RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
COP28, matseðillinn 2050 og orð ársins 12.12.2023 55:00
Síðasti dagur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er runninn upp - eða hvað? Í dag átti allt að vera klárt, lokayfirlýsingin undirrituð af hátt í 200 þjóðum en eins og svo oft áður virðist ráðstefnan ætla að dragast á langinn, fundað fram á nótt og þreyttir samningamenn rýna í tyrfinn texta. Utan við fundarherbergin mótmæla svo langþreyttir fulltrúar fé...
Átök Hamas og Ísraels, leikskólabörn og skjöl úr móðuharðindunum 11.12.2023 59:25
Við ætlum að fjalla um átökin milli Hamas og Ísraelsríkis. Hvers vegna er ekki einhugur meðal ríkja heims um að styðja vopnahlé, hvers vegna eru viðbrögð vesturveldanna við þessu stríði gerólík viðbrögðum þeirra við stríðinu í Úkraínu? Eru hörmungarnar sem almenningur á Gaza býr við án fordæma, er hægt að tala um þjóðarmorð? Magnea Marínósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, ræðir þetta við okkur....
Minjastofnun um útburðarmál í Heiðmörk, framtíð Kringlunnar og málfar 08.12.2023 55:00
Verslunarmiðstöðvar. Þetta eru stórar byggingar með stóru bílastæði, rúllustigum, raflýsingu, ótal verslunum. Við ætlum að skoða eina ákveðna verslunarmiðstöð, þá elstu á Íslandi, Kringluna. Tökum púlsinn á Baldvinu Snælaugsdóttur markaðsstjóra Kringlunnar, ræðum jólaverslun, áhrif netsins og framtíð verslunarmiðstöðva almennt. Orkuveitan hefur höfðað útburðarmál á hendur eigendum nokkurrra sumarh...
Staðan við Svartsengi, heimsókn í skólphreinsistöð, umhverfispistill 07.12.2023 55:00
Veðurstofan birti í gær uppfært stöðumat vegna jarðhræringanna við Svartsengi og Grindavík og þar kemur fram að nýr kafli sé að hefjast í þeirri atburðarás með auknum líkum á nýju kvikuhlaupi. Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, er vakin og sofin yfir þessu öllu ásamt hópi vísindamanna, með línurit og gröf fyrir augunum daginn út og inn. Kröfur um skólphreinsun verða stórhertar á næ...
Hlutdeildarlán, nýr heitavatnstankur og umhverfissálfræði 05.12.2023 55:00
Við forvitnumst um svokölluð hlutdeildarlán sem Húsnæðis og mannvirkjastofnun veitir fyrstu kaupendum í lægri tekjuhópum. Í ár barst metfjöldi umsókna um slík lán og við ætlum að biðja Einar Georgsson verkefnisstjóra hlutdeildarlána hjá HMS að segja okkur frá því hvernig þessi lán eru hugsuð, hverjir geta tekið þau og ýmislegt fleira. Við förum í bíltúr upp á Reynisvatnsheiði. Þar rís nú mikið gím...
Staðan í Grindavík, sendinefnd Íslands á COP28, jólahald í gamladaga 04.12.2023 55:00
Rúmar þrjár vikur eru síðan Grindavík var rýmd í snatri - það hefur ýmislegt gengið á síðan, ýmis vandamál sem hefur þurft að leysa, Grindvíkingar fá nú að fara heim yfir daginn, fyrirtæki hafa fengið að hefja starfsemi á ný - en foreldrar leikskólabarna eru enn bundnir, og sumir Grindvíkingar enn í húsnæðiskröggum. Við förum yfir stöðuna núna með Fannari Jónassyni, bæjarstjóra í Grindavík. Loftsl...
Eiturefnalausir leikskólar, skrímsli í náttúru Íslands, dýraspjall. 01.12.2023 55:00
Í haust rataði inn í aðalnámskrá leikskóla klausa um að leikskólar skyldu vera eins eiturefnalausir og hægt er. Í átta ár hefur leikskólinn Aðalþing í Kópavogi verið í fararbroddi í þessu og stjórnendur, þau Hörður Svavarsson og Agnes Gústafsdóttir, búin að leggjast í mikla rannsóknir og losa sig við alls konar dót sem inniheldur skaðleg efni. Við kíkjum í heimsókn þangað. Svo höldum við á skrímsl...
Lagnir í hættu, kennsla á Listasafni, neytendaspjall - skrópgjöld. 30.11.2023 55:00
Lagnir, þær eru þarna, þjóna sínum tilgangi svo lítið beri á, en svo kemur eitthvað upp á sem beinir sjónum okkar að þessum földu en nauðsynlegu innviðum - hvort sem það eru skemmdir á heitavatnslögnum vegna jarðhræringa, akkeri sem rústaði kaldavatnslögn Vestmannaeyinga eða skólplagnirnar sem víða á landinu skila skólpinu óhreinsuðu út í sjó. Snæbjörn R. Rafnsson, pípulagningameistari, hefur bren...
LJósvist á Íslandi, rústabjörgun, málfar og vísindaspjall 29.11.2023 55:00
Undanfarna 17 daga hefur staðið yfir mikil björgunaraðgerð í Himalayafjöllunum þar sem 41 verkamaður festist í jarðgöngum sem féllu saman. Mennirnir náðust allir út úr göngunum heilir á húfi í gær og voru dregnir á börum eftir 90 sentímetra breiðu röri. Rætt við Magnús Örn Hákonarson björgunarsveitarmann og sérfræðing á sviði rústabjörgunar. Ólíkt því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum eru li...
Steypireyður, Jæja og nýyrði 28.11.2023 55:00
Við ætlum að tala um stærsta dýr jarðar í Samfélaginu í dag, það er vitaskuld steypireyður. Nú er ýmislegt sem bendir til þess að sú tegund sé sumstaðar að ná sér á nokkurt strik eftir djúpa lægð vegna ofveiði á árum áður. Ný rannsókn á Steypireyðum við Seychelles eyjar í Indlandshafi bendir til þess að þar sé þeim að fjölga. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur ætlar að segja okkur allt u...
Viðlagasjóðshúsin í Keilufelli, skjalafals fortíðar og málfarsmínúta 27.11.2023 55:00
Við kynnum okkur Viðlagasjóðshúsin í Keilufelli í Reykjavík, eða Vestmannaeyjahúsin eins og þau eru stundum kölluð. Ræðum við Ágústu Óskars Kettler og Ernst Kettler, sem fluttu inn 1974 og Dagnýju Bjarnadóttur, landslagsarkítekt,sem býr í næsta húsi við frumbyggjana. Húsin voru reist á örskotsstundu eftir gosið í Heimaey, og við spyrjum íbúana út í þau og hvort þeim fyndist góð hugmynd að endurtak...
Efsta hillan í ísskápnum, plastmengun í norðri, umhverfispistill 23.11.2023 57:12
Leikhópurinn Kriðpleir stóð fyrir áhugaverðri vinnustofu um síðustu helgi undir yfirskriftinni Efsta hillan. Þátttakendur vinnustofunnar voru beðnir um að taka með sér fjórar krukkur eða sósutúbur sem hefðu dagað uppi í ísskápnum. Fortíð og uppruni krukknanna voru rannsökuð, og leitast við að skapa kringumstæður sem miðla sögu þeirra. Ragnar Ísleifur Bragason ætlar að kafa í krukkurnar með okkur á...
Réttlát umskipti, veirur og pestir, málfar og vísindaspjall 22.11.2023 55:00
Er hægt að ráðast í harðar loftslagsaðgerðir án þess að það bitni á almenningi? Í hverju felast réttát umskipti? Við ræðum þetta við Auði Ölfu Ólafsdóttur, sérfræðing í umhverfis og neytendamálum hjá ASÍ. Allskyns veirusýkingar herja nú á landsmenn. Þetta eru gamlir kunningjar eins og RS-vírus, ýmsar kvefpestir og auðvitað Covid sem er í nokkrum ham þessa dagana. Og svo er inflúensan að banka á dy...
Segulhitari, sorpbrennsla og umhverfissálfræði 21.11.2023 55:00
Við hringjum vestur á firði og tölum við Þorstein Másson framkvæmdastjóra Bláma í Bolungarvík en Blámi einbeitir sér að nýsköpun í orkumálum og orkuskiptum sérstaklega. Hann ætlar að segja okkur frá verkefni sem snýst um að nota svokallaðan segulhitara til að framleiða heitt vatn í Súðavík. Stefnt er að því að koma upp sorpbrennslustöðvum á suðvesturhorninu og á norðurlandi og nýta orkuna sem verð...
Loftgæðaspár, staðan í aðdraganda COP28, hugvitsmaður úr fortíðinni 20.11.2023 55:00
Við veltum fyrir okkur loftgæðum í höfuðborginni, vöktun á þeim og leiðum til að spá fyrir um loftgæði - jafnvel í einstökum hverfum. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur frá aðferðum sem stofnunin beitir til þess. Þetta er árið sem farið var að tala um hnattræna stiknun, haustið hefur verið óvenjulegt og hitamet fallið. Ástandið í loftslagsmálum er alvarlegt. Markmið...
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall 17.11.2023 55:00
Jarðfallið í Gjerdrum í Noregi er mörgum minnisstætt, þetta var í lok desember 2020, mörg hús gjöreyðilögðust og tíu létust. Þessar hamfarir eru um margt ólíkar þeim sem nú standa yfir í Grindavík - en í báðum tilfellum hafa yfirvöld þurft að bregðast við - tryggja öryggi og afkomu íbúa. Við ræðum viðbrögð yfirvalda hér og í Noregi við náttúruhamförum við Herdísi Sigurgrímsdóttur, stjórnmálafræðin...
Pallborðsumræður á degi íslenskrar tungu 16.11.2023 59:00
Samfélagið helgar þáttinn degi íslenskrar tungu. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur á Ríkisútvarpinu, er gestaumsjónarmaður og auk hennar eru í pallborði góðir gestir þau; Grace Ochieng, íslenskunemi, fatahönnuður og eigandi tískuvörumerkisins Gracelandic, Sóley Anna Jónsdóttir, forseti Mímis, félags stúdenta í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði og Jón Oddur Guðmundsson, yf...
Varnargarðarnir rísa, breytingaskeið, líffræðileg fjölbreytni 15.11.2023 55:00
Ríkisstjórnin samþykkti á dögunum að reisa varnargarða til að verja orkuverið í Svartsengi. Þetta er tröllvaxin aðgerð, garðarnir eiga að verða allt að átta metra háir, og teygja sig nokkurra kílómetra leið. Samfélagið ræðir þetta við Ara Guðmundsson, byggingarverkfræðing og sviðsstjóra hjá Verkís, en hann fer fyrir hópi stjórnvalda og almannavarna um varnir mikilvægra innviða. Breytingaskeiðið he...
Tjón eftir gliðnun og skjálfta, heimsókn til grindvískrar fjölskyldu 14.11.2023 55:00
Benedikt Halldórsson jarðskjálftaverkfræðingur ræðir ólíkt tjón eftir gliðnun og skjálfta í Grindavík. Við ræðum við grindvíska fjölskyldu sem nú dvelur í orlofsíbúð í Reykjavík; mæðgurnar Guðrúnu Kristjönu Jónsdóttur og Ingveldi Kristjönu Eiðsdóttur.
Grindavík í brennidepli; viðbrögð RKÍ, gamlar lexíur og dýrabjörgun. 13.11.2023 55:00
Samfélagið beinir sjónum sínum að ástandinu á Reykjanesi og yfirvofandi náttúruvá. Yfirvöld standa frammi fyrir ótal verkefnum - það þarf að greiða úr húsnæðismálum, skólamálum, atvinnumálum og afkomu íbúa, greiða úr ýmsu praktísku, veita stuðning og upplýsingar Alþingi kom saman til fundar í dag til að ræða frumvarp um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, frumvarp til neyðarlaga. Við hlýðum...
Borea adventures, léttum á umferðinni og dýraspjall 10.11.2023 55:00
Við ræðum við Nannýju Örnu Guðmundsdóttur, eiganda ferðþjónustufyrirtækisins Borea adventures. Þau eru að undirbúa veturinn en undanfarið hafa þau tekið á móti hópum allstaðar að úr heiminum og farið með þeim á Hornstrandir til að taka myndir af refum. Heyrum meira af því á eftir, og fyrirhugaðri ferð þeirra sjálfra til Suðurskautslandsins. Í morgun fór fram ráðstefna á vegum borgarinnar sem bar y...
Vinnustaðamenning, búseta á hjólum og kolefnismerkingar 09.11.2023 55:00
Vinnueftirlitið ýtti í gær úr vör átaki, eða aðgerðavakningu eins og þau kalla það, á baráttudegi gegn einelti. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðli að öryggi og vellíðan starfsfólks og sé ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. En hvað er þá heilbrigð vinnustaðamenning? Við komumst að því þegar Sara Hlín Hálfdanardóttir, verke...
Fjölmenning og útfararsiðir, hönnun í sýndarveruleika, vísindaspjall 08.11.2023 55:00
Aukin fjölmenning á Íslandi hefur leitt til breytinga á starfi útfararstjóra sem þurfa að laga sig að siðum og venjum ýmissa trúfélaga. Nýlega hélt samráðsvettvangur trúar- og lífsskoðunarfélaga ráðstefnu þar sem fjallað var um útfararsiði. Rúnar Geirmundsson er með þrjátíu ára reynslu í faginu, við heimsækjum útfararstofu hans og ræðum breytta tíma. Við ætlum að setja upp sýndarveruleikagleraugu...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.