Lífið á meðan
Lífið á meðan
Lífið á meðan er hlaðvarp um aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í þáttunum ræði ég við aðstandendur og fólk sem situr með þeim á einn eða annan hátt um lífið sem heldur áfram á meðan allt er í gangi. Samtöl um reynslu sem margir þekkja en fá sjaldan tækifæri til að tala um.
Author
Lífið á meðan
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
10. Helga og Björn 08.07.2026 1:34:40
Það eru sum samtöl sem breyta engu um það sem hefur gerst en geta breytt miklu fyrir þann sem situr í svipuðum sporum í dag. Í þessum þætti opna Helga og Björn hjörtu sín og segja af ótrúlegri hreinskilni frá því sem enginn undirbýr foreldra fyrir. Óttanum, óvissunni, geðshræringunni og því hvernig heimurinn getur hrunið á einu augnabliki þegar barnið þitt greinist með krabbamein. En það sem þau g...
9. Óðinn Svan 21.06.2026 1:09:36
Í þessum þætti af Lífið á meðan sest Óðinn niður með mér. Flest þekkjum við hann úr fjölmiðlum og opinberri umræðu. En í þessum þætti kynntist ég allt öðrum Óðni. Þriggja barna föður, eiginmanni og aðstandanda. Manni sem hefur þurft að halda áfram að mæta í öll sín hlutverk á sama tíma og fjölskyldan hans hefur staðið frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns. Við ræðum um það hvernig alvarleg...
8. Laufey Hanna 07.06.2026 47:10
Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju sem segir frá því þegar systir hennar greindist með krabbamein á sama tíma og þær voru báðar óléttar. Við ræðum óttann, samviskubitið, óvissuna og hvernig lífið getur breyst á einu augnabliki. Um það að standa við hlið einhvers sem maður elskar og reyna að fóta sig í aðstæðum sem enginn er undirbúinn fyrir. Þetta er ekki bara saga um veikindi. Heldur saga um s...
7. Rakel Þorsteins 20.05.2026 1:34:24
Í nýjasta þættinum af Lífið á meðan fæ ég til mín hana Rakel Þorsteins. Rakel segir svo fallega og einlægt frá pabba sínum sem lést eftir erfiða baráttu við krabbamein. Hún deilir með okkur hvernig það var að vera dóttir manns sem greindist ekki bara einu sinni heldur þrisvar og lifa með þeirri óvissu, ótta og sorg sem fylgir því að elska einhvern svona mikið. Það sem snerti mig mest var að heyra...
6. Guðrún Alma 07.05.2026 1:27:51
Í nýjasta þættinum af Lífið af meðan sest ég niður með henni Guðrúnu. Það er eitthvað við sögu Guðrúnar sem ég tengi mjög sterkt við. Guðrún er mögnuð þriggja barna móðir, maki, í ábyrgðarfullu starfi og svo bætist það óumbeðið hlutverk við… að vera aðstandandi. Í þættinum ræðum við um hvernig hlutverkin snúast stundum við 👀 óvissuna, ábyrgðina og lífið á meðan allt er í gangi. En það sem situr s...
5. Margrét Rósa 24.04.2026 50:59
Í þessum þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Margréti. Hún er ung kona sem er að ganga í gegnum það að mamma hennar er með ólæknandi krabbamein. Við tölum um það sem gerist þegar lífið breytist svona skyndilega – óvissuna, tilfinningarnar og það að þurfa samt einhvern veginn að halda áfram. Þetta er samtal um að vera aðstandandi, um sorg á meðan…en líka um tengsl, ást og von.
4. Guðlaug Ingibjörg 14.04.2026 1:25:56
Í nýjasta þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Guðlaugu. Á einni nóttu breyttist allt. Barn verður langveikt, foreldrar fara út af vinnumarkaði og lífið sem þau þekktu hverfur. Í þættinum ræðum við hvernig það er að standa í svona aðstæðum, þegar þú veist ekkert hvert lífið stefnir, þegar þú þarft að verða sérfræðingur barnsins þíns og halda áfram á sama tíma. Guðlaug hefur ótrúlega nálgun á lífið...
3. Tómas Þór 02.04.2026 1:14:12
Í þættinum sest ég niður með Tómasi Þór, og ræði við hann um að vera aðstandandi þegar lífið breytist á einu augnabliki. Þau voru stödd í ferli hjá Livio að reyna að eignast barn þegar maki hans greindist með mergæxli. Framtíðin breyttist og með henni allt sem þau höfðu séð fyrir sér. Í þættinum förum við yfir hvað er ómetanlegt að hafa góðan stuðning, hvernig tengslin geta bæði styrkst og stundum...
2. Arna Katrín 26.03.2026 1:08:08
Í þættinum sest ég niður með Örnu Katrínu, sem segir frá sinni reynslu af því að verða aðstandandi þegar maki hennar greindist með krabbamein. Við ræðum augnablikið þegar lífið breytist, tilfinningarnar sem fylgja og það sem gerist á bak við tjöldin. Hvernig hlutverkin í sambandinu geta breyst og hvernig það er að halda lífinu gangandi þegar allt er í óvissu. Við tölum líka um hvernig það er þegar...
1. kynningarþáttur 20.03.2026 6:34
Í fyrsta þætti af „Lífið á meðan“ deili ég stuttlega minni eigin sögu sem aðstandandi krabbameinssjúklings síðustu tvö ár. Ég tala um hvernig lífið breyttist við greininguna, hvernig daglegt líf heldur áfram þrátt fyrir óvissuna. Þessi þáttur er fyrir þig sem ert að lifa lífinu „á meðan“ eitthvað stórt og oft sársaukafullt er í gangi og fyrir þá sem vilja skilja aðstandendur betur.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.