RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 episodes

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Feb 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Íþróttarannsóknabylting, stytturnar á Rapa Nui og umhverfissálfræði 07.11.2023

Aðbúnaður afreksíþróttafólks á Íslandi er nú með því besta sem gerist á heimsvísu. Ástæðan er ný rannsóknastofa í íþrótta- og heilsufræðum sem var opnuð á dögunum. Við skoðum rannsóknastofuna, prófum sérhæfð tæki og ræðum við Milos Petrovic, forstöðumann rannsóknastofunnar og Þórdísi Lilju Gísladóttur, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Við ætlum að tala um frægar styttur sem standa á e...

Kolsýrður sjór, ofþyngd, málfarsmínúta og Eilífðin 06.11.2023

Carbfix hóf nýverið tilraunir á niðurdælingu á koltvísýringi með sjó, meðal annars í samstarfi við svissneska aðila. En aðferð Carbfix og niðurdæling við Hellisheiðarvirkjun hefur vakið heimsathygli. Þessar tilraunir fara núna fram við Helguvík á Reykjanesi. Við ætlum að forvitnast um þessar tilraunir með Ólafi Teiti Guðnasyni upplýsingafulltrúa Carbfix og Einari Magnúsi Einarssyni verkefnisstjóra...

Þjóðarspegillinn 2023 03.11.2023

Samfélagið sendir út beint frá Háskólatorgi í tilefni af Þjóðarspeglinum. Guðbjört Guðjónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun segir okkur upp og ofan af þessari viðamiklu ráðstefnu sem er nú haldin í 24. sinn. Og hér eru flutt hátt í 200 erindi um allt milli himins og jarðar sem tengist fræðilegri umræðu um það sem efst er á baugi innan félagsvísinda. Á að taka tillit til minja sem te...

Neyðarástand á Gaza, orkusjóður og umhverfisáhrif matreiðsluþátta 02.11.2023

UNICEF á Íslandi hefur sett af stað neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza. Við höfum undanfarið heyrt og séð sláandi fréttir af börnum í neyð þar og barnahjálp Sameinuðu þjóðanna rær nú öllum árum að því að koma aðstoð á svæðið eins hratt og hægt er. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi ræðir þetta við okkur. Orkusjóður er samkeppnissjóður sem á að styðja við orkuskipti á Íslandi. Í ár...

Gögn í gíslingu, vegandagur og meðgöngueitrun 01.11.2023

Fjarskiptastofa hélt í gær málþing undir yfirskriftinni Gögn í gíslingu. Einn þeirra sem þar talaði er Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, en hann fjallaði um sögu og þróun netárása þar sem gögn eru tekin í gíslingu. Við ræðum við Valgerði Árnadóttur, formann Samtaka grænkera á Íslandi, því það er ekki bara Allraheilagramessa í dag heldur líka alþjóðlegi vegand...

Rannsóknir á bólusetningum, þriðja vaktin og feðraveldi 31.10.2023

Við fjöllum um nýjar rannsóknir á bólusetningum á Íslandi. Íris Kristinsdóttir læknir varði á dögunum doktorsritgerð þar sem þrjár rannsóknir lágu til grundvallar. Á hagkvæmni og ávinningi bólusetninga gegn rótaveiru, útbreiðslu og bólusetningum gegn meningókokkum og bólusetningum barnshafandi kvenna gegn inflúensu. Íris segir okkur frá þessum rannsóknum og með henni er Valtýr Stefánsson Thors, ba...

Matarsóun verslana, minjar tengdar herspítala og styttan af Leifi 30.10.2023

Hvað geta verslanir gert til að minnka matarsóun? Fer mikið til spillis - við förum í hálfgerða eftirlitsferð í verslun Bónus við Skútuvog í Reykjavík og hittum þar Baldur Ólafsson, markaðsstjóra. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar hafðist fjöldi breskra og bandarískra hermanna við í Eyjafirði og ótal munir og minjar frá þessum tíma grafnir í jörðu. Brynjar Karl Óttarsson, sagnfræðingur, kennari...

Grenndargralið, hamfarir í jarðsögunni, málfar og svín á golfvelli 27.10.2023

Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar hafðist fjöldi breskra og bandarískra hermanna við í Eyjafirði. Þar voru skotæfingasvæði, braggabyggð, flugvöllur og spítali svo dæmi séu nefnd og ótal munir og minjar frá þessum tíma grafnir í jörðu. Brynjar Karl Óttarsson, sagnfræðingur, kennari og grúskari tilheyrir hópi fólks sem grefur þessa hluti upp, gúgglar þá og skoðar og heldur úti vefsíðunni grenndarg...

Launamunur kynjanna, bransaveisla og umhverfispistill um sjókvíaeldi 26.10.2023

Alls konar launamunur kynjanna er staðreynd. En hvað er á bak við allar prósenturnar? Hvernig er launamunur metinn og hvernig metur samfélagið virði ólíkra starfa? Virkar jafnlaunavottun eða festir hún einfaldlega kynbundinn launamun og vanmat á störfum kvenna í sessi? Helga Björg Ragnarsdóttir framkvæmdastýra Jafnlaunastofu ræðir um þetta. Hrefna Helgadóttir, kynningarstjóri ÚTÓN, Útflutningsskri...

Virkjanaviðhorf, ný skip og gömul, málfar og ræktun líffæra 25.10.2023

Helmingur landsmanna telur að íslenskt samfélag þurfi að nýta sem flesta virkjunarkosti en ekki hvaða kosti sem er og ekki í hvaða tilgangi sem er. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar þar sem aðaláherslan var á vindorkuver og alveg skýrt að fólk vill fáa stóra vindorkugarða í stað margra lítilla - ef það vill virkja vindinn yfirleitt. Við ræðum við Kjartan Ólafsson, félagsfr...

Kvennaverkfall, Tómas á toppnum og umhverfissálfræði 24.10.2023

Það hefur ekki farið framhjá mörgum að konur og kvár leggja niður störf í dag. Tugir samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks standa að verkfallinu. Þar á meðal eru Stígamót og fyrir hönd þeirra er Drífa Snædal í framkvæmdastjórn Kvennaverkfallsins. Við hringdum í Drífu sem var að gera sig klára fyrir stóran útifund við Arnarhól. Kynbundinn launamunur verður þar í forgrunni og ólaunuð störf kv...

Áhrif kvennaverkfalls, greining strokulaxa, málfar og kvennafrí 1975 23.10.2023

Samfélagið verður áfram með hugann við kvennaverkfallið og áhrif þess á Samfélagið og lykilstarfsemi. Við ræðum við bæjarstjóra, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum, formann Flugfreyjufélagsins og mannauðsstjóra Ísavía. Hafró og Matís hafa undanfarið staðið í ströngu við að erfðagreina meinta strokulaxa, magnið er svona á við tvær þrjár meðalfrystikistur, og þau eru rúmlega hálfnuð með ver...

Tímavél til 24. október 1975, ferðasumarið 2023 og sindraskel. 20.10.2023

Við bregðum okkur í tímavél, rifjum upp Kvennafrídaginn árið 1975 og ræðum við tvær konur sem eiga ljóslifandi minningar frá þessum degi. Önnur var í vinnubúðum uppi í sveit, hin stóð á sviðinu á Lækjartorgi. Ferðasumarið 2023. Ferðamálastofa tók saman ýmis gögn og upplýsingar sem tengjast komu og veru erlendra ferðamanna hér á landi. Oddný Þóra Óladóttir sérfræðingur hjá Ferðamálastofu er með þes...

Aðstæðuvitund, ráðherra loftslagsmála og félagsþjónustan um bruna 19.10.2023

Fyrirtækið Snjallgögn ehf. hefur búið til hugbúnað sem nýtir gervigreind með aðstæðuvitund, eins og það er kallað, þar sem upplýsingar um atburði, veður, komur skemmtiferðaskipa og fleira eru nýttar til að bæta söluspár og bregðast við ytri aðstæðum - sem geta verið óvæntar. Stefán Baxter framkvæmdastjóri Snjallgagna segir okkur meira. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra,...

Umbyltingar þörf í loftslagsmálum, bruni á Funahöfða og vísindaspjall 18.10.2023

Í morgun kom út fjórða skýrsla Vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Þar segir meðal annars að skýrslan staðfesti, svo ekki verður um villst, að loftslagsbreytingar séu byrjaðar að breyta náttúrufari og lífsskilyrðum fólks á Íslandi með vaxandi áskorunum fyrir efnahag, samfélag og náttúru. Það þurfi umbyltingu í lífsháttum og umgengni við náttúruna í hér á landi og draga þurfi úr losun eins hratt...

17.10.2023
Tækjaþon, viðhaldsmeðferð á Vogi og heimsókn á Þjóðskjalasafnið. 16.10.2023

Saman gegn sóun, Úrvinnslusjóður, Sorpa og Tækniskólinn stóðu um helgina fyrir svokölluðu tækjaþoni þar sem nokkur teymi öttu kappi og reyndu að finna leiðir til að nýta raftæki betur - en raftækjasóun hér á landi er með því mesta sem gerist. Við ræðum við Birgittu Steingrímsdóttur og Hildi Mist Friðjónsdóttur, sérfræðinga í teymi hringrásarhagkerfis á Umhverfisstofnun um tækjaþonið og verðlaunati...

Líffræðiráðstefnan - bjór, uppruni landnámsmanna og óvinsælir fuglar 13.10.2023

Samfélagið sendir út frá líffræðiráðstefnu Líffræðifélagsins. Þessi stóra og fjölmenna ráðstefna fer fram annað hvert ár og er nú haldin í 11. skipti í Öskju - náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands og húsi Íslenskrar erfðagreiningar. Á ráðstefnunni er fjallað um allt milli himins og jarðar; vísindi og sögu bjórs - drykkjarins, ekki dýrsins, mannerfðafræði og óvinsæla fugla. Ásthildur Erlingsdóttir er s...

Ópíóíðafaraldurinn, brot á vinnumarkaði og eitruð tíska. 12.10.2023

Fíkniefnaheimurinn er orðinn harðari og breytist hratt. Inga Hrönn Jónsdóttir þekkir þennan heim af eigin raun, hún er edrú í dag og ræðir við okkur um sína reynslu og sýn á hvað megi betur fara þegar kemur að meðferðarúrræðum, heilbrigðisþjónustu og stuðningi við fólk í neyslu - en líka um forvarnir og mikilvægi þess að hlúa vel að börnum og ungmennum. mál hafa verið í deiglunni eftir þátt Kveiks...

Grænir skátar, matjurtaræktun við fjölbýlishús og vísindaspjall 11.10.2023

Við kynnumst starfsemi Grænna skáta, þið kannist kannski við flöskugáma þeim merktum, starfsemin er umfangsmikil, tvær móttökustöðvar, þrjátíu starfsmenn flestir með skerta starfsgetu og milljónir dósa, að sjálfsögðu - þetta er ógurlegt umstang en fer langt með að fjármagna skátastarf á Íslandi. Við ræðum við Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóra, Júlíus Aðalsteinsson, rekstrarstjóra og fleiri. VIð...

10.10.2023
Tóm Laugardalslaug, Dofri, Seðlabanka mótmælt 1973 og málfar 09.10.2023

Laugardalslaugin er tóm. Þar er hvorki vatn né fólk þessa dagana vegna endurbóta. Árni Jónsson er forstöðumaður laugarinnar og hann tók á móti Samfélaginu þar í morgun og sagði frá því sem þar stendur til. Og það er margt. Svo ætlum við að rifja upp viðtal sem við áttum við Bjarna Bjarnason snemma á þessu ári. Hann var þá við það að hætta störfum sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. En hann sagði...

Loftslagsaðlögun, Sundabraut, málfar og Guð blessi Ísland 06.10.2023

Loftslagsbreytingar ógna innviðum, náttúru og mannslífum á Íslandi og við því þarf að bregðast. Stjórnvöld kynntu á dögunum tillögur að aðlögunaráætlun, Loftslagsþolið Ísland. Hlutverk sveitarfélaganna er stórt í því samhengi. Við ræðum það við Hrönn Hrafnsdóttur, sérfræðing í loftslagsmálum hjá Reykjavíkurborg. Við tölum um Sundabraut. Vegagerðin heldur þessa dagana opna kynningarfundi um þá risa...

Skaðaminnkun og mismunandi aðferðir við moltugerð 05.10.2023

Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun, var meðal þeirra sem horfðu á innslag Kveiks á þriðjudaginn var, um ópíóíðafaraldurinn á Íslandi og aðstæður fólks í mikilli neyslu. Við ræðum við Svölu um stöðuna og það sem henni finnst þurfa að breytast til þess að fólk eigi séns. Við fjöllum um moltugerð og tilraunaverkefni á vegum Reykjavíkurborgar en í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi - þar...

Bólusetningar, gámadýfingar, málfar og vísindaspjall um nóbelsverðlaun 04.10.2023

Við tölum um bólusetningar og bóluefni. Nú hefur verið ákveðið að bjóða öllum börnum í 7. Bekk bóluefnið Gardasil sem er notað sem vörn gegn hpv veirum, sem geta meðal annars valdið krabbameinum. Áður var annað bóluefni aðeins gefið stúlkum. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir yfirlæknir bólusetninga hjá sóttvarnalækni ætlar að útskýra þetta fyrir okkur og ræða við okkur almennt um bólusetningar barna o...

Listen to the Samfélagið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.