Gunnar Ásgeirsson
Litli mallakúturinn
Litli mallakúturinn eru hlaðvarpsþættir í umsjón Gunnars Ásgeirssonar þar sem rætt er við fólk sem hefur gengist undir aðgerðir á maga vegna offitu (Hjáveita, ermi eða magaband)Vilt þú segja þína sögu í þættinum? Endilega hafðu samband á netfangið gunnsi@gunnsi.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#24 Hrafnhildur Valgarðsdóttir - Hjáveita - "Ég þurfti að sýna mér meiri mildi" 03.04.2026 52:12
Í þessum 24. þætti ræði ég við Hrafnhildi Valgarðsdóttur, deildarstjóra í Laugalandsskóla á Hellu, sem fór í magahjáveitu fyrir níu árum. Hrafnhildur deilir því hvernig gamlar lífsreynslur og áföll mótuðu sjálfsmyndina og hvernig baráttan við kílóin tók óvænta stefnu eftir Long-COVID veikindi. Við ræðum opinskátt um „púkann í hausnum“, notkun Wegovy til að finna matarró og mikilvægi þess að mæta s...
#23 Hjalti G. Hjartarson - Mini-Hjáveita - "Þú ert bara beisiklí að ryðga að innan" 30.09.2025 1:06:49
Hjalti G. Hjartarson ólst upp við mikla hreyfingu og líkamlega getu, en þegar hann hóf háskólanám breyttist allt. Hreyfingin féll út, lífstíllinn tók aðra stefnu og áherslan færðist alfarið yfir á námið. Það sem gerir sögu hans enn áhugaverðari er bakgrunnur hans: pabbi hans er hjartalæknir, mamma hans taugalæknir og hann sjálfur með sterkan íþróttagrunn. Hjalti hafði því öll verkfæri til að lifa...
#22 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Annar hluti - Hjáveita 15.09.2025 50:51
Við höldum áfram að fylgjast með ferðalagi Önnu Margrétar Jakobsdóttur Hjarðar. Þegar við kvöddum hana síðast voru aðeins tíu dagar í að hún færi í magahjáveitu í Svíþjóð - þegar hér er komið við sögu er rúmur mánuður frá aðgerð og hér segir Anna okkur frá því hvernig aðgerðin sjálf gekk fyrir sig og hvernig henni líður í dag. Við fáum að heyra af lífinu á sjúkrahúsinu, fyrstu dagana eftir aðgerð...
#21 - Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar - Fyrsti hluti - Hjáveita "Já, og er það þess vegna sem þú ert að troða svona ofan í þig?" 02.08.2025 36:51
Í þessum þætti kynni kynnumst við Önnu Margréti Jakobsdóttur Hjarðar – sveitastelpu frá Borgarfirði eystra. Anna Margrét stendur nú á stórum tímamótum í lífi sínu, því á næstu dögum fer hún í hjáveituaðgerð í Svíþjóð. Áratuga reynsla af fordómum innan heilbrigðiskerfisins hefur kennt henni að standa með sjálfri sér – en það var ekki fyrr en hún hitti Erlu Gerði Sveinsdóttur hjá Mín besta heilsa að...
#20 - Erla Gerður Sveinsdóttir - Sérfræðilæknir við meðferð offitu 28.05.2024 1:19:51
Erla Gerður Sveinsdóttir er viðmælandi í þessum tuttugasta þætti. En hún hefur lengi brunnið fyrir málefnum um offitu og hefur meðal annars starfað í offituteyminu á Reykjalundi, var ein af stofnendum Heilsuborgar og nú síðustu ár hefur hún starfað hjá Mín besta heilsa. Umræðuefni þessa þáttar er meðal annars aðgerðirnar frá sjónarhóli læknis. Og svo ræðum við einnig um þessi lyf við offitu en áví...
#19 - Katrín Alexandra Helgudóttir - Hjáveita "Ég vaknaði og ég hef aldrei á ævinni upplifað annan eins sársauka" 22.05.2024 42:10
Katrín Alexandra Helgudóttir (Kata) starfar sem sjúkraliði á bráðamóttökuni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Hún segir okkur frá hennar vegferð að betra lífi. Það var í apríl 2023 sem hún gekkst undir hjáveitu á Klíníkinni. Kata hefur verið opin með ferlið sitt og segir frá reynslu sinni og skrásetur ferlið á Instagram. En þar er hún undir notendanafninu @hjaveitu_lifid
#18 Konráð Logi Fossdal - Mini-Hjáveita - "Ég fann það bara, ég gat ekkert hlaupið á eftir þeim" 07.05.2024 41:12
Konráð Logi Fossdal er Akureyringur í húð og hár. Árið 2022 fór hann í mini-hjáveitu í gegnum klíníkina. Ákvörðunina tók hann eftir að hann eignaðist börn og sá fyrir sér að líkamlegt ástand þyrfti að vera betra til þess að geta sinnt og leikið við börnin. Í þættinum ræðum við einnig kæfisvefn en Konni greindist með eins alvarlegan kæfisvefn og hann getur orðið.
#17 Rafn Heiðar Ingólfsson - Hjáveita - "Púkinn á öxlinni á mér sagði mér það að ef ég færi nú í þessa aðgerð að þá yrði nú lífið bara miklu betra" 30.04.2024 48:06
Rafn Heiðar Ingólfsson, matreiðslumeistari, eða Rabbi eins og hann er gjarnan kallaður ólst upp á Fáskrúðsfirði hjá ungri einstæðri móður. Árið 2008 flutti hann til Danmerkur og var á mjög slæmum stað andlega og taldi ástæðuna fyrir þessari vanlíðan vera ofþyngdin og var viss um að þegar hann væri orðinn grannur yrði allt betra. Árið 2011 gekkst hann undir magahjáveitu í gegnum danska heilbrigðisk...
#16 Sólveig Sigurðardóttir - Hjáveita - "Þetta var sjokk þegar mér var sagt að þetta væri eini kosturinn fyrir mig" 23.04.2024 1:24:18
Sólveig Sigurðardóttir hefur lengi talað fyrir heilbrigðum lífstíl á blogginu sínu Lífstíll Sólveigar . Hún ætlaði aldrei í efnaskiptaaðgerð en fyrir tveimur árum greindist hún með vélindasjúkdóminn Barretts sem leiddi til þess að hún gekkst undir hjáveituaðgerð í Malmö í ágúst 2023. Hún er formaður SFO (Samtök fólks með offitu og aðstandendur þeirra) og ræðum við bæði hennar reynslu af magahjávei...
#15 Linda Skarphéðinsdóttir - Magaermi - "Já, þú fórst bara í aðgerð, þú ert ógeðslega löt." 16.04.2024 50:49
Linda Skarphéðinsdóttir fór í magaermi árið 2019 og í framhaldinu fór svo að læra einkaþjálfun. Linda segir sögu sína í þessum þætti.
#14 Jóhannes Geir Númason - Hjáveita - "...þú þarft að drífa þig að gera þetta. Þetta er það sem þú átt að gera." 09.04.2024 1:20:47
Jóhannes Geir Númason er kjötiðnaðarmeistari sem vatt kvæði sínu í kross og gerðist grunnskólakennari. Hann hafði lengi haft fordóma fyrir því að fara í efnaskiptaaðgerð, taldi þetta auðveldu leiðina og hann gæti þetta alveg sjálfur. Árið 2019 sagði hann hingað og ekki lengra og fór í hjáveitu.
#13 Íris Hólm Jónsdóttir - Magaermi - "Það kom svona lowpoint hjá mér þegar ég braut klósettsetuna heima hjá mér" 02.04.2024 49:02
Íris Hólm Jónsdóttir er söngkona úr Mosfellsbæ. En hún steig sín fyrstu skref í sjónvarpsþáttunum X-Factor og hefur síðan þá brallað ýmislegt. Sungið með Frostrósum, á jólatónleikum Siggu Beinteins, tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins svo eitthvað sé nefnt. Í júní 2021 gekkst Íris undir magaermi á Klíníkinni.
#12 Andrea Ævarsdóttir - Mini-Hjáveita - "...og svo segir ein þeirra: 'Við eigum því miður ekkert í þinni stærð.' Ég var 16 ára!" 26.03.2024 55:05
Andrea Ævarsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur og allskonar-nörd eins og hún segir sjálf. Hún hafði velt fyrir sér magahjáveitu í yfir 20 ár en taldi þetta ekki vera lausnina fyrir sig, var hrædd við svona aðgerð. Það er síðan í desember 2019 þegar hún stendur á stórum palli úti í Gvatemala að hún fær hugljómun: „Þú verður að fara í þessa aðgerð, þú ert ekki að ráða við þetta án aðstoðar“...
#11 Ásgerður Arnardóttir - Magaermi - "Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn." 19.03.2024 43:07
„Ég ligg bara hérna ber á borðinu eins og Jesú með blóð í annan handlegginn og næringu í hinn. Og þá bara dett ég út aftur…“ Þetta er ekki venjubundin upplifun sem fólk sem gengst undir efnaskiptaaðgerðir verður fyrir á skurðstofunni en það var nú samt raunin í tilviki Ásgerðar Arnadóttur þegar hún fór á eigin vegum til Póllands í magaermi í febrúar árið 2023. Aðgerðin gekk ekki vel og missti hún...
#10 Hólmfríður Lovísudóttir - Mini-Hjáveita 12.03.2024 46:02
Hólmfríður Lovísudóttir var í nóvember 2021 komin með fitulifur, of háan blóðþrýsting, sykursýki, liðverki og mikla mæði, þá orðin 150 kg þegar hún setti sig í samband við Aðalstein á Klíníkinni. Niðurstaðan var að hún fór í mini-hjáveitu í apríl árið 2022. Hólmfríður segir okkur sína sögu í þættinum.
#9 Gíslunn Hilmarsdóttir - Hjáveita 05.03.2024 33:47
Áföllin gera ekki boð á undan sér. Gíslunn Hilmarsdóttir varð fyrir þeirri lífsreynslu árið 2017 að lenda í alvarlegu bílslysi sem varð til þess að hreyfing var ekki eins auðveld og áður. Hún fór í prógramm hjá Erlu Gerði árið 2021 og var svo ári seinna mætt til Svíþjóðar í hjáveitu. Gíslunn segir sína sögu í þessum þætti.
#8 Guðbjörg Steinsdóttir Snædal - Mini-Hjáveita 20.02.2024 44:45
Guðbjörg starfar sem kennari á Fáskrúðsfirði. Hún fór í mini-hjáveitu árið 2021 í gegnum Klíníkina Ármúla og segir okkur hér hennar reynslusögu.
#7 Vordís Baldursdóttir - Hjáveita 15.02.2024 1:05:55
Vordís Baldursdóttir ræðir um aðdraganda þess að hún fór í prógramm á Reykjalundi og síðan í aðgerð árið 2020 og hvernig lífið er í dag.
#6 María Friðriksdóttir Árdal - Hjáveita 28.03.2022 41:42
María fór í hjáveitu í gegnum Erlu Gerði og Heilsuborg árið 2018. Síðan hefur hún misst um 100 kg og sér ekki eftir neinu. Þetta er sagan hennar Maríu.
#5 Valdís Anna Jónsdóttir - Hjáveita 08.03.2021 35:01
Valdís Anna Jónsdóttir fór í hjáveitu árið 2016 eftir undibúning á Kristnesi. Hún segir hér sögu sína og hvernig hefur gengið á þeim fimm árum síðan aðgerðin var gerð.
#4 Olga Helgadóttir - Magaermi 26.02.2021 44:31
Olga Helgadóttir fór í magaermi árið 2017 í gegnum einkastofu hér á landi. Hún ræðir sína reynslu, ástæðuna fyrir aðgerðinni og hvernig lífið er í dag.
#3 Ólöf Öfjörð - Magaermi 20.02.2021 53:54
Ólöf Öfjörð fór í magaermi í gegnum Reykjalund/Landspítalann árið 2019. Hér segir hún frá sinni reynslu og hvernig hefur gengið.
#2 Fylgikvillar, fordómar og andleg líðan 29.06.2020 16:41
Í þessum þætti ræði ég um þá fylgikvilla sem voru að plaga mig þegar ég var hvað þyngstur. Ég kem einnig inn á fitufordóma og andlega líðan er snýr að offituaðgerðum.
#1 Mín saga og kynning á podcasti 26.06.2020 27:59
Í þessum fyrsta þætti segi ég frá því sem framundan er í þessum hlaðvarpi og segi einnig mína sögu. En ég fór í magahjáveitu á Landspítalanum þann 30. apríl 2019
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.