RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Síberíu-Blesi og heimkynni kuldans, fjarskiptaöryggi, málfar og nýjar dýrategundir 19.01.2024 59:11
Það er kalt úti, hörkufrost víða um land og búið að vera í nokkra daga. Hvaðan kemur kuldinn sem nú nístir inn að beini, á kuldaboli sér ákveðin heimkynni? Hvaða veðrakerfi eru það sem stjórna öllu hér um þessar mundir? Trausti Jónsson, veðurfræðingur og áhugamaður um veður, ræðir við okkur um uppruna kuldans og þá félaga Síberíu-Blesa og Stóra-Bola sem eru miklir örlagavaldar í lífi okkar. Við tö...
Stafrænt Ísland og gervigreind, saga íbúa í Grindavík, vísindaspjall 17.01.2024 59:28
Að hve miklu leyti getur gervigreindin komið í stað þjónustufulltrúa? Samskipta almennt? Stefnir í að flest samskipti okkar við stjórnvöld verði samskipti við spjallmenni gædd spunagreind? Og hvenær hætta þau að segja okkur að baka súkkulaðikökur? Birna Íris Jónsdóttir tölvunarfræðingur og framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, ræðir við okkur um kosti og galla gervigreindar í samskiptum hér rétt á ef...
Áfallastjórnun og Grindavík, Loftslagsspjall við Halldór Björnsson, umhverfispistill 16.01.2024 59:03
Áfallastjórnun er ung fræðigrein í hröðum vexti, hún snýr að forvörnum og viðbúnaði, viðbrögðum, lærdómi og endurreisn samfélaga í kjölfar áfalla. Við ætlum að ræða áfallastjórnun við Ásthildi Elvu Bernharðsdóttur, dósent við fagstjóra náms í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst og setja þessi fræði í samhengi við þau áföll sem undanfarna mánuði hafa dunið á Grindvíkingum. Stóran hluta ársins 20...
Eldsumbrot í Grindavík, Náttúruhamfaratrygging Íslands, líðan Grindvíkinga og óvissan framundan 15.01.2024 56:56
Það hefur dregið mikið úr virkni eldgossins sem hófst norðan við Grindavík í gærmorgun en það eru enn merki um áframhaldandi landris við Svartsengi. Við ræðum eldgosið og stöðuna á Reykjanesskaga við Bergrúnu Örnu Óladóttur, jarðfræðing hjá Veðurstofunni. Margt er óljóst eftir atburðina í Grindavík síðasta sólarhring og íbúar í mikilli óvissu um heimili sín og eigur. Hulda Ragnheiður Árnadóttir fo...
ÍSÍ um Þjóðarhöll, skordýraspjall og EM í handbolta 12.01.2024 58:51
Við færðumst í vikunni skrefi nær því að sjá Þjóðarhöll rísa í Laugardal í Reykjavík. 14 milljarða króna mannvirki sem á að geta tekið 8600 manns í sæti. Ríki og borg undirrituðu í gær samning um stofnun félagsins Þjóðarhöll ehf. Fyrsta verk þess verður að efna til forvals og samkeppni um hönnun hússins. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ ræðir við okkur um Þjóðarhöllina sem bæði íþróttafólk o...
Umbrot í Grímsvötnum, veðurviðvaranir ársins 2023 og umhverfispistill 11.01.2024 59:02
Snarpur jarðskjálfti varð í Grímsfjalli í Vatnajökli, snemma í morgun, hlaup er hafið í jöklinum, aukið streymi í Gígjukvísl og auknar líkur á eldgosi. Eyjólfur Magnússon, vísindamaður hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, hefur undanfarið rannsakað fyrri hlaup í þessari virku eldstöð, Grímsvötnum, og hefur fylgst náið með framvindu hlaupsins sem nú stendur yfir. Í fyrra voru gefnar út töluvert...
Ferðamannaspá, vargöld í Ekvador, málfar og örverur 10.01.2024 59:09
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 2,2 milljónir árið 2023 eða tæplega hálfri milljón fleiri en árið 2022 samkvæmt nýjum tölum frá Ferðamálastofu. Þannig að aukningin er mikil milli ára. Núna áðan kynnti svo ferðamálastofa spár um umfang ferðaþjónustunnar á næstu árum og það stefnir í að árið 2024 verði metár í fjölda ferðamanna. Jóhann Viðar Ívarsson, greinandi...
Þráðaþon, Neandertalsmaðurinn í herberginu og lakkplötuviðtal við bónda úr Fljótavík. 08.01.2024 55:00
Um helgina fór fram óvenjulegt mót, lausnamót gegn textílsóun sem bar yfirskriftina þráðaþon. Aðsóknin fór langt fram úr væntingum mótshaldara, fjöldi teyma lagði nótt við dag í þann rúma sólarhring sem mótið stóð og þróaði hugmyndir sem eiga að taka á textílvanda heimsins, eða í það minnsta einhverjum hluta hans. Aðstandendur þráðaþonsins koma til okkar hér rétt á eftir og með í för fulltrúi úr s...
Litið um öxl með Jóni Björgvinssyni, nýárspistill um umhverfismál. 04.01.2024 55:00
Hann hefur flutt okkur fréttir frá víglínunni í Úkraínu, frá hamfarasvæðum í Marokkó og Tyrklandi og þegar hann byrjar að lýsa aðstæðum á íslensku, vopnaður hljóðnema merktum RÚV færast fjarlægir atburðir nær okkur. Við lítum í dag yfir farinn veg með Jóni Björgvinssyni, hann er frétta- og kvikmyndagerðarmaður, hefur lengi verið búsettur í Sviss og flytur okkur oft fréttir frá stríðs- og hamfarasv...
Jarðskjálfti, Flugskóli Reykjavíkur, málfar og vísindaspjall 03.01.2024 55:00
Jarðskjálfti gerði mörgum bylt við á höfuðborgarsvæðinu í morgun, og starfsfólk Veðurstofunnar tók strax til við að fara yfir hann. Við ræðum við Benedikt Halldórsson, jarðskjálftaverkfræðing, sem í dag stendur vaktina þar. Við kynnum okkur flugnám. Flugskóli Reykjavíkur útskrifaði í síðasta mánuði 16 manns frá bóklegu námi til undirbúnings fyrir atvinnuflugmannsréttindi. Hjörvar Hans Bragason er...
Rafbátar, ný lyf við Alzheimer og pistill Páls Líndal 02.01.2024 55:00
Við ræðum um orkuskipti í fiskibátum. Tölum við Kolbein Óttarsson Proppé sem er framkvæmdastjóri Grænafls á Siglufirði en Grænafl vinnur nú í samstarfi við fyrirtæki í Suður Kóreu að því að útbúa strandveiðibáta þannig að þeir geti gengið fyrir rafmagni. Við kynnum okkur nýjungar í meðferð við Alzheimersjúkdóminum en ný lyf hafa vakið vonir um að hægt verði að meðhöndla sjúkdóminn með nýjum hætti....
Þórhildur Ólafsdóttir, málfar, dýraspjall 29.12.2023 55:00
Við fáum góðan gest til okkar sem tengist Samfélaginu sterkum böndum en hélt um mitt ár á vit nýrra ævintýra í rúmlega átta þúsund kílómetra fjarlægð. Þetta er Þórhildur Ólafsdóttir sem var annar umsjónarmaður Samfélagsins svo árum skipti og býr nú tímabundið í Kampala, höfuðborg Úganda. Ýmislegt ber á góma, til dæmis ávexti, sorphirðumál, þróunarstarf og engisprettuát. Málfarsmínúta með áramótaív...
Á rúntinn með sjúkraflutningamönnum, borholubruni, málfar 28.12.2023 55:00
Við kynnum okkur störf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, förum í heimsókn í björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík, spjöllum við fólk og förum svo í óvissuferð í forgangsakstri. Málfarsmínúta - romhelg. Rifjum upp bruna sem varð í heitavatnsborholu í Mosfellsdal í byrjun árs, þar sem hús brann til kaldra kola. Heyrum endurflutt viðtal Guðmundar Pálssonar við Egil Maron Þorbergsson, sérfr...
Árið 2023 gert upp í vísindum 27.12.2023 55:00
Í dag verðum við með með hugann við ýmis vísindi; stofnfrumur, geimvísindi, gervigreind. Hvað gerðist í heimi vísindanna á þessu ári sem innan skamms líður í aldanna skaut? Við byrjum á að spjalla við Eddu Olgudóttur sem hefur haldið okkur við efnið í ár, komið hingað í Samfélagið í vikulegt vísindaspjall á miðvikudögum og alltaf með eitthvað spennandi í farteskinu. Edda fer yfir það sem henni fan...
Grýla og jólafólin, möndlugrautur og jólablót 22.12.2023 55:00
Við ætlum að fjalla um heiðin jól. Jólablót Ásatrúarfélagsins fara fram víða um land í dag, við ræðum þessa hefð og heiðnina almennt við Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoða. Ævar Örn Jósepsson fjallar um Grýlu og hennar hyski, öll jólafólin sem eru víst hátt í tvö hundruð talsins þegar allt er talið. Grýla hefur fylgt Íslendingum um aldir og er sennilega alræmdasta mannæta Íslandssögunnar. Í dag e...
Hjálpræðisherinn, neytendajól og umhverfispistill 21.12.2023 55:00
Neysla nær vissu hámarki fyrir jól, fólk þræðir búðir eða vefverslanir og eyðir peningum í gríð og erg, í allri ösinni er miklvægt að huga að réttindum sínum og það á svo sem ekkert síður við eftir jól, þegar það á að fara að skila eða nýta gjafabréf. Við ræðum neytendamál sem snúa að jólunum við Brynhildi Pétursdóttur hjá neytendasamtökunum. Nú þegar þrír dagar eru til jóla er í nógu að snúast hj...
Prís, kirkjugarðar um jól, hugheilar kveðjur og mannsheilinn 20.12.2023 55:00
Alþýðusamband Íslands kannar reglulega verðlag á matvöru og birti fyrr í vikunni könnun á verði á jólamat. Samkvæmt henni hefur jólakarfan hækkað um 6 til 17% milli ára. Og í dag kynnti ASÍ nýtt app í farsíma, Prís, þar sem hægt er að skoða mismunandi verðlagningu vara á milli verslana með því að skanna strikamerki. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ segir okkur frá þessu. V...
Eldgos, DNA varpar ljósi á útbreiðslu hafíss, umhverfispistill 19.12.2023 55:00
Eldgos hófst norður af Grindavík í gærkvöldi. Og það hófst með miklu meiri krafti en fyrri gos undanfarið á Reykjanesi. Mikið dró úr kraftinum þegar leið á nóttina og virknin afmarkast nú við 300 til 500 metra langa rein um miðbik upphaflegu gossprungunnar. Brennisteinslosun á tímaeiningu var sögð tífalt meiri en var í síðustu þremur gosum á Reykjanesi. Við ætlum að tala um gös, gufur og móðu við...
Próf og námsmat, verkefnið eitt barn - öll börn, upptaka frá 1957 18.12.2023 55:00
Próf hafa verið svolítið í umræðunni undanfarið; niðurstöður PISA-könnunar, mikilvægi samræmds námsmats og svo er prófatíð margra skóla nýlokið. Við fjöllum um próf og námsmat, eru próflausir skólar framtíðin eða eru próf nauðsynleg? Hvað er leiðsagnarmat? Við tökum púlsinn á fólki á Háskólatorgi og ræðum við Berglindi Gísladóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Benedikt Hallgrímsson...
Mansal og tækni, heimsókn á bílaverkstæði, málfar og jólatré 15.12.2023 55:00
Mansal, hvernig birtist það? Hvernig nýta glæpamenn tæknina til að selja fólk mansali og hvað stendur helst í vegi fyrir því að yfirvöldum takist að uppræta þessi mál? Nú stendur yfir stór ráðstefna um þessi mál, að henni standa norræna ráðherranefndin, háskólinn í Reykjavík, mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið. Svala Ísfeld Ólafsdóttir,...
Útflutningur á sorpi, jólamarkaður Virknimiðstöðvar, krossfiskar 14.12.2023 55:00
Sorpa hefur sent út fyrstu gámana með rusli til Svíþjóðar þar sem það verður nýtt til orkuframleiðslu. Þetta er rusl sem annars hefði farið í urðun er hluti af áætlunum Sorpu um að hætta nær allri urðun á Álfsnesi á næstunni og alveg árið 2030. Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri, Sorpu ætlar að segja okkur allt um þetta. Við bregðum okkur á jólamarkað Virknimiðstöðvar Reykjavíkur á...
Hringvangur, símað til suðurskautslandsins, málfar og vísindaspjall 13.12.2023 55:00
Í dag verður haldinn stofnfundur félagasamtakanna Hringvangs - en það er vettvangur fyrir samskipti um hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði. Samtökin Grænni byggð og Húsnæðis og mannvirkjastofnun koma að þessum samtökum ásamt fleirum. Við ætlum að forvitnast um Hringvang á eftir þegar þær setjast hjá okkur Áróra Árnadóttir hjá Grænni byggð og Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.