Poppsálin

Poppsálin

Health IS ↓ 112 episodes

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar. 

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.facebook.com

Author

Poppsálin

Category

Health

Podcast website

www.facebook.com

Latest episode

Aug 9, 2023

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Íris Hólm - Jaðarpersónuleikaröskun, tilfinningaflóðið og ofurkraftarnir 11.03.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við söngkonuna Írisi Hólm um jaðarpersónuleikaröskun, fordóma, tilfinningaflóð, sjálfsvígshugsanir, ofurkraftana sem fylgja og það hvernig listin getur hjálpað. Þetta er ótrúlega mikilvægt málefni en svo virðist sem það sé ennþá tabú og upplifa margir fordóma þegar þeir segja frá þessari röskun. Í þættinum ræðum við um vanlíðan og sjálfsvígshugsanir og vilj...

Af hverju syrgjum við frægt fólk? 04.03.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni verður fjallað um sorgina og af hverju við syrgjum fræga einstaklinga. Farið verður í reynslusögur einstaklinga sem hafa upplifað sterkar tilfinningar þegar frægur einstaklingur fellur frá. Hvernig leið okkur þegar Díana prinsessa lést, David Bowie, Kurt Cobain eða Robin Williams? Kafað verður ofan í sálfræðilegar pælingar um það af hverju við syrgjum fólk sem við þek...

Hvílir bölvun á Glee þáttaröðinni? 25.02.2021

Í þessum þætti verður farið yfir röð óhugnanlegra áfalla sem dunið hafa yfir leikara og starfsmenn Glee þáttanna. Sérkennileg dauðsföll, sjálfsvíg, barnaníð, eiturlyf, skilnaðir, ofbeldi, einelti og fleira hræðilegt hefur loðið við þættina.    Margir vilja meina að bölvun hvíli á meðlimum Glee þáttanna og verður farið í þær pælingar sem og sálfræðilegar skýringar bak við slíkar hugmyndir. 

Frelsum Britney - Þriðji þáttur 17.02.2021

Í þessum þætti er farið ítarlega yfir #FreeBritney málið.  Fjóla Heiðdal aðdáandi Britney Spears  og Daniel Oliver söngvari og veitingastaðaeigandi mæta í Poppsálina og kryfja málið.  Hvað varð til þess að Britney missti sjálfræðið? Væri staðan öðruvísi ef Britney væri karlmaður?  Hvað kom fram í myndinni Framing Britney? Hver eru Lou Taylor, Samuel Ingham og Andrew Wallet? Eru breytingar í vændum...

Svala Björgvins - Kvíðaröskun og tónlistin 10.02.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við popp-drottninguna Svölu Björgvins um kvíða, tilfinningar, sambönd og tónlistina. Svala lýsir kvíðaröskun sem hún hefur lengi verið að glíma við, þróun röskunarinnar og áföll sem ýtt hafa undir kvíðann.  Svala segir svo opinskátt og einlægt frá sinni  reynslu og því ekki annað hægt en að hlusta.  Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla...

Mannát og Armie Hammer 04.02.2021

Í þessum þætti verður farið í nýlegt mál, en The Social Network leikarinn Armie Hammer hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið vegna skilaboða sem hann hefur sent til nokkurra kvenna.  Hann segist vera mannæta og vilji borða þær. Nokkrar hafa stigið fram og sagt frá reynslu sinni af honum og ofbeldinu og verður farið í það í þættinum. Einnig er fjallað um kynlífstengdar raskanir  sem gætu ten...

Narsismi, lygar og Donald Trump 28.01.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni verður farið í narsisma, sjálfsdýrkunar persónuleikaröskun, samviskubits aðferðir, gaslýsingu og narsisískan leiðtogastíl. Karakter og hegðun Donald Trumps verður skoðuð og gerð tilraun til að greina persónuleika hans. 

Guð heilkennið, sértrúarsöfnuður og Kanye West 21.01.2021

Í þessum fimmta þætti af Poppsálinni verður farið yfir sögu Kanye West og umdeilda hegðun hans. Sagt verður frá hugmyndum hans um guð, trúarbrögð og eigin hæfileika. Sunnudagsmessurnar,  Taylor Swift fíaskóið,  geðhvarfasýkin, mikilmennsku hugmyndir og guð heilkennið eða Messiah heilkennið. 

Grunsamlegt dauðsfall Brittany Murphy 15.01.2021

Clueless stjarnan Brittany Murphy lést skyndilega árið 2009, þá einungis 32 ára gömul. Talið er að hún hafi fengið hjartaáfall eftir lungnabólgu, járnskort og lyfjanotkun.  En 5 mánuðum seinna deyr eiginmaður Brittany, á sama stað og á nákvæmlega sama máta! Hvað kom fyrir þau? Hvernig tengist Britney Spears málinu, landamæraeftirlit Bandaríkjana, siðblinda og persónuleikaröskun og sérkennilegt sam...

Kynlífsröskun og raunveruleikaþættir 10.01.2021

Í þessum þætti verður farið í vinsældir raunveruleikaþátta og ástæður þess.  Farið er í ólíkar tegundir af raunveruleikaþáttum, dramatíska ástarþætti eins og Love Island og The Bachelor, hönnunarþætti, matreiðsluþætti og fleiri.  Fjallað verður um nokkrar ólíkar sálfræði kenningar sem reyna að útskýra af hverju við höfum gaman af raunveruleikasjónvarpi.  Ein slík tengist kynlífsröskun!!!

Frelsum Britney - Annar þáttur 06.01.2021

Í þessum öðrum þætti af Poppsálinni er farið yfir #FreeBritney málið.  Farið verður í hvað leiddi til sjálfræðissviptingar, hvað felst í því að missa sjálfræðið og hvort eitthvað sé til í hreyfingunni Frelsum Britney eða #FreeBritney sem heldur því fram að verið sé að kúga Britney og frelsissvipta af ástæðulausu. 

Frelsum Britney - Fyrsti þáttur 05.01.2021

Í þessum fyrsta þætti af Poppsálinni er farið yfir #FreeBritney málið. Farið er yfir sögu Britney Spears, afrek hennar og bakslög, hvað leiddi til sjálfræðissviptingar og hvort eitthvað sé til í hreyfingunni Frelsum Britney eða #FreeBritney sem heldur því fram að verið sé að kúga Britney og frelsissvipta af ástæðulausu. 

Listen to the Poppsálin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.