Poppsálin

Poppsálin

Health IS ↓ Odcinki: 112

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar. 

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.facebook.com

Autor

Poppsálin

Kategoria

Health

Strona podcastu

www.facebook.com

Ostatni odcinek

9 sie 2023

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams 09.08.2023

Hvað er að gerast hjá Bruce Willis? Á hann mögulega lítið eftir? Hvað kom fyrir Robin Williams? Bruce Willis og heilabilunin,  Frontotemporal dementia Robin Williams og þunglyndi og Lewy body dementia

OCD - Kynferðislegar þráhyggjuhugsanir og fjögurra daga meðferðin 31.07.2023

Í þessum þætti verður fjallað almennt um þráhyggju og áráttu eða OCD.  Sérstök undirtegund  þráhyggju verður skoðuð eða kynferðislegar þráhyggjuhugsanir eins og gagnvart fjölskyldumeðlimum eða öðrum. Rætt verður við Ásmund Gunnarsson frá Kvíðameðferðarstöð um fjögurra daga meðferð við OCD og árangur þeirrar meðferðar. 

Andrew Tate, Loverboy aðferðin og narsisismi 21.07.2023

TW Rætt er um mansal, narsisisma, kynferðislegt ofbeldi og Andrew Tate Stuttlega farið í mál Andrew Tate, Loverboy mansals aðferðina og við fáum að heyra hljóðbrot af umræðu um narsisisma. 

Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð 13.07.2023

TW Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð Í þessum þætti er fjallað um sjálfsskaða. Fjallað er um hvernig sjálfskaði birtist, mögulegar orsakir, tengsl við aðrar raskanir eins og ADHD og jaðarpersónuleikaröskun. Í þættinum fáum við að heyra reynslusögur og hjálplegar leiðir til að takast á við sjálfsskaða.  Þessi þáttur getur verið erfiður fyrir einstaklinga sem eru að glím...

Sértrúarsöfnuðurinn Peoples Temple og fjöldamorðið í Jonestown 05.07.2023

TW - sjálfsvíg, fjöldamorð og ofbeldi Í þessum þætti er fjallað um sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og hræðilega atburðinn sem átti sér stað í Jonestown.  Málið verður skoðað frá sálfræðilegu sjónarhorni 

Geta börn fæðst vond? Saga Beth Thomas og fleiri "vondra" barna 29.06.2023

Geta börn fæðst "vond"? Er illskan meðfædd eða getum við alið upp "vond" börn? Vanræksla, heilastarfsemi, munaðarlaus börn og "vonda" stelpan Beth Thomas

Fyrra líf, endurholdgun og Déjá vu 21.06.2023

Í þessum þætti er fjallað um fyrirbærið Déjá vu sem við mörg upplifum og tengsl þess við sögur barna af fyrra lífi eða endurholdgun. 

Djöflafárið í leikskólum Bandaríkjanna 14.06.2023

Í þessum þætti er talað um mjög viðkvæmt efni, kynferðislegt ofbeldi, bældar minningar og falskar minningar.  Fjallað er um djöfladýrkenda faraldurinn eða satanic panic í Bandaríkjunum í kringum 1980 og 1990. Sagt er frá kynferðisafbrotamálum á leikskólum sem urðu að djöflatrúamálum. 

Falskar játningar - Guðmundar- og Geirfinnsmálið 07.02.2023

Í þessum þætti verður farið stuttlega fyrir eitt af þekktustu sakamálum Íslands, Guðmundar og Geirfinnsmálið. Fjallað verður um falskar játningar og sálfræðina bak við slíkar játningar. 

Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun 29.12.2022

Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum  allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa, fanga og fangaverði. Markmiðið var að kanna áhrif aðstæðna á hegðun fólks. 

Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum 26.10.2022

Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum! Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri.  Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur

Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna? 26.10.2022

Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu.  Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna.   Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgát...

Persónaleikaraskanir og undirflokkar 26.10.2022

Jaðarpersónuleikaröskun, narsisimi, siðblinda og fleira. Hér er smá aukaþáttur í tengslum við Poppsálarþáttinn um súpermömmuna sem hvarf sem gefinn var út 2. maí. 

Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði? 17.10.2022

Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar.  Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á Norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku.  Þátturinn er á köflum frekar lýsan...

Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun 17.10.2022

Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu? Þetta er gamall þáttur og var áður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Þátturinn tengist öðrum þætti sem nefnist: Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf

Incels morðin 17.10.2022

Í þessum þætti verður áfram fjallað um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum.  Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur og tengist eldri þætti um Incels sem nefnist:  "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"

Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilinu 08.09.2022

Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur.  Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum.   Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandar...

Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilum í Utah (Áskriftarþáttur) 09.08.2022

Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum.   Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum.  Þetta er aukaþáttur fyrir ás...

Réttarsálfræðileg greining á Yorkshire Ripper 09.08.2022

Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe, oft þekktur sem Yorkshire Ripper. 

Y2K: Endurkoma 90s tískunnar og heróínlúkksins 09.08.2022

Lokaþáttur Poppsálarinnar (í bili allavega).  TW: Átraskanir Í þessum þætti verður fjallað um endurkomu 90s tískunnar eða aldamótatískunnar. Rætt verður um fegurðarviðmið þess tíma og tengslin við gríðarlega aukningu á átröskunartilfellum á tímum Covid-19. Takk kærlega fyrir að hlusta elsku Poppsálar hlustendur. Ef þið hafið áhuga á fleiri þáttum þá má finna um 15 aukaþætti inni á Patreon.com

Fyrsta ástin: Ýktar tilfinningar, hormónar og ástarsorg. 07.08.2022

Í þessum þætti er fjallað um fyrstu ástina. Nýju og ýktu tilfinningarnar, fyrstu skrefin í heimi fullorðinna, hormónar, heilastarfsemi og ástarsorg.  TW: Rætt er um tengsl ástarsorgar og sjálfsvíga. 

Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Allur þátturinn) 04.08.2022

Hér er aukaþáttur sem áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon fengu í júlí. Þið fáið þáttinn í fullri lengd núna  því Poppsálin er enn í smá sumarfríi ;) Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá rét...

Greiningar geðlækna á Anders Breivik (Áskriftarþáttur) 24.07.2022

Þessi þáttur tengist þættinum um hryðjuverkin í Útey. Hér er farið yfir skýrslur geðlækna og sálfræðinga um Anders Breivik, hryðjuverkamanninn sem drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Er Breivik geðveikur? Er hann ósakhæfur? Er hann bara vondur? Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér:  https://www.patreon.com/Poppsalin

Hryðjuverk í Útey - Ótrúleg frásögn Adrian Pracon 23.07.2022

11 ár eru frá hryðjuverkunum í Noregi þar sem Anders Breivík drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Í þessum þætti verður sögð  ótrúleg saga eins eftirlifanda, Adrian Pracon.  Hægt er að nálgast aukaþátt um hryðjuverkamanninn Anders Breivík á Patreon.  https://www.patreon.com/Poppsalin

Ariana Grande: Eltihrellar, hryðjuverkaárás og menningarnám 17.07.2022

Í þessum þætti er farið yfir atburði og áföll í lífi söngkonunnar Ariana Grande. Stalkerar, hryðjuverkaárásin í Manchester, neikvæða umfjöllunin og menningarnám.  Einnig er talað um sálfræðihugtökin parasocial relationship og PTSD eða áfallastreituröskun og CPTSD.

Słuchaj podcastu Poppsálin w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS