Þorsteinn V. Einarsson
Karlmennskan
[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.
Author
Þorsteinn V. Einarsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 14, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#47 Þegar barn er beitt kynferðisofbeldi - Aníta aðstandandi og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir 26.08.2021 30:00
„Hvernig kemst maður yfir eða lifir með þeirri lifsreynslu að barnið mans hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu manns sem maður var í sambandi með?“ spyr Aníta sem er bæði brotaþoli sjálf og aðstandandi dóttur sinnar sem beitt var kynferðisofbeldi af hálfu sama manns og kallar hún eftir umræðu um aðstandendur brotaþola. Aníta, sem er dulnefni, lýsir áfallinu og sektarkenndinni sem það er að f...
#46 „Ég er smá homophobic sjálfur“ - Bassi Maraj 20.08.2021 28:41
„Það voru alveg margir sem hættu að vera vinir mínir en svo var ég bara okei bæ“ segir Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson betur þekktur sem Bassi Maraj um það þegar hann kom út úr skápnum í 10. bekk. Bassi er ein af stjörnunum í raunveruleikaþáttunum Æði sem gerði hann að áhrifavaldi á Instagram og poppstjörnu en fyrsta lagið hans fór beint á topplista Spotify. Ný sería af Æði fer að koma út og sömule...
#45 „Ég elska viðbrögð“ - Edda Falak 13.08.2021 33:57
„Stundum er þetta bara skemmtilegt en stundum er það smá þreytandi sérstaklega þegar það er fjallað um hvað ég er að borða í morgunmat.“ segir Edda Falak fjármálafræðingur, hlaðvarpsstjórnandi og áhrifavaldur um nærgöngulan áhuga fjölmiðla á lífi hennar. Edda hefur verið ansi áhrifamikil í umræðunni undanfarana mánuði með 30 þúsund fylgjendur á Instagram, þúsundir á Twitter og með vinsælasta hlaðv...
#44 „Þetta er klárlega ekki komið“ - Hinsegin dagar, Ásgeir Helgi Magnússon 06.08.2021 26:58
„Við erum að sjá börn og ungmenni koma snemma út úr skápnum í faðmi fjölskyldu og vina og geta áttað sig á tilfinningum sínum með þeim.“, segir Ásgeir Helgi Magnússon formaður Hinsegin daga sem fara fram dagana 3. til 8. ágúst með allskyns viðburðum, þrátt fyrir að ekkert verði af Gleðigöngunni vegna samkomutakmarkanna. Þótt Ísland standi framarlega í jafnréttismálum segir Ásgeir Helgi að enn vant...
#43 „Kvenlegir menn munu ekki erfa Guðs ríki“ - Birgir Fannar 05.08.2021 1:18:58
„Ég er að reyna vernda grunngildi karlmennskunnar og er hérna í snákagryfjunni þinni“, segir Birgir Fannar sem hefur reglulega poppað upp á samfélagsmiðli Karlmennskunnar og lýst með athugasemdum andstöðu sinni við þau sjónarmið sem þar liggja til grundvallar. Telur hann femínisma það versta sem komið hafi fyrir íslenskt samfélag, telur Druslugönguna ala á framhjáhaldi og að samfélagsmiðilinn Karl...
#42 No fucking way - Hulda Tölgyes 30.07.2021 37:04
„Ég er alveg hrædd við að viðurkenna að ég sé buguð í sumarfríi með börnunum mínum,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur og móðir í samtali við maka sinn Þorstein V. Einarsson, þar sem þau gera upp sumarfríið með börnunum sínum og ómeðvitaða ójafna skiptingu ábyrgðar í foreldrahlutverkinu. Hið ósýnilega mental load, fjarverandi viðvera við morgunverðarborðið og ólíkar kröfur og væntingar h...
#41 „Kynferðisofbeldi snýst oftast um vald en ekki kynlíf“ - DRUSLUGANGAN, Inga Hrönn Jónsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir 22.07.2021 38:10
Inga Hrönn Jónsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir úr skipulagsteymi Druslugöngunnar eru viðmælendur í þessum þætti í tilefni þess að Druslugangan verður farin í Reykjavík laugardaginn 24. júlí nk. Fyrirmynd viðburðarins er erlend, þar sem fyrsta druslugangan eða Slut Walk, var farin í Toronto í Kanada árið 2011 eftir að lögreglustjórinn þar í borg sagði að „konur ættu ekki að klæða sig eins og drus...
#40 „Ég er vegan fyrir dýrin“- Valli dordingull 15.07.2021 48:49
„Ó þú ert vegan, þá er ég bara vegan líka“, segir Sigvaldi Ástríðarson, kallaður Valli dordingull, um ástæðu þess að hann varð vegan þegar hann sá að pönk fyrirmynd hans var vegan. Valli stofnaði dordingull.is fyrir 22 árum síðan, sem var grunnur þungarokks og pönkmenningar á Íslandi og selur brot- og borvélar í dag. Valli hefur verið vegan í 17 ár fyrir dýrin og var veganmanneskja fjölmiðla í „ga...
#39 „Hvað eigum við að öskra þetta lengi!?“ - ÖFGAR, Huld Hrund og Ólöf Tara 08.07.2021 51:02
„Við ætlum að fella feðraveldið,“ segja Hulda Hrund og Ólöf Tara um markmið hins nýstofnaða femíníska aðgerðahóps ÖFGAR í samtali við Þorstein V. Einarsson í nýjasta hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar. Hópurinn hefur hleypt krafti í seinni eða aðra bylgju metoo með nafnlausum frásögnum tugi kvenna af kynferðisofbeldi og áreitni þjóðþekkts tónlistarmanns. Þá sendi hópurinn frá sér yfirlýsingu, ásamt AG...
#38 Guð gefi mér æðruleysi - Kalli, Rótin og Hörður 02.07.2021 1:04:23
„Það er kannski ekkert valdeflandi þegar það er sagt við mann þegar maður er tvítugur að maður sé með ólæknandi heilasjúkdóm“ segir Kristín I. Pálsdóttir talskona og framkvæmdastjóri Rótarinnar í samtali við Hörð Ágústsson fyrrverandi meðlim AA samtakanna, Kalla (dulnefni) núverandi meðlim AA samtakanna og Þorstein V. Einarsson í hlaðvarpinu Karlmennskan. Ræða þau AA samtökin á gagnrýnin hátt bygg...
#37 „Það er ekkert til sem heitir hlutleysi“ - Andri Freyr Viðarsson og Anna Marsibil Clausen 25.06.2021 1:14:27
„Við höfum bara ákveðið að hvítir karlkyns líkamar og þeirra vitund sé hlutlaus og það er marker sem við verðum að afbyggja, það að hvít karlmennska sé hlutleysi,“ segir Anna Marsý dagskrárgerðamaður hjá RÚV í samtali við Andra Frey Viðarsson dagskrárgerðamann hjá RÚV og Þorstein V. Einarsson. Skyggnst er á bakvið raddirnar sem hljóma reglulega í útvarpinu okkar, hver galdurinn er á bakvið góða hl...
#36 „Þótt við förum ekki áfram með málið þá þýðir það ekki að við trúum þér ekki“ - Kolbrún Benediktsdóttir 18.06.2021 39:53
„Þótt við förum ekki áfram með málið þá þýðir það ekki að við trúum þér ekki,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari, sem meðal annars sér um kynferðisbrotamál hjá embætti héraðssaksóknara. Hún hefur starfað í 16 ár hjá ákæruvaldinu og segir margt hafa breyst undanfarin ár meðal annars vegna gagnrýni á embættið. Nefnir hún sem dæmi að lögð hefur verið vinna í að bæta skýrslutökur því...
#35 „Tengslin skipta sköpum í topplaginu“ - Tinni Kári Jóhannesson 11.06.2021 1:09:52
„Tengslanetið er stór áhrifaþáttur á það hvaða feril þú ferð og hvaða tækifærum þú heyrir af eða færð og verður að starfi.“ segir Tinni Kári Jóhannesson ráðningarstjóri hjá Góðum samskiptum í spjalli um ráðningamál, tengslanet á vinnumarkaði, matsvillur og ráðningaferli. Tinni segir að tengslanet skipti miklu máli í tækifærum og framgangi í störfum og um 50% starfa fari aldrei í auglýsingu. Í ráðn...
#34 Fimm kílóum frá því að vera hamingjusamur - Daníel Gunnarsson og Skúli Geirdal 04.06.2021 1:00:52
„Að vera feitur og viðkvæmur í ofanálag þá er ég nú orðinn topplúði sko,“ segir Skúli Geirdal fjölmiðlamaður og lýsir gildismati og hugmyndum sem hann sjálfur upplifði sem ungur drengur. Skúli og Daníel Gunnarsson fyrrverandi smiður og verðandi meistaranemi í mannauðsstjórnun hafa upplifað fitufordóma á eigin skinni sem þeir ræddu opinskátt í 34. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar. Þeir höfðu báðir sa...
#33 „Ég veit hvernig það er að vera á glergólfinu“ - Sólveig Anna Jónsdóttir 28.05.2021 46:50
„Ég veit hvernig það er að vera á glergólfinu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sem hefur komið af krafti inn í verkalýðsbaráttuna með róttækni og beittri gagnrýni á íslenska samfélagsgerð. Sólveig Anna segir að feðraveldið og kapítalisminn hafi í sameiningu skapað stigveldi sem haldi konum á botninum eins og hún þekkir af eigin skinni. „Það rann upp fyrir mér ljós þegar ég var b...
#32 Kerfisbundið ofbeldi gegn konum og útlendingum í „jafnréttisparadís”? - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Sara Mansour 26.05.2021 55:38
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Sara Mansour laganemi og aktívisti ræddu nýja bylgju metoo á Íslandi, lagarammann og réttarkerfið sem virðist ekki ná nógu vel utan um kynferðisbrot og ofbeldi í nánum samböndum og hvernig byltingar og hávær umræða hefur áhrif á löggjafann sem þó mætti hreyfa sig hraðar. Meginþungi 32. þáttar var þó á málefni fólks á flótta og frumvarp sem Áslaug A...
#31 „Hann hefði mátt vita það“ - Hildur Fjóla Antonsdóttir og Katrín Ólafsdóttir 21.05.2021 1:10:54
„Hvernig axlar maður ábyrgð á gjörðum sínum þegar það er engin forskrift til?“ segir Hildur Fjóla Antonsdóttir doktor í réttarfélagsfræði í spjalli við Katrínu Ólafsdóttur doktorsnema og Þorstein V. Einarsson í hlaðvarpinu Karlmennskan. Ræddu þau aðra bylgju metoo á Íslandi, mögulegt réttlæti fyrir þolendur kynferðisofbeldis og ofbeldis og hvernig gerendur geti mögulega tekið ábyrgð á gjörðum sínu...
#30 „Bros before hoes“ - Einar Ómars og Sólborg Guðbrands 08.05.2021 1:03:06
„Ég fékk ekki spjall eða fræðslu um hvað væri markalaust og hvað ekki. Það var bara bros before hoes, high five á kviðmága og hversu mörg gígabæt af klámi voru á flakkaranum.” segir Einar Ómarsson í spjalli með Sólborgu Guðbrandsdóttir stofnanda Instagramsíðunnar Fávitar. Önnur bylgja metoo virðist hafin í kjölfar „slúðursagna” um ofbeldisbrot þjóðþekkts manns, sem Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður...
#29 Líkamsvirðing drengja og karla - Elva Björk (Bodkastið) og Erna Kristín (Ernuland) 30.04.2021 1:07:10
„Það er ekki eins samþykkt að strákar séu að segja frá átröskun eða segja frá því að þeim líki ekki vel við sig“ segja Elva Björk og Erna Kristín sem hafa lengi barist gegn fitufordómum og fyrir líkamsvirðingu. Í ljósi þess að fáir ef nokkur karlmaður er áberandi í umræðu um líkamsvirðingu drengja og karla, bað ég Elvu og Ernu um að svara því hverjar áskoranir drengja og karla eru og hvernig við,...
#28 „Þetta mun ekki breytast af sjálfu sér“ - Ása Steinarsdóttir 23.04.2021 1:04:46
„Þetta mun ekki breytast af sjálfu sér“, segir Ása Steinarsdóttir sem er komin með nóg af kynjamisrétti og úreltum birtingamyndum kvenna í auglýsingaefni. Hún hefur ákveðið að taka slaginn enda með 700 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum og skapað sér nafn innan ævintýra- og ljósmyndageirans. Ása er ein sú stærsta af örfáum konum í Evrópu sem starfa við efnissköpun á samfélagsmiðlum og hraðast vax...
#27 Ónýtasta ráðið er „ekki fara ósátt að sofa“ - Ólafur Grétar Gunnarsson 16.04.2021 1:13:41
„Ónýtasta ráðið þarna út er „ekki fara ósátt að sofa“,“ segir Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi, sem hefur starfað lengi með verðandi og nýbökuðum feðrum. Ólafur Grétar starfar einnig á geðsviði Landspítalans. Hann brennur fyrir því að „þegar karlar eru að verða pabbar í fyrsta sinn að þeir fái að njóta þess eins mikið og lífið bíður upp á“. Hann segir að það hafi aldrei verið...
#26 Bara ég og strákarnir - Ágúst, Árni, Hörður og Þorsteinn 09.04.2021 1:28:07
„Það er ekkert svo langt síðan að við hættum að vera á yfirborðinu og fórum að tala um hvernig við erum í alvörunni“ er nokkuð lýsandi fyrir innihald samtals okkar fjögurra vina sem höfum verið að glíma við sjálfa okkur, sambönd og karlmennsku. Ég bauð nokkrum af mínum nánunustu vinum í spjall um það hvernig þeir eru að glíma við þá staðreynd að vera (hálf)miðaldra hvítir gagnkynhneigðir sís karlm...
#25 Synd, glæpur, sjúkdómur - Sögur af hommum - Þorvaldur Kristinsson 02.04.2021 59:23
„Ég á mér fortíð sem gagnkynhneigður maður, var í hjónabandi með konu og ól upp dóttur en það sem ég þráði alltaf innst inni voru karlmenn,“ segir Þorvaldur Kristinsson rithöfundur sem kominn er á áttræðisaldur og hefur staðið framarlega í réttindabaráttu samkynhneigðra í nokkra áratugi. Þorvaldur fékk yfir sig skítkast úti á götu, átti erfitt á íbúðamarkaði og upplifði á eigin skinni andúð og for...
#24 Jákvæð karlmennska 26.03.2021 40:18
Samfélagsmiðlinn Karlmennskan hefur staðið fyrir átaksverkefninu jákvæð karlmennska undanfarnar tvær vikur í samstarfi við Píeta samtökin, Stígamót, UN Women á Íslandi og námsbraut í kynjafræði í Háskóla Íslands. Í þessum þætti er hugtakið jákvæð karlmennska útskýrt nánar ásamt því sem fulltrúar samstarfsaðilanna gera grein fyrir snertirfleti þeirra starfsemi við karlmennsku og ástæður þess að þau...
#23 Drengir, testósterón og (náms)umhverfi - Hermundur Sigmundsson 19.03.2021 50:21
„Öll þekking og færni þarnfast þjálfunar og reynslu til að verða góð,“ segir Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Háskólann í Þrándheimi. Nokkuð hefur verið talað um drengi í skólakerfinu og hefur Hermundur talað um að það ríki þöggun um málefni þeirra. Hann telur að börn byrji of snemma í skóla og skólakerfið taki ekki nægjanlegt tillit til þa...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.