Þorsteinn V. Einarsson

Karlmennskan

Society IS ↓ 148 episodes

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

Author

Þorsteinn V. Einarsson

Category

Society

Podcast website

karlmennskan.podbean.com

Latest episode

Jun 14, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

122. „Ég er búin að taka valdið“ - Dilja Pétursdóttir 09.06.2023

Dilja Pétursdóttir, fulltrúi okkar í Eurovision í ár, hefur ætlað sér að verða söngkona frá því hún tók þátt í Ísland got talent 12 ára gömul. Við spjöllum um Eurovision, strögglið við skuggana kvíða og þráhyggju, nýtilkomna frægð og fjölmiðlaumfjöllun um persónulegt líf hennar, tónlistarbransann og stóru plönin.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Hljóðbútar af...

121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson 10.05.2023

121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson Guðmundur Jóhannsson hefur verið tíður gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 með innslög um tækni og stafræna heima og starfar sem samskiptafulltrúi hjá Símanum. Orðfæri og orðanotkun Guðmundar vakti athygli mína en iðulega notast hann við kynhlutlaust mál sem mér þykir áhugavert komandi úr jafn karllægum geira. Mig langaði að forvitnast nánar um þ...

120. „Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson 27.04.2023

„Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson Hann er næstum því sextugur, gagnkynhneigður, giftur í tæpa þrjá áratugi, með tvær háskólagráður, starfar í leikskóla og byrjaði að notast við varalit, naglalakk og kjóla fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson segist beita sínum karllægu forréttindum á þennan hátt til að hafa jákvæð áhrif á börnin sem hann starfar með en fyrst og fre...

119. „Þá þarf ég bara femínista sem er að pæla í píkum“ - Nanna Hlín Halldórsdóttir 11.04.2023

Nanna Hlín Halldórsdóttir er doktor í femínískri heimspeki og kennari við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt um eðlishyggju gegn mótunarhyggju, rannsakað á doktorsstigi hvort berskjöldun geti verið andsvar femínískrar heimspeki við nýfrjálshyggju og skrifað um iðrun, ábyrgð, tilfinningar, slaufun og fleira.   Við förum í örlítinn nördaskap um eðli (karl)mannsins og skilin á milli líkama og félagsleg...

118. „Svona er ég bara“ - Biggi Veira 23.03.2023

Birgir Þórarinsson eða Biggi Veira tónlistarmaður, sem mörg tengja líklega við GusGus, hefur ekki látið þröngan stakk karlmennskuhugmynda skilgreina sig, sérstaklega ekki fataval sitt og kyntjáningu. Enda er hann reglulega í sokkabuxum, blússum eða kjólum sem teljast almennt til kvenfatnaðar og vel farðaður, þótt hann sé stundum beðinn um að vera ekki of mikið málaður t.d.fyrir foreldraviðtöl.  Bi...

117. „Það sem er mjúkt getur ekki brotnað“ - Spindrift, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir 09.03.2023

THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þ...

116. „Ég er ekki sammála því“ - Þórarinn Hjartarson 23.02.2023

Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðar...

115. „Klám er helsta kynfræðsla barna, sem vinnur gegn kynfrelsi“ - María, Kristín og Eygló 15.02.2023

Bylting framhaldsskólanema gegn kynferðisofbeldi og gagnrýni á viðbragðsleysi skólastjórnenda ýtti undir kröfu um aukna kyn- og kynjafræðikennslu í skólum auk almennilegra viðbragða þegar kynferðisbrot koma upp. Skólameistarar ruku sumir hverjir upp og bundu vonir við að fram kæmu leiðbeiningar til að tækla slík mál. Sérfræðingar í jafnréttis- og ofbeldisforvarnarmálum sögðu þó hægan hægan. Engin...

114. AUKAÞÁTTUR - „Við munum breyta heiminum“ ÖRLÖ, Hörður og Kristinn 11.02.2023

  ÖRLÖ er samstarfsaðili Karlmennskunar sem býður upp á hlaðvarpið og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum. Í þessum aukaþætti Karlmennskunnar ætlum við að fræðast um hvað ÖRLÖ er, hvað er svona merkilegt við þeirra vörur og framleiðslu og hvers vegna VAXA technologies (sem framleiða ÖRLÖ) vilja tengjast Karlmennskunni.   Hörður Águstsson sölu- og markaðsstjóri og Kristinn Hafliðason framkvæmdastjóri V...

#113 „Réttlæti fyrir brotaþola er að geta haldið áfram að lifa í sínu samfélagi“ - Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir og Elín Björk Jóhannsdóttir 01.02.2023

Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og ref...

#112 „Tilfinningar karla, er það ekki hot topic?“ - Ari Ísfeld Óskarsson 20.01.2023

„Ég vonast til þess að karlar, ungir sem aldnir, byrji að tala saman meira um tilfinningar sínar og hvernig þeim líður.“ segir Ari Ísfeld Óskarsson leikari sem samdi og lék í How to make love to a man í tilraunaverkefninu Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu sl. vor. Leikritið fjallaði á kómískan en raunsæan hátt um karlmennsku og karla, hvernig þeir eiga samskipti sín á milli og takast á við lífið. Ari...

#111 „Það er alltaf einhver afstaða í gríni“ - Dóra Jóhannsdóttir 13.01.2023

Áramótaskaupið hefur sennilega aldrei fengið jafn almennt sterk jákvæð viðbrögð frá flestum, nema kannski „nokkrum fótboltagrúbbum” eins og Saga Garðars orðaði í viðtali á dögunum og svo er spurning hvernig sumum meintum og vinum þeirra fannst skaupið. Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri Áramótaskaupsins kryfur nokkra sketsana og gefur okkur innsýn í ferlið við skaupið. Hvernig kemur hún aug...

#110 „Gott að spá einhverju og geta svo látið það rætast“ - Miriam Petra og Sóley Tómasdóttir 28.12.2022

Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís...

#109 „Fólk verður bara að fyrirgefa hvað ég er lengi að fatta“ - Gísli Marteinn Baldursson 14.12.2022

Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni,...

#108 „Maður er líka alltaf að gera grín að sjálfum sér“ - Helga Braga Jónsdóttir 08.12.2022

Helga Braga Jónsdóttir er leikona og grínisti, leiðsögumaður, flugfreyja, magadansfrumkvöðull og kvenuppistandsfrumkvöðull. Helga Braga hefur skapað ódauðlega karaktera og skrifað og leikið í ódauðlegum senum t.d. með Fóstbræðrum. Auk þess hefur Helga auðvitað leikið í fjölmorgum þáttum, bíómyndum, áramótaskaupum og fleiru. Við spjöllum um grínið, hvernig og hvort það hefur breyst, kryfjum nokkrar...

#107 „Hinseginleikinn minn trompar það ekki að ég sé barn“ Hinsegin félagsmiðstöðin - Hrefna, Nóam og Tinni 25.11.2022

Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrir öll ungmenni á aldrinum 10-17 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Markmið starfseminnar er að vinna mark­visst að því að bæta lýð­heilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn for­dóm­um, mis­munun og ein­elti sem bein­ist gegn hinsegin börnum í skóla og frí­st...

#106 Þegar þagnaði í víkingaklappinu - Valur Páll Eiríksson M.A. í íþróttasiðfræði 09.11.2022

Sjö leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta voru sagðir hafa beitt eða kærðir fyrir heimilisofbeldi eða kynferðisofbeldi haustið 2021. Öll sem stigu fram voru konur og sögðust gera það innblásnar af metoo byltingunum. Mál sem hreyfði við íslensku samfélagi og leiddi m.a. til þess að formaður KSÍ og öll stjórn sagði af sér. Valur Páll Eiríksson, íþróttafrettamaður, skrifaði meistararitgerð í...

#105 „Öfgahyggja er kynjaður vandi“ - Sema Erla Serdaroglu 21.10.2022

Sema Erla Serdaroglu er stjórnmálafræðingur, tómstunda- og félagsmálafræðingur og evrópufræðingur, aðjúnkt á menntavísindasviði við Háskóla Íslands og aktívisti gegn útlendingaandúð og þjóðernis- og öfgahyggju. Sema hefur rannsakað öfgahyggju meðal ungs fólks en meistararannsókn hennar ber heitið „Ofbeldisfull öfgahyggja og ungt fólk : staða þekkingar og mikilvægi forvarna”. Sema setur meinta hryð...

#104 „Eitt glas af enska boltanum og þrjár teskeiðar af karlrembu“ - Dagur Hjartarson rithöfundur 05.10.2022

Dagur Hjartarson er kennari og rithöfundur sem hefur meðal annars fengið hin virtu bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Ljóðstaf Jóns úr Vör. Þá hefur Dagur einnig verið tilnefndur til bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og er einn af þeim útvöldu sem hafa fengið listamannalaun til að sinna ritstörfunum. Við Dagur ræddum um fyrirmyndir ungra drengja, hvað þurfi til svo skáld og rithöfundar...

#103 „Hljómar eins og ég sé the bad guy“ - Kaupandi vændis 21.09.2022

Kaupendur vændis eru duldir og í raun fjarverandi í umræðu um vændi og kynlífsvinnu. Átökin í orðræðu hafa að mestu hverfst um hugtök og nálganir er snýr að löggjöf í kringum vændi eða kynlífsvinnu og þá borin uppi af fólki sem almennt er sammála um að samfélagsgerð lituð af feðraveldi, karllægni, misskiptingu og fátækt geti ekki talist gott samfélag. Í þessum þætti leitast ég hinsvegar við að var...

#102 Dulinn sexismi, incel og narsissismi í hópum - Bjarki Þór Grönfeldt 15.09.2022

Bjarki Þór Grönfeldt er doktorsnemi í stjórnmálasálfræði við Háskólann í Kent á Englandi en hann mun í haust skila doktorsritgerð sinni um sjálfhverfu, eða narsissisma, í hópum. Bjarki hlaut á dögunum Roberta Sigel verðlaun Alþjóðasamtaka stjórnmálasálfræðinga fyrir bestu vísindagreinina skrifaða af ungum fræðimanni. Greinin bar nafnið „A Small Price to Pay: National Narcissism Predicts Readiness...

#101 „Eitruð karlmennska er stærsti óvinur veganismans“ - Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir 02.09.2022

Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir er framkvæmdastjóri, meðeigandi og meðstofnandi Veganmatar sem rekur Veganbúðina og Jömm. Hún er brautryðjandi í veganisma á Íslandi og reyndar á heimsvísu því Veganbúðin í Skeifunni er stærsta veganbúð í heiminum. En Sæunn hefur auk þess komið að stofnun Samtaka grænmetisæta á Íslandi, verið vegan í 10 ár og er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum...

#100 Páll Óskar Hjálmtýsson 12.08.2022

Brautryðjandinn, poppgoðið, homminn og hin ögrandi þjóðargersemi Páll Óskar Hjálmtýsson er heiðursgestur 100. hlaðvarpsþáttar Karlmennskunnar. Við kryfjum karlmennskuna og kvenleikann, leikritið sem kynhlutverkin og karlmennskan er, skápasöguna og kolröngu viðbrögð foreldra Palla, karlrembur, andspyrnuna og bakslag í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Narut...

#99 „Mig langaði ekkert að lifa“ - Lárus Logi Elentínusson (Eldgosi) 28.07.2022

Lárus Logi Elentínusson hefur verið að glíma við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir frá því hann var unglingur. Lárus sem er 19 ára gamall, og þekktur sem Eldgosi á TikTok, deildi því með fylgjendum sínum að hann hefði gert sjálfsvígstilraun fyrir tæpum tveimur árum. Í einhverja mánuði voru viðbrögð fólks á TikTok, commentin og rauðu búbblurnar það sem hélt í honum lífinu. Lárus er ekki laus við vanl...

#97 Vændi og Venjulegar konur - Brynhildur og Eva Dís 14.07.2022

Venjulegar konur, vændi á Íslandi heitir nýlega útkomin bók eftir Brynhildi Björnsdóttur þar sem sex íslenskar konur lýsa sárri reynslu sinni af því að hafa verið í vændi. Í bókinni er auk þess fjallað um hugmyndafræðileg átök í tengslum við lagasetningar en kastljósinu er ekki síður beint að kaupendum, þeim sem bera uppi eftirspurnina sem er í langmestum meirihluta karlmenn. Frumkvæðið að bókinni...

Listen to the Karlmennskan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.