Podkastalinn
Podkastalinn
Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.
Author
Podkastalinn
Category
Podcast website
Latest episode
Mar 20, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#12 Ryksuga Daglega 13.10.2020 58:35
Er í lagi að tala um börn í podkastinu eða er það gjörsamlega óþolandi topic fyrir þá sem eiga ekki börn. Eru unglingar hættulegir? Voru strákarnir hættulegir unglingar? Hver vinnur stóru flautkeppnina. Á fólk að hætta að afsaka draslið heima hjá sér og sætta sig við að við erum öll meiri svín en við þykjumst vera?
#11 Gúmmírassinn 08.10.2020 57:54
Strákar safna skeggi af því að þeir eru komplexaðir og ljótir, spurðu hvaða skeggjaða mann sem er. Gauti prófar sýndarveruleikagleraugu sem opna dyr inn í veröld sem er mun skemmtilegri en lífið sjálft. Vandinn er hinsvegar einn og aðeins einn, og hann mun verða mannsandanum að falli: Gúmmírassar
#10 Hoja Högg 06.10.2020 1:01:09
Stákarnir fara yfir allskonar lítil mál í þessum risastóra þætti. Hver vann munnlegu karate keppnina? Hvað kom fyrir Gauta þegar hann reyndi fyrir sér í fimleikum og afhverju í fjandanum var Arnar sem enginn veit hver er að gera fuglahljóð á laugarveginum. Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti af Podkastalanum.
#9 Hryllingur í Hagkaup 01.10.2020 1:01:30
Gauti er testaður af sjálfum djöflinum í jarðneska himnaríkinu sem bílastæðið við Eiðistorg síðdegis á föstudegi í rigningu er. Í leiðinni lærir hann margt um sjálfan sig. Í umferðinni er maður samt testaður af fleirum en djöflinum sjálfum, venjulegu fólki fyrst og fremst, og þá er ágætt að þekkja óskrifuðu reglurnar sem tengjast bílum, flautum, framúrakstri, lögreglunni, akreinum, road rage og pu...
#8 Sveppir og Plömmer 29.09.2020 1:01:44
Gauti er farinn að hafa verulegar áhyggjur af öllum þessum helvítis tekjumissi sem fylgir reglum og bönnum tengdum covid en deyr ekki ráðalaus og snýr sér að flugvélabraski. Strákarnir eru sammála um að það sé allavega betri fjárfesting en skafmiðar og spilakassar. Enn og aftur og ekki í seinasta skipti tala þeir um að brenna í sjálfsskaparvítinu sem öll símanotkun er en þessi hraða tækniframþróun...
#7 Hard Left 24.09.2020 54:47
Elska sjálfstæðismenn stórar búbbur en hræðast rassa? Hvað má vera í sömu sokkunum marga daga í röð? En ef það eru sokkar sem einhver snyrtilegur notaði daginn áður? Eru símaöt snilld eða hræðilegt samfélagsmein. Podkastalinn fer yfir litlu málin sem skipa stóran sess í lífum okkar allra.
#6 Bréf frá kirkjunni 17.09.2020 1:01:36
Bókaklúbbur Kastalans hefur göngu sína. Fyrsta bók á dagskrá: Dianetics – The evolution of Science. Arnar lýsir upplifun sinni af Vísindakirkjunni í Los Angeles þegar hann rambar léttblaztaður á þeirra í fund og Gauti rifjar upp erfið ár þegar þráhyggja hans fyrir tölunni 4 gerði honum lífið leitt.
#5 Skinnhellirinn 10.09.2020 1:00:02
Hversu margar köngulær borðar maður yfir ævina? Gerist það í alvörunni eða eru þær of hræddar við skinnhella? Hvað er cacao, er hægt að nota það sem andlegan leiðtoga eða leiðir það til óstjórnlegrar sjálfsfróunar. Var Jesú alltaf með júllur? Namaste!
#4 Var amma þín kona? 03.09.2020 1:05:25
Töframenn: Hvað er að þeim? Gauti mætir undirbúinn með himinháan stafla af gögnum um galdrakarla og loksins eru menn algjörlega sammála um eitthvað. Í fyrsta og hugsanlega seinasta skipti fjallar heill þáttur þannig séð um aðeins eitt topic, svo erfitt var að slíta sig frá þessu steindauða hrossi. Abrakadabra!!
#3 Með Airpods að þrífa baðið 27.08.2020 58:03
Klósett: þau eru allstaðar og allir nota þau. Heimurinn hverfist um klósett í öllum stærðum og gerðum og reglurnar sem gilda inni á baðherbergjum eru margar og flóknar. Eða hvað? Gauti misbýður nöfnunum með hegðun sinni við búðarkassa, skítur saklausa konu með byssu og Arnar þefar uppi erótík á ólíklegustu stöðum.
#1 Trúir þú á drauga? 17.08.2020 1:01:40
Gauti hittir Mr. Thug og úlfurinn verður stjörnustjarfur þegar hann hittir þáttarstjórnanda á RÚV. En hvern? Hvað er 5G? Eru draugar til? Hvernig gat Gauti ruglað Helga Björns og Ólafi Darra saman?
#2 Mávur á 9km hraða 17.08.2020 1:01:16
Maður bítur bakuggann af fyrsta laxinum sem maður veiðir en hvað gerist þegar maður veiðir fyrstu rjúpuna sína? Strákarnir öðlast ofurkrafta, rýna í litlu helvítis hlutina sem gera hús að heimili og útskýra ást.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.