Þorsteinn V. Einarsson

Karlmennskan

Society IS ↓ 148 episodes

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

Author

Þorsteinn V. Einarsson

Category

Society

Podcast website

karlmennskan.podbean.com

Latest episode

Jun 14, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#72 „Ég er frelsaður til femínismans“ - Árni Matthíasson 03.02.2022

Árni Matthíasson er síðmiðaldra hvítur karlmaður, fyrrverandi togarasjómaður, blaðamaður á Mogganum til 40 ára, varaformaður stjórnar Kvennaathvarfsins og femínisti sem hefur reglulega skrifað pistla um jafnréttismál. Við ræðum um það að vera femínískir gagnkynhneigðir hvítir ófatlaðir karlmenn, lífsverkefnið sem það er að aflæra innrædda fordóma og gagnlitlar karlmennskuhugmyndir ásamt ýmsu því s...

Aukaþáttur: Trúnó í Veganúar 2022 21.01.2022

Aukaþáttur með upptöku af Trúnó á vegum Veganúar í boði Landverndar, Saffran og Veganbúðarinnar. Ég leiddi samtöl við fimm vegan einstaklinga og fræddist um vegferð þeirra í veganismanum í beinni útsendingu á Facebook síðu Veganúar. Viðmælendur eru Axel F. Friðriksson hreyfigrafíker og meðstjórnandi í samtökum grænkera, Raghneiður Gröndal tónlistarkona, Bjarni Snæbjörnsson leikari, Anna Hulda Ólaf...

#70 „Það er verið að fylgjast með ykkur“ - Edda Falak og Ólöf Tara 17.01.2022

Edda Falak stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur og Ólöf Tara stjórnarkona í Öfgum hafa verið ansi áhrifamiklar undanfarna mánuði og að mörgu leiti leitt aðra bylgju metoo og þær samfélagshræringar, ef svo má segja, sem orðið hafa undanfarna daga og vikur. Við settumst niður og veltum fyrir okkur hvort nú værum við að horfa fram á raunverulegar breytingar, alvöru afstöðu valdafólks og fyrirtækja eða...

#69 Að vera drull, menga og kvæsa - Gyða Margrét Pétursdóttir 11.01.2022

Gyða Margrét Pétursdóttir prófessor í kynjafræði í Háskóla Íslands rýnir í, skýrir og setur í samhengi vatnaskilin sem hafa átt sér stað undanfarna daga í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og tilkalli karla til líkama kvenna. Afleiðing áratuga baráttu kvenna gegn nauðgunarmenningu, feðraveldi og þolendaskömm en vatnaskilin má skammlaust tileinka frásögn Vítalíu í hlaðvarpsþættinum Eigin konur með...

#68 „Feðraveldið hafnar ekki tækifæri til að sparka í konur“ - Hildur Lilliendahl 06.01.2022

Hildur Lilliendahl er brautryðjandi í íslensku samfélagi og femínískur byltingaleiðtogi sem á stóran þátt í að varpa ljósi á og hreyfa við djúpstæðri kvenfyrirlitningu og karllægni. Það er engin spurning að hennar barátta hefur skapað aðstæður sem síðan hafa leitt af sér allskonar misstórar byltingar síðustu árin. Þakkirnar sem Hildur hefur fengið fyrir sitt framlag til jafnréttis hafa þó aðallega...

#67 „Við látum ekki kúga okkur“ - Katrín Oddsdóttir, baráttukona fyrir nýrri stjórnarskrá 16.12.2021

Katrín Oddsdóttir útskýrir í temmilega einfölduðu máli hvers vegna við sem samfélag þurfum nýja stjórnarskrá. Hún bendir á mikilvægi þess að líta á stjórnarskrána sem leiðarvísi og í senn leiðbeiningar. Við ræðum hvers vegna málefnið er umdeilt og af hverju ný stjórnarskrá birtist mörgum okkar sem einhverskonar togstreita um annað hvort eða. Við Katrín mætumst síðan í aktívismanum, metnaðnum og to...

#66 „Menn eru hræddir við að konur taki valdið þeirra frá þeim“ - Reykjavíkurdætur (Steiney og Salka) 10.12.2021

Reykjavíkurdætur urðu til upp úr rappkonukvöldum fyrir tæpum áratug, fyrst sem samkurl allskonar kvenna en síðar sem hljómsveit með ákveðnum fjölda og tilteknum einstaklingum. Þær mættu mikilli mótspyrnu til að byrja með, en yfirstigu andspyrnuna og hafa meikað það erlendis undir nafninu Daughters of Reykjavik. Þótt flestir Íslendingar hafi heyrt um hljómsveitina Reykjavíkurdætur hafa mun færri sé...

#65 „Hvað er meira sexý en jafnrétti inni á heimilinu?“ - Alma Dóra Ríkarðsdóttir og Hulda Tölgyes 07.12.2021

Þriðja vaktin, hugræn byrði eða mental load kallast sú ólaunaða ábyrgð, yfirumsjón og verkstýring sem er órjúfanlegur hluti af heimilis- og fjölskylduhaldi. Ósýnileg verkefni sem eru vanmetin og jafnvel álitið sjálfsagt að konur sinni frekar en karlar. Enda fellur þriðja vaktin, þessi hugræna byrði, margfalt þyngra á konur þótt þær séu í sambandi (með körlum) eða í fullri vinnu. Konur standa þriðj...

#64 „Fyrirtæki mega kannski skammast sín“ - Þorbjörg Sandra Bakke sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun 30.11.2021

Hefur þú velt fyrir þér tengslum textíl og kyns? Sú staðreynd að konur eru í miklum meirihluta þeirra sem framleiða, kaupa, nota, nýta, henda og þvo textíl krefst nánari skoðunar. Í þættinum fæ ég til mín Þorbjörgu Söndru frá Umhverfisstofnun sem teymir mig í gegnum virðiskeðju textíl, svo við getum betur áttað okkur á því hvernig þetta umhverfismál er í raun kynjað. Við fáum aðstoð við hvað við g...

#63 Sérfræðingar pallborðs Kveiks - Ólöf Tara Harðardóttir, Katrín Ólafsdóttir, Þórður Kristinsson og Sóley Tómasdóttir 25.11.2021

Eftir alltof stuttan og ófókuseraðan seinni þátt Kveiks um hreinsunareld Þóris Sæm fékk ég viðmælendur pallborðs Kveiks til þess að dreypa á því sem helst fór fram og kannski einna helst beina sjónum að því sem vantaði í umræðuna. Margir áhugaverðir og þarfir punktar komu fram sem er þess virði að hlusta á, til dæmis fjölluðum við um hvað er átt við þegar við tölum um handrit fyrir gerendur? Hvort...

#62 „Gerendur fá afslátt, en hvað fá þolendur?“ - Ólöf Tara Harðardóttir og Fjóla Heiðdal baráttukonur gegn kynbundnu ofbeldi 18.11.2021

Við höldum áfram að rýna í umræðuna um ofbeldi, orðræðuna, sjónarhornið og hverjir fá pláss í fjölmiðlum. Undir hvaða sjónarmið er kynt og hvaða áhrif hefur einhliða umfjöllun um ofbeldi sem málar hóp þolenda sem gerendur á umræðuna? Ítrekað fáum við að heyra skilaboð um að þolendur og baráttufólk gegn ofbeldi þurfi að vanda sig, berjast á ábyrgan hátt og með rökfestu. Þetta fáum við að heyra frá...

#61 „Ekki hvenær, heldur hvernig gætu gerendur átt afturkvæmt“ - Gústav Adolf heimspekingur og Rannveig Ágústa kynjafræðingur 12.11.2021

Hér er gerð frekari tilraun til þess að kryfja þá sviðnu jörð sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur skildi eftir í kjölfar þáttarins „Hreinunareldur Þóris Sæmundssonar“. Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir kynjafræðingur og doktorsnemi sem er að rannsaka gerendur og Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson heimspekingur og doktorsnemi sem er að rannsaka hvernig samskipti milli ólíkra reynsluheima eiga sér sta...

#60 Hreinsunareldur sem brenndi þolendur - Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks 08.11.2021

„Núna langar mig aðeins að segja hver hugsunin var.“ segir Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks aðspurð hvers vegna ákveðið var að gera einhliða illa ígrundaða og meingallaða umfjöllun um ofbeldi sem málaði hóp þolenda sem gerendur. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um leikarann Þóri Sæm í síðustu viku sem vakti vægast sagt upp hörð viðbrögð þolenda og baráttufólks gegn ofbeldi. Engir sérfræð...

#59 „Síðastur í markið er hommi“ – Ástrós Anna Klemensdóttir, meistaranemi í félagsfræði 04.11.2021

Í ljósi fregna að Josh Cavallo ástralskur fótboltamaður kom opinberlega út úr skápnum fékk ég Ástrósu Önnu meistaranema í félagsfræði til samtals við mig. Við ræddum um áberandi skort á samkynhneigðum fótboltamönnum. Þá fjallar Ástrós Anna um rannsókn sem hún gerði meðal íslenskra fótboltamanna sem varpar ljósi á þær hómófóbísku hugmyndir sem þekkjast innan greinarinnar, hvernig skaðleg orðræða, k...

#58 „Gervikallar gráta ekki “ - Tómas Tómasson alþingismaður 28.10.2021

Með sinn sérstaka stíl bauð Tómas Tómasson betur þekktur sem „Tommi“ sig fram til Alþingis. Eins og Tommi kemst sjálfur að orði þá hefur aldrei verið kosið svona „gamlan karl“ á þing, en hann hlaut efni sem erfiði og situr nú fyrir hönd Flokks fólksins á þingi. Karlmennskan fékk Tomma til þess að ræða aðdraganda kosninganna, áherslumál hans sem þingmanns, hvort hann sé „hinn góði kapítalisti“ og h...

#57 „Ísland er húsfélag“ - Svala, Hörður og Einar 19.10.2021

Ég bað vini mína um að taka umræðu um umræðuna er sneri að karlmennsku og jafnrétti á meðan ég tók örstutt „sumarfrí“ með fjölskyldunni. Núverandi og fyrrverandi fótboltaáhugamenn rýna í áhugamálið sitt og menninguna í kringum það undir dyggri stjórn Svölu Hjörleifsdóttur. Svala Hjörleifsdóttir stýrði samtali við Einar Ómarsson og Hörð Ágústsson þar sem þau fara víða og ræða m.a. karlmennskuspjall...

#56 Fullkomið foreldri, besta barnið - Auður Magndís Auðardóttir og Sunna Símonardóttir 14.10.2021

„Í staðinn fyrir að líta á okkur sem heild eða hluta af mengi þá erum við farin að líta á okkur og börnin okkar sem einhverskonar frífljótandi einstaklinga og okkar hlutverk er að besta okkur sjálf og börnin okkar sem samkeppnishæfasta einstaklinginn sem fer út og skapar peninga.“ segir Auður Magndís Auðardóttir í samtali við Sunnu Símonardóttur og Þorstein V. Einarsson um foreldrahlutverkið. Auðu...

#55 „Já, þetta er varaliturinn hennar mömmu“ - Jón Gnarr 08.10.2021

„Ég hef alla tíð verið frekar ringlaður og svo er ég bullukollur og rugludallur. Ef það er einhver hæfileiki sem ég hef þá er það þvaður. Ég get þvaðrað endalaust.“ segir Jón Gnarr meðal annars í samtali sem átti að vera 30 til 45 mínútur um kallakalla og vináttu en leiddist út í 75 mínútna spjall um allskonar. Enda er ekki auðsótt að leiða samtal við Jón Gnarr inn á eina braut. Við ræðum um kalla...

#54 „Sjáið þetta ógeð hérna“ - Aron Daði Jónsson og Arna Magnea Danks 05.10.2021

„Þú sérð manneskju [í speglinum] og veist að þetta á að vera þú en þetta er ekki þú.“ segir Aron Daði þegar hann er beðinn um að lýsa þeirri upplifun að tilheyra ekki því kyni sem honum var úthlutað við fæðingu. Aron Daði Jónsson og Arna Magnea Danks veita innsýn í reynsluheim sinn, áskoranir og frelsið við að koma út sem trans. Þau segja kyn sitt ekki vera spurningu um val eða upplifun heldur það...

#53 „Stóra mómentið er núna“ - Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB 01.10.2021

„Í kjarasamningum upp úr 1900 eru launataxtar fyrir karla og svo fyrir konur og unglingsstráka, sem þóttu vera á pari.“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir ný-endurkjörin formaður BSRB um sögulegar rætur launamisréttis á Íslandi. Við Sonja ræðum kynbundinn launamun og hvernig störf eru metin á ólíkan hátt þannig að störf þar sem konur eru í meirihluta eru gjarnan metin lægra til launa. Sonja telur að nú...

#52 „Það er ekkert gott að geta verið drulluhali“ - Kött Grá Pjé (Atli Sigþórsson) 23.09.2021

„Það er ekkert gott að geta verið drulluhali í einrúmi með vinum þínum“ segir Atli Sigþórsson sem er þekktari undir listamannsnafninu Kött Grá Pjé. Atli segist hafa verið bældur maður og Kött Grá Pjé hafi verið alteregó sem hafi hjálpað honum að takast á við sviðsskrekkinn. Alteregóið hafi þó verið heiðarleg gríma því í gegnum hana hafi hluti af Atla komist fram og Kött Grá Pjé orðið að sönnum Atl...

#51 „Hvaðan ertu?“ - Chanel Björk Sturludóttir 16.09.2021

„Í staðinn fyrir að fara í vörn að fólk sé bara tilbúið til að hlusta, læra og aflæra þessar hugmyndir.“ segir Chanel Björk Sturludóttir umsjónarkona Mannflórunnar sem er útvarps- og hlaðvarpsþáttur á Rúv og Instagram, þar sem hún leitast við að svara djúpstæðum spurningum um fjölmenningu í íslensku samfélagi. Chanel er blandaður Íslendingur og kannast við á eigin skinni hvernig við flokkum fólk e...

#50 Plastlaus september: „Við getum gert svo margt“ - Kolbrún G. Haraldsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson 11.09.2021

Landsátakið plastlaus september er hafið í fimmta sinn sem er að fyrirmynd Plastic free july frá ástralíu. Skipuleggjendur plastlauss september leggja aherslu á jákvæðni og lausnir með vitundavakningu um plastnotkun. Markmiðið sé ekki að útrýma plasti heldur að við reynum að takmarka notkun þess með aukinni meðvitund. Stjórnvöld hafa innleitt reglugerðir sem hafa svipað markmið og hafa t.d. plastp...

#49 „Það er búið að þagga niður milljón svona mál“ - Pétur Marteinsson fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu 08.09.2021

„Við vitum að yfir 10% kvenna er nauðgað og yfir 30% lenda í kynferðisofbeldi sem hefur áhrif á þær til framtíðar [...] samt erum við ekki tilbúnir til að trúa þolendum.“ segir Pétur Marteinsson fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu. Í kjölfar frásagna af þöggun KSÍ um ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, afsagnar formannsins, afsagnar stjórnar og brotth...

#48 Ég veit ég hef rödd og ég ætla að beita henni - Hanna Björg Vilhjálmsdóttir 02.09.2021

„Ég hef það ágætt, þetta er búið að vera stormur en ekki í versta skilningi“ segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar KÍ. Hanna Björg skrifaði pistil sem birtist á Vísi 13. ágúst síðastliðin með fyrirsögninni „Um KSÍ og kvenfyrirlitningu“. Þar gagnrýndi hún KSÍ fyrir að þagga niður ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og bregðast...

Listen to the Karlmennskan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.