Ævintýraheimur barnanna
Malholt.is
Málholt er nýtt sögu hlaðvarp fyrir börn sem býður hlustendum að ferðast inn í töfrandi heim ævintýra og skemmtilegra sagna. Þar lifna við fjölbreyttar og skemmtilegar sögur sem fær ímyndunarafl barna til að blómstra.
Author
Ævintýraheimur barnanna
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 26, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Gamansaga - ofurgrænmetið 26.04.2026 10:08
Í þessari sögu lendir Ævisól í ótrúlegu ævintýri þegar hún finnur töfragarð. Þar kynnist hún alls konar grænmeti sem kennir henni hversu hollt það er og hvernig það gefur líkamanum hennar ofurkrafta.
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Sápukúlufossinn í Málholti 24.04.2026 2:40
Þessi saga fjallar um bestu vinina, Túlu og Döggva, sem leggja af stað í spennandi könnunarferð eftir dularfullri á sem glitrar. Á leiðinni uppgötva þau töfrandi foss þar sem sápukúlur svífa um loftið.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Ævisól og næturhiminninn 16.04.2026 2:33
Þessi saga fjallar um Ævisól sem horfir á stjörnurnar eitt kvöld og lendir í töfrandi ferðalagi um himingeiminn. Þar lærir hún um stjörnur, plánetur og hversu stór og dularfullur heimurinn er.
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Undratréð í Málholti 16.04.2026 2:32
Þessi saga fjallar um eik sem fær þá ótrúlegu gjöf að geta gengið og leggur af stað í ævintýraferð. Á leiðinni kynnist hún nýjum vinum og sér heiminn utan skógarins.
Saga fyrir svefninn - Söngur laufblaðsins 15.04.2026 5:59
Þessi saga fjallar um bestu vinina Túlu og Döggva og skemmtilegu uppákomuna sem þau lentu í skóginum.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Nói og draumalestin 09.04.2026 2:32
Þessi saga fjallar um litla refinn Nóa sem býr í Bjartaskógi. Eitt kvöld, þegar mikill snjóstormur gengur yfir, óttast hann að draumalestin komi ekki. Þrátt fyrir veðrið kemur lestin þó og tekur hann með í notalegt ferðalag💚
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Vinirnir sem lærðu umferðarreglurnar 09.04.2026 2:31
Þessi saga fjallar um Túlu, Mána og Döggva sem eru að leika sér úti í skotbolta þegar boltinn þeirra rúllar út á götu. Þá læra þau mikilvægar umferðarreglur og átta sig á því hversu mikilvægt það er að leika sér á öruggum stöðum og fara varlega í umferðinni.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Tunglið sem hvarf 03.04.2026 2:32
Þessi saga fjallar um Döggva. Á hverju kvöldi horfir hann út um gluggann sinn og talar við tunglið… en eitt kvöldið var það skyndilega horfið👀
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Kastalinn á Kúluströnd 03.04.2026 3:08
Þessi saga fjallar um systurnar Túlu og Tínu sem byggja risastóran sandkastala á sumardaginn fyrsta. Sandkastalinn lifnar skyndilega við og systurnar lenda í ótrúlegu ævintýri þegar krabbakonungur býður þeim inn í kastalann sinn í mikla veislu.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Músin sem þráði að fljúga 24.03.2026 2:39
Þessi saga fjallar um músina Mæju sem dreymir um að geta flogið eins og fuglarnir. Einn daginn fær hún hjálp frá óvæntum vini til að láta draum sinn rætast.
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Rigningin í Hjartaskógi 24.03.2026 2:51
Þessi saga fjallar um þrjá vini, Tínu, Silku og Döggva. Þegar Tína og Silka halda að himininn sé að gráta vegna mikillar rigningar, útskýrir Döggvi fyrir þeim hvernig vatnshringrásin virkar og hvers vegna það rignir.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Litli íkorninn Hnoðri 24.03.2026 2:44
Þessi saga fjallar um lítinn íkorna Hnoðra, sem þráði ekkert heitar en að fá svefnfrið, en hlutirnir fóru ekki alveg eins og hann hafði vonast til.
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Tína og ofur tannburstinn 24.03.2026 2:37
Þessi saga fjallar um Tínu sem nennir ekki að bursta tennurnar áður en hún fer að sofa. Um nóttina vakna felupúkar í munninum hennar, en daginn eftir hjálpar ofur tannburstinn henni að losna við þá. Sagan kennir börnum mikilvægi þess að bursta tennurnar á hverjum degi.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Döggvi og ímyndunaraflið 24.03.2026 2:40
Þessi saga fjallar um Döggva sem á stundum erfitt með að sofna á kvöldin. Til að slaka á leyfir hann ímyndunaraflinu að fara með sig í falleg ævintýri.
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Bjössi og gosið 24.03.2026 3:44
Þessi saga fjallar um Bjössa sem lenti í dálitlu óvæntu þegar hann tók með sér gos í skólann.
(ÁSKRIFT) Saga fyrir svefninn - Stjarnan sem óskaði sér 24.03.2026 2:46
Sagan fjallar um litla stjörnu sem þráði að fá að skoða allt það dásamlega sem jörðin hafði upp á að bjóða.
(ÁSKRIFT) Gamansaga - Trúðfiskarnir og Haddi hákarl 24.03.2026 2:43
Þessi saga fjallar um litla trúðfiska sem lenda í hættu þegar hákarl reynir að plata þá, en með hugrekki og útsjónarsemi tekst þeim að bjarga sér
Saga fyrir svefninn - Laufdís og Binni bangsi 23.03.2026 6:47
Þessi saga fjallar um systkinin Laufdísi og Döggva sem eiga fullt af böngsum í herberginu sínu. Laufdís trúir því að bangsarnir vakni á nóttunni, en Döggvi trúir því ekki alveg. Eitt kvöld ákveður Laufdís að vaka og sjá hvað gerist.
Gamansaga - Benni og nammið 23.03.2026 6:23
Honum Benna finnst ekkert betra heldur en að borða sælgæti. Einn laugardag eftir fimleika æfingu, fær hann leyfi til að kaupa nammi fyrir sig og systkini sín til þess að eiga yfir bíómynd um kvöldið en hann gerir svolítið sem hann á ekki að gera.
Saga fyrir svefninn - Túla og Tína fara að sofa 23.03.2026 6:36
Þessi saga fjallar um systurnar Túlu og Tínu sem læra mikilvægi þess að fara snemma að sofa.
Gamansaga - Prinsessan sem lærði dýrmæta lexíu 23.03.2026 4:14
Þessi saga fjallar um prinsessuna Lilju sem þekkir ekkert annað en lífið innan kastalaveggjanna. Einn daginn vaknar hún og finnur hjá sér löngun til að upplifa líf venjulegs fólks. Hún leggur því af stað í ferð og kynnist fjölskyldu sem sýnir henni allt annað líf en hún þekkir.
Saga fyrir svefninn - Draumarnir hennar Túlu 23.03.2026 3:53
Þessi saga fjallar um hana Túlu sem elskar að dreyma. Í hvert sinn sem hún lokar augunum bíða eftir henni ný og skemmtileg ævintýri.
Gamansaga - Ævisól og dularfulla tónlistin 21.03.2026 4:43
Sagan fjallar um stúlkuna Ævisól sem býr á sveitabænum Glóhóli. Einn daginn heyrir hún dularfulla tónlist úr fjósinu og fer að skoða hvað sé á seyði. Þegar hún sér hvaðan tónlistin barst og hver hafði kveikt á henni varð hún heldur betur hissa.
Saga fyrir svefninn - Álfasteinnin 19.03.2026 7:15
Tvíburabræðurnir og bestu vinirnir, þeir Daniel og Gummi lenda í töfrandi ævintýri á leiðinni heim úr skólanum þegar þeir finna töfrastein sem glóir.
Jólasaga fyrir svefninn - Döggvi og jólaálfarnir í Málholti 20.09.2025 6:52
Sagan fjallar um Döggva og skemmtilegu uppákomuna sem hann lenti í eina kalda vetrarnótt þegar hann gat ekki sofnað❤️
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.