Krummafótur
Krummafótur
Hlaðvarp þar sem Eyvindur Karlsson og Kristján Atli tækla litlu málin. Fyrir forvitið, fróðleiksþyrst og fjörugt fólk sem vill smá heimsku með heimspekinni sinni.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
3.08 - Söngleikjafordómar, hlaðvörp ekki fjölmiðlar, HM-spjall og uppþot í Belfast 02.07.2026 1:04:11
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýlega sýningu á Rocky Horror í Þjóðleikhúsinu. Þá ræða þeir um nýlegan dóm sem féll og kveður á um að íslensk hlaðvörp séu ekki fjölmiðlaskyld áður en Kristján segir frá nýjustu vendingum á HM í knattspyrnu. Þá ræða þeir uppþot í Belfast og forfrískvíða.
3.07 - Leikhús í Bíó Paradís, tími hryllingsmynda, gervigreindarhryllingssögur og sjálfsblekking 18.06.2026 1:07:53
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýlega ferð sína í Bíó Paradís til að sjá leikritið All My Sons. Þá ræða þeir um nýlegar, ódýrar hryllingsmyndir sem eru að rústa rándýrum stórmyndum í bíó vestan hafs. Þá velta þeir fyrir sér nýjustu vendingum og hryllingssögum í gervigreindarmálum áður en þeir ræða um mikilvægi þess að blekkja sjálfan sig.
3.06 - Búslóðabyrði, utanlandsferðir á sumrin, overthinkers anonymous, að njóta vafans 10.06.2026 1:24:53
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um búslóðaflutninga og mínímalisma á heimilinu áður en Kristján spyr hvort það sé vitlaust að Íslendingar fari í utanlandsferðir á sumrin. Kristján útskýrir overthinkers anonymous áður en Eyvindur færir rök fyrir því af hverju fólk eigi að njóta vafans.
3.05 - Locorriere kvaddur, EVE Fanfest, tilgangur lífsins 27.05.2026 1:09:30
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kveðja söngvarann Dennis Locorriere áður en Eyvindur segir frá nýafstaðinni EVE Fanfest í Hörpu. Þá velta þeir fyrir sér hver tilgangur lífsins er áður en Kristján útskýrir að þetta er ekki svona alvarlegt.
3.04 - Sjónvarpsþáttaleiði, íslensk eftirnöfn á treyjum, hlustunarvenjur og þriðji staðurinn 20.05.2026 1:14:18
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skella sér í bíltúr og ræða þreytu sína gagnvart sjónvarpsþáttum sem teygja lopann. Kristján ræðir um nafnahefðir aftan á íslenskum íþróttatreyjum og hvernig hlustunarvenjur hafa breyst áður en Eyvindur agnúast út í steggjanir/gæsanir og skýrir hvers vegna hjólreiðar eru eins og golf.
3.03 - Áhugaleiksýning ársins, hjólaraunir Eyvindar, bestu lög Beck og Tom Waits 13.05.2026 1:41:14
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna vali á áhugaleiksýningu ársins á Íslandi. Eyvindur segir frá ströngu æfingaferli sínu í hjólreiðum. Loks velja þeir bestu lög tónlistarmannanna Beck og Tom Waits.
3.02 - Bond í Alcatraz, Corgan og CIA, Sanderson og Apple TV 06.05.2026 1:12:51
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skella sér í bíltúr og ræða um rúntmenningu Íslands. Kristján fær viðbrögð Eyvindar við skemmtilegum samsæriskenningum áður en þeir ræða um tímamótasamning Brandon Sanderson við Apple TV um framleiðslu á bókum sínum.
3.01 - Húsavík, gervigreind og rottukóngar 29.04.2026 1:07:57
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýjustu vendingar í heimi gervigreindar. Eyvindur segir Kristjáni frá dvöl sinni á Húsavík áður en Kristján kynnir Eyvind fyrir ýmis konar rottukóngum.
2.32 - Jóla- og áramótahefðir, pólitík á stórviðburðum, litur ársins og besta hljómsveitarnafnið 08.12.2025 1:34:01
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um mikilvægi jóla- og áramótahefða í sínu lífi. Þá velta þeir fyrir sér lit ársins og litum í fatavali, notkun fánastanga á Íslandi, bestu tökulögin, pólitík á stórviðburðum og fleira áður en þeir gera upp og velja besta hljómsveitarnafn Krummafótar.
2.31 - Jólareglur, áhorf á áhorf, meint siðblinda Leðurblökumannsins og hundahald á Spáni 02.12.2025 1:31:25
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli eru komnir í jólaskap og ræða hvenær rétt sé að skreyta og byrja að fagna jólunum. Eyvindur spyr Kristján hvort Die Hard sé jólamynd áður en þeir rífast um meint siðleysi Leðurblökumannsins Bruce Wayne. Kristján veltir fyrir sér vaxandi vinsældum áhorfs á sjónvarpsáhorf. Þá segir Eyvindur frá heimildamynd um umdeilda hundaræktun á Spáni og í kjölfarið ræða þeir a...
2.30 - Pylsuhlaup, miðjaðar kvikmyndir, rapparar á þingi, Steam Machine og Jötunsteinar 25.11.2025 1:39:37
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér hvort miðjaðar kvikmyndakitlur séu komnar til að vera og hver myndi sigra í kapphlaupi með pylsuáti, Usain Bolt eða Joey Chestnut. Kristján veltir fyrir sér hvort gervigreind muni ógna rithöfundastéttinni á meðan Eyvindur undrast að Nicki Minaj hafi ávarpað þing Sameinuðu Þjóðanna. Eyvindur segir frá stórtíðindum í heimi tölvuleikja á meðan Kristj...
2.29 - Frankenstein, fávitar, Skonrokk og draumarækt 17.11.2025 1:31:00
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýútkomna stórmynd Guillermo del Toro um Frankenstein. Þá spyrja þeir sig hvenær sé rétt að kalla fólk fávita. Kristján segir frá rokkmessunni Skonrokk sem fór fram um helgina áður en Eyvindur veltir fyrir sér mikilvægi þess að láta verða af draumum sínum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.28 - Dua Lipa og bókaklúbbar, Dr Mike og neyðarkallar, upphitun fyrir Beck og bestu 80s poppperlurnar 10.11.2025 2:05:36
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um kjarnorkusprengjur, sölu björgunarsveita á neyðarköllum og hinn smánaða hlaðvarpara Dr Mike. Kristján segir Eyvindi frá aðdáun sinni á Dua Lipa og spyr hvers vegna það eru engir celebrity bókaklúbbar á Íslandi. Loks hita þeir upp fyrir hlustun á tónverkum Beck og velja uppáhalds 80s poppperlurnar sínar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.27 - Snjódagar, ólöglegt niðurhal, ofnæmi fyrir tónlist og bestu lög Dr Hook 03.11.2025 2:14:59
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fyrstu snjóviku komandi vetrar áður en þeir velta fyrir sér hvort streymisveiturnar hafi gengið of langt í ljósi nýlegra vinsælda ólöglegs niðurhals. Þá ræða þeir um þær hljómsveitir sem þeir hafa ofnæmi fyrir áður en þeir fara yfir feril Dr Hook og velja sín 5 uppáhalds lög hvor. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.26 - Hrollvekjuþátturinn mikli 27.10.2025 1:38:38
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða hrollvekjuna frá öllum mögulegum hliðum. Kristján spyr hvaða hefðir þeir hafa í kringum hrollvekjuna á meðan Eyvindur veltir fyrir sér hvers vegna við höfum svona mikinn áhuga á raðmorðingjum. Þá spyrja þeir sig hvað hræðir okkur og hvernig hrollvekjur birtast í tónlist og öðrum listgreinum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.25 - Spánarregn, Tilly Norwood, friðarverðlaun Nóbels og hagvöxtur 20.10.2025 1:20:50
Kristján Atli segir Eyvindi Karlssyni frá nýlegri Spánarferð sinni áður en þeir ræða hversu pólitísk friðarverðlaun Nóbels séu og hvort Tilly Norwood og aðrar AI "leikkonur" boði hrun leikarastéttarinnar. Þá spyr Eyvindur hvort hagvöxtur sé ofmetinn í nútímasamfélagi. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað að venju.
2.24 - Svefnvenjur, fyrirferð stjórnmála, Charlie Sheen og Dr Hook 06.10.2025 2:00:43
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér rútínu í kringum svefn og hvernig þeir vakna á morgnana, áður en Kristján spyr hvort stjórnmál séu of fyrirferðarmikil í daglegu lífi Íslendinga. Þá ræða þeir nýlega heimildarþætti um Charlie Sheen á Netflix áður en Eyvindur segir Kristjáni frá hljómsveitinni Dr Hook. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.23 - The Long Walk og The Life of Chuck 29.09.2025 1:53:23
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka fyrir tvær nýlegar kvikmyndaaðlaganir á sögum Stephen King, The Long Walk í leikstjórn Francis Lawrence og The Life of Chuck í leikstjórn Mike Flanagan. Þá róa þeir á dýptina með kvikmyndir og sjónvarpsþætti Flanagan. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.22 - Ritskoðun í Bandaríkjunum, nytsamlegir kjánar á Íslandi, íslenskar þýðingar á kvikmyndanöfnum 22.09.2025 1:46:28
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um ótrúlegar nýlegar vendingar í bandarískum stjórnmálum og ritskoðun stjórnvalda, sem og hvernig þessar vendingar hafa skilað sér til Íslands síðustu daga. Kristján spyr sig hvernig Andri Snær gat enn og aftur verið misskilinn í vikunni sem leið áður en þeir skemmta sér yfir íslenskum þýðingum á erlendum kvikmyndatitlum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum...
2.21 - Látlaus siðblinda, samkenndarvandinn, Brandon Sanderson og bestu lög Nick Cave 15.09.2025 2:23:01
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér dæmum um látlausa siðblindu áður en Eyvindur spyr sig hvort hægt sé að hafa of mikla samkennd. Þá ræða þeir bandaríska rithöfundinn Brandon Sanderson áður en þeir velja uppáhalds Nick Cave-lögin sín. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.20 - Pumpkins-tónleikar, svaðilför Eyvindar, rangar skoðanir og NFL-tímabilið 08.09.2025 1:46:18
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um veikindi Kristjáns. Kristján segir frá tónleikum The Smashing Pumpkins í Laugardalshöll í ágúst og Eyvindur segir frá hjólatúr um Reykjanesið sem fór næstum því illa. Þá ræða þeir um skoðanaskipti og hvort skoðanir og rangfærslur séu það sama, áður en þeir hita upp fyrir nýhafið NFL-tímabil. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.19 - Menningarnótt, tilhlökkun, gleðin við að læra nýja hluti, Brent Hinds kvaddur 25.08.2025 2:04:33
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningarnótt og velta fyrir sér hvort tilhlökkun sé forsenda hamingju. Eyvindur segir Kristjáni frá ýmsum áhugaverðum staðreyndum sem hann hefur lært nýlega áður en þeir kveðja gítargoðið Brent Hinds og velta fyrir sér einhliða vináttu við frægt fólk. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.18 - Eymd Kóngsins, fantasíudoðrantar, ofurhetjuþreyta og The Biggest Loser 18.08.2025 1:41:08
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða Misery eftir Stephen King og bera bókina saman við kvikmyndina. Þá ræða þeir um fantasíubókmenntir og velta fyrir sér hvers vegna bækurnar eru jafnan svona langar, áður en Kristján spyr Eyvind hvort hann þjáist af ofurhetjuþreytu. Eyvindur ræðir um The Biggest Loser og rifjar upp hvernig var að horfa á þá þætti upp úr aldamótum. Hljómsveitarnafn dagsins er á...
2.17 - Verslóhelgin, lög um dýrahald á Íslandi, fasískar umræðuhaftir og bestu jarðarfaralögin 04.08.2025 1:40:04
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um veðrið og Verslunarmannahelgina, svefnpoka og útihátíðir, áður en Eyvindur býsnast yfir ströngum lögum um dýrahald á Íslandi. Kristján veltir fyrir sér fasískum umræðuhöftum í garð Ísrael og loks ræða þeir um jarðarfarir og bestu jarðarfaralögin fyrir sig. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
2.16 - Lundúnir, hundúnir, erfið list og nýju sterarnir 28.07.2025 1:38:21
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um ferð þess fyrrnefnda til Lundúna og hvernig hún tengdist hundahaldi þeirra beggja. Þá veltir Kristján fyrir sér hvort erfið list sé að einhverju leyti betri en önnur list, á meðan Eyvindur segir frá nýjum uppgötvunum í lyfjum til vöðvauppbygginga. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.