Krummafótur

Krummafótur

Comedy IS ↓ 74 episodes

Hlaðvarp þar sem Eyvindur Karlsson og Kristján Atli tækla litlu málin. Fyrir forvitið, fróðleiksþyrst og fjörugt fólk sem vill smá heimsku með heimspekinni sinni.

Author

Krummafótur

Category

Comedy

Podcast website

krummafotur.fm

Latest episode

Jul 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

2.15 - Hundar og menn, hvalreki, Charles Manson og F.A.T.A.L. 30.06.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um hundahald og samskipti mannfólks við ýmis dýr áður en þeir velta sögu Charles Manson fyrir sér og Kristján spyr hvenær orð bera ábyrgð. Eyvindur segir frá hörmulegu spunaspili og frábærum dómi um það. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.  Hér er hægt að lesa hreint út sagt frábæran dóm um lestarslysið sem er F.A.T.A.L. spunaspilið.    

2.14 - Sund í Salalaug, fasismi og hnefaleikar á Íslandi, topp 5 furðuheimar 16.06.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða meðal annars um afmælisskrúðgöngu Trump, normalíseringu fasisma á Íslandi, lögleiðingu hnefaleika og svikaraheilkenni í stútfullum þætti. Loks velja þeir uppáhalds furðuheimana sína. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað. Við minnum á vefsíðu þáttarins á slóðinni https://krummafotur.fm

2.13 - Andor, jaðarsport, fíknilyf og Trump v Musk 09.06.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýlegan lestur og áhorf. Eyvindur mærir The Lies of Locke Lamora e. Scott Lynch, Kristján hleður sjónvarpsþættina Andor lofi og lýsir Star Wars-heiminn sprelllifandi. Þá ræða þeir um jaðarsport og lyf gegn fíknisjúkdómum áður en þeir velta nýlegum skilnaði Bandaríkjaforseta og ríkasta manns heimsins fyrir sér, sem og áframhaldandi uppgangi fasismans vesta...

2.12 - Maímánuður hylltur, Melodica festival, 39 Þrep í Þjóðleikhúsinu, Pamela Anderson og skáldsögurnar okkar 02.06.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli hylla nýafstaðinn maímánuð áður en Eyvindur segir frá þátttöku sinni í Melodica festival. Þeir ræða um sýningu Eyvindar á stóra sviði Þjóðleikhússins kvöldið áður og velta fyrir sér hversu vanmetin Pamela Anderson er. Loks rifja þeir upp útgáfuferla sína. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.11 - Júró og tónlist, ofhlaðið lof, spunaspil og bestu bækur Stephen King 19.05.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðna Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og aðra nýlega tónlistarhlustun. Eyvindur spyr hvort það geti skemmt fyrir upplifun ef einhver hefur lofað efni um of. Svo spyr hann Kristján hvernig honum líði með spunaspil nú eftir rúmlega hálfs árs spilamennsku. Loks velja þeir uppáhalds bækur sínar eftir Stephen King. Hljómsveitarnafn dagsins er á sín...

2.10 - Garðtiltekt, vampírur, fantasíur vs sci-fi og Leitin að Six 12.05.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um bongóblíðu og tiltektardaga. Eyvindur veltir fyrir sér hrifningu fólks á vampírusögum og þeir ræða ýmsar vampírusögur. Þá velta þeir fyrir sér muninum á fantasíu og vísindaskáldskap (sci-fi) áður en Kristján segir Eyvindi frá plötunni Six með Mansun sem varð næstum að skáldsögu eftir Kristján Atla. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.09 - Mexíkóferð, menningaráhrif Bandaríkjanna og Mule Variations 06.05.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningaráhrif Bandaríkjanna og hermennsku stórþjóðarinnar. Kristján spyr Eyvind um meint ágæti plötunnar Mule Variations með Tom Waits og loks deilir Eyvindur ferðasögu sinni frá nýlegri för til Mexíkó og Kanada. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.08 - Mikilvægi félagsskapar, tæknirisar Bandaríkjanna, grínristanir og bestu lög R.E.M. 28.04.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna sumrinu með því að ræða bestu hliðar sumarsins og mikilvægi félagsskapar. Eyvindur veltir fyrir sér framtíð tæknirisa Bandaríkjanna á tímum Trump og Kristján reynir að færa rök gegn grínristunum. Loks velja þeir uppáhalds lögin sín með hljómsveitinni R.E.M. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.07 - Endurgerðaþreyta Hollywood, skemmdarverk á Teslum, viðskiptakúltúr menningar og flótti sérfræðinga frá BNA 14.04.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða stöðu stórmynda í Hollywood og Kristján pirrar sig á viðskiptakúltúr menningar á Íslandi og ytra. Eyvindur veltir fyrir sér flótta sérfræðinga frá Bandaríkjunum og þeir spyrja sig hvort það sé í lagi að skemmileggja Teslur til að mótmæla Musk. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað að venju.

2.06 - Staðan í Trumplandi, vetrar- og sumartími, erfiðir tölvuleikir og mannhvelið á Íslandi 07.04.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka stöðuna í Bandaríkjum eftir 75 daga af seinni valdatíð Trump. Kristján spyr hvort Ísland þurfi að færa klukkuna á veturna og vorin, Eyvindur ræðir um gildi krefjandi tölvuleikja og loks ræða þeir meira um Adolescence og mannhvelið á Íslandi. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.05 - Óperuferð, 80/20-reglan, gervitónlistarmenn og pabbabrandarar 31.03.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðna ferð á íslensku óperuna Brím í Tjarnarbíó. Þá ræða þeir 80/20-regluna svokölluðu, svo spilar Eyvindur nýtt gervigreindarlag þáttarins fyrir Kristján og þeir ræða í kjölfarið gervitónlistarmenn, áður en þeir dásama pabbahúmor og skiptast á pabbabröndurum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað að venju.

2.04 - Fjarvera, flæði skáldamjaðarins og meistaraverk sjónvarps 25.03.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli koma fagnandi saman eftir langan aðskilnað. Eyvindur gerir grein fyrir dvöl sinni á landsbyggðinni og fjallar um það sem á daga hans hefur drifið. Kristján tekur stöðuna á áramótamarkmiðum þeirra félaga og loks ræða þeir bresku sjónvarpsþættina Adolescence sem eru að slá í gegn og mikið í umræðunni um þessar mundir. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.03 - Bóndadagur og þorrinn, línuleg dagskrá, dagbókarskrif og bróligarkía 25.03.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um þorrann og nýlegan bóndadag og línulega dagskrá á 21. öld. Eyvindur veltir fyrir sér dagbókarskrifum og loks ræða þeir öld bróligarkanna í Bandaríkjunum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.02 - Janúarunnendur, TikTok-bannið, kvikmyndamýtur, Gaiman og Munro 25.03.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um TikTok-bannið sem er að skella á vestan hafs. Eyvindur spyr hvaða mýtur hafi orðið til fyrir tilstilli kvikmynda og/eða sjónvarps á meðan Kristján færir rök fyrir því að janúar sé vanmetinn mánuður. Loks ræða þeir skandalamál rithöfundanna Neil Gaiman og Alice Munro. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

2.01 - Árið kvatt, áramótaheit, Skaupið og mataræði 13.01.2025

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli hefja nýtt ár á að gera upp það gamla, ræða hvað er svona spes við áramót og tilkynna sín markmið fyrir komandi ár. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.34 - Jólaaðdragandinn, undraheimur spilavina, listamannalaun og uppáhalds jólalögin okkar 10.12.2024

Í lokaþætti ársins ræða Eyvindur Karlsson og Kristján Atli jólin og áramótin í þaula og velja uppáhalds jólalögin sín. Þá ræða þeir Netflix-heimildarmyndina um hinn norska Ibelin, velta árlegri umræðu um listamannalaun fyrir sér og ýmislegt fleira. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

1.33 - Þingkosningar á Íslandi, stóra Díegó-málið, woke-umræður og borðspil 01.12.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera upp nýafstaðnar þingkosningar á Íslandi. Þá reifa þeir stuldinn á kettinum fræga Díegó úr Skeifunni. Eyvindur spyr hvort hægt sé að vera of vók. Loks ræða þeir borðspil af ýmsum toga. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

1.32 - Týndi þátturinn, true crime þráhyggja, endurgerðir og söngur í bíó 25.11.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fjalla um þáttinn sem þeir tóku upp en kom aldrei út. Þá velta þeir fyrir sér þráhyggju sína og annarra yfir sönnum glæpamálum og alræmdum morðingjum. Eyvindur spyr hvort endurgerðir eigi rétt á sér og hvort þær hafi einhver áhrif á frummyndirnar, á meðan Kristján Atli spyr hvort megi syngja í bíó. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.31 - Forsetakosningar í Bandaríkjunum 18.11.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum, fara á dýptina um úrslit kosninganna og hvað þau þýða fyrir Bandaríkin, Evrópu, Ísland og komandi kosningar hér heima. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.30 - Frægir frambjóðendur, hárviðkvæmni karla, Sinfóníuhljómsveit Íslands og bíókvöld 04.11.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fjölda frægs fólks á framboðslistum fyrir komandi kosningar á Íslandi. Kristján segir frá tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eyvindur veltir fyrir sér hár- og skallaviðkvæmni karlmanna. Þeir rifja saman upp nýlegt bíókvöld. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.29 - Triggerandi námsefni, ofurhetjur, bröns og öldrunarótti 28.10.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um triggerandi námsefni og spyrja hvar rétt sé að draga línuna. Þá ræða þeir ofurhetjur og hverjar þeirra þeim þykja bestar. Eyvindur agnúast út í ótímabæran bröns og Kristján veltir fyrir sér óttanum við öldrun. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.28 - Hrekkir, úrelt grín, barnaflytjendur og kosningar vestan hafs 21.10.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um grín sem eldist misfel og hrekki. Kristján spyr hvort fólk þurfi endilega að hlusta á börn flytja tónlist og svo kryfja þeir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.27 - Hrekkjavaka og hrollvekjur 14.10.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera upp nýlegt spunaspil. Svo ræða þeir um komu hrekkjavökunnar til Íslands, áður en þeir hella sér í hrollvekjufræðin og velja tíu uppáhalds hryllingsmyndirnar sínar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað og það er einnig af hrollvekjandi gerðinni.

1.26 - Kaffihús, sakbitnar sælur, söguheimar annarra og sjálfsfróun 07.10.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli spyrja sig hvers vegna kaffihús eru svona heillandi. Eyvindur agnúast út í sakbitnar sælur. Svo ræða þeir um sagnaheima annarra höfunda og hvort það má brjóta reglur höfundanna eða ekki, áður en þeir velta fyrir sér sjálfsfróun og skömm tengdri kynlífsumræðu. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

1.25 - Stóri Dr. Phil þátturinn! 30.09.2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða banaríska sjónvarpsmanninn Dr. Phil í þaula og fara yfir sína sögu af því að fylgjast með honum. Þá velta þeir einnig fyrir sér nýjum lærdómi sem breytir öllu og spyrja sig af hverju greinabókmenntir eru lægra skrifaðar en fagurbókmenntir. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Listen to the Krummafótur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.