Podkastalinn

Podkastalinn

Comedy IS ↓ 212 episodes

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.

Author

Podkastalinn

Category

Comedy

Podcast website

podkastalinn.libsyn.com

Latest episode

Mar 20, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#62 Ég hef aldrei séð eiturlyf 20.04.2021

„Ég hef aldrei séð eiturlyf herra forseti“ sagði mesti lúði Í slandssögunnar  og þambaði volgan bjór úr dós. Young   Thug  er hins vegar svalasti maður  íslandssögunnar  og við snertum á hans tilvist í þessum þætti. Hver er  NBA   Youngboy  og af hverju er hann svona svalur? Það eru allir fullir all the time en við skulum finna út hversu mikil prósenta af þjóðinni drekkur áfengi. Ætti  Podkastalin...

#61 Podkastalinn x Bannað að dæma 13.04.2021

Podkastalinn  er staddur fyrir norðan. Gauti fór í heimsókn og tók upp þátt með  podcastinu “Bannað að dæma”. Eru Akureyringar hjálpsamari en Reykvíkingar? Er hægt að fara í hot yoga  í Vaðlaheiðargöngunum. Hvernig eiga sumarbústaðir að vera og eru fiskar með miðtaugakerfi? Þessum spurningum er að okkur minnir svarað í þessum þætti.

#60 Spaghetti og smokkar 08.04.2021

Má bjóða þér eina  jelly   bean ? Má bjóða þér að fá pínulítið af súkkulaðikúlum í allt of stórum plastumbúðum. Fáðu þér páskaegg! Gauti segir okkur frá dularfullum hlutum sem hann gerir með tungunni og hræðilegum hlutum sem hann gerir með nefinu. Hvað eiga smokkar og spaghetti sameiginlegt? Eruði sammála Arnari að lögreglan megi berja drukkið fólk í miðbænum? En ef það er hráka í spilinu?  Podkas...

#59 Alvarlegi þátturinn: Part 2 06.04.2021
#58 Tekastalinn 01.04.2021

Podkastalinn krossar heima og tekur upp í settinu hjá stelpunum í teboðinu. Er te eða landi í tekatlinum? Eru þær alltaf fullar að taka upp þættina sína? Gauti fær sér gulltennur og Arnar noface ferðast til sexist island. Er í lagi að hringja í fólk á meðan maður er að pissa? Börn sem tengjast manni ekki eru viðbjóður. Það er þó undantekning á þessu ef þú hittir þau eru í réttu samhengi. Ef þú þar...

#57 Alvarlegi þátturinn: Part 1 30.03.2021

Er í lagi að vanrækja börnin sín ef maður breytir heiminum í leiðinni? Við ræðum Íslenskt rapp. Blaðamenn. Pólitík. Einstaklingsfrelsi. Samfélög. Heilbrigðiskerfið. Breiðholt vs Garðabærinn. Fullt af alvarlegu dóti í þessum alvarlega þætti.

#56 Eldgos og sígó 25.03.2021

Helvíti vellur í rólegheitum úr jörðu í Geldingadal. Jörðin er hætt að titra en í staðin er byrjað eldgos. Hættulegt en um leið svo fallegt og forvitnilegt... Alveg þangað til fólkið mætir. Helvítis fólkið með sígaretturnar, beikonið og illa klæddu börnin. Podkastalinn bíður ykkur velkomin í klukkutíma nöldur um skítlegt eðli mannfólksins.

#55 Chilli hnetur 23.03.2021

Lífið heldur áfram að malla eins og leiðinlegt túristagos. Hvað er að frétta? Ekki mikið en örugglega eitthvað. Hvað er langt síðan Arnar Noface var tekinn í kóngastól síðast? Muniði eftir bandí? Skautaíþróttin þar sem þú ert ekki í skautum. Má bjóða þér chilli hnetur á meðan við tökum alvarlegt viðtal um líf þitt? Punghár, blæðingar, lýtaaðgerðir og margt fleira. Leyfðu Podkastalanum að ASMR slei...

#54 Járnbrekkan 18.03.2021

Jörðin skelfur og jarðeðlisfræðingarnir aka giskararnir halda áfram að segja bara eitthvað í fjölmiðlum. Er hægt að lifa af í hrapandi lyftu ef maður hoppar rétt áður en hún lendir? Rúllustigar eru ágæt uppfinning en járnbrekkur bjóða upp á miklu skemmtilegri möguleika sem við förum yfir í þættinum.

#53 Verðlaunahross feat. Herra Hnetusmjör 16.03.2021

Það skiptir engu máli hvort þú skiljir hvað Thugga segir í laginu Lifestyle, það er besta lag sem hefur verið samið og það er ekki til umræðu. Er Kendrick Lamar nettur eða algjör lúði? Hvað kostar að halda uppi verðlaunahrossi í mánuð? En gullfisk sem borðar bara krydd? Herra Hnetusmjör mætir seint í þáttinn eins og alvöru rokkstjörnu sæmir og segir okkur frá köfurum í Dubai.

#52 Olíusmurt höfuð 11.03.2021

Hvar er Arnar Freyr? Gaurinn sem var alltaf í  Podkastalanum . Gaurinn með mannsnúðinn. Við skulum komast að því saman og smyrja höfuð hans með olíu. Er „Drottinn er minn hirðir“  banger ? Hvernig var að búa í Reykjavík fyrir hundrað árum? Voru englar guðs úr biblíunni litlir  ógeðis   perrar ? Arnar sem enginn veit hver er fer yfir hluti sem pirra hann í umferðinni.

#51 Riddarar III feat. Memes 09.03.2021

Eftir að hafa verið snitchaðir af mömmum sínum mæta Podkastalinn memes í settið og taka þá í að svara spurningum sem brenna á riddurum Podkastalans . (sendið okkur umræðuefni, spurningar, vandamál sem þarf að leysa, sögur o.s.frv. og við tökum það fyrir í næsta Riddaraþætti kastalans. Við tökum á móti efni í DM á instagram og faceook )

#50 Geit í holu 04.03.2021

Hvort er hættulegra að hoppa yfir fljótandi eldhraun eða vera með hring? Hvort er hættulegra fyrir puttana? Vita vísindamenn eitthvað um geiminn eða er starf þeirra endalaust  gisk ? Er unglingavinnan tilgangslaus eða gerir hún eitthvað gagn fyrir samfélagið? Ert þú umferðarguð? Kveiktu á  Podkastalanum  og komdu með í ferðalag um sléttur litlu málanna.

#49 Gangsta shit feat. Birgir Hákon 02.03.2021

Alltaf að muna að sleikja pokann svo Víkingasveitin brjóti ekki upp hurðina heima hjá ykkur. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sér um að selja fullorðnu fólki lögleg eiturlyf en hver sér um börnin? Eru bjórsalar að deyja út? Hvað er hættulegasta hverfið í Breiðholtinu og hvað í fjandanum er langa vitleysan? Birgir Hákon mætir seint í þáttinn eins og alvöru rappstjörnu sæmir og fer yfir málin með...

#48 Mannát og orgíur 25.02.2021

Er pláss fyrir fleiri  Eminem  eftirhermur í heiminum. Svarið er nei. Má horfa á myndir með mönnum sem eru  cansellaðir  ef myndirnar voru gerðar áður en þeim var  cansellað ? Af hverju er efri millistéttarfólk með þráhyggju fyrir hænum og hvernig stendur á því að þær eru alltaf að sleppa? Tjúnaðu inn fyrir tímamóta kenningu Arnars sem enginn veit hver er sem tengist mannáti og  orgíum .

#47 Tribal geimvera 23.02.2021

Það er manneskja sem hittir ykkur öll einu sinni á ári og þrífur ykkur. Manneskja sem sér ykkur vaxa og dafna. Hver er það? Hvenær á fólk að byrja að afskræma líkamann sinn? Eiga börn að fá sér tattú og gulltennur? Af hverju fékk Gauti sér tribal geimveru á magann? Hvernig eru reglurnar í kringum það að bögga frægt fólk á djamminu? Margir muna eftir því þegar fólk tók í hendina á hvort öðru. Ætti...

#46 Þekki götuna eins og Rotta 18.02.2021

Ef þú drepst þá ferðu yfir móðuna miklu en ef þú dreps áfengisdauða fórstu að öllum líkindum bara í móðuna á Prikinu. Hvað myndi gerast ef neanderdals Gunnar Nelson myndi hitta neanderdals Hafþór Júlíus? Að vera rappari? Er það besta vinna í heimi eða bara blekking sem Arnar sem enginn veit hver er lifir í. Er Gauti rottan sem hann segist vera í laginu silfurskotta?      

#45 Mamma þín er snitch 16.02.2021
#44 Brókaður fyrir Norðan (Agureyri seinni hluti ásamt Birki Bekk og Dóra Ká) 11.02.2021

Podkastalinn heldur sigurgöngu sinni um norðurlandið áfram. Við klæddum okkur í hot brók og ræddum málin. Pylsa eða pulsa? Hverju er ekki drullusama? Af hverju var Harrybrúin byggð? Hvað veit Arnar sem enginn veit hver er um Akureyri? Gauti fer yfir þessi mál og mörg fleiri ásamt góðvinum þáttarins Birki Bekk og bæjarstjóranum Dóra Ká.   (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er...

#43 Pulsa á Sjallanum á Agureyri (ásamt Birki Bekk og Dóra K) 09.02.2021

Í botni Eyjarfjarðar í nóvember árið 1989 voru lögð fyrstu drög að Podkastalanum. Podkastalinn ferðast því norður á Akureyri að leita upprunans og fer yfir málin ásamt góðvinum þáttarins Birki Bekk og bæjarstjóranum Dóra K.   (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangra...

#42 Stutta píka 04.02.2021

Vinkona Podkastalans Stella Rósenkranz mætir í settið og ræðir litlu málin sem brenna á allra vörum. Er stæðið hliðin á fatlaðrastæðum um það bil 40% fatlaðra stæði? Er það siðblinda að leggja í fjölskyldustæðin hjá Krónunni ef maður er einhleypur? Við könnumst öll við þumalfingur og löngutöng en hvað í fjandanum heitir horny táin í miðjunni? (ath. hljóðið er smá skrítið vegna viftu sem gleymdist...

#41 Kramin kókdós 02.02.2021

Gauti sem allir vita hver er ræðir við Arnar sem enginn veit hver er um heimsmálin. Hryllingsferð í trampólín garðinn Rush, the dark side of barneignir og almennar reglur um sundferðir eru meðal umræðuefna í þættinum.  

#40 Riddarar II 28.01.2021

Kæru riddarar, í dag er orðið ykkar. Í þættinum leysum við vandamál hlustenda, hugleiðum hugleiðingar og skoðum skoðanir þeirra. Engin rödd er of veik til að óma innan veggja kastalans. Nú eru það við sem hlustum.    

#39 Siðblindur í 12min 26.01.2021

Dýr brosa eingöngu til þess að verða ekki étin. Það heldur Gauti allavega. Hvað er svalasta eiturlyfið? Af hverju verður fólk siðblint í tólf mínútur? Arnar sem enginn veit hver er fer inn á löggan.is og finnur út úr þessu öllu saman meðan draugabanar landsins halda áfram að svíkja fólk.

#38 Er Nökkvi með bars? 21.01.2021

Nú þegar Kastalinn er orðinn vel established miðill sem fólk trúir og treystir á er tími til kominn að mynda sér stefnu og taka upp gildi eins og almennilegum business sæmir. En hver og afhverju þau en ekki þessi hér? Pressan sem fylgir væntingunum fólks til season 2 er farin að hafa veruleg áhrif, bara ef við hefðum gildi til að vísa okkur veginn. En eins og gauti er alltaf að segja "what doesn't...

Listen to the Podkastalinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.