Þorsteinn V. Einarsson

Karlmennskan

Society IS ↓ 148 episodes

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

Author

Þorsteinn V. Einarsson

Category

Society

Podcast website

karlmennskan.podbean.com

Latest episode

Jun 14, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#98 Kynlífsverkafólk og Rauða regnhlífin - Logn og Renata 14.07.2022

Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Þau styðja skaðaminnkun og vilja binda enda á fordóma gegn fólki sem selur kynlífsþjónustu. Logn starfaði við kynlífsþjónustu í 3 til 4 ár en Renata bryjaði að strippa meðfram skólagöngu sinni í Berlín áður en hún fór svo að notast við Onlyfans, sem hún starfar við í dag. Logn og Renata vilja afg...

#96 Jordan Peterson í femínísku ljósi - Unnur Gísladóttir 27.06.2022

„Það er erfitt fyrir mig að kjarna gagnrýni á Jordan Peterson því hún er marglaga en ef ég ætti að gera það þá er það vanhæfni hans til að setja sig í spor jaðarsettra hópa eða kvenna.“ segir Unnur Gísladóttir mannfræðingur og framhaldsskólakennari. Unnur hefur lesið allar bækur Jordan Peterson og líklega innbyrt meira magn af efni eftir hann heldur en margur aðdáandinn. Unnur er hins vegar lítill...

#95 „Plís, viljiði bregðast við þessum yfirlýsingum okkar“ - Líf án ofbeldis (Gabríela Bryndís og Sigrún Sif) 15.06.2022

Sigrún Sif Jóelsdottir er með meistarargráðu í sálfræði og starfar við rannsóknir í Háskóla Íslands og Gabríela Bryndís Ernudóttir sjálfstætt starfandi sálfræðingur eru forsvarskonur Lífs án ofbeldis. Líf án ofbeldis er „baráttusamtök mæðra og uppkominna barna sem krefjast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og forsjármálum.” Gabríela og Sigrún Sif eru þolendur ofbeldis og þekkja þe...

#94 „Mestu persónunjósnir sem fram hafa farið á Íslandi“ - Alma Ómarsdóttir 02.06.2022

„Ástandsárin“ hefur tíminn verið kallaður í sögubókunum okkar þegar Bretar hernámu Ísland í seinni heimsstyrjöldinni. Færri kannast þó kannski við að íslensk stjórvöld ofsóttu ungar konur, sviptu þær sjálfræði með því að hækka sjálfræðisaldur úr 16 ár í 20 ár til þess að geta dæmt þær í fangelsi fyrir að eiga í samskiptum við hermenn. Landlæknir, forsætisráðherra, Alþingi, lögreglan, fjölmiðlar og...

#93 „En Bjarni minn, við vissum þetta alltaf“ - Bjarni Snæbjörnsson 27.05.2022

Bjarni Snæbjörnsson er leikari hjá Þjóðleikhúsinu og í þessu spjalli kryfjum við sjálfsævisögulega heimildasöngleikinn hans „Góðan daginn, faggi“ sem sýndur er í Þjóðleikhúskjallaranum. Við ræðum ferlið við sýninguna, viðbrögðin sem hafa verið vægast sagt áhrifamikil, sársaukann og gleðina, samkennd og skilningsleysi, gagnkynhneigðarhyggju, transfóbíu og kvenfyrirlitningu sem sameinast oft í samfé...

#92 Konur í karlastörfum 18.05.2022

Hver er reynsla kvenna af karlastörfum? Í þessum þætti er varpað ljósi á reynslu 13 kvenna sem eiga það sameiginlegt að hafað starfað á vettvangi þar sem karlar eru í meirihluta eða starfsvettvangi sem telst karllægur. Þótt nokkuð fari fyrir átökum og hvatningu til kvenna að sækja í karlastörf þá eiga flestar, ef ekki allar, þessar konur sameiginlegt að hafa einfaldlega áhuga og löngun til að star...

#91 „INCEL hugmyndafræðin er útum allt“ - Arnór Steinn Ívarsson 12.05.2022

„Konur skulda okkur kynlíf - Kvenhatur einhleypra karlmanna á netinu“ er heiti á B.A. ritgerð í félagfræði eftir Arnór Stein Ívarsson þar sem samtöl meðlima INCEL (hópur karla sem upplifa sig svipta rétti sínum ti kynlífs með konum) voru orðræðugreind. Arnór fer yfir grunninn í hugmyndafræði INCEL, hvaðan þeir koma og hvert einkenni þessarar orðræðu er. Við tengjum hugmyndafræðina við þekkt stef í...

#90 „Samt var ég rosa skotinn í henni“ - Guðmundur Arnar Guðmundsson 10.05.2022

Guðmundur Arnar Guðmundsson er handritshöfundur og leikstjóri kvikmyndanna Hjartasteinn og Berdreymi. Í þessu spjalli notum við Berdreymi og æsku Guðmundar, sem er fóður handrits Berdreymis, til að kryfja karlmennsku, karlmennskuhugmyndir, vináttu stráka, kvenfyrirlitningu og hírarkíu milli stráka. Við veltum fyrir okkur hvað þurfi til að skapa jákvæðari karlmennsku, mikilvægi stuðnings í skólaker...

#89 „Af hverju má ég ekki vera bæði?“ - Lenya Rún Taha Karim 04.05.2022

Lenya Rún Taha Karim er fimmti yngsti varaþingmaður í sögu Íslands og hefur verið nokkuð áberandi undanfarna mánuði eða frá því hún var kosin inn á þing en datt svo út eftir talningaklúður. Lenya á kúrdíska foreldra og hefur vegna þess og húðlitar síns fengið að upplifa fordóma, þjóðernishyggju og andúð á eigin skinni. Við ræðum þó ekki bara rasisma heldur einnig stéttaskiptingu, pólitíkina, mikil...

#88 „Fólk elskar að hata konur“ - Öfgar 27.04.2022

„Við erum komnar með nóg af ofbeldi sem fjórða valdið hefur verið að beita konur, þá sérstaklega aktívista og þolendur.“ segja Öfga-konurnar Þórhildur Gyða og Hulda Hrund í spjalli um ástæður þess að hópurinn ákvað að rita pistlaröð og beindi spjótum sínum m.a. að fjölmiðlum. Við spjöllum almennt um baráttuna, stöðuna, áhuga erlendra fjölmiðla á hópnum Öfgar, aðferðafræði og oddaflug, árangurinn s...

#87 „Hvenær ertu búinn að axla ábyrgð?“ - Hildur Fjóla Antonsdóttir 22.04.2022

Viðtal við tónlistarmanninn Auður í Íslandi í dag 12. apríl sl. er ákveðið leiðarstef í þessum þætti þar sem við leitumst við að svara því hvernig gerendur geti axlað ábyrgð á ofbeldi, einkum kynferðisofbeldi, og hvort tímabært sé að gerendur stígi fram líkt og Auðunn. Munu raddir gerenda yfirgnæfa frásagnir þolenda og hannúðin yfirtaka umræðuna? Er tímabært að hlusta á gerendur? Hildur Fjóla Anto...

#86 „Samfélag án aðgreiningar er ekki til“ - Leifur Leifsson 14.04.2022

Leifur Leifsson er aflraunamaður, crossfittari, fyrrverandi uppistandari og ræðumaður og starfsmaður í þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Leifur varpar ljósi á ráðandi karlmennskuhugmyndir út frá sínum reynsluheimi sem einstaklingur með hreyfihömlun sem notast við hjólastól. Á afskaplega kómískan hátt dregur Leifur fram krítískt sjónarhorn á able-ískt samfélagið, stéttaskiptingu inna...

#85 „Mín kynslóð er markalausa kynslóðin“ - Bubbi Morthens 07.04.2022

Bubbi Morthens hefur sannarlega sveiflast með tíðaranda okkar samfélags fram og aftur, verið gagnrýndur fyrir tækifærismennsku og fyrir að sýna af sér karlrembu en er einn af fáum sem þó gengst oft við því þegar hann ruglast, sem myndi teljast gott fordæmi um jákvæða karlmennsku. Bubbi segist þó upplifa sig oft sem utangátta, utanvelta og steingert tröll enda alinn upp, að eigin sögn, í eitraðri k...

#84 „Of ungleg eða of gömul og með of djúpa rödd“ - Aldís Amah Hamilton 31.03.2022

Aldís Amah Hamilton er leikkona og handritshöfundur sem meðal annars lék aðalhlutverkið og skrifaði þættina Svörtu sandar. Þá lék Aldís Amah einnig stórt hlutverk í netflix seríunum Katla og Brot eða The Valhalla Murders. Við tölum aðeins um veganisma og hvenær einhver er nógu vegan til að vera vegan, tækifæri og aldursfordóma, hvenær kona hættir að vera efnileg og verður öf gömul, tölum um líkams...

#83 „Halda kjafti og lifa til 42 ára aldurs“ - Gísli Kort sérfræðingur í geðhjúkrun 28.03.2022

Dominos, Veganbúðin, The Body Shop og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt. Gísli Kort Kristófersson er sérfræðingur í geðhjúkrun á sjúkrahúsinu á Akureyri og dósent við Háskólann á Akureyri. Gísli fór af járnsmíðaverkstæði í vinnu á hjúkrunarheimili og hefur ekki litið til baka síðan eða í 23 ár. Í dag kennir Gísli við háskólann á Akureyri, stundar rannsóknir og sinnir auk þess meðf...

#80 Jákvæð karlmennska: Sjálfsvígshugsanir - Tómas Kristjánsson sálfræðingur 14.03.2022

Tómas Kristjánsson sálfræðingur útskýrir þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og leiðir til að vinna úr erfiðum tilfinningum. Ef þú finnur þig vonlausan er vert að leita sér aðstoðar t.d. í símanumerinu 1717 og 1717.is sem er opið allan sólahringinn, hjá Píeta samtökunum, Berginu (fyrir ungt fólk til 25 ára), hjá sálfræðingum víða um land en mikilvægast er að segja einhverjum sem þú treystir að þér líði...

#79 Jákvæð karlmennska: ÁFÖLL - Hulda Tölgyes sálfræðingur 14.03.2022

Hulda Tölgyes sálfræðingur og ein af höfundum átaksins um jákvæða karlmennsku útskýrir áföll, afleiðingar áfalla, birtingamyndir og leiðir til úrvinnslu á áföllum. „Karlar og drengir í okkar samfélagi hafa ekki sama rými til þess að tala um og læra á tilfinningar sínar eins og stúlkur og konur. Ekki vegna þess hvernig þeir fæðast heldur vegna þess hvernig samfélagið er. Þeir leita sér síður aðstoð...

#82 Jákvæð karlmennska: REIÐI - Henrietta Ósk Gunnarsdóttir sálfræðingur 14.03.2022

Henrietta Ósk Gunnarsdóttir sálfræðingur hjá fangelsismálastofnun fer yfir tilfinninguna reiði, hvers vegna við verðum reið og hvenær reiði er orðin of sterk svo hún veldur okkur og öðrum vandræðum. „Reiðin er í raun mjög góð, þetta er réttlætistilfinning. Við upplifum reiði þegar við finnum að brotið er á rétt okkar og hún getur verið mjög hjálpleg og þurfum á henni að halda. Gott dæmi er réttind...

#81 Jákvæð karlmennska: SKÖMM - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur 14.03.2022

Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur fer yfir óþægilegu og oft erfiðu tilfinninguna skömm, hvers vegna við upplifum skömm og hvað má gera ef skömmin er yfirþyrmandi. „Þegar við upplifum að einhver gerir lítið úr okkur, lítilllækkar eða niðurlægir, þá er skömmin viðbragð við þeirri upplifun. Það er kallað ytri skömm. Innri skömm er þegar við upplifum að við göngum á einhver gildi sem eru okkur mikil...

#78 „Finnst þetta bara ofboðslegt ónæði“ - Bragi Páll Sigurðarson 10.03.2022

Bragi Páll Sigurðarson er rithöfundur og sjómaður, tveggja barna faðir, maki Bergþóru Snæbjörnsdóttir rithöfundar og sonur fyrrverandi þingmanns Miðflokksins. Bragi Páll gaf út bókina Arnaldur Indriðason deyr fyrir síðustu jól sem naut töluverðra vinsælda. Við ræddum samt ekkert um bækur, heldur um karlmennskuna á sjónum, klórdrekkandi samsæriskenningasinna, heimilisstörf og glímuna við að vera ka...

#77 „Fljót að droppa prinsippum fyrir rétta hópinn“ - Andrés Ingi Jónsson og Sema Erla Serdar 04.03.2022

Fátt annað er fjallað um í fjölmiðlum hérlendis og útum allan heim þessa dagana en innrás Rússa í Úkraínu. Hafa nánast allar þjóðir heimsins fordæmt aðgerðir Rússa og virðast þeir algjörlega einangraðir í sjálftitlaðri „friðargæslu sinni” og frelsun Úkraínsku þjóðarinnar en milljón manns hafa flúið heimili sín frá Úkraínu og er búist við að milljónir muni flýja í viðbót. Andrés Ingi Jónsson alþing...

#76 „Þú lítur ekki út fyrir að vera hommi“ - Jafet Sigfinnsson 24.02.2022

Jafet Sigfinnsson hefur heldur betur fengið að finna fyrir lífinu og upplifað röð áfalla sem hann hefur deilt með fylgjendum sínum á Twitter. Þar hefur hann sagt frá því þegar hann var staddur á æskuheimili sínu á Seyðisfirði þegar hann lenti í miðri aurskriðu, þeirri stærstu sem fallið hefur á þéttbýli á Íslandi. Jafet hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi og stafrænu einelti þegar trúnaðarsamtali v...

#75 „Ég hafði svo margar spurningar“ - Steinunn, Linda og Hafdís - Stígamót, Vettvangur glæps 21.02.2022

Þolendur kynbundins ofbeldis eru meira en vettvangur glæps er yfirskrift átaks á vegum Stígamóta sem felst í að skora á dómsmálaráðherra að gera brotaþola að aðilum eigin máls, en ekki bara að vitnum. Átakið og ákall Stígamóta byggir á reynslu fimm kvenna af réttarkefinu - hvernig þær voru vitni að eigin ofbeldi og líkami þeirra þar með vettvangur glæps. Í þessum þætti ræði ég við Steinunni Gyðu-...

#74 „Er ekki eitthvað beef á milli ykkar?“ - Guðrún Ýr Eyfjörð (GDRN) 17.02.2022

GDRN eða Guðrún Ýr Eyfjörð tónlistarkona og leikkona virðist gædd einhverri náðargáfu. Hún semur texta, lög, spilar á fiðlu og píanó og bar uppi heila þáttaseríu í frumraun sinni sem leikkona. Við spjöllum um fjárhagsleg áhrif covid á tónlistarfólk, Kötlu ævintýrið og að verða skyndilega burðarstykki í Netflix seríu, fullkomnunaráráttuna og sjálfsvinnuna, konur í tónlist og þá tilhneigingu fólks a...

#73 „Alltaf einhver sem borgar fyrir fréttirnar þínar“ - Ingibjörg Dögg og Jón Trausti stofnendur Stundarinnar 10.02.2022

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson hafa áratuga reynslu af blaðamennsku og eru stofnendur Stundarinnar. En Stundin var stofnuð árið 2015 af fyrrum fjölmiðlafólki hjá DV eftir „fjandsamlega yfirtöku á miðlinum vegna umfjallana“ eins og stendur á vef stundarinnar. Fjölmiðlar, blaðamenn og ritstjórar fá reglulega yfir sig harða gagnrýni, ýmist frá valdafólki sem mislíkar umfjöllun...

Listen to the Karlmennskan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.