Podkastalinn
Podkastalinn
Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.
Author
Podkastalinn
Category
Podcast website
Latest episode
Mar 20, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#37 Q með Atla Fannari 19.01.2021 1:57:47
QAnon er sennilega það allra heitasta í samsæriskenningageiranum þessa dagana. Hver á ekki laufléttan frænda á facebook sem trúir því staðfast að Trump sé frelsari vorra tíma, að Obama borði börn með bestu list og að það sé eitthvað STÓRT handan við hornið? Í þættinum kemur Atli Fannar í heimsókn til að ræða Q, kenningarnar, stuðið og stemninguna.
#36 Gestalæti 14.01.2021 1:20:57
Í fyrsta sinn í sögu kastalans hefur gestur hreiðrað um sig í turninum háa. Hann er langur og mjór eins og fyndið typpi, heitir Björn Geir og er vinur okkar frá Keflavík. Í þættinum segir hann okkur lauslega frá því hvernig er að vera gaur sem er til, fyrst í keflavík og svo 7 ár í oakland, california.
#35 Podkastalandinn 12.01.2021 1:12:08
Hve marga þvala áhugaljósmyndara þarf til að ljósmynda séð og heyrt stelpu? Hve marga fretandi rassa þarf til að skjóta rappvídjó? Hve léttir geta tveir vinir verið á meðan veröldin skíðlogar, ill öfl hafa fundið sér leið úr iðrum jarðar og það er janúar og veðrið súrt? Mjög!
#34 Svartur beanie 07.01.2021 57:34
Húfur: Yfir eyrun eða aðeins rétt á toppi höfuðsins eins og smokkur áður en maður hefst handa við að renna honum niður skaftið? Og talandi um höfuð:Treystiru heilaskurðslækni sem sem ætlar að krukka í þér ef hann kaus Guðmund Franklín? Litlu málin eru HUGE í dag. Gauti segir frá óþolandi leyndarmáli um áramótaskaupið og yo hvaða 3d tónleika stunt var þetta á eftir skaupinu?
#33 Síðasta sjoppuferðin 07.01.2021 1:12:39
Podkastalamenn eru mættir feitir og endurnærðir eftir gott frí. Hvern hefði grunað að það yrði annað season? Eflaust öllum sem hlusta reglulega á þáttinn. Podkastalinn dembir sér beint í djúpu laugina eða öllu heldur á djúpa vefinn og Arnar reynir að komast að því hvað það kostar að drepa Gauta. Sú upphæð er eflaust ódýrari en að vera með skemmtipakka í áskrift frá Stöð 2. Afhverju eru menn alltaf...
#32 Season eitt FINALE 22.12.2020 1:21:14
2020, what a ride! Alvöru böllur á þessu ári. Kastalinn var endurbyggður á einni nóttu í sumar og hefur síðan þá sett sterkan svip á borgarmyndina með háum, skökkum turnum og fallbyssuskotum. Í dag fögnum við og kveðjum og hlæjum og grátum í einum rykk því líkt og árið er season 1 á enda. Þetta var frábært season, það besta segja sumir, en þetta er komið gott. Season 2 hefst á nýja árinu og það er...
#31 Friends bloopers 17.12.2020 1:00:53
Fólk treystir meira á varalestur en það gerir sér grein fyrir og það hlustar af ekki af jafn mikilli athygli og það lætur í ljós. Hvað gerist þá þegar varir eru huldar með þar til gerðum grímum svo fólk þarf alfarið að treysta á hlustun í munnlegum samskiptum? Hlustið og þér munið amk komast að því hvernig Gauti dílar við það. Í þættinum ræða strákarnir líka cool dót eins og flash mob og stomp tón...
#30 Sænskir Handrukkarar 15.12.2020 54:26
Hvernig tókst Gauta að eyða sólarhring í að kaupa tóbak? Afhverju fór hann ekki bara að hitta sænsku handrukkarana sem eru búnir að opna útibú útum allan bæ? Eru vapesölumenn svölustu gaurar í heimi? Svarið er augljóst en því er svarað í þætti númer þrjátíu af Podkastalanum. Uppeldisaðferðir Podkastalans koma fram í þættinum en svo fer umræðan aftur að nikótíni. Það eru miklar líkur á því að þú by...
#29 Himmelbjerget 10.12.2020 1:03:48
Eftir stuttar barsmíðar á brekkunni Himmelbjerget í Danmörku kafar Podkastalinn í pósthólfin sín. Þar er að finna allskonar heimspekilegar vangaveltur um hina og þessa hluti úr daglegu lífi hlustenda. Hvort sem það er umræðuefni, ástarjátningar, spurningar um lífið eða spam þá hvetjum við hlustendur kastalans að senda okkur skilaboð ( instagram / facebook ). Finndu Podkastalann á samfélagsmi...
#28 mömmurapp 08.12.2020 58:58
30. júlí 2020 sendir Gauti frá sér tweet sem hefur afleiðingar. Fólk snappar. Afhverju skrifaði Gauti tweetið? Afhverju snappaði fólk? Hefur Gauti recoverað að fullu? Arnar rannsakar málið og slakar ekki á fyrr en öll kurl eru komin til grafar.
#27 Geislavirkur úrgangur 03.12.2020 1:07:47
Podkastalamenn fara yfir gamla drauma um að drekka geislavirkann vökva til þess að öðlast ninjahæfileika. Þeir ræða um gæludýr en fara svo yfir það hvernig sé best að slást við villt dýr í náttúrunni. Kóngarnir í kastalanum eru orðnir betri í að svara innsendum fyrirspurnum og taka fyrir nokkur vel valin mál.
#26 Hvíslenska 01.12.2020 59:13
Vampírur, kvíði, fóbíur, myrkur og Ole Lund Kirkegaard lífvana í skafli. Úff! Þátturinn er drungalegur enda veturinn vel á veg kominn og vonleysið sjaldan meira en á þessum árstíma. Strákarnir spila dularfulla upptöku sem breytir öllu um sakleysislegar hugmyndir þeirra um sund, potta og busl. Varúð, kæru hlustendur, fólk er ógeð.
#25 Á hálum ís 26.11.2020 1:08:42
Finnst pöddum við líka ógeðsleg? Eru blobfiskar í neyslu? Strákarnir opna þarfa umræðu um bodyshaming í hafinu. Mun veganismi taka bluetooth karla úr umferð? Strákarnir fara í ísbúð og fremja harakiri. Hvaða bragðarefur er bestur? Hvað er bannað að gera í ísbúð? Til hvers að fara út að hlaupa? Frá hverju ertu að hlaupa? Hvað var Gauti að gera í fína hverfinu úti á nesi klæddur eins og þjófur? Hvað...
#24 1997 24.11.2020 1:10:07
Árið er 1997. Hárið er aflitað og spiky, hjartað í þér slær fyrir Sarah Michelle Gellar og þú ert með nýja bók um galdrastrák sem er víst helvíti góð. Nema hvað árið er 2020, hárið á þér er niðurdrepandi náttúrulegum lit, Sarah hefur verið hamingjusamlega gift Freddie Prinze Jr. síðan 2002 og J.K. Rowling hefur verið aflýst. Hvað gerðist?
#23 Shang Tsung 19.11.2020 56:39
Þegar siðrofið hefst og fólk fer að éta hvert annað, með hverjum myndaru teymi til að komast af: rafíþróttamönnum eða röppurum? Ha?? Þetta og svo margt fleira, t.d. nautaat (horn á bólakaffi í bossanum í níðingum), fótboltalandsliðið (víkingaklappið, hot or not?) og þegar fólk annaðhvort rennur í hálku eða feykist um í vindi við sæbrautina og starfsmenn Advania ná því á video.
#22 Mjólk og byssur 17.11.2020 1:07:49
Í þættinum kemst Gauti að því hvað gerist ef maður kallar Arnar Sauðkrækling en ekki SauðkræKing. Strákarnir ræða áhugaverða hlið á hori sem er sjaldan rædd, velta því fyrir sér hvenær ólæst hjól verða almannaeign og stefna á lásasmiðanám. Rapparinn Ungi Besti spyr stóru spurningarinnar og karlmönnum í óléttumyndatökum er cancellað.
#21 Gauti Fischer 12.11.2020 1:02:28
Flestir vita að Gauti kann að rappa en fæstum grunar að hann sé skákmeistarinn sem hann er. En er skák íþrótt? Og enn fremur, eru tölvuleikir íþrótt? Seinast voru það töframenn og parkour hópar en nú er það eSamfélagið sem mun snappa. Það verður bara að hafa það. Strákarnir ræða ofsjónir, hor, 400 grömm af kókaíni, lottóvinninga og big ass pharma. Pakkaður þáttur þar sem það er vaðið úr einu í ann...
#20 Funny chicken logo 10.11.2020 59:32
Er rétt að þessa dagana sé blómlegur svartur markaður fyrir þá sem þrá ekkert heitar en fresh cut og axlanudd? Svo sannarlega. Kastalinn hvetur samt alla til þess að sýna styrk og safna hári og vöðvabólgu. Strákarnir halda áfram að hata símana sína, nú með sérstakri áherslu á minningarnar sem öll helstu öppin ota að manni frá morgni til kvölds en þeir jafna út hatrið með ást sinni á Hananum og öll...
#19 Beyglan í rjóðrinu? 05.11.2020 1:04:10
Gauti og dóttir hans lenda í hremmingum í elliðarárdalnum sem á orðið meira sameiginlegt með aðstæðum í i am legend með big willie en grænu fjölskylduvænu svæði á besta stað í Reykjavík. Við fáum að heyra frásögn af því og allar vekjaraklukkurnar í símanum hans Gauta. Félagarnir lesa og svara fyrirspurnum frá nokkrum hlustendum og verða meira að segja pínu alvarlegir á köflum.
#18 Riddarar Podkastalans 03.11.2020 1:10:50
Af hverju rukka tannlæknar svona sturlaðar upphæðir fyrir að putta mann í munninn? Er tannlæknirinn þinn mögulega goth undir hvíta gallanum. Gauti segir frá því þegar hann fór í covid test og var svo skammaður af sjö manneskjum í Melabúðinni fyrir að vera tillitslaus asni. Strákarnir fara yfir innsend skilaboð frá riddurum kastalans og reyna að ráða úr misgáfulegum málefnum sem berast þangað inn.
#17 Tréhús Skelfingar 29.10.2020 1:19:20
Þátturinn er með sérstöku hrekkjavökusniði og ræða félagarnir einungis það sem vekur að þeirra mati ugg og óhug, t.d. kolkrabba, flugvélar, bandorma og steypireyð. Öskudagurinn er cancelled því þetta er miklu skemmtilegri en fyrst og fremst praktískari hefð.
#16 Emmsjésen 27.10.2020 55:22
Afhverju verður besta fólk að fasistum þegar kemur að borðsiðum og kvöldmat? Við könnum málið. Gauti talar frá Serbíu og segir nöfnunum frá upplifun sinni af landi og þjóð. Mannanafnanefnd er á leiðinni í skrúfuna og strákarnir ræða hvort það sé raunveruleg hætta á því að allir taki upp nafnið Adolf Hitler. Smámálin eru funheit þessa vikuna!
#15 Parkour hasshausinn 22.10.2020 1:10:02
Orkudrykkir eru ágætir upp í mann og inni í manni en hvernig eru þeir á manni? Gauti kannar málið. Strákarnir fjalla um íþróttaálfinn, þann upprunalega, ekki straumlínulaga ofurmennið heldur mannlega parkour hasshausinn og baráttu hans við reiðmenn endalokanna: innipúkann, nammigrísinn, símalínuna, nískupúkann og leiðtoga þeirra, stirðu stelpuna. Svo tala þeir um hvað nýja 21 savage platan er gegg...
#14 69 20.10.2020 1:02:16
Arnar er hættur að virka. Sólin fór með sumrinu en tók óvart hluta af Arnari með. Gauta dreymir uppistand en gleymir öllum bröndurunum. Eitruð karlmennska og menn sem voru aldnir upp af klettum eru teknir fyrir. Hver sturlaðist þegar hann heyrði um býflugurnar og blómin? Afhverju? Hafa strákarnir stundað kynlíf eða eru þeir bara að ljúga? Er 69 fyndnasta stellingin? Litlu málin eru rædd í þessum r...
#13 17 mínútna sleikur 15.10.2020 58:53
Þessa dagana valsa menn um ganga kastalans fullir sjálfstrausts í snjóhvítum buxum. Það eru ekki einu sinni vasar á þeim, síminn og veskið eru bara einhverstaðar. Enginn hefur áhyggjur af neinu. Gauti lætur skoða á sér skinnhellirinn og Arnar fer í 17 mínútna sleik sem er met. Þetta og svo margt fleira, t.d. jólin og blaut föt.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.