sem tengjast því. Svo hefur verið boðað vantraust á matvælaráðherra í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis vegna frestunar hvalveiða síðastliðið sumar. Það verður lagt fram í dag. Mörg aðkallandi mál liggja svo fyrir þinginu á tíma þegar ríkisstjórnin virðist stand...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.