Þorsteinn V. Einarsson

Karlmennskan

Society IS ↓ 148 episodes

[ATH. Þú getur hlustað á vikulega þætti af Hjónvarpinu með áskrift á patreon.com/hjonvarpid] Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

Author

Þorsteinn V. Einarsson

Category

Society

Podcast website

karlmennskan.podbean.com

Latest episode

Jun 14, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

3.17: Íslenzka – Iris Edda Nowenstein 14.06.2026

Iris Edda Nowenstein er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítalanum. Iris er innflytjandi sem kom sex ára gömul til Íslands og ólst upp við að tala frönsku við mömmu sína og spænsku við pabba sinn. Reynsluna af því að læra íslensku sem annað mál nýtir Iris í rannsóknum sínum og telur það ekki íslenskri tungu til framdráttar að líta á fjöltyngi...

3.16: Ekki alltaf glimmer og Pride – Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir 27.05.2026

„Við sem samfélag [þurfum] að koma út úr skápnum með þetta til þess að við getum dregið úr ofbeldi í nánum hinsegin samböndum og skömminni sem því fylgir. Óttinn við bakslag er eðlilegur, en Pride er uppreisn og við látum ekki ótta stöðva okkur […]“   Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir kynjafræðingur og kennari gerði meistararannsókn um ofbeldi í nánum hinsegin samböndum. Hún segir frá rannsókn sinn...

3:15: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir – „Það er enginn heilsukvilli sem hrjáir bara feitt fólk“ 28.04.2026

Tara Margrét Vilhjálmsdóttir er félagsfræðingur að mennt og hefur talað fyrir líkamsvirðingu undanfarinn áratug. Hún vill að heilbrigðisyfirvöld leggi áherslu á þyngdarhlutlausa nálgun að bættri heilsu í stað þyngdarmiðaðrar. Tara Margrét þurfti að draga sig í hlé úr opinberri umræðu vegna álags eftir ítrekaðar hótanir, niðurlægingar og viðbjóð sem virðist fylgifiskur þess að gagnrýna viðtekin við...

3.14: „Við erum samt ennþá að starfa innan feðraveldisins“ – Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis 12.04.2026

Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis og á langan pólitískan feril að baki, þótt hún sé einungis sextug. Hún kom að stofnun Röskvu 1988, sameiningu Alþýðubandalagsins, Kvennalistans og Alþýðuflokksins í Samfylkinguna og hún var umhverfisráðherra í miðju hruninu 2007–2009. Þórunn er femínisti og hefur lengi barist fyrir kvenréttindum og mannréttindum. Þrátt fyrir reynslu af sameiningu og þá...

3.13 „Þessi skömm og sektarkennd“ – Börkur Reykjalín Brynjarsson 08.04.2026

Börkur Reykjalín Brynjarsson er verkfræðingur sem rak fjölskyldufyrirtækið en brann út, varð fyrir kulnun, greindist með ofsakvíða og þunglyndi. Í kjölfarið fór hann að prufa leiðir til að ávaxta peninginn sem varð eftir við lokun fyrirtækisins en endaði á að festast í vítahring spilarfíknar. Þögnin, skömmin, sektarkenndin og vonleysið rændi hann næstum því lífsviljanum. Börkur leitaði til Píeta s...

3.12: „Þögnin hefur kostað mig svo margt“ – Sara Gabríela 30.03.2026

„Ég vakna á endurlífgunardeild fyrir tveimur árum og eftir það langar mig að stíga út úr þessu.“ segir Sara Gabríela. Við áttum börn á sama leikskóla og höfðum nokkrum sinnum spjallað lítillega. Þegar ég rakst á Söru Gabríelu í gegnum algoriðmann á TikTok kannaðist ég við nafnið en alls ekki manneskjuna. Þessi þögla, hlédræga og feimna kona var svo róttæk, beinskeytt og hæðin að ég þekkti hana ekk...

3.11: „Kirkjan hefur lært af sögunni“ – GUÐRÚN KARLS HELGUDÓTTIR Biskup Íslands 25.03.2026

Traust til Þjóðkirkjunnar fer stigvaxandi og jafnvel róttækustu femínistar landsins hafa trú á biskupi Íslands. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands vill vera sýnileg og gera kirkjuna að jákvæðu afli í samfélaginu. Biskupsmálið, rannsóknarskýrslan og mistök kirkjunnar koma til umræðu. Við ræðum aukna kirkjusókn ungs fólks, íhaldssemi, kynferðisofbeldi, Biblíuna, trú og mennsku. Hvers konar karl...

3.10: HALLGRÍMUR HELGASON „Karlar deyja andlegum dauða upp úr fimmtugu“ 12.03.2026

Myndlistamaðurinn og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason er á sjötugsaldri en er talinn af sumum allt of woke. Hallgrímur var á sextugsaldri þegar hann eignaðist barn með konu sinni en árinu áður hafði hann orðið afi. Við ræðum woke og histeríska umræðuhefð, „sjúkdóm“ sem herjar á karlmenn og dregur þá til andlegs dauða, pabbafa hlutverkið og rifjum upp viðbrögð menningarelítunnar þegar Hallgrímur...

3.9: „Ég ætlaði sko ekki að verða femínisti“ – Tanja Mjöll Ísfjörð 04.03.2026

Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir telur að nú sé kominn tími til að færa fókusinn frá þolendum yfir á gerendur ofbeldis. „Ég vil tala um að þeir eru alls konar og, triggerandi fyrir mig að segja, en margir af þessum mönnum eru góðir við vini sína og hinn og þennan en svo eru þeir ofbeldismenn.“ Tönju var útskúfað úr samfélagi sínu og heimabæ eftir að hafa sagt frá og tilkynnt ofbeldi af hálfu lögre...

3.8 ÞOLENDUR – Guðný S. Bjarnadóttir 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Lítið hefur heyrst frá þolendum eftir háværar byltingar undanfarin ár. Má túlka það sem svo að byltingarnar hafi skilað árangri eða eru aðrar ástæður fyrir þögn þolenda? Við fáum innsýn í reynslu Guðnýjar af íslenska réttarkerfinu en gagnrýni hennar leiddi meðal annars til þess að verklagi lögreglunnar var breytt. Guð...

3.7 SIÐFÁR SLAUFAÐRA – Eyja M. Brynjarsdóttir 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Woke, réttlætisriddarar, pólitískur réttrúnaður og slaufunarmenning eru hugtök sem Eyja Margrét prófessor í heimspeki tengir við sem andspyrna við baráttuhreyfingar. Eyja er ein fárra fræðimanneskja sem hafa rannsakað slaufun og slaufunarmenningu. Við heimsækjum hugmyndir um slaufun, upplifum siðfár meintra gerenda og...

3.6: PENINGAR – Karen Áslaug og Halla Gunnarsdóttir 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: „Hvernig get ég orðið ríkur?“ spyr ég Kareni Áslaugu aðalhagfræðing Seðlabankans og bið Höllu Gunnarsdóttur formann VR um að útskýra verðbólgu eins og ég væri 12 ára, af því ég skil ekki peninga. En ég veit það þó að ég skulda meira í dag en fyrir nokkrum árum og það tengist einhvern veginn verðbólgu, vöxtum og vísitö...

3.5: ÚTLENDINGAR – Helen María Ólafsdóttir 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur, ferðamenn, útlendingar. Almennt virðist ekki gerður greinarmunur á hvers konar útlendingur þú ert — nema þú sért hvítur og ríkur en það er önnur umfjöllun. Í þessum þætti verður áhersla á hina meintu ógn sem stafar af útlendingum. Helen María Ólafsdóttir er sérfræðingur í þjó...

3.4: HUNDAFLAUT OG GELT – Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: „Í upphafi var orðið og orðið var Guð“, segir í Biblíunni. Í fræðilegri túlkun mætti segja að Biblían lýsi orðræðu og hvernig orð bera með sér merkingu. Enda eru orð til alls fyrst og þá hlýtur að skipta máli hvaða orð eru notuð til að byrja með. Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikafræðingur og femínískur braut...

3.3: HÆGRI, VINSTRI, SNÚ – Henry Alexander Henrysson heimspekingur 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:  Er hægt að fjalla um ólíka pólitíska hugmyndastrauma, eins og hægri eða vinstri, á hlutlægan hátt? Hvað erum við að tala um þegar við segjum öfga-hægri? Ýttu femínistar ungum drengjum inn í hægrið? Henry Alexander Henrysson útskýrir uppgang hægri hugmynda og færir rök fyrir því hvernig lýðræði er miklu meira en bara...

3.2: ALLSKYNS – Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar:   „Eru kynin bara tvö?“ er spurning á Vísindavefnum sem Arnar Pálsson líffræðingur svaraði í stuttu máli: „Nei“. Prófessorinn ætlar að útskýra líffræðilegan fjölbreytileika kyns og hversu ónákvæmt er að yfirfæra atferli dýra yfir á hegðun einstaklinga.   Viðmælandi: Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði   Tekið...

3.1: KYNJAFRÆÐI Í HÁSKÓLA ÍSLANDS – Finnborg Salome Steinþórsdóttir lektor við stjórnmálafræðideild 16.02.2026

Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar. Fáar fræðigreinar, ef nokkur, eru jafn mikið afbakaðar eins og kynjafræði. Hún er sögð vera pólitísk innræting, vinstri áróður, gervivísindi og heilaþvottur. Kynjafræði hefur verið sérstakt fag innan Háskóla Íslands í 30 ár og kennd sem skylda eða valfag í allmörgum framhaldsskólum. Við ætlum að leita svara við því hv...

Lokaþáttur - Leiðarlok hlaðvarpsins Karlmennskan 03.10.2024

Núna tel ég réttast að kveðja formlega hlaðvarpið Karlmennskan. Reyndar munu bakhjarlar sjá til þess að það verði áfram opið og aðgengilegt en ég mun ekki taka upp fleiri þætti. Það hefur verið afskaplega gaman að hitta og spjalla við svo margt frótt fólk með áhugaverða reynslu eða sjónarhorn á samfélagið. Markmiðið var alltaf að varpa ljósi á virkni feðraveldis í gegnum mismunandi birtingamyndir,...

S2:Þ2 Klám ruslar í kynheilbrigði 14.05.2024

Klám er oft fyrsta vísbending barna um kynlíf og jafnvel aðgengilegasta kynfræðslan sem þau fá. En klám er ekki kynfræðsla þótt það hafi áhrif á kynhegðun og hugmyndir barna og fullorðinna um kynlíf – með miður góðum afleiðingum. Kynferðisofbeldi, klámvæðingu hversdagsleikans, hlutgervingu kvenna og óraunhæfum útlitskröfum.  Í þessum þætti skoðum við áhrif kláms á einstaklinga í gegnum reynslu tve...

S2:Þ1 „Bókin seldist vel og konur voru þakklátar og líka fullt af körlum“ - Hulda Tölgyes og Haukur Bragason 07.04.2024

Þriðja vaktin – Jafnréttishandbók heimilisins kom út í lok nóvember í fyrra. Bókina skrifaði ég ásamt Huldu Tölgyes sálfræðingi og í nánu og góðu samstarfi við ritstjórann okkar, Hauk Bragason. Haukur hélt að hann þyrfti mest að passa að tóna okkur niður, passa að við værum ekki of róttæk, reið og stuðandi, en var í raun farinn að þurfa að tóna okkur upp.  Í þessum þætti gefum við innsýn í ferlið...

127. „Talaru íslensku?“ - Sara Cervantes 28.10.2023

Sara Cervantes er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum sem flutti til Íslands fyrir nokkrum árum. Sara gefur innsýn í reynsluheim einstaklings sem reynir að aðlagast íslensku samfélagi en mætir ýmsum kerfisbundnum hversdagslegum og formlegum hindrunum.  Við Sara hittumst fyrst á fræðslufundi á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var forréttindi og jaðarsetning. Innlegg Söru var svo áhrifamikið að ég...

126. „Held ég hafi akkúrat nægar áhyggjur af drengjum í skólakerfinu“ – Ingólfur Ásgeir Jóhannesson 21.09.2023

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands og hefur stundað rannsóknir á kennslukonum og kennslukörlum, rýnt í stöðu drengja í skólum og ásamt mörgu öðru skrifað bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi sem er brautryðjendaverk um karlmennsku og karlafræði.  Við stöldrum að mestu við nýlegar rannsóknir Ingólfs og félaga á nýbrautskráðum kenns...

125. „Stjörnur hrapa en kúkurinn flýtur“ - Dóri DNA (Halldór Laxness Halldórsson) 31.08.2023

Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, uppistandari og höfundur hefur komið víða við. Við höldum okkur þó á léttu nótunum eins og hægt er með áherslu á karlmennskuna, karllægni, gerendur og hliðverði dægurmenningar ungs fólks. Enda hafa mörg verka Halldórs skýra tengingu við karlmennsku eins og skáldverkið Kokkáll og sjónvarpsþættirnir Afturelding. Kryfjum aðeins baksvið sköpunarverkanna, persónul...

124 „Eins og það sé körlum ekki eðlislægt að sjá skít“ Ragnheiður Davíðsdóttir 19.06.2023

„Hægt og rólega verður mylsna á borði til misskiptingar, sem [hann] tekur jafnvel ekki eftir“, er lýsandi setning úr ritgerð Ragnheiðar Davíðsdóttur sem rannsakaði hugræna vinnu meðal íslenskra para í meistararaverkefni sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Líklega er þetta fyrsta íslenska rannsóknin sem mælir hugræna vinnu og niðurstöður eru í samræmi við reynslu sem ansi margar konur hafa lýst...

123. Þriðja vaktin - Q&A með Huldu Tölgyes og Þorsteini V. 10.06.2023

Þriðja vaktin brennur ennþá á konum, einkum þegar þær eru í samböndum með körlum. Enda sýna rannsóknir að það sé meiri vinna fyrir konu að eiga börn og heimili með karlkyns maka en vera einstæð móðir.    Hulda Tölgyes sálfræðingur og Þorsteinn tóku þennan þátt upp í beinni útsendingu á Instagram hjá Huldu @hulda.tolgyes. Förum við yfir spurningar sem okkur bárust, í aðdraganda þáttarins og útskýru...

Listen to the Karlmennskan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.