Reglubókaklúbburinn
Reglubókaklúbburinn
Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.
Author
Reglubókaklúbburinn
Category
Podcast website
Latest episode
Sep 28, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur 13: Stjörnustælar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Starfinder 2e 28.09.2025 1:28:02
Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng), ekki-væringjar og rosa margt annað skrýtið sem býr hérna á þverskurði vísinda og fantasíu. --- Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-...
Þáttur 12: Kappar í kúluregni - kjarnabók Outgunned 04.09.2025 1:01:10
Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru Reglubræður mættir til að rýna í Outgunned eftir Two Little Mice. --- Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar. --- Í...
CR, DH og D&D 30.08.2025 14:35
Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins. --- Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar þar sem er hægt að finna bæði regluverk fyrir D&D 2024 og Daggerheart ásamt hinum ýmsu tólum og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar. --- Í hlekkjum Reglunnar Fireside Chat LIVE With Mat...
Þáttur 11 - Fimmheimaflakk fyrir byrjendur - Index Card RPG: Master Edition 02.02.2025 1:56:08
Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum sem fyrirfinnst! --- Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar. Við þökkum einnig Bibba og Tryggva í Svörtu tungunum fy...
Millibilsástand 07.11.2024 1:07:17
Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra. --- Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal reynist enn dyggur kostunaraðili Reglunnar og í framvarðasveit spunaspilara nær sem fjær. --- Blússandi meðmæli Reglunnar NIGHT'S BLACK AGENTS sarpur á slikk "When We Were Wizards" hlaðvarpið Dung...
Þáttur 10: Ofskömmtun heiftar og vonleysis - Kjarnabók Werewolf: The Apocalypse (5. útgáfa) 14.08.2024 3:24:09
Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem stolt Garou í einum, seinasta dýrðarljóma Gaia? --- Reglubókaklúbburinn hámar í sig Werewolf: The Apocalypse eins og óð varúlfafylking gegnum yfirgefna vöruskemmu við enda bæjarins þökk sé Quest...
Þáttur 9: Brostni vegvísirinn - Broken Compass Adventure Journal 28.07.2024 1:55:10
Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal . --- Blússandi meðmæli Reglunnar The Lost Jewels of Eire eftir 1 Shot Adventures Reglubókaklúbburinn - Umræðuvettvangur - 107 meðlimir komnir, endilega melda sig þar á bæ. Spunaspil á Skaganum - fyrrum áhafnarmeðlimur Sædísarinnar og flott eintak a...
Bitastæður bónusþáttur: Í hlekkjum góssins (Free RPG Day '24) 06.07.2024 26:09
Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní. --- Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal , kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama örlagavalda. --- Hlekkir á ævintýrin og kerfin í þættinum Free RPG Day - Hvað er það og hver tóku þátt? Pathfinder 2e: Poppets in Peril og Starfinder 2e: Second Contact frá Paizo Not a Drop t...
Þáttur 8: Uppdubbaðir Paþþapjakkar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Pathfinder 2e 30.06.2024 2:29:13
Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e . — Líkt og Aroden til hins forna er það Quest Portal sem upphefur Regluna sem hennar kostunaraðili. — Player Core 1 er að finna í Nexus og meira að segja í öllum þeim útgáfum sem Reglan hafði við hönd: Player Core 1 (staðlaða kápan) Player...
Þáttur 007: Í víðáttu brennandi spegla - Night's Black Agents 25.04.2024 2:39:44
Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að vera hakkari á heimsklassa til að njóta góðs af þeim stafrænu verkefnum sem Quest Portal , bakhjarl Reglubókaklúbbsins, býður upp á fyrir öll möguleg verkefni. Hvort sem það er að kljást við h...
Þáttur 6: Samansafn fanta og fúlmenna - Star Wars: Edge of the Empire 25.03.2024 1:43:55
Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni. --- Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal sem er með hýperdrifin verkfæri fyrir ævintýrin sem eiga sér stað endur fyrir löngu á fjarlægri vetrarbraut. --- Vákar, vélmenni og ótótlegir nerf-hirðar geta nálgast eintak af Star Wars: Edge of the Empire ás...
Þáttur 5: Míkródósun örvæntingar - Kjarnabók Vampire: The Masquerade 01.03.2024 1:34:55
EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími heilsugæslunnar er að finna í s. 1700, Hjálparsími Rauða Krossins er 1717. Netspjall Heilsuveru býður einnig upp á aðstoð auk þess sem Píeta-samtökin er að finna í s. 552-2218. Þau sem hafa misst ástv...
Bitastæður bónusþáttur: Eyjaplayer - Viðtal við Eyþór Viðarsson 23.02.2024 33:43
Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það tekur til að búa til raunspilunarhlaðvarp, var Eyþór meira að segja svo vinalegur að mæta með stuttan ríg í stúdíóið fyrir Regluna að kjammsa á. Líkt og áður er það Quest Portal sem styður...
Þáttur 4: Billy-hilla drunga og dauða - Mörk Borg 11.02.2024 1:08:49
Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu. --- Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum Glæsibæjar , hjá alkemistum harmleiksins og er Basilisk þáttarins með hin ýmsu verkfæri til að undirbúa þín eigin Ragnarök. --- Blússandi meðmæli Reglunnar Spunaspilavinir #20 Bókasafn Hafna...
Þáttur 3: Bófalegt muldur um Rýtinga í rökkri 05.01.2024 1:09:08
Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í gegnum þriðju gráðuna. Modus operandi Reglunnar er miðlað til hlustenda þökk sé Quest Portal sem hefur fingraför sín á þessum þætti. --- Grunnreglur Blades in the Dark er m.a. hægt að finna...
Krísufundur: Hin brauðsneiðin af hálfvitasamlokunni 17.12.2023 51:11
Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr rústunum. --- Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni. Reglubókaklúbburinn er í boði Quest Portal. --- Blússandi meðmæli Reglunn...
Jólagestir Reglubókaklúbbsins 08.12.2023 2:06:14
Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri. Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari fjölheimaflækju, finnur hún flottar gjafir á leiðinni og enn flottari félaga sem hjálpa að finna út úr þessu ástandi og árinu sem er senn að líða. --- Jólagestir Reglubókaklúbbsins '23: P...
Bitastæður bónusþáttur: Örlagaþræðir Lágmúlans - Teppavirki eftir Stefán Ingvar 25.11.2023 23:13
Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr. Af því þú ert teppi. En hann stendur fyrir framan þig í dágóða stund... Klósettið? Það er reyndar bara fyrir starfsfólk. Allt brennur þó niður að lokum. Hver einasti þráður verður að sviðinni jörðu og han...
Þáttur 2: Fálmar í þokunni - Regluverk Varðarins fyrir Call of Cthulhu 7e 23.11.2023 1:15:55
Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir á geði. Eflaust muntu fyrst uppnefna okkar, kalla geðsjúka og æra, jafnvel sturlaðri en sá sem setti sama þessi skelfilegu bók. Síðar munu áheyrendur setja allt það er við leggjum á borð og...
Þáttur 1: Stofnfundur - Leiðarvísar leikmanna fyrir 2e og 5e 12.11.2023 1:19:00
Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka. Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram reykelsi ásamt vígðu vatni og með vel æfðum handabendingum og arkanískri þulu er rýnt í tvær bækur á sama tíma og gert með meðbyr þökk sé bandalagi Föruneytisins við Quest Portal ...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.